Tíminn - 05.02.1992, Síða 4

Tíminn - 05.02.1992, Síða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 5. febrúar 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYHDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gfslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Simi: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsímar: Áskríft og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Mikilvægt skref á langri leið A sameiginlegum fundi sjávarútvegs- og umhverf- isráðherra Norðurlanda í síðustu viku var lagður grunnur að sameiginlegri afstöðu Norðurland- anna til tillögu Nýsjálendinga um 10 ára hvalveiði- bann. Einnig var undirbúinn sameiginlegur mál- flutningur Norðurlandanna um hvalveiðimál á væntanlegri umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu. Þetta eru góð tíðindi og þáttaskil í umræðu um þessi mál á norrænum vettvangi. Það vekur sér- staka athygli varðandi þessa samráðsfundi að þeir eru haldnir að frumkvæði Umhverfisnefndar Norðurlandaráðs. Þannig getur ráðið gegnt veiga- miklu hlutverki í erfiðum málum sem upp koma. Til þessa hefur verið nokkur munur á afstöðu íslendinga, Dana og Norðmanna annars vegar og Svía og Finna hins vegar til nýtingar sjávarspen- dýra. Nú hefur hins vegar sú breyting orðið á af- stöðu Finna og Svía að þeir líta á sjávarspendýr sem endurnýjanlega auðlind sem nýta eigi að und- angengnum vísindalegum rannsóknum. Þó að langur vegur sé frá því að þessi mál séu í höfn, er þessi stefnubreyting afar mikilvæg. Sam- eiginleg afstaða Norðurlanda varðandi þessi mál á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna gjör- breytir aðstöðu okkar til málflutnings á þeim vett- vangi og gefur honum meiri þunga. Annar þáttur þessa máls er stofnun sjávarspen- dýraráðs þjóðanna við Norður-Atlantshaf, íslands, Færeyja, Noregs og Grænlands, en undirbúningur þess er nú kominn á fulla ferð. Stofnun þessa ráðs er afar brýn ef takast á að tryggja verndun og sam- eiginlega nýtingu sjávarspendýra á því hafsvæði sem milli þessara landa liggur. Hvalamálið" svokallaða er eitt af erfiðustu og viðkvæmustu milliríkjamálum sem íslendingar hafa átt við. Erfiðast viðureignar er að það er ekki rekið á rökum, heldur tilfinningum. Ekki hefur alltaf blásið byrlega fyrir íslendinga í þessu máli, en Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, hafði það móttó að gefast ekki upp þótt oft væri sterkur vindur í fangið. Það kom í hans hlut að hafa forystu í baráttunni, en margir ágætir samstarfsmenn komu þar einnig við sögu. Þessir menn misstu ekki sjónar af kjarn- anum í þessu máli sem er sá að hér er um endur- nýjanlega auðlind að ræða sem við höfum sem þjóð rétt til að nýta. Þessi þrautseigja er nú farin að skila sér því að sömu stefnu hefur verið fylgt eftir stjórnarskiptin. Nú liggur fyrir að vinna sig áfram skref fyrir skref, skapa samstöðu með öðrum þjóðum á norð- urhveli um þessa sameiginlegu hagsmuni. Mikil- vægt er að þjóðarsamstaða haldist áfram um þetta mál. Því aðeins vinnst sigur að lokum, en stefnu- breyting Svía og Finna er eitt skref á langri leið. Sá, sem tók peninga fyrir að vinna í íþróttum áður fyrr, var úr- skurðaður óbótamaður og dæmd- ur úr keppni, þótt allir vissu að keppnisíþróttir á stóra planinu eru fyrst og síðast gróðabrall. Spum- ingin er aðeins hvernig á að skipta og hver á að fá. Nú er það lyfjanotkunin sem ýmist gerir menn að afreksmönn- um eða dæmir af þeim affekin, þótt venjulegu fólki sýnist það gilda einu hvort menn verða hæfir til íþróttaiðkana af að þamba lýsi og éta hrútspunga eða éta steralyf og auka hormónavirkni. Fyrirmyndir? Vísindalegur úrskurður um sek- úndubrot eða yfirvegaður dómsúr- skurður um hvort leyfilegt sé að framlengja handboltaleik tvisvar sinnum og hvoru Iiðinu það sé f vil kemur heilbrigðri sál í hraustum líkama ekkert við. fþróttaauðvaldið notar fjölmiðl- ana eins og það eigi þá með húð og hári. Þeir búa til stjömur, goð og dýrlinga, sem hampað er og hoss- að f tíma og ótíma, og segja að þetta fólk eigi að vera fyrirmynd allra ungmenna í hvívetna. Svo eru þetta stundum upp- Skinhelgi keppninnar Hárfínar mælingar á hlandi úr Hjalta Árnasyni þar sem karl- mennskuhormón er fulllangt fyrir ofan meðallag verða til þess að hann er settur í keppnisbann, sviptur heimsmeistaratitlinum í kraftlyftingum og gert að skila gullpeningi sem hann hlaut fyrir afrek sín. Lyfjapróf þetta þykir sanna að Hjalti hafi tekið inn stera- lyf til að auka sér krafta og karlmennsku, og þótt hann hafi sýnt og sannað að hann var sterkastur keppinautanna, fær hann ekki að njóta sigurlaunanna, þar sem ekki er sama með hvaða hætti kraftarnir em fengnir. Hjalti Úrsus er ekki einn á báti, því óteljandi eru þeir afreksmenn sem staðnir hafa verið að lyfjatöku fyrir keppni til að ná hámarksár- angri. Grunur leikur á að fjöldi meist- ara í mörgum greinum hafi í gegn- um tíðina notið lyfjagjafa og eigi þeim að þakka frægð og frama. Dýrmætir kunnáttumenn Lífseigar eru sögusagnir um að best launuðu garparnir í íþrótta- heiminum séu þeir kunnáttu- menn, sem gefa afreksskammta af lyfjum án þess að þeir mælist við prófanir. Sé einhver fótur fyrir þessu, má gera ráð fyrir að margar dáðustu íþróttastjörnurnar séu eins konar gervifólk, sem gengur fyrir kröft- ugu eldsneyti sem vísindin leggja til. Heilbrigð sál í hraustum líkama voru eitt sinn gild einkunnarorð, þegar mannrækt var takmark í sjálfu sér. Nú er æðsta takmark íþrótta að vinna afrek eða láta vinna afrek, og er öllum gildum við snúið þegar keppnisíþróttir eru annars vegar. Að sigast á andstæðingi er tak- markið sem helgar öll meðöl, og röðun í gæðaflokka er tilgangur íþróttahreyfinga. Ómanneskjulegar æfingar og af- skræming líkamans og einbeiting sálarkraftanna að því eina marki að vera betri en allir hinir er það sem gefur frægð og auð. Faldar skuggahliðar Ólympíuhugsjónin birtist með- al annars í meira og minna farlama konum með ónýt liðbönd og liða- mót, sem eitt sinn voru dáðir meistarar fimleikanna. Litlar telp- ur og „efnilegar" eru mótaðar af þjálfurum til að vinna fyrir ætt- jörðina á alþjóðamótum. Litlu gladíatorarnir eru ekki annað en vélræn verkfæri þar til hjólastóll- inn verður athvarf þeirra, en við- bjóðslegir þjóðrembingar státa af stigatöflum frægðarferilsins. Skuggahliðar keppnisíþróttanna eru yfirleitt vel faldar, en þeim mun meira er látið með sigra og frægð, svo ekki sé talað um ríki- dæmi. Gífurlegar fjárfúlgur renna um greipar þeirra, sem keppnisíþrótt- um stjórna. íþróttir eru svo sann- arlega „big business" og undir- staða fjármálavelda. Upphæðir, sem afreksfólk eða fylltir eiturkroppar fá fyrir sprell sitt, gefa svolitla vísbendingu um hvílíkur fjármokstur íþróttir geta verið. Goðgá Tvískinnungur gagnvart íþrótt- um er hnattlægur. Einu sinni þótti mikil goðgá að hleypa svokölluð- um atvinnumönnum í heiðarlega keppni. Bísperrtar og kjánalegar ólymp- íunefndir úrskurðuðu út og suður um hverjir voru atvinnumenn og hverjir ekki, og voru mönnum dæmd verðlaun og dæmd af þeim verðlaun með tilliti til hvort þeir tóku peninga fyrir íþróttir sínar, en aðallega þó með hvaða hætti greiðslan fór fram. Nú fá allir borg- að fyrir ólympíupeninga og margir mikið. Nú á dögum sperra svipuð kjánaprik sig eins og hanar á haug og þrugla um gildi íþrótta og úr- skurða hvort of mikið sé af þessari eða hinni sortinni af lyfjum í afrek- skroppunum. pumpaðar eiturætur, ekki aðeins í keppni, heldur jafnvel vesælir fíkl- ar í frístundum sínum og engu skárri en fótboltabullurnar, sem iðka sínar íþróttir með sérstökum hætti og teljast ekki til tíðinda fyrr en fjöldamorð hafa verið framin á þeirra keppnisvöllum. Keppnisíþróttir á nær öllum sviðum snúast upp í and- hverfu hugsjónarinnar um hrausta sál í hraustum lík- ama. Mannrækt er forsmáð, en ræktun afreka er það sem allt snýst um og allt er lagt í sölumar fyrir. Besta afmælisgjöfín Ekki hefur alveg tekist að drepa niður hugmyndina um heilbrigða sál og hraustan líkama og tengja það íþróttaiðkunum með ofstækis- fullri keppnisdýrkun og þjálfun vélmenna. ÍSÍ gaf sjálfu sér bestu afmælis- gjöf, sem hugsast getur, nýlega. Það er að taka almenningsíþróttir upp á sína arma, gera alla að þátt- takendum í íþóttaiðkun með það sama að markmiði og ungmenna- félagarnir á morgni aldarinnar: að hlúa að mannrækt og byggja upp heilbrigða sál í hraustum líkama. Guð láti gott á vita. Sjálfsagt finnst mörgum að Hjalti Árnason hafi varpað skugga á íþróttarembuna, þegar úrskurð- urinn um lyfjaprófið féll. En það er óþarfi að álasa honum fyrir þann tvískinnung, sem gildir í öllum greinum keppnisíþrótta. Hann byggði upp krafta sína og þol með þeim ráðum sem best gefast, og hann sýndi að hann er fremstur meðal kraftlyftingamanna. Hjalti er leiksoppur skinhelg- innar sem ríkir í heimi keppninn- ar. Það er ekki sama hvort maður er svona sterkur eða hinsegin sterkur eða fljótur að hlaupa. Leik- reglurnar eru honum ekki í hag. Að minnsta kosti ekki þær regl- ur sem gilda í dag. En þær geta orðið breyttar á morgun, og þá heldur Úrsus fullum styrk. Að vera eða ekki vera..., þið skilj-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.