Tíminn - 05.02.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.02.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 5. febrúar 1992 Kynþáttahatari í Svíþjóð veldur miklu uppnámi með skottilræðum við fólk á götum úti: Skotið á menn af eriendum uppmna Frá Inga V. Jónassynl, fréttarltara Tfmans I Svfþjóð: Á annað hundrað lögreglumanna í Stokkhólmi vinna nú að rannsókn skottilræða sem ellefu menn af suðrænum uppruna hafa orðið fyrir á síðustu 6 mánuðum í Stokkhólmi og Uppsölum. Þann 3. ágúst sl. varð eþíópískur námsmaður fyrir skoti á götu úti í Stokkhólmi. Hann var sá fyrsti af fímm fóraalömbum sk. lazer- manns. Tilræðismaður þessi hefur ekki náðst og lögreglan hefur engar vísbendingar um hver hann gæti verið, aðrar en ófullkomna lýsingu tveggj'a vitna á því hveraig hann lít- ur út. Nafnið lazer-maðurinn hefur hann fengið vegna þess vopns sem hann notar, sem er .22 cal riffill með laz- er-sigti. Við notkun lazer-sigtis er lazer-geisli sendur út frá sigtinu og við það myndast rauður blettur á þeim fleti sem miðað er á. Fjögur fyrstu fórnarlömbin sáu öll rauða ljósdepla á fötum sínum rétt áður en skotið reið af. Hið fimmta í röðinni, íranskur námsmaður, lést af völdum skots í höfuðið þann 8. nóvember. Eftir það hefur lazer-maðurinn ekki látið á sér kræla. Þann 22. janúar síðastliðinn, var chileanskur maður, sem var í fylgd unnustu sinnar, skot- inn í höfúðið þar sem hann var á gangi úti á götu í Uppsölum. Tilræð- ismaðurinn var grímuklæddur og vopnaður skammbyssu. Daginn eftir voru þrír menn af erlendum upp- runa skotnir í höfuðið í Stokkhólmi með skammbyssu af grímuklædd- um manni. Tæpri viku síðar var lík- lega sami grímuklæddi maðurinn á ferð og skaut þá tyrkneskan verslun- armann í höfuðið og einum degi síð- ar, þann 30. janúar, varð palestínsk- ur verslunarmaður fyrir barðinu á þessum illvirkja. Alls eru fórnar- Íömb hans nú orðin sex að tölu, en ekkert þeirra hefur látist þó ástand hinna tveggja síðastnefndu sé talið mjög alvarlegt. Getgátur eru uppi um að lazermaðurinn og grímu- maðurinn séu einn og sami maður- inn. Frá Stokkhólmi. Aðferðirnar eru hinar sömu, þ.e.a.s. að fórnarlambið hefur í öli skiptin verið karlmaður af erlendum uppruna sem er skotinn á almanna færi. í öllu tilvikum hefur þetta gerst án nokkurrar viðvörunar og í níu af alls 11 tilfellum hefur skotinu verið beint að höfði fórnarlambsins með þeim augljósa tilgangi að deyða. Sem fyrr segir vinnur fjöldi lögreglumanna að rannsókn þessara mála en án árangurs enn sem komið er. Það er þó talið liggja ljóst fyrir að kynþáttahatur liggur að baki ill- virkjum þessum og að tilræðis- mennirnir eru ekki fleiri en tveir. Nú hefur sænska ríkisstjórnin lofað 10 milljónum ísl. kr. fyrir upplýsing- ar sem kunna að leiða til handtöku hins seka eða seku. þýðusambandsins og vinnuveitenda hittast á sínum fyrsta formlega samningafundi í þessari lotu. Ýmis sameiginleg stærri mál skilst Garra að muni vera á dagskrá, þó sérmál cinstakra sambanda og félaga muni áfram verða rædd samhliða. Svo bcr þó við í upphafi heildarsamn- inga aðila vinnumaricaðarins að at- hyglin beinist ekki síður að rikis- stjórninni heldur en aðilum hins al- menna vinnumarkaðar. Ástæðan er sú að Alþýðusambandið hefur lýst því yfir, að ekki komi til greina að gera kjarasamninga nema ríkis- sljómin bakki með eitthvað af þeim aðgerðum, sem hún hefur boðað og lögfest í Bandorminum svokallaða. Þetta hefúr hvað eftir annað komið fram í viðtölum við Ásmund Stef- ánsson, forseta ASÍ, bæði hér í Tfmanum og nú siðast í Morgun- blaðinu í gær. ASÍ vill breytingar Raunar segir ASÍ-forsetinn í Morgunblaðsviðtalinu að það sé spuming hvort það muni duga að ríkisstjómin geri breytingar á Band- orminum, þvf inn- an raða ASÍ séu ýmsir á þeirri skoð- un að aðlÖr stjóm- valda að velferð og hagsmunum al- mennra launamanna sé svo mlkil að aUt verði að ganga til baka. Standi ASÍ við stóru orðln og lypp- ist ekld niður undan þeirri ábyrgð, sem í þeim felst, verður ekki annað séð en að ríkissfjóm Davíðs Odds- sonar þurfi að setja f bakk-gírinn mjög fljótlcga. Það kcmur líka fram í áðuraefndu Morgunblaðsviðtali við Ásmund Stefánsson að hann fagnar viövör- unarorðum Morgunblaðsins í Ieið- ara um helgina. Það gera raunar fleiri en Ásmund- ur, og leiðarahöf- undur Tímans gerir því skóna í gær að skrifin beri þess vott að vond samviska sé nú farin að naga aftur- halds- og niðurrífsöflin í þjóðfclag- inu. Þegar Morgunblaðið sjálft, ein af áhrifameiri klíkunum f Sjálf- stæöisflokknum, er farið að vara ríkLsstjómina við offorsinu, er ástæða til að ætla að ríkisstjóm Davíðs Oddssonar íhugi að réttast sé að setja f bakk-gfrinn fljótlega. Kjósendur vilja breytingar DV birti skoðanakönnun f vikunni þar sem í Ijós kom að ríkisstjómin hefur aldrei átt minna fylgi að fagna en einmitt nú. Að vísu á þessi rikis- stjórn ekki ennþá metið í óvinsæld- um — það á síðasta rildsstjórn — en það stefnir f met Það, sem gerir þessar óvinsældlr enn alvariegri, er að núverandi rikisstjóra á ekki við að gh'ma þann meirihlutavanda sem oDi sfðustu ríkisstjóm mikhnn erf- iðleikum og talsveröum óvinsæld- um. Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar er nú í frjálsu falli hvað fylgið varð- ar, og ætla verður að stjómin reyni hvað hún getur til að draga úr þvf falli. í því skyni hlýtur hún að íhuga að setja í bakk-gírinn fljótlega. Þjóðfélagslegt stórsíys? Hitt er svo annað mál að stjóraar- stefnan eins og hún leggur sig byggir á því að menn setji ekki í bakk-gírínn. Þvert á mótl er það stefna rítdsstjómarinnar að ana áfram, vaða yflr velferðaricerfið á skítugum skónum, helst á fullu gasi og í fjórða gtr. Það gætí því reynst erfitt fyrir sjálfsvirðingu stjómarinnar að snúa við og bakka með samþykktir sínar. Það er samt eina leiðin, ef forða á þjóðfélagslegu stórslysi. Stóra stopp er framund- an, ef ekkert gerist á vinnumarkaði og engir samningar nást með friði. Fjöldaatvinnuleysi blasir við vegna niðurskurðar og skorts á atvinnu- málastefnu. Og því má slá fostu að óvinsældametið verði ömgglega fallið í næstu skoðanakönnun DV, ef fram heldur sem horfir. Á cndan- um situr svo ríkisstjóm Davíðs Oddssonar ofan á þjóðfélagsrúst- unum og flokkar það sem fortíðar- vanda að hafa ddd sett í bakk-gtr- hm í tæka tfð. Garri Caracas — Stjórnvöld í Venesúela hafa afnumið stjórnarskrárákvæði um mannhelgi í bili vegna tilraunar til að velta Carlos Andres forseta landsins úr sessi f hallarbyltingu. Stjórnin greip til þessara úrræða að því er virðist til þess að þæla niður það sem eftir kann að vera af liði uppreisnaraflanna og hugsanleg uppþot meðal almennings. Sögur hafa verið á kreiki um árásir og rán í verslunum. Heimildir innan hersins segja að uppreisnar- menn hafi gefist upp í höfuð- borginni. (Washington hefur Bush forseti fordæmt upreisn- artilraunina og kveður Banda- ríkin munu stuðla með öllum ráðum að lýðræðislegri þróun hvar sem er í Vesturálfu. Hong Kong — Tuttugu og einn vietnamskur flóttamaður í einangrunarbúðum flótta- manna í Hong Kong fórst í gærdag er aðrir íbúar búðanna kveiktu í skýli þeirra. Hér á meðal voru fimm börn. Moskva — Rússnesk dag- blöð hafa nú að nýju hert gagnrýni á efnhagsráðstafanir stjórnvalda. Læknir nokkur lýs- ir því yfir að minnkandi neysla eggjahvítuefnaríkrar fæðu kunni fýrr en varir að leiða til skelfilegs ástands (heilbrigðis- málum. Moskva — Rússar hafa ekki fjármagn ti! þess að viðhalda né eyða vopnum í hinu mikla kjamavopnabúri sinu. Einn reyndari vopnahönuða þeirra segir að þetta kunni að leiða til ósjálfráðra sprenginga og fleiri stórslysa. Bonn — Forseti Ukrainu, Leonid Kravachuk, hefur fullvissað Þjóðverja um að hið nýfrjálsa ríki hans vinni í einlægni að útrýmingu kjarna- vopna og að allt verði gert til þess að vísindamenn í landinu selji þekkingu sína útlending- um. Belgrad — Fast er lagt að leiðtogum Serba í Króatíu að þeir fallist á friðaráætlanir SÞ varðandi júgóslavnesk málefni. Heimildir innan SÞ herma hins vegar að ekkert bendi til að samkomulag sé í nánd um skipan friðargæslu á þessu svæði. Gormec, Tyrklandi — Björgunarsveitir er grafa í hörðum snjó eftir fólki er kynni að hafa lifað af snjóflóð í suðausturhluta Tyrklands um helgina hafa gefið upp alla von um að finna lífs einhverja þeirra 170 manna ertýndust. Bagdad — frakar segja að viðskiptabann á landiö eftir Persaflóastríðið hafi orsaka dauða um hundrað þúsund manna, einkum ungra barna. Belfast — Þrír voru drepnir á skrifstofu Sinn Fein í Belfast í gær, en Sinn Fein er stjóm- málaarmur IRA. Tveir menn, vopnaöir riffli og skammbyssu, komust inn á skrifstofuna og hófu óðara skothríð. Lögregla hafði átt von á hefndaraðgerð- um eftir að IRA menn drápu fimm verkamenn úr hópi mótmælenda í síðasta mánuði. Árásin er gerð meðan yfir stendur heimsókn Mary Robinson, forseta írlands, til Belfast.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.