Tíminn - 12.03.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 12. mars 1992
Sjúkraiúiuim fyrir
aldraða hefur
fækkað um 53
Vegna sparnaðaraðgeröa í heilbrígðismálum hefur sjúkrarúmum
fyrir aldraða sjúklinga fækkað um 53 á höfuðborgarsvæðinu. B-6
deild Borgarspítalans var lokað í lok síðasta árs, fækkað var um sjö
rúm á B-4 deild spítalans og áformað er að loka Hvítabandinu. Þetta
kom fram á Alþingi í spurningu sem Ingibjörg Pálmadóttir alþing-
ismaður beindi til heilbrígðisráðherra en hún spurði ráðherrann
hveraig brugðist yrði við þessu.
Sighvatur sagði að B-6 álmunni
hefði verið lokað vegna þess að ekki
hefðu fengist hjúkrunarfræðingar
til starfa en ekki vegna sparnaðarað-
gerða. Hann sagðist vonast eftir að
auðveldara verði að fá hjúkrunar-
fræðinga til starfa á næstunni þann-
ig að hægt verði að opna deildina að
nyju.
I spamaðartillögum stjórnar Borg-
arspítala frá 28. janúar kemur fram
að spítalinn gerir ráð fyrir að B-6
deildin verði lokuð til 1. september
1992 og að það spari 20 milljónir. Þá
er gert ráð fyrir að legudeild á Hvíta-
bandinu verði flutt á Grensás,
Heilsuvemdarstöð og á aðrar deild-
ir. Starfsemi í Templarahöll verði
síðan flutt í Hvítabandið. Þetta á að
spara 35 milljónir.
Sighvatur sagði í svarinu að með
sameiningu Borgarspítala og Landa-
kotsspítala hefði verið stefnt að því
að fjölga hjúkmnarrúmum fyrir
aldraða um 50. Hann sagðist vona
að hjúkmnarrúmum fyrir aldraða á
höfuðborgarsvæðinu muni fjölga en
ekki fækka í framtíðinni. Sighvatur
fór ekki nánar út í hvernig þetta
myndi gerast eftir að ljóst er að ekk-
ert verður af sameiningu Borgar-
spítala og Landakots.
Ingibjörg sagði ráðherra koma sér
undan því að svara spurningu sir.ni,
sem sé hvert þeir sjúklingar sem
verða að fara af sjúkrahúsunum
vegna lokana eigi að fara.
Ingibjörg spurði einnig hvort St.
Leiðrétting
Rangt var með farið í blaðinu í gær
að Bjami Einarsson sé formaður
Samstöðu. Réttara er aö hann situr í
stjóm samtakanna. Formaður er
hins vegar Kristín Einarsdóttir al-
þingiskona.
Jósefsspítali í Hafnarfirði komi til
með að geta tekið við sjúklingum til
hvfidarinnlagna í sumar. Heilbrigð-
isráðherra svaraði því til að hann
vonaði að þjónusta St. Jósefsspítal-
ans í Hafnarfirði verði góð hér eftir
sem hingað til og spítalinn eigi góða
framtíð fyrir höndum. -EÓ
gær var haldinn „Heilbrigðisdagur Ijósvakamiðlanna" og var hann helgaður áfengi og þjóðfélaginu
og var ætlunin að leggja áherslu á að kynna ýmsar hliðar áfengismála með það fyrir augum að gera
grein fyrir áhrifum áfengisneyslu á íslenskt þjóðfélag og þegna þess. Á meðfylgjandi mynd má sjá að-
standendur verkefnisins á kynningarfundi sem haldinn var í fyrradag. Frá vinstri: Ólafur HaukurÁrna-
son, Lovísa Óladóttir, Páll Sigurðsson, Árni Einarsson, Sighvatur Björgvinsson, Elva Björk Gunnars-
dóttir, Ólafur Ólafsson, Jónas Ragnarsson, Björn Magnússon, Jón K. Guðbergsson, Helgi Seljan og
Bogi Arnar Finnbogason. Tímamynd Ami Bjama
BSRB og Kl hafa lagt fram kröfur um að ríkisstjórnin falli frá aðgerðum sínum í velferðarmál-
um, persónuafsláttur verði hækkaður og tekinn verði upp fjármagnsskattur:
BSRB og Kl vilja reka
stjómina á byijunavreit
BSRB og Kennarasamband íslands kynntu ríkisstjóminni í gær
áhersluatriði sín í efnahags- og velferðarmálum. Þar er þess m.a.
krafist að horfið verði frá skerðingu baraabóta, tekjutengingu
grunnlífeyris, gjaldtöku fyrír komu til læknis og á heilsugæslu-
stöðvar og skerðingu á kennslumagni í grunnskólum. Þá er þess
krafist að tekinn verði upp fjármagnsskattur, persónuafsláttur verði
hækkaður, foreldrar eigi kost á að nýta persónuafslátt baraa sinna
sem búa heima og vextir hækki ekki í félagslega húsnæðiskerfinu
„Flestar þær ráðstafanir sem stjórn-
völd hafa gripið til hafa verið í
skerðingarátt. Fólk vill nú samein-
ast um það að snúa þessari óheilla-
þróun við,“ sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, eftir fundinn
með ríkisstjórninni. Hann sagði að á
fundinum hefðu báðir aðilar kynnt
sín sjónarmið. Ríkisstjórnin hefði
hins vegar ekki tekið afstöðu til-
lagna samtakanna.
BSRB og KÍ vilja að ríkisstjórnin
stuðli að minna atvinnuleysi, en það
er nú 2,8% í samanburði við 1,8% á
sama tíma í fyrra. Bent er á að sam-
hengi sé milli hárra vaxta og at-
vinnuleysis. Krafist er verulegrar
vaxtalækkunar, en jafnframt ítrekað
að vextir eigi að lækka óháð öllum
kjarasamningum.
Ozzie Osborne kemur ekki til Islands í haust til að halda tónleika, en tónleika-
haldarar brugðust skjótt við og hafa fengið aðra þungarokkshljómsveit í stað-
Ozzie kemur ekki
Nú er ljóst að Ozzie Osbome, þungarokkarinn ægilegi, kemur ekki hing-
að til lands tíl að halda fyrirhugaða tónleika á Akranesi. Auknar kaup-
kröfur eru ástæðan, en kröfur kappans hækkuðu úr þremur milljónum
upp í sex milljónir á skömmum tíma. Þetta gátu tónleikahaldarar ekki
sætt sig við og fengu því í staðinn aðra þungarokkshljómsveit, Black
Sabbath, með söngvarann Ronnie James Dio, tíl að halda tónleika og eru
tónleikahaldarar bjartsýnir á framhaldið.
,JvIálið var að það tvöfölduðust kaup-
kröfúr á mjög skömmum tíma. Við
vorum búnir að teygja okkur vem-
lega til móts við hann, langt umfram
það sem við ætluðum okkur. Svo
þegar það kom viðbót ofan á það, þá
sögðum við: Nei hingað og ekki
lengra," sagði Sigurður Sverrisson,
einn aðstandenda tónleikanna. Upp-
haflega var ætlunin var að Ozzie Os-
bome fengi um þrjár milljónir króna
fyrir tónleikana, en þegar upp úr
slitnaði vildi Ozzie fá sex milljónir
króna sem aðstandendum tónleik-
anna fannst eins og áður sagði allt of
hátt Að sögn Sigurðar kom þetta
þeim á óvart þar sem þeir töldu sig
hafa samninginn nánast kláran. Það
átti einungis eftir að skrifa undir. Það
var því bmgðist skjótt við og var feng-
in önnur hljómsveit í staðinn, Black
Sabbath, en Ozzie Osbome var á ár-
um áður meðlimur í þeirri hljóm-
sveit, en hún hefur nú fengið sinn
gamla söngvara, Ronnie James Dio,
til liðs við sig, en hann leysti einmitt
Ozzie af hólmi þegar hann hætti í
Black Sabbath á sínum tíma. „Þeir
fást á þeim nótum sem við vomm að
tala um upphaflega, eða á þrjár millj-
ónir króna, þannig að við létum slag
standa. Við skrifuðum undir samn-
inga, bæði við Jethro Tull og Black
Sabbath síðastliðin mánudag, en þá
kom hér umboðsmaður hlómsveit-
anna til íslands frá Bretlandi. Þetta er
því afgreitt mál og er alveg á hreinu,"
sagði Sigurður Sverrisson. Sigurður
segir það tilfinningu sína að Sabbath
og Dio séu ekki síður þekkt nöfn hér
á landi en Ozzie Osbome, þó hann sé
kannski villtari karakter sé Dio miklu
betri söngvari. .Auðvitað er maður
dálítið vonsvikinn yfir að Ozzie kem-
ur ekki, en ég held að með komu
Black Sabbath komust við eins ná-
lægt Ozzie og hægt er. Black Sabbath
er nú ekkert slor, því ég var að skoða
bandarískt rokktímarit út í bókabúð
og þar var lesendakönnun yfir 20
bestu þungarokksplötur allra tíma og
þar er í fyrsta sæti Black Sabbath, á
undan Deep Purple, Led Zeppelin og
öllum þessum frægu hljómsveitum."
Sú breyting hefur orðið á að tónleik-
unum seinkar um þrjár vikur og
verða því dagana 25.-26. september
og er það vegna þess að það var eini
tíminn sem Jethro Tull gat komið á.
Forsala aðgöngumiða hefst strax eftir
páska og verður miðaverð fyrir þá
sem kaupa miða fyrir 1. júní 3400
krónur. Eftir það kostar miðinn 3900.
Sigurður lagði áherslu á að einungis
kæmust inn í íþróttahúsið um 2500
manns á hvora tónleika og því væri
öruggara að verða sér úti um miða
fljótlega. -PS
ÖgmundurJónasson
Bent er á að niðurskurðarstefna
ríkisstjórnarinnar leiöi fyrst og
fremst til lélegri þjónustu og aukins
atvinnuleysis. Varað er við skamm-
tíma- og langtímaafleiðingum nið-
urskurðar af þessu tagi og krafist að
snúið verði af þeirri braut sem nú
hefur verið mörkuð. Orörétt segir:
„Nú þegar hefur það sýnt sig að nið-
urskurður sá sem ákveðinn hefur
verið skilar ekki því fjármagni sem
ætlað var. Þó sjálfsagt sé að gæta
allrar hagkvæmni í rekstri þjóðfé-
lagsins verður að gera greinarmun á
eðlilegum sparnaði og niðurskurði á
mikilvægum og nauðsynlegum
þjónustuliðum."
Varað er alvarlega við einkavæð-
ingu ríkisstofnana sem gegna þjón-
ustuhlutverki við almenning og
minnt á slæma reynslu erlendis af
þjónustu einkarekinna einokunar-
stofnana.
Settar eru fram kröfur í heilbrigð-
is- og tryggingamálum undir kjör-
orðinu „Heilsugæsla á að vera sjúk-
lingum að kostnaöarlausu". Þess er
krafist að koma á heilsugæslustöð
og/eða til heimilislæknis og sjúkra-
lega verði öllum að kostnaðarlausu.
Krafa er sett fram um að greiðslur
fyrir krabbameinsleit verði felldar
niður á heilsugæslustöðvum, hjá
heimilislækni og í leitarstöð. Enn-
fremur að hámarksgreiðsla vegna
læknis- og heilsugæsluþjónustu
verði einnig látin taka til greiðslna
vegna lyfja. Þá vilja BSRB og KÍ að
skref verði stigið til að lækka tann-
læknakostnað enn frekar og ríkið
endurgreiði 5% af tannlækniskostn-
aði fullorðinna og 95% af tann-
læknakostnaði barna. Hjálpartæki
verði þeim sem á þurfa að halda að
kostnaðarlausu og tekjutenging
grunnlífeyris verði afnumin.
í skattamálum vilja félögin að
komið verði á skatti á fjármagns-
tekjur sem skili sér í ríkissjóð frá og
með næsta fjárlagaári. Talið er að
þetta geti skilað 2,5 milljörðum í
rfkissjóð. Þess er krafist að skattaaf-
sláttur vegna hlutabréfakaupa verði
afnuminn. Persónuafsláttur verði
framreiknaður miðað við lánskjara-
vísitölu á síðasta ári og foreldrar eigi
þess kost að nýta ónýttan persónuaf-
slátt barna sinna sem búa heima.
Hætt verði tvísköttun lífeyrissjóðs-
greiðslna. Tekjuskattur verði nýttur
til tekjujöfnunar og fullar barna-
bætur tryggðar.
í húsnæðismálum vilja samtökin
að tryggt verði að engar vaxtahækk-
anir eigi sér stað í félagslega kerf-
inu. Framboð á leiguhúsnæði og
kaupleiguíbúðum verði aukið og
húsnæðisbótum verði komið á til
jöfnunar húsnæðiskostnaðar leigj-
enda samsvarandi þeim vaxtabótum
sem húseigendur fá. Ákvæðum um
vaxtabætur verði ekki breytt og
komið verði á húsnæðisbótum eða
annarri aðstoð við þá sem eru að
kaupa húsnæði í fyrsta sinn.
í skólamálum vilja samtökin að all-
ir nemendur leikskóla, grunnskóla
og framhaldsskóla eigi að hafa jafna
möguleika til náms og þroska sér að
kostnaðarlausu. Öll böm eigi rétt til
leikskóladvalar, óháð búsetu og
þjóðfélagsstöðu foreldra, sbr. nýsam-
þykkt leikskólalög. Samtökin vilja að
kennslumagn og námsframboð verði
ekki minnkað frá því sem það er í
dag í grunnskólum og framhalds-
skólum. Skólagjöld á háskóiastigi
verði ekki hækkuð frá því sem verið
hefur og námslán ekki skert Þá vilja
samtökin að ákvæði grunnskólalaga
um nemendafjölda í bekkjardeildum
á árinu 1993 taki gildi og að í fram-
haldsskólum verði námshópar aldrei
of fjölmennir. -EÓ