Tíminn - 12.03.1992, Qupperneq 4

Tíminn - 12.03.1992, Qupperneq 4
4 Tíminn Fimmtudagur 12. mars 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur ÓÍafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Frumvarp sem eykur ójöfnuð Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um jöfnun á flutn- ingskostnaði olíuvara sem felur það í sér að flutnings- jöfnun á olíuvörum er afnumin sem nemur 40%. Það er ljóst að áhrif þessa frumvarps, ef að lögum verður, munu bitna á hinum dreifðu byggðum víðs vegar um land. Þetta mál er eitt af mörgum, sem nú eru á döfinni, sem auka aðstöðumuninn í landinu í stað þess að minnka hann. Vöruverð úti á landi er verulega hærra en á höfuð- borgarsvæðinu. Þar kemur margt til, meðal annars flutningskostnaður, sem ríkið hefur með síðustu ráð- stöfunum skattlagt í auknum mæli. Lítill markaður gerir dreifbýlisversluninni örðugt að njóta þeirra kjara sem stórmarkaðir í höfuðborginni fá á sínum inn- kaupum. Frumvarpið um olíuvörurnar vegur enn í þennan knérunn. Afnám flutningsjöfnunar á olíuvörum að hluta, stóð í einhverjum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Þeir fengu að launum að vera kallaðir steinaldarmenn eða eitthvað álíka í Morgunblaðinu og DV. Hins vegar hef- ur komið í ljós að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sameinaðist um það snjallræði að hvert olíufélag jafn- aði verð á sínum útsölustöðum. Það kom fram í um- ræðum á Alþingi að þetta ákvæði er algjörlega gagns- laust og vandalaust er íyrir olíufélögin að fara framhjá því, eða loka útsölustöðum í dreifbýlinu ella. Það kom einnig skýrt fram að forustumennirnir í Jafnaðarmannaflokki íslands hafa engar áhyggjur af þeim ójöfnuði, sem þetta og fleiri slfkar sendingar valda. Gert er ráð fyrir að olíuvörur verði flutningsjafnaðar á hafnir landsins, og eru hafnirnar taldar upp í upp- kasti að reglugerð sem fylgir frumvarpinu. Það kemur í ljós, svo dæmi séu nefnd, að engin flutningsjöfnun er á olíuvörum á svæðinu frá Þorlákshöfn til Hafnar í Hornafirði. Þetta er aðeins eitt dæmi um þá mismun- un, sem í frumvarpinu felst. Það hafa orðið miklar breytingar á innflutningi olíu- vara og verðmyndun þeirra. Þessar breytingar þurfa ekki nauðsynlega að hafa það í för með sér að flutn- ingsjöfnun sé afnumin. Þá agnúa, sem eru á núverandi kerfi, ætti að vera auðvelt að laga án þess að auka stór- lega á aðstöðumun þjóðfélagsþegnanna. Frumvarpið gerir ráð fyrir að olíufélögunum sé heimilt að láta fara fram útboð á olíuvörum til stórnotenda. Auðvitað þarf þetta ekki að vera bundið því að afnema flutningsjöfn- unina. Það er einkum útgerðin, sem hefur gagnrýnt það að fá ekki nægjanlega góð kjör á olíuvörum, og það eru vissulega til leiðir til þess að mæta þeirri kröfu. Ef flutningsjöfnunin er minnkuð, er þó lágmark að hún nái til þeirra staða sem teljast helstu verslunar- staðir, en hún sé ekki eingöngu bundin við hafnir eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Með því er þó dregið úr sárasta broddinum fyrir dreifbýlið. Siðavandir hrossabrestir SK1I8 Ml IVIUBBOI BPPlfSllt.Uli 8H SÍLKRLRNBRFEROtR ÞbÓ gata orðíð þér dýfk*ypt l«oöi» tnlnnft ð hsepnAf toiiyfftingar i augtvaíngum ffó Samvíonu- fafðufivUndayn urn ,88möa.uíl»gfif förðíf"A Iflagata varftí. Áður «n þú tafeur ákvofftun um sftl8flBr.dal«rftina i ár skaitu bofS saman ierftíf hja Clfvnli litsýn annars, vogar og hjá Samvinnufeföum-latidsýfi Wn» vagar Að reyna að finna lœgra verð en hjá SL er eins og að leita að krœkiberi í ... FUNDARLAU Þorgeir Þorgeirsson skáld lýsti ný- verið í blaðaviðtali hvaða áhrif for- lag, sem gaf út bók eftir hann, hafði með æðisgenginni sölu- mennsku: „’Ég haíði allan tímann á tilfinningunni að verið væri að kynna eitthvað, sem ekki var fyrir hendi, einhverja bók sem ég hafði aldrei skrifað." Þorgeir kvað svo fast að orði að sala af þessu tagi gæti orðið höf- undi og bók banvæn, að auglýsin- gagnýrinn væri til þess fallinn að rjúfa tengsl milli höfúndar og les- enda. Um skeið hefur Þorgeir gefið út sínar bækur sjálfur og þykir ekki mikils í misst þótt gauragangur auglýsingamennskunnar standi ekki milli forleggjara og kaupanda né höfundar og lesenda. Þorgeir Þorgeirsson kemur þama að efni sem verið hefur nær tabú í fjölmiðlafárinu, sem gengur fyrir gný auglýsingastofa en í hvítum húsum og hjá misjafnlega góðu fólki ákveða skallauppar hvaða fjölmiðlar eru á vetur setjandi og hverjir fá ekki að tóra. Þeir stjóma líka hvað bækur hafa sér til ágætis og hvaða bækur á að kaupa og hverjar ekki. Við gúrúa auglýsingaglaumsins deila fjölmiðlar ekki, en híma með betlistaf við fótskör þeirra til að sníkja auglýsingar, aðallega frá rík- isstofnunum, og það undarlega er að flestar em þær birtar í hinum feiknaöfluga skemmti- og upplýs- ingamiðli ríkisins, sem ekki á neina hliðstæðu að mikilleika síð- an óreiðan tók við af alræðinu í austurvegi. Svona skiptir rikið við ríkið með milligöngu einkaframtaksins í auglýsingagerð. Sök og gagnsök Upp er komin sú staða að alþjóð veit að auglýsingastofur em siða- vandar. Þær eiga sér siðadómstól og eru famar að skjóta þangað málum. Stór auglýsingastofa hefur kært aðra stóra auglýsingastofu fyrir siðgæðisbrot og hefur kærða aug- lýsingastofan líka kært hina aug- lýsingastofuna fyrir siðleysi. Stendur nú siðadómstóll auglýs- ingagnýsins með kæru og gagnkæm í höndunum og eru ákærendur og sakbom- ingar hinir sömu og í kross. Sakarefni eru svipuð. Stof- umar ákæra hver aðra fyrir aug- lýsingafals og auglýsinga- og hug- myndaþjófnað. Falsið og þjófnaðurinn á báða bóga fer hvergi leynt, því það er eðli auglýsingaskmmsins að gapa og veina á torgum. Ríkisfjölmiðillinn mikli og Morg- unblaðið em sjálfkjörinn vett- vangur fyrir boðskapinn. Fá bæði vænan skilding fyrir að birta meinta lygi, rógburð og fals. En hvað er ekki gert fyrír pen- inga? Hugsuðir skrumsins Stærstu ferðaskrifstofur landsins eru bæði gerendur og þolendur í siðgæðisstríðinu mikla og for- stjórar þeirra beinir þátttakendur í gríninu. Allt gengur húllumhæið út á það, að sýna og sanna að hvor ferða- skrifstofan um sig bjóði lægri far- gjöld í pakkaferðum hingað og þangað. Hugsuðir auglýsingaskrumsins upphugsa alls kyns svívirðingar og ávirðingar, sem ferðaskrifstofum- ar láta dynja hver á annarri í rán- dýrum auglýsingum. Fyrir þetta borga fyrirtæki al- þýðusamtaka og samvinnuhreyf- ingar og fyrirtæki, sem meðal ann- ars almannahlutafélög eiga hlut að, stórfé. í algleymi auglýsingaskmmsins er því komið inn í fréttir að fimm hundruð til þúsund manns panti pakkaferðir á degi hverjum. Er ekki annað sýnna en að auka þurfi flugflotann og leiguflugin marg- faldlega, ef sinna á þeim mikla markaði sem orðinn er til í kollum siðgæðispostulanna hjá auglýs- ingastofúm og ferðaskrifstofum. Hinn er dýrari Maður getur spurt hvaða tilgangi svona gassagangur þjónar? Eðli- lega fást engin svör. Hvað sem velsæminu líður, er greinilegt að pótintátar ferðasölu og auglýsingasölu höfða ekki til neinna kaupenda með svona fram- ferði. Ætla mætti að siðavandar auglýs- ingastofur ráðlegðu viðskiptavin- um sínum að höfða til sem flestra væntanlegra ferðalanga og fá þá til að kaupa flugfar og gistingu hjá sér. Nei, heldur velja þeir að út- húða keppinautunum og bera þeim á brýn auglýsingafals og lyg- ar. Hinir siðavöndu eru ekki að aug- lýsa að ferðimar séu tiltakanlega ódýrar, heldur aðeins hitt að keppinauturinn sé dýrseldari. Sönnun fyrir staðhæfingunum er ekki lögð fram, en boðið er upp á asnalega samkvæmisleiki þar sem væntanlegir ferðalangar eiga að bera saman verð í skæmm glanspésum og em fúllir upp með skmm og hálfsagðar sögur. Hömluleysi Enn skal vitnað í skarplegar skoð- anir Þorgeirs Þorgeirssonar um auglýsingagnýinn: „Og ég sé ekki betur en útgefendur stefni nú í banvænar ógöngur, þeir nota aug- lýsingamar eins og „dópist- ar“ nota eiturlyf — hömlu- laust...“ Auglýsingastríð ferðasölu- manna og auglýsingasölu- manna er hömlulaust Markmiðið er ekki að auglýsa ódýra þjónustu, heldur em fýrirtækin eða þeir, sem halda um stjórnvölinn, að ná sér niðri hver á öðmm. Karpið um keisarans skegg er orðið „ven- detta", hefnd og gagnhefnd. Þegar kappamir em orðnir móð- ir að berja hver á öðmm, leita þeir skjóls og úrlausnar hjá furðufyrir- bæri, sem þeir hafa sjálfir skapað, einhverjum siðadómstóli sem á að skera úr um hvorir segja minna satt og hvor er lítillátari þjófur. En þeir sem öllu auglýsingafár- inu er beint að, viðskiptavinimir sem biðlað er til, em engu nær um hverjir okra meira eða minna á pakkaferðum suður um höfin. Hins vegar gæti ferðaskrifstofum sem öðmm reynst vel að veita rétt- ar upplýsingar með siðlegum hætti án þeirra hrossabresta, sem halda að gnýrinn einn veki nauð- synlega athygli. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.