Tíminn - 20.03.1992, Side 1
Föstudagur
20. mars 1992
57. tbl. 76. árg.
VERÐ I LAUSASÖLU
KR. 110.-
Heitt vatn lak um verksmiðjuhús Delta
í Hafnarfirði:
Milljónatjón í
lyfjaverksmiöju
Milljónatjón varö í lyfjaverksmiðjunni Delta í Hafnarfírði um síð-
ustu helgi þegar heitt vatn flæddi um allt verksmiðjuhúsnæðið. Rör
í hitaveituelemeneti í loftræstinntaki hússins tærðist í sundur og
gaf sig.
Að sögn Áma Benediktssonar, fram-
leiðslustjóra hjá Delta, var það mikil
mildi að lítið var á vinnslustigi í verk-
smiðjunni þegar óhappið átti sér stað.
Hins vegar urðu talsverðar skemmdir á
innréttingum og milliveggjum auk
þess sem nokkuð af hráefni er ónýtt og
einhverju þarf að henda af lyfjum sem
flæddi að. Framleiðsla í verksmiðjunni
hefur legið niðri í nokkra daga eftir lek-
ann.
Það voru starfsmenn sem komu til
vinnu kl. 08:00 á laugardagsmorgun
sem urðu varir við vatnslekann en um
sentimetra vatnslag var þá yfir allt verk-
smiðjugólfrð. Að sögn Ama Benedikts-
sonar kom það talsvert á óvart að rörið
hafi tærst í sundur, því elementin séu
ekki nema um 10 ára. Nú er unnið að
því að skipta um önnur element af
sömu gerð og nú þegar hefúr verið
komið upp viðvörunarkerfi sem lætur
vita um alla Ieka. Aðspurður sagði Ámi
það ekki ólíklegt að þeir myndu Iáta
kanna ástæðumar fyrir því að nýleg rör
tærast eins fljótt og raun ber vitni og
vildi hann ekki útiloka að of mikið súr-
efni væri í heita vatninu.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mótmælir því fyrirheiti
borgarráðs að Hagkaup verði úthlutað risavöxnu þjón-
ustusvæði í Borgarholti:
Lóðin verði auglýst
Borgarráð hefur samþykkt að Hag-
kaup hf. verði gefið fyrirheit um út-
hlutun verslunar- og þjónustusvæð-
is í svokölluðum Kjarna í Borgar-
holti II, sem verður byggt upp norð-
an við núverandi Rimahverfi í
Grafarvogi. Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulltrúi Framsóknarflokks,
greiddi atkvæði gegn þessu í borgar-
ráði og lagði í gær í framhaldi af því
tillögu fram í borgarstjórn þar sem
hún gerir það að kröfu sinni að
svæðinu verði ekki úthlutað fyrr en
það hafi verið auglýst. „Sem borgar-
búa finnst mér þetta vera orðin
mjög slæm þróun sem hefúr verið
að gerast að undanförnu og það má
nánast segja að tveir til þrír stór-
markaðir séu að verða með alla mat-
vöruverslunina á sinni hendi,“ sagði
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi
í samtali við Tímann. í greinargerð
með tillögu sinni segir Sigrún að
eðlilegt væri að allir sætu við sama
borð í þessu máli og væri gefinn
kostur á að sækja um þessa dýr-
mætu lóð. -PS
HagnaðurafLandsbanka 1991:
Milljaröur í
afskriflasjóð
198 milljón króna hagnaður varð af reglulegri starfsemi Lands-
bankans í fyrra, en hagnaðurinn nam liðlega 53 milljónum eftir
skatta. í báðum þessum niðurstöðutölum hefur verið tekið tillit til
eins milljarðs kr. framlags á afskriftareikning útlána. í gær stað-
festi Jón Sigurðsson bankamálaráðherra ársreikning bankans með
undirskrift sinni á fundi bankaráðs og bankastjómar.
Landsbankinn hefur um 65% heild-
arútlána til sjávarútvegs, 43% af út-
lánum til landbúnaðar, 48% útlána
til iðnaðar og 44% útlána til versl-
unar. Heildareignir bankans voru
102,1 milljarður kr. í árslok, sem er
aukning um 7,4% frá árslokum
1990. Eigið fé bankans var rétt tæp-
ir 6,5 milljarðar í lok ársins og hafði
þá aukist um 515 milljónir kr. á ár-
inu og eiginfjárhlutfallið var um síð-
ustu áramót 7,1% samanborið við
6,8% í ársbyrjun 1991.
Heildarvaxtamunurvar3,9% þriðja
árið í röð. Innlánaaukning var
14,6% á árinu og námu heildarinn-
Ián ásamt bankabréfum 62 milljörð-
um í árslok. Útlán án erlendra end-
urlána jukust um 7,1% á árinu en að
meðtöldum endurlánuðum erlend-
um Iánum var aukningin 5,3%
Stöðugildi hjá Landsbanka íslands
í árslok veru 1.120 en voru 1.136 í
árslok 1990 og hafði því fækkað um
16.
Jón Sigurösson bankamálaráðherra ávarpar bankastjóm og bankaráð
áðuren hann undirrítarársreikning Landsbankans, honum á vinstrí hönd
eru Kjartan Gunnarsson, varaformaður bankaráðs, og Steingrímur Her-
mannsson bankaráðsmaður, en á hægrí hönd ráðherra sitja Krístin Sig-
urðardóttir bankaráðsmaður, Björgvin Vilmundarson bankastjóri, Hall-
dór Guöbjamarson bankastjórí og Jóhann Ágústsson aðstoðarbanka-
stjóri.
í KVÖLD verður fyrsta sýning í
tilefni Norðlenskra hestadaga
sem haldnir eru í Reiðhöllinni
nú um helgina. Að sögn för-
ráðamanna sýningarínnar er
ætlunin með hestadögunum að
kynna og minna á norðlenska
hesta og hestamennsku, en
sýningarnar eru í höndum norð-
lenskra hestamanna. Á með-
fylgjandi mynd má sjá ísólf Lín-
dal Þórisson í atríði sem kallað
er Húnvetnskur póstur. Haldnar
verða þrjár sýningar.
B-keppnin:
ísland
sigraði
Holland
30-20
„Hollendingarnir voru daprir
og aðeins tveir sem drifú á
markið," er niðurstaða Hilm-
ars Björnssonar um hollenska
liðið sem ísland vann í gær, en
Hilmar er einn þeirra hand-
boltasérfræðinga sem við
ræddum við eftir leikinn f
gær. Sjá blaðsíðu 6