Tíminn - 24.03.1992, Page 4

Tíminn - 24.03.1992, Page 4
4 Tíminn Þriðjudagur 24. mars 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Óiafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Augiýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavík Síml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Húsnýting eða íjárfestingaræði Það er tiltölulega stutt síðan að Islendingar fóru að byggja hús úr varanlegum efnum. Byggingararfur okkar er af þessum sökum ekki mikill miðað við ná- grannaþjóðirnar, sem státa af ævafornum byggingum byggðum úr steini. Um og upp úr síðustu aldamótum voru byggð nokk- ur hús í miðbæ Reykjavíkur úr varanlegu efni sem voru hin fegurstu. Má þar fyrst til telja safnahúsið við Hverfisgötu, sem er glæsileg bygging. Nokkur fleiri hús má nefna í miðbænum, sem báru vott um smekkvísi þeirra sem teiknuðu þau og reistu. Hins vegar er með fádæmum hvernig hefur verið farið með mörg þessi hús. Alls konar viðbyggingum í allt öðrum stíl hefur verið klesst við þau, og það þarf ekki að ganga langt í kvosinni í Reykjavík til þess að finna dæmi um slíkt, sem æpa á vegfarendur. Mikil hugarfarsbreyting hefur þó orðið um að halda við gömlum byggingum. Vendipunktur varð með þeirri ákvörðun að byggja Bernhöftstorfuna upp. Áð- ur ríkti sú stefna að flytja heilleg hús úr miðbænum upp í Árbæjarsafn. Fjárfestingaræðið, sem gripið hefur um sig hin síð- ari ár, hefur meðal annars sýnt sig í því að gömlum byggingum hefur verið illa við haldið og því fleiri nýj- ar byggðar. Nú berast fréttir af þeim áformum að byggja yfir Hæstarétt íslands, og á það hús að sögn að kosta svona hér um bil 400 milljónir króna. Helsti staðurinn, sem mönnum kemur í hug, er nýi mið- bærinn. Nú líður að því að safnahúsið við Hverfisgötu losni, og hefur Hæstiréttur verið orðaður við það hús. Einnig forsætisráðuneytið. Hæstiréttur íslands hefði sómt sér vel í safnahúsinu við Hverfisgötu, og hún er undarleg sú ráðstöfun að ætla að fara að efna til fjárfestinga á nýjum stað upp á hálfan milljarð króna eða svo, til þess að koma þess- ari virðulegu stofnun fyrir. Stofnanir ríkisvalds og borgar eru í Kvosinni, og það væri samræmi í því að Hæstarétti yrði búin þar starfsaðstaða áfram. Það er ólíklegt annað en að það mætti leysa húsnæð- ismál forsætisráðuneytisins í miðbænum, þó að Hæstiréttur fengi safnahúsið. Undir það ráðuneyti, sem er efnahagsráðuneyti, heyrir Þjóðhagsstofnun. Sú stofnun býr vel í húsnæði Seðlabanka íslands. Væri þar ekki möguleiki að koma skrifstofuhaldi for- sætisráðuneytisins fyrir, jafnvel þó að stjórnarráðs- húsið við Lækjartorg yrði áfram fundarstaður ríkis- stjórnarinnar? Það er mál til komið að beina sjónum að því að halda við eldri húsum og gefa þeim nýtt hlutverk í stað þess að rjúka til, reka puttann upp í loftið, sem frægt er, og byggja nýtt húsnæði fyrir ómældar fjárhæðir, þegar víða er fyrir hendi húsnæði sem mætti nýta. Þetta á að sjálfsögðu við í fleiri tilfellum en þeim, sem nefnd voru hér í sambandi við húsnæði fyrir Hæstarétt. Breytt stefna í þessum efnum snertir ekki aðeins fjármálalegu hliðina, þetta er einnig umhverfismál og menningarmál. Dagur að kveldi kominn Stórblaðið Dagur á Akureyri, sem einkum gefur sig út fyrir að flytja fréttir af viðburðum í bæjarlífi Akureyrar, birtir á fréttasíðu sl. föstudag sam- setning sem markar tímamót í íslenskri fjölmiðlasögu. Sam- setning þennan ritar einhver - ÞH, sem trúlega er Þröstur Haraldsson, áður kenndur við Þjóðviljann og sósíalisma. Ætl- unarverk hans er augljóslega það eitt að sverta dagblaðið Tímann, fréttaflutning þess og blaðamenn. Óhætt er að full- yrða að önnur eins lágkúra hefur ekki sést í íslensku dag- blaði lengi. í vöm fyrir hvcm? Umræðuefni samsetningsins í Degi er frétt, sem Tíminn birti sl. fimmtudag, þess efnis að fjölmargir þeirra, sem tengd- ust umfangsmiklu fíkniefna- máli, tengdust jafnframt ákveðinni listamiðstöð í bæn- um sem bæjarfélagið hefur að stórum hluta með að gera. Þessi tengsl eru óvefengjan- Iega fréttnæm og þau voru staðfest af rannsóknarlögregl- unni, eins og fram kom í frétt Tímans. Af einhverjum ástæð- um hentar það ekki Degi að upplýsingar um þetta fíkni- efnamál komi fram á prenti, og því kýs blaðið að fela blaða- manni sínum það verkefni að vefengja frétt Tímans og gera hana tortryggilega. Illskiljan- legt er hvern Dagur vill verja með því að fela upplýsingar um þetta mál, og varla getur það verið að viðkomandi blaða- maður sé að taka upp hansk- ann fyrir einhverja persónu- lega vini sína. Undirritað- ur man ekki eftir öðru dæmi um það að fjölmiðill taki upp frétt annars fjöl- miðils með þessum hætti, vitni í hana og fullyrði síðan í fyrirsögn að hún sé „söguburð- ur blaðsins". Fyrir þá á Degi er það ekki einu sinni aðalatriði hvort tengsl eru milli Listag- ilsins og fíkniefnamálsins, heldur er það aðalatriði að frétt í Tímanum sé röng! Frétt um frétt I Degi segir m.a.: „Varla þarf að tíunda það fyrir Akureyr- ingum hversu miklar sögu- sagnir hafa verið á kreiki um hassmálið. Nú er Tíminn bú- inn að leggja fram sinn skerf, því að sögn rannsóknarlög- reglumannsins sem ræddi við blaðamann Tímans þá er eng- inn fótur fyrir því að hann hafi staðfest eitt eða neitt í því samtali." Dylgjurnar í garð Tímans eru ótrúlegar í þessari málsgrein og fréttamatið að sama skapi einkennilegt. Ef það var tilgangur Dags á Akur- eyri að ganga úr skugga um hvort frétt Tímans væri rétt eða ekki, í þeim tilgangi að skrifa sjálfir frétt um þetta fíkniefnamál, var sjálfsagt að hringja í rannsóknarlögreglu- manninn. En úr því að fíkni- efnamálið var slíkt aukaatriði og aðalatriðið var að skrifa frétt um frétt Tímans, hefði það verið sjálfsagt, eðlilegt og skylt, að viðkomandi blaða- maður á Degi spyrðist líka fyr- ir um það á Tímanum hvers vegna blaðið birti fréttina. Það gerir hann ekki, en fer að fjasa eitthvað um að óþarfi sé að tí- unda allar kjaftasögurnar sem gangi á Akureyri um málið! Þetta er vitaskuld ekkert ann- að en auðvirðilegur atvinnu- rógur samkeppnisaðila, auk þess að vera svívirðing á a.m.k. tveimur af sex siðareglum blaðamanna! Ef Dagur hefði leitað upplýsinga hjá Tíman- um, hefði hann fúslega fengið þær upplýsingar að staðfesting rannsóknarlögreglunnar er til hljóðrituð á blaðinu, en auð- vitað hefðu slíkar upplýsingar skert möguleika Dags til að rægja blaðamenn Tímans. Það, sem gerir hins vegar allt þetta mál enn verra, er að síð- degis á fimmtudag átti undir- ritaður samtal við fréttastjóra Dags út af allt öðru tilefni, og barst þá umrædd frétt Tímans í tal og það að vegna fréttar Tímans hygðist Dagur vera með frétt um málið daginn eftir. Undirritaður tjáði þá fréttastjóra Dags að talsvert hafi verið hringt til blaðsins vegna fréttarinnar, einkum af fólki sem vildi fá að vita hvaða listamenn um væri verið að ræða, en Tíminn stæði full- komlega við sína frétt og hana væri ekki hægt að vefengja. Fréttastjóri Dags lýsti engum efasemdum um frétt Tímans í þessu samtali, raunar þvert á móti. Þess vegna er það í raun enn alvarlegra að blaðið skuli leggjast svo lágt sem raun ber vitni, vitandi að Tíminn var tilbúinn til að standa við frétt- ina. Óvönduð blaða- mennska Blaðamennska af því tagi, sem virðist stunduð á Degi, er sem betur fer ekki almenn. Flestir vanda betur til upplýs- ingaöflunar og fæstir eru eins áfjáðir í að hlaða fréttir sínar gildisdómum. Ástæðulaust er að eltast að ráði við aðrar fullyrðingar í samsetningi þeirra Dags- manna. Enda ber allt að sama brunni, hvort sem það eru út- úrsnúningar og textaskýringar blaðamanns á ummælum höfðum eftir bæjarstjóra Ak- ureyrar í frétt Tímans eða við- tal við sármóðgaðan lista- mann sem sagðist ekkert skilja í „hvað Tímanum lægi til með þessum skrifum". Seinna um daginn birtist viðtal í DV við þennan sama lista- mann, í frétt sem er samhljóða Tímafrétt- inni en með ýmsum við- bótarupplýsingum. Þá er listamaðurinn hættur að vera hneykslaður á Tímanum, en er orðinn hneykslaður á listamönnum í Samtökum í Listagili: „Sem formaður fé- lagsins lít ég mjög alvarlegum augum á þetta mál, enda er það, eins og gefur að skilja, ekki á stefnuskrá félagsins að félagar þess séu flæktir í lög- brot“! Á -ÞH nú að rægja DV líka? Ætla yfirmenn ritstjórnar Dags að fela -ÞH að skrifa ann- an samsetning til að gera frétt DV tortryggilega? Vonandi gera þeir það ekki og snúa sér að því að gera eitthvað af viti. Satt best að segja er erfitt að átta sig á hvað það er sem Dagsmönnum gengur tii með svona skrifum. Raunar hefur mátt merkja fjandsamlegan tón frá ritstjóra blaðsins í garð Tímans, þegar hann hefur ver- ið að miklast af því að Dagur sé ekki flokksblað, eins og t.d. kom fram í minningargrein hans um Þjóðviljann sáluga sem birt var í DV á sínum tíma. Vera kann að Dagur sé ekki flokksblað (þó einhver kynni að velkjast í vafa, ef hann fer að skoða fjármögnun blaðsins), en miðað við það, sem þeir virðast kalla frétta- flutning, er alveg ljóst að Dag- ur er þess konar blað sem fæst íslensk blöð vildu líkjast. - BG

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.