Tíminn - 24.03.1992, Qupperneq 5

Tíminn - 24.03.1992, Qupperneq 5
Þriðjudagur 24. mars 1992 Tíminn 5 Þórarinn Þórarinsson: Veiðileyfagjald leiðir til gengislækkunar Menn virðast nokkum veginn sammála um tvær staðreyndir í sambandi við sjávarútveginn. Önnur er sú, að hann sé megin- undirstaða efnahags þjóðarinnar, þaðan sé stærsti hluti þjóðar- teknanna runninn. Hin er sú, að allt að því helmingur eða jafn- vei meirihluti þeirra fyrirtækja, sem stunda fiskveiðar eða fisk- vinnslu, séu rekin með tapi, sum verulega miklu. Menn deila um hvernig eigi að tryggja þessum fyrirtækjum nægar tekjur, eða með öðrum orðum líf- vænlegan rekstrargrundvöll. Einn flokkur telur sig þó sjá auð- velda leið til þess. Hún er fólgin í því að leggja á sjávarútveginn auð- lindaskatt, öðru nafni veiðileyfa- gjald. Gallinn á þessari tillögu er sá, að tapið, sem fyrir er hjá þeim fyrir- tækjum, sem rekin eru með tapi, verður ekki nema að litlu leyti greitt með þessum skatti, heldur eykur hann tapið sem skattinum nemur. Þess vegna krefst þessi skattur nýrrar tekjuöflunar til að greiða tap- ið, sem eykst vegna skattsins. Að óbreyttu útflutningsverði og afla- brögðum, er ekki hægt að vænta aukinna tekna úr þeirri átt. Hér er vart að vænta annarra tekna nema gengið verði til gengisfelling- ar, eða gripið til hins gamla úrræðis krata og sjálfstæðismanna á tímum viðreisnarstjómarinnar að haga skráningu krónunnar þannig að sjávarútvegurinn sé rekinn halla- laust, án styrkja og bóta. Með öðrum orðum: Auðlindaskatt- ur eða veiðileyfogjald verður ekki lagt á nema gengi krónunnar sé fellt samtímis. Allir vita hvemig þetta úrræði reyndist viðreisnarstjóminni. Það leiddi til óðaverðbólgu, stórfellds at- vinnuleysis og landflótta. Það að leggja á veiðileyfagjald er því ekkert annað en gengisfelling. Rétt er að geta þess, að sá maður sem að áliti Jóns Baldvins er helsti sérfræðingur Alþýðuflokksins í sjáv- arútvegsmálum, Þröstur Ólafsson, hefur bent á annað úrræði. Það er að láta þau sjávarútvegsfyrirtæki, sem rekin em með tapi, fara sömu leiðina og Kron og verða gjaldþrota. Þá muni aflast nóg á þau skip sem eftir verða. Það ætti ekki að þurfa mikla íhug- un til þess að gera sér grein fyrir að veiðileyfagjald leysir ekki vanda sjávarútvegsins heldur eykur hann. Sjávarútvegurinn verður að leita Þröstur Ótafsson annarra úrræða en þeirra, sem Al- þýðuflokkurinn berst íyrir. En veiðileyfaskatturinn getur samt verið skammt undan. Stór hluti Jón Baldvin Hannibalsson. hins stjómarflokksins með Mbl. í fararbroddi virðist vera að gera auð- lindarskatt að trúarsetningu. Höfundur er fýrrum ritstjóri Tlmans. Björn S. Stefánsson: Rétturinn til að velja og hafha Með aðild að EES gæti það orðið hlutverk ÞÓ eða skoðanabróð- ur hans að fara til höfuðstöðva EES til að rökstyðja aðgerðir í byggðamálum hér á landi. Þar hljóta að vera tiltækar skýrslur sem sýna að það eru öfugmæli að telja ísland einangrað, land sem hefur hlutfallslega meiri utanríkisviðskipti en flest ríki heims. Þar láta menn ekki heldur segja sér að ísland skerí sig úr öðrum ríkjum svæðisins með lítinn hlut markaðsbúskapar, um það bera vott margvíslegar skýrslur. Hins vegar yrði verra fyrír menn þar að meta þá skýríngu á aðgerðum íslendinga í byggðamálum að þær séu byggðar á hugarfóstrí félagsskapar sem varð til fyrir 90 árum. Menn kynnu að spyija nánar um þann félagsskap og þá kæmi í ljós að hann starfar núorðið mest að íþróttum og afþrey- ingu ungmenna. Ég hygg að það þyrfti talsvert annan málflutning þar ytra til að fá aðgerðir í byggðamálum samþykktar. Eitt megin- skilyrði er það að ástand mála í viðkomandi byggðarlagi sé tals- vert miklu lakara en hér hefur veríð nokkurs staðar undanfarna áratugi. Sumum líkar það vel, en öðrum miður. Almennast er í umræðu að líta á EES-samninginn með samanburði við aðild íslands að Fríverzlunar- bandalagi Efrópu og fríverzlunar- samning íslands við Efrópsku sam- félögin. Þegar umræðan er á því stigi má benda á að nú þegar selja íslendingar hraðfrystar afurðir toll- frjálst til allra EES- ríkja og ekki er heldur lagður tollur á fullunnar sjávarafurðir. Tollur er hins vegar á nokkrum lítt unnum sjávarafurð- um. Varðandi tækifæri íslendinga til að reka fyrirtæki í ES-ríkjum getur óbreyttur útvarpshlustandi komizt að því að íslendingar athafna sig nú þegar á EES-samningsins með ým- is fyrirtæki í Bretlandi. Þar er því engin fyrirstaða. í umræðu á þessu stigi á við að spyrja hvemig raun- vemlegar landhelgisvamir íslend- inga fái til lengdar staðizt í félags- skap þar sem aðalreglan er að fyrir- tæki fái að starfa hvar sem er og við hvað sem er, óháð því hverjir eiga það. Aðrir leggja málið fram eins og þeir séu að boða siðaskipti. Fremst- ir þar eru utanríkisráðherra og Þröstur Ólafsson (ÞÓ), sem hann hefur ráðið sér til aðstoðar. Rök- semdafærsla þeirra er eins og rök- semdafærsla trúboða, eins og vel kom fram í greinaflokki ÞÓ. Hvernig er röksemdafærsla trú- boða? Hann telur sig koma fram fyrir hönd þeirra afla sem hljóta að sigra heiminn. Hann leggur áherzlu á að menn þori að kasta sér á djúp trúarinnar. Hann lofar fólki nánu samfélagi í stað einsemdar og einangmnar. Þessi þrjú atriði em kjarninn í þremur greinum ÞÓ. Trúboðar láta hugtök fá nýtt gildi. Það sem kallað hefur verið forræði eigin mála, kallar ÞÓ einangmn. Til þess að fá trúboða niður á jörð- ina verður að taka raunhæf dæmi. Ég dreg fram tvö mál, þar sem ís- lenzk lög veita viðkomandi forræði til að velja sér æskilega þátttakend- ur en hafna öðmm. Þar kemur fram að slíkt forræði er ekki ein- angmnarstefna. Eins og í síðustu grein er ég svo heppinn að eiga í fómm mínum grein til skýringar, sem ekki fékk rúm á síðum Morg- unblaðsins. Hún hefur haldið gildi sínu, þótt ég hafi sent blaðinu hana fyrir jól 1991. Á eftir henni ber ég saman stjómlag íslendinga við stjómlag Efrópsku samfélaganna að því er varðar réttindi manna til starfa og atvinnurekstrar. Breytingar á lögum um hlutafélög í lögum um hlutafélög em ákvæði, nýstaðfest af Alþingi, sem setja hömlur á ráðstöfunarrétt manna yfir eignum sínum. í 19. gr. er leyft að ákveða í samþykktum „að við eigendaskipti að hlutabréfi, önnur en við erfð eða búskipti, skuli hluthafar eða aðrir hafa for- kaupsrétt." í 20. gr. er leyft að ákveða „í samþykktum að veðsetn- ing, sala eða annað framsal á hlut- um megi einungis fara fram með samþykki félagsins," en þó má ekki skv. 18. gr. „leggja hömlur á við- skipti með almenn hlutabréf milli íslenzkra aðila í hlutafélögum, þar sem hluthafar em 200 eða fleiri." Eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar Séreignaríyrirkomulagið er einn af hornsteinum íslenzkrar stjóm- skipunar og án þess gæti frjálst markaðskerfi ekki þrifizt. Eignar- rétturinn er varinn í 67. grein stjómarskrárinnar, en þar segir orðrétt: „Eignarrétturinn er frið- helgur. Engan má skylda til þess að láta af hendi eign sína nema al- menningsþörf krefji; þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.“ Þetta stjórnarskráratkvæði verndar þá meginreglu að mönn- um sé frjálst að ráðstafa eignum sínum með þeim hætti sem þeir telja heppilegast, enda fori það ekki í bága við „almenningsþörf" eða lögvarin réttindi manna. I lögfræði hefur eignarrétturinn verið skilgreindur sem einkaréttur ákveðins aðila yfir tilteknum lík- amlegum hlut innan þeirra marka sem þessum rétti em sett í lögum. Einstaklingar geta öðlazt réttindi yfir eignum eða eignazt hluti með ákveðnum hætti, svo sem með kaupum eða við erfðir. Það er frumforsenda séreignarskipulags- ins að eignir geti gengið kaupum og sölum. Að öðrum kosti er sér- eignarskipulagið ekki sá aflvaki sem til er ætlazt. Ef einstaklingar geta ekki hindrunarlaust selt eign- ir sínar, verða eignirnar fljótt byrði EES-samnmg- urinn III eða kvöð á viðkomandi og raun- hæft verðmat á eignum er úr sög- unni. Stjómum hlutafélaga falið víðtækt vald Hvers vegna lét Alþingi slfk lög frá sér fara? Er ekki sú hindrun, sem er í þeim, óeðiileg? Er ekki stjórn- um minni hlutafélaga falið of víð- tækt vald til þess að hindra að ein- staklingar geti selt eignarréttindi? Ekki er sett neitt skilyrði um með hvaða rökum stjórn hlutafélags getur bannað eiganda að selja hlut sinn. Kallar þetta íyrirkomulag ekki á spillingu þar sem einstak- lingunum, sem sitja í stjórnunum, er gert mögulegt að stjórna því hverjir kaupa hlutina og hverjir ekki? Geta ekki hlutafélagsstjórn- armenn eða lagsmenn þeirra söls- að undir sig heilu hlutafélögin? Um jarðalög Það, sem hér segir um ákvæði laga um hlutafélög, eru raunar rök Gunnars J. Birgissonar lögmanns um jarðalög í greininni „Nauðsyn- legar breytingar á jarðalögum" í blaðinu 11. desember, þar sem hann mælir með frumvarpi Frið- riks Sophussonar og Geirs H. Ha- arde. (Sumu hef ég þó breytt í spurnarform.) Þeir leggja þar til að fella brott ákvæði þess efnis að ekki megi selja jarðir utan þéttbýl- is nema með samþykki sveitar- stjórnar og jarðanefndar og að fella niður forkaupsrétt sveitarfélaga við sölu jarða. Það kemur sem sagt í ljós að sams konar hömlur eru á sölu hluta- bréfa. Hvaða ástæður eru til að hafa slíkar hömlur á sölu hlutabréfa? Með þeim er komið í veg fyrir að sá komist til áhrifa í félaginu sem menn geta óttazt að spilli félags- anda. Þannig má halda sundurvirk- um aðilum frá sem hafa önnur markmið en stjómin ætlar félag- inu. Sá, sem ekki fær að selja slík- um aðila hlut sinn, á rétt á fullum bótum og eins er með forkaupsrétt félágsins, að þar fær seljandi að fullu það sem honum hafði verið boðið, þótt úr annarri hendi sé. Ákvæði jarðalaga um sölu jarða hafa sömu eigindi. Sveitarstjórn getur með því varazt þá sem gætu spillt sveitaranda. Það voru tæki- færi búlausra til að eignast jarðir til orlofsdvaiar sem var mál GJB. Vonandi telja flestir orlofsgestir það nokkurs um vert að vel fari á með þeim og sveitarmönnum. Þegar sveitarfélag neytir ekki for- kaupsréttar á jörð, hefur það á vissan hátt boðið nýju eigendurna velkomna. Forkaupsrétturinn hreinsar því andrúmsloftið. Það er að skjóta yfir markið að tala hér um freísisskerðingu, hvort heldur það eru hlutafélög eða jarðalög, og eitthvað mætti fmna sér fyrr til málflutnings en að halda því fram að hömlur hlutafé- lagalaganna brjóti gegn ákvæði í stjórnarskránni. Frelsis njóta menn bezt í sam- hentum félagsskap. Reglur tryggja oft frelsistilfinningu. Þetta þekkj- um við sem starfað höfum í sveit skáta. Þar er ekki allt leyft, heldur ýmsar reglur og finnst skátum þeir eigi að síður vera frjálsir í góðum skátaanda. Eins er það í sveitum landsins, að mönnum finnst þeir frjálsari ef þar tekst að halda góð- um félagsanda með því m.a. að fá tækifæri að meta nýja félaga og bægja þeim frá sem þykja varasam- ir. Menn eru frjálsir að mynda með sér hlutafélög, en það frelsi væri minna virði ef menn réðu ekki hverjir skipast í félagsskap með þeim. í fjölmenni skiptír minna máli hver kemur í stað hvers, enda gilda ofangreindar hömlur hvorki um fasteignakaup í fjölmenni bæj- anna né um hlutafélagakaup í fjöl- mennum hlutafélögum. Þetta kann ýmsum að þykja sjálf- sagt. Samt þarf að hafo um það orð, þegar komnir eru til áhrifa og valda siðskiptafrömuðir sem breyta merkingu orða í boðun sinni. Það er ekki löngun til ein- angrunar sem vakir fyrir mönnum að setja framangreind ákvæði í hlutafélagalög og jarðalög. Það eyðir tortryggni gagnvart nýlið- um, ef þeir sem fyrir eru fá að meta það hvort þess sé að vænta að þeir bæti félagsskapinn, en spilli hon- um ekki. Það er margt f löggjöf landsins um rétt útlendinga til starfa og búsetu sem veitir stjóm- völdum rétt til að velja og hafna. Með því má koma í veg fyrir margt ófriðarefni og árekstra við hags- muni þeirra sem fyrir eru. Það er ekki einangrunartilhneiging sem ræður þar, heldur skilningur á því að farsælast er að geta ráðið ferð- inni, en láta ekki ganga yfir fólk röskun á högum þess án þess að það fái neinu ráðið. EES- samn- ingurinn skerðir þennan rétt stjórnvalda á ýmsan hátt. Það má oft læra af öðrum þjóðum. Mér þykir trúlegt að Efrópsku samfé- lögin geti lært ýmislegt í þessu efni af íslendingum. Framtíð þeirra yrði vafalaust farsælli ef sveitarstjórnir þar, héraðsstjómir og landstjórnir fengju rétt til að velja sér nýja liðsmenn (atvinnu- rekendur og starfsmenn) og hafna öðmm samkvæmt ástæðum á hverjum stað og hverjum tíma. Það kynni að koma í veg fyrir margt ófriðarefni meðal almenn- ings að hafa slíka reglu að íslenzk- um hætti. Höfundur rannsakar þjóöfélagiö.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.