Tíminn - 24.03.1992, Side 6

Tíminn - 24.03.1992, Side 6
6 Tíminn Föstudagur 6. mars 1992 B-keppnin í handknattleik í Austurríki: Ísland-Noregur 20-21 (12-12) Eftir tvo auðvelda sigra, á Belgum og Hollendingum, lágu íslensku strákamir gegn skemmtilegu liði Norðmanna. íslendingamir, sem virkuðu taugaóstyrkir allan tímann, náðu sér aldrei almennilega á strik, ef frá em taldir tveir leikkaflar í byrjun fyrri hálfleiks og á kafla í síðari hálfleik. íslenska liðið hóf leikinn vel, og lofaði byrjunin góðu, og komst tveimur mörkum yfir, en eftir að staðan var orðin 3-1, þá varð leikur- inn að tómu basli fyrir íslenska liðið það sem eftir lifði leiksins. Jafnt var í hálfleik og komu Norðmenn feikn- arlega ákveðnir til síðari hálfleiksins og náðu fjögurra marka forskoti strax. Þegar svo var komið, fór ís- lenska liðið að leika dálítið ágengari varnarleik og tókst af harðfylgi að jafna leikinn. Lokasekúndur leiksins voru röð mistaka, sem gerðu það að verkum að leikurinn tapaðist með einu marki. Það er alveg Ijóst að þetta tap fyrir Norðmönnum er töluvert áfall fyrir Ísland-Noregur 20-21 (12-12) Mörk Misheppnuð Bolta Stod- Bolti skot tapað sendingar unninn Júlíus Jónasson 5 2 2 0 1 Kristján Arason 0 1 0 0 0 Héðinn Gilsson 2 3 1 í 0 Gunnar Gunnarsson 2 2 1 í 0 Konráð ólavsson 0 1 0 0 0 Sigurður Sveinsson 5 2 1 2 0 Geir Sveinsson 3 1 0 2 0 Valdimar Grímsson 2(2v) 3 0 0 0 Bjarki Sigurðsson 1 0 1 0 0 Birgir Sigurðsson 0 0 0 0 1 Samtals 20 15 6 0 0 Bergsveinn Bergsveinsson Guðmundur Hrafnkelsson Kom ekki inná Útafrekstur: fsland 6 mínútur Noregur 8 mínútur landsliðsstrákana, en mótið er langt ið á að leika á morgun gegn Pólverj- frá því að verða búið og möguleikar um. liðsins eru ennþá fyrir hendi, en lið- -PS Ísland-Belgía 25-16 (11-4) Mörk MUheppnuð skot Bolta tapað Stoð- sendingar Bolti unninn Júlíus Jónasson 0 0 í i 0 Valdimar Grímsson 8(3v) 3 1 0 0 Gunnar Andrésson 5 0 0 í 0 Sigurður Bjamason 5 2 í í 1 Konráð Ólavsson 2(lv) 6 2 í 0 Bjarki Sigurðsson 1 3 1 3 0 Kristján Arason 1 0 0 2 1 Geir Sveinsson 0 1 0 0 0 Birgir Sigurðsson 3 1 1 0 1 Sigurður Sveinsson 0 0 0 0 0 Samtals Bergsveinn Bergsveinsson Guðmundur Hrafnkelsson 25 16 7 9 3 Útafrekstur: ísland 6 mínútur Belgía 8 mínútur Alfreð Gíslason: „Ég er ekki mjög ánægður“ „Ég er náttúrlega ekki mjög ánægð- ur með úrslitin. Mér fannst vörnin klikka dálítið mikið og Norðmenn- irnir gerðu alltof mikið af auðveld- um mörkum. Hún gerði alltof mikið af því að treysta á að blokkera skot- in, sem gerðist ekki of oft, í stað þess að vinna meira á miðjunni og fara þá í menn og brjóta á þeim. Sóknar- leikurinn var ekki nógu góður, enda dæmigerður leikur þar sem mikil taugaspenna ræður ríkjum. Hins vegar var mikið stólað á hraðaupp- hlaupin, því þegar Norðmennirnir skutu á markið þá voru bæði horna- mennirnir og bakverðir farnir, og af þeim sökum náði íslenska liðið ekki neinum fráköstum eftir að Berg- sveinn hafði varið, en hann varði mjög vel í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Leikurinn í heild sinni var svona miðlungsleikur, nema það var of mikið af mistökum. Þá voru mistök- in í lokin alveg óþarfi; t.d. þegar Norðmenn gerðu sigurmarkið, þá átti bara að brjóta og láta sekúnd- urnar líða. Það hefði kannski kostað mann útaf, en þess í stað hefðu þeir einungis fengið fríkast á móti varn- arveggnum. Norðmennirnir voru ámóta og ég bjóst við. Pólverjar eru næstir og það er eins og hver annar leikur sem verður að vinnast, og ég er ekkert svo svartsýnn á þann leik og framhaldið." Guðmundur Guðmundsson: nógu sannfærandi" „Byrjunin í leiknum lofaði góðu, mér fannst íslensku strákarnir ákveðnir og spiluðu nokkuð vel. En fljótlega datt botninn úr því og það sem mér fannst að, var að varnar- leikurinn var alls ekki nógu góður og ekki nógu sannfærandi og fengu leikmenn norska liðsins að koma of nálægt vörninni. Mér finnst að þeg- ar varnarmaður fer á annað borð út á móti leikmanni, þá verður hann að taka hann og brjóta á honum og er síðasta markið dáiítið dæmigert íyr- ir vörnina. Þeir eru örlítið of seinir og ná ekki að komast í snertingu við sóknarmennina. Varnarleikurinn batnaði þó til muna í síðari hálfleik, þegar Erland var klipptur út. Það sló Norðmenn útaf laginu og við hefð- um kannski átt að nýta okkur það betur. Hvað sóknarleikinn varðar, þá fannst mér hann fyrst og fremst byggjast upp á einstaklingsframtaki og það var mjög lítið um leikkerfi. Þá nýttust hornamennirnir illa. Mér fannst ég sjá sömu kerfm sem voru í gangi í hinum leikjunum, en hins vegar verðum við að líta á það, að það getur verið að leikstfll Þorbergs sé ekki sá að keyra jafn stíft á leik- kerfum og Bogdan gerði á sínum tíma. Mér fannst markvarslan góð í leiknum, Sigurður Sveinsson átti góða kafla og hélt liðinu á floti á tímabili. Einnig var Júlíus Jónasson mjög góður, kom sterkur inn í síðari hálfleikinn, en hefði mátt koma fyrr. íslenska liðið getur leikið mun bet- ur og ég vona að þeir nái að berja þetta saman fyrir leikinn gegn Pól- verjum." Guðjón Guðmundsson: „Leyfum þeim aö klára mótið" „Þetta var erfitt, eins og við mátti búast, eftir að tveir síðustu leikir voru náttúrlega léttir og nánast spaug, þá yrðu þeir þrír næstu erfið- ir. Það var reynslan með Noreg. Það hafa ýmsir hér á landi verið að gaspra um það að Norðmenn væru eitthvað létt verk. Þessir sömu kverúlantar hafa í gegnum árin afskaplega lítið séð af alþjóðlegum handknattleik. Þessir kverúlantar hafa alltaf komið fram þegar ísland hefur tapað í gegn- um árin, til að reyna að finna söku- dólga: þjálfarinn er ekki nógu góður, leikmennimir eru ómögulegir og þar fram eftir götunum. En ég vil segja við þessa sömu kverúlanta, að í guð- anna bænum að hafa vit á því að þegja og leyfa strákunum að klára mótið. Ef við höfum ekki trú á þeim hérna heima, þá er alveg eins gott að pakka niður og halda heim. Staðan í dag er sú að Norðmenn eru með mjög frambærilegt lið, sem við töp- uðum fyrir í dag. Strákamir náðu ekki að sýna sinn besta leik, vamar- leikurinn var mjög óöruggur framan af leiknum og sóknarleikurinn hikst- aði, en það þarf ekki að koma neinum á óvart að lenda í erfiðleikum gegn Norðmönnum, því þeir em með mjög frambærilega leikmenn og í byrjunarliði em síst lakari leikmenn en í því íslenska. Úrslit leiksins vom hins vegar gífurleg vonbrigði. Menn virtust vera taugatrekktir og mótlæt- ið í síðari hálfleik, þegar Norðmenn náðu fjögurra marka forystu, varð liðinu að falli. Þá komu ótímabær skot og illa agaður leikur varð dýr- keypt undir lokin. Mér fannst Geir Sveinsson bestur hjá okkar mönnum og þá stóð Júlíus Jónasson vel fyrir sínu, aðrir leikmenn léku undir getu og ollu dálitlum vonbrigðum." Hilmar Björnsson: „Varð fyrir vonbrigöum" „Ég varð nú fyrir dálitlum vonbrigð- um með íslenska liðið og útfærslu þess á leiknum. Vörnin var slök og Norðmennimir gerðu 90% af mörk- unum í gegnum miðjuna, nánast óá- reittir. Vamarmennimir voru að vinna alltof mikið einir og þá töpuð- um við fjölmörgum fráköstum. Það vom góðir taktar í sóknarleiknum, en hann flaut ekki nógu vel. Það kom fyrir í tvígang leikkerfi, þegar Gunn- ar Gunnarsson kom aftur fyrir skyt- turnar báðum megin og það opnaði mjög vel norsku vörnina, en eins ég sagði áðan, þá flaut spilið ekki nógu vel og sóknarleikurinn hikstaði alltof mikið. Leikkerfin komust aldrei í gang og mikið af mörkunum em ein- staklingsmörk, eins og mörkin sem Siggi Sveins gerir. Hraðaupphlaup sáust ekki mikið, en Norðmennimir léku þetta mjög skynsamlega og gáfu ekki möguleik á þeim. í sjálfu sér var þetta ekki mjög slæmur leikur, en þeir eiga að geta miklu betur. Norska liðið kom mér á óvart, þeir vom frískir og léku af mun meiri skyn- semi en við. Ég held að þessi leikur hafi verið gerður of stór fyrir dreng- ina og það myndaðist mikil tauga- spenna út af honum. Þetta var með^ alleikur og við hefðum þurft að ná betri leik, en heppnin var með Norð- mönnunum. Mér finnst hæpið að taka út einhvem leikmann sem besta leikmenn, en menn vom að taka góð- ar rispur. Ég sé ekki að það þurfi að vera neikvætt hljóð í mönnum, þó svona hafi farið á móti Norðmönn- um. Þetta er langt frá því að vera bú- iö og það á að keyra á þetta. Við eig- um alveg að vinna Pólverja, við þekkjum öll þessi lið, sem við emm að leika við, þannig að það er aðeins spurning um dagsformið." Geir Hallsteinsson: „Vítaverður klaufagangur" „Sigurinn gat nú lent hvom megin sem var. Ég hef nú látið hafa eftir mér að leikurinn við Norðmenn væri fyrsta hindrunin og við yfirstig- um hana ekki. Ég var ekki sáttur við varnarleikinn, ieikmenn Norð- manna fengu að leika dálítið lausum hala og komast nálægt vöminni og það vantaði að vernda þetta hættu- svæði, sem er þegar skyttur em komnar inn fyrir punktalínu. Það var ekki gengið nógu fast í skyttum- ar þeirra og þeir fengu að skora allt- of mörg mörk á þennan hátt. Þá var þetta alveg vítaverður klaufagangur á lokasekúndum leiksins, við vomm með boltann og leikinn í hendi okk- ar. Svona reynslumikið lið á ekki að klúðra svona löguðu. Mér fannst dá- lítið athyglisvert hvað skyttumar hjálpa lítið hornamönnum og þá sýnist mér kerfin ekki vera byggð upp á það að opna fyrir hornamenn- ina, eða að minnsta kosti nýttist það ekki í þessum leik. Það er alveg ljóst að þegar við höfum þetta sterka hornamenn, þá verða skyttumar að athuga sinn gang og hjálpa meira. Varðandi markvörsluna í leiknum, þá er alveg ljóst að hún var ekkert sérstök, hvorki hjá íslendingum né Norðmönnum. Það er alveg greini- legt að Norðmönnum hefur farið fram í handknattleiknum. Svona leikir verða aldrei góðir og hand- boltinn í leiknum var ekkert sér- stakur, enda mikið í húfi.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.