Tíminn - 24.03.1992, Page 12

Tíminn - 24.03.1992, Page 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 HEIÐI BILAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir ^aupi bíla til niðurrifs HEIÐI • BÍLAPARTASALA Flugumýrl 18D • Mosfellsbæ Sfmar 868138 & 667387 I yu HÖGG- > DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahlutir ÍL Hamrsböfða 1 - s. 67-67-44 S ÞJONUSTA MÁLARAR geta bætt við sig málningarvinnu úti sem inni Vönduð og góð vinnubrögð Sími670269 ÞÉTTING OG KLÆÐNING ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 1992 Snyrti- hús við Gullfoss Verið er að leggja síðustu hönd á ferðamannaafdrep við Gullfoss í Biskupstungum. Húsið er reist í samvinnu Ferðamálaráðs og Náttúruverndarráðs. Það er ein- vörðungu hugsað sem afdrep fyr- ir ferðamenn og landvörð og þar verður góð snyrtiaðstaða en hins vegar engin þjónusta önnur. Hús- ið er einingahús frá SG eininga- húsum á Selfossi og er ráðgert að það verði tilbúið í byrjun maí. Húsið stendur uppi á vesturbakka Hvítár í grennd við svonefnt Steinsholt, um tíu mínútna gang frá sjálfum Gullfossi og ekki sýni- legt þaðan. Tímamynd AJ. Rekstrarkostnaður VÍS hefur lækkað sem svarar 332 milljónum frá sameiningu: Afskrifa þurfti 128 m.kr. vegna vanskila/gjaldþrota Rekstrarkostnaður Vátryggingafélags íslands (þ.e. greidd laun, annar rekstrarkostnaður og greidd umboðslaun) hefur farið lækk- andi ár frá ári, sem hlutfall af iðgjöldum ársins. Árið 1988 nam þessi kostnaður 27,7% af iðgjöldum hjá stofnfélögum VÍS. Síðan hefur þetta hlutfall lækkað með hvetju ári, nú síðast úr 23,4% nið- ur í 19,8% milli áranna 1990 og 1991. Lækkunin frá því fyrir sam- einingu svarar til 332 milljóna kr. spamaðar í rekstrarkostnaði fyr- ir síðasta ár. Afkoma félagsins var líka mun betri 1991 en árið á undan. VÍS náði nær 41 m.kr. rekstrarhagnaði á árinu og ákvað að- alfundur að greiða hluthöfum 5% arð af hlutafé sínu. ári. Eigið fé félagsins var aukið með útgáfu nýs hlutafjár að nafnverði 150 m.kr. á árinu 1991. Hlutafé þetta var selt á genginu 2,0 og jók því eigið fé félagsins um 300 m.kr. Eftir þessa viðbót er nafnverð hlutafjár félagsins 430 m.kr. og bókfært eigið fé VÍS í árslok var 709 milljónir króna. - HEI Gjaldþrot og greiðsluerfiðleikar bæði einstaklinga og fyrirtækja ollu auknum vanskilum hjá VÍS á árinu. Á aðalfundi kom fram að þrátt fyrir hertar innheimtuað- gerðir eru nær 128 milljónir króna gjaldfærðar í ársreikningi 1991 auk þess sem áður hafði ver- ið gert ráð fyrir til niðurfærslu og afskrifta á kröfum af þessum sök- um. Þessar viðbótarafskriftir á kröfum svara t.d. til rúmlega 3% af iðgjöldum ársins. Iðgjöld ársins voru 4.207 m.kr., sem var 21,7% aukning frá árinu áður. Eigin iðgjöld voru 3.410 m.kr. og jukust enn meira, eða um 25,4% milli ára. Eigin tjón jukust minna, voru 3.078 m.kr. sem var 18,9% aukn- ing milli ára. Eigin tryggingasjóðir félagsins námu 4.283 m.kr. í árslok, sem var 1.005 m.kr. hækkun frá fyrra Ók bifhjóli á Ijósastaur Ungur drengur var fluttur á slysa- deild eftir að hann hafði ekið léttu bifhjóli sínu á ljósastaur við Bugðu- tanga í Mosfellsbæ, laust eftir klukk- an fjögur í gær. Þegar á slysadeild var komið kom í ljós að hann var fót- brotinn. Ekki er vitað um málsatvik. -PS Ferðakostnaður upp um 14% eftir stjórnarskiptin: Ferðaglöð ríkisstjórn Frá áramótum 1989 hafa ráðherrar og makar þeirra ferðast til út- landa fyrir um 75,5 milljónir króna. Af þessari upphæð hafa um 28,6 milljónir farið til að greiða dagpeninga til ráðherra og maka þeirra. Ellefu ráðherrar ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar ferðuðust að meðaltali fyrir um 63 þúsund krónur á dag. Tíu ráð- herrar ríkisstjómar Davíðs Oddssonar hafa hins vegar ferðast fyrir rúmlega 73 þúsund krónur á dag þá 300 daga sem þeir hafa setið í ráðherrastólunum. Þessi aukni ferðakostnaður hefur orðið þrátt fyrir að ríkisstjórain lækkaði dagpeningagreiðslur til ráðherra. í svari við fyrirspum frá Eggerti Haukdal (Sjfl.) sem lagt var fram á Al- þingi í vikunni er fjallað um ferða- kostnað síðustu ríkisstjórnar á árun- um 1989, 1990 og til stjómarskipta í lok apríl 1991. Eins og Tíminn sagði frá í gær er Jón Baldvin Hannibalsson sá ráðherra ríkisstjómarinnar sem mest ferðast. í síðustu ríkisstjóm átti Jón Baldvin einnig metið, ferðaðist fyrir 12,8 milljónir á tímabilinu. Næstur kemur Jón Sigurðsson með samtals um 7,8 milljónir, þá Steingrímur Hermanns- son með 6,5 milljónir, Halldór Ás- grímsson með 5,5 milljónir, Júlíus Sólnes með 5 milljónir (Júlíus varð ráðherra í okt. 1989), Steingrímur J. Sigfússon með 4 milljónir, Svavar Gestsson með 4 milljónir, Guðmund- ur Bjamason með 3,6 milljónir, Ólaf- ur Ragnar Grímsson með 1,7 milljón- ir og Jóhanna Sigurðardóttir með tæplega 990 þúsund. Þá fór Óli Þ. Guðbjartsson (varð ráðherra í okt 1989) þrisvar til útlanda og dvaldi þar í 17 daga sem kostuðu tæplega 1,6 milljón. Til samanburðar fór Ólafur Ragnar 7 ferðir til útlanda og dvaldi þar samtals í 43 daga á tímabilinu. Jón Baldvin var 131 dag erlendis á árinu 1990, en hann hefur staðið í ströngum samningaviðræðum um EES og verið formaður ráðherraráðs EFTA. Sama ár var Júlíus Sólnes er- lendis í 81 dag og Steingrímur Her- mannsson í 66 daga. Margoft hefur verið hneykslast á miklum ferða- kostnaði Júlíusar Sólnes. Eftirmaður hans í umhverfisráðuneytinu hefur þó ferðast meira en Júlíus þá 10 mán- uði sem hann hefur verið ráðherra. Ferðakostnaður Júlíusar var um 8.800 krónur á dag að meðaltali. Ferðakostnaður Eiðs hefur hins vegar verið um 10.000 krónur á dag að meðaltali. Eiður mun á næstunni fara með fríðu föruneyti á umhverfisráð- stefnu í Rio De Janerio í Brasilíu. Athygli vekur hve dagpeninga- greiðslur eru stór hluti af heildar- ferðakostnaði ráðherra og maka þeirra, en af 75,5 milljónum fara 28,6 milljónir í dagpeninga til ráðherra og maka þeirra. Eftir er að greiða skatt af þessari dagpeningaupphæð. Ráðherr- ar þurfa ekki að greiða hótelkostnað, fargjöld eða risnu af dagpeningum. Það má því líta á svo á að dagpeningar séu að stærstu hluta launauppbót til ráðherra. Mjög mismunandi er hvað ráðherrar fá í dagpeninga, það fer eft- ir því hvað þeir ferðast mikið. í tíð síð- ustu ríkisstjómar fengu Jón Baldvin og eiginkona hans t.d. 4.305 þúsund í dagpeninga, en Jóhanna Sigurðar- dóttir fékk einungis 386 þúsund á þessu tímabili sem telur um 850 daga. Jóhanna hefur alla tíð verið afar sparsöm hvað ferðalög varðar. Hún hefur hins vegar ferðast mun meira eftir að hún tók sæti í ríkisstjóm Dav- íðs Oddssonar og hefur t.d. fengið 416 þúsund í dagpeninga í þá 300 daga sem hún hefur setið í ríkisstjóm hans. - EÓ Vinningstölur 21. marS 1992 laugardaginn VINNINGSHAFA UPPHÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA 1. Zutxtyjjdir 3. 4af5 I 7.957.019 181.041 307 8.138 4. 10.746 542 Heildarvinningsupphæö þessa viku: kr. 25.685.064 UPPLYSINGAR SIMSVAHI91 -681511 LUKKUUNA991002

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.