Tíminn - 27.03.1992, Page 9
Föstudagur 27. mars 1992
Tíminn 9
Brúð-
kaup
Imans
og
Dav-
ids
Bowie
verður
/ ■ / /
ijum
Fyrir sex mánuðum dró David Bo-
wie hring með risastórum gulum
demanti á baugfmgur vinstri
handar Imans hinnar sómalisku,
sem í eina tíð var hæst launaða fyr-
irsæta heims en er nú orðin leik-
kona. Umhverfið var rómantískt,
bátsferð eftir Signu og dýrlegur
málsverður við kertaljós, kjörið
fyrir bónorð sem Iman segir hafa
komið sér algerlega á óvart.
Eftir þrjá mánuði endar svo til-
hugalífið með brúðkaupi á eyjunni
Mustique, en þar á David hús, að
viðstöddum vinum og vanda-
mönnum en Iman segir þau end-
urskoða gestalistann stöðugt og þá
frekar til að skera niður en hitt.
Öruggt er þó að í hópi gestanna
verða sonur Davids, Joe, úr hjóna-
bandinu með Angie, og dóttir Im-
ans, Zulakha, úr hjónabandi með
bandaríska körfuboltaleikmannin-
um Spencer Haywood. Reyndar
giftist Iman íyrsta manni sínum í
Sómalíu þegar hún var aðeins 16
ára en það hjónaband var skamm-
líft þar sem bæði voru þau ung.
Aðrir í hópi gesta verða foreldrar
„ Við David eigum margt sam-
eiginiegt, t.d. þykir okkur sér-
lega gaman aö ferðast, “ segir
Iman og það er eins gott því að
þau eru bæði á ferð og flugi,
ýmist saman eða sitt í hvoru
lagi.
Imans, faðir hennar er diplómat og
móðirin kvensjúkdómalæknir. Þau
búa í Tanzaníu og það gera bræður
Imans líka. Systur hennar tvær
stunda nám við New York háskóla.
Systkini Imans hafa gert hana
fimm sinnum að töntu. Og það er
einmitt þessi dreifða fjölskylda
sem skapar eina vandamálið við
brúðkaupið. Það er illmögulegt að
komast niður á nákvæma dagsetn-
ingu fyrr en allir hafa fengið vega-
bréfsáritun og þegar síðast fréttist
var það mál ekki leyst.
Eins og skiljaniegt er hafa bræður
og foreldrar Imans ekki kynnst
David ennþá og bræðrum hennar
líst svona og svona á hneykslan-
lega náungann „Ziggy Stardust"
sem þeir hafa kynnst í sjónvarp-
inu. Iman segir að foreldrar henn-
ar leggi blessun sína yfir ráðahag-
inn.
Iman er 36 ára og David Bowie 45.
Þegar hún er spurð hvaða vonir
hún geri sér um hjónabandið segir
hún: Langlífi og hamingju, og við
skulum vona að henni verði að ósk
sinni.
Fáar aðrar konur gætu boriö
trúiofunarhrínginn með stóra
gula demantinum, en fyrrum
fyrírsæta og núverandi leikkona
Iman, fædd I Sómalíu, gerir það
með reisn.
Neil Simon skilur í
annað sinn
- við sömu konuna
Bandaríska leikritaskáldið Neil
Simon er búinn að gera tvær til-
raunir til að vera giftur Diane og
báðar hafa þær farið út um þúfur.
Allt byrjaði þetta með því að leik-
ritahöfimdurinn kom auga á af-
greiðslustúlku við snyrtivöruborð
í stórmarkaði sem honum leist vel
á. Þar var hin upprennandi leik-
kona Diane. Eftir tilhugalíf spáss-
eruðu þau saman upp að altarinu
1987. Ári síðar voru þau skilin.
1989 gerðu þau aðra tilraun en nú
er skilnaðarmál þeirra fyrir dóm-
stóli í Los Angeles og fer Neil fram
á sameiginlega forsjá dóttur Diane
frá fyrra hjónabandi, Bryn, sem er
átta ára. Hann tekur þó fram að
hann vilji ekki greiða með barn-
inu.
Neil Simon sagði um fyrra hjóna-
band hans og Diane að það væri
líkast lélegu leikriti. „Þetta hjóna-
band gekk ekki vegna þess að því
var ekki ætlað að ganga. Það má
sjá fræ eyðiieggingarnar í því mjög
snemma og ég vissi að ég hefði
ekki átt að halda áfram. En það var
eitthvað yndislegt við það og það
er margt yndislegt við Diane," seg-
ir hann.
En það er augljóst að honum
dugði ekki að vera leikritaskáld
með innsæi því að hann bætir við:
„Svo að við reyndum það — en
því miður tókst það ekki. Mér þótti
Ekki vitum við númer hvaö þetta
brúökaup var en á henni eru
Neil Simon, Diane og dóttir
hennar Bryn.
það sárt að hjónabandið mis-
heppnaðist. Ég vildi að það hefði
Glenda Jackson
gerir hlé á kosninga-
baráttunni
Breska leikkonan Glenda Jackson,
sem er í framboði fyrir Verkamanna-
flokkinn í komandi þingkosningum í
Bretlandi, hefúr orðið að gera hlé á
kosningabaráttunni þar sem Daniel
sonur hennar varð fýrir því óláni að
missa vinstra augað eftir að hafa
fengið glerbrot í andlitið í slagsmál-
um á krá. Daniel er 23ja ára og einka-
sonur leikkonunnar. Faðir hans er
leikarinn Roy Hodges. Móðir hans
segir hann bera sig vel og að hún sé
mjög stolt af honum.
Glenda er ein frægasta leikkona
Breta og hefur unnið til tvennra Ósk-
arsverðlauna. Hún var sæmd heið-
ursorðunni CBE 1978. Og 1990 var
hún valin sem þingframbjóðandi
Verkamannaflokksins lyrir Hampstead
og Highgate.
Breska leikkonan Glenda Jack-
son er í framboöi til þingkosn-
inganna t Bretlandi á vegum
Verkamannaflokksins.