Tíminn - 28.03.1992, Síða 1

Tíminn - 28.03.1992, Síða 1
Árangurinn af markaðsstarfi skagfirskra bænda að koma í Ijós: Heilt Samaþoip lagt undir íslenska hesta Þrír íslenskir aðilar hafa allt frá því í haust unnið að markaðssetningu ís- lenska hestsins meðal Sama í Sví- þjóð. Þessi vinna er nú það langt komin að ákveðið er að í vor og sumar verði prufukeyrt tilrauna- verkefni, þar sem íslenskir hestar verða notaðir við smölun á hrein- dýrum Samanna í stað vélhjóla. Þeir íslendingar, sem hafa borið hit- ann og þungann af verkefninu, eru skagfirsku bændurnir Sigurður Hansen í Kringlumýri, Jóhann Þor- steinsson á Miðsitju og Þórður Er- lingsson, sem er búsettur í Svíþjóð. Verkefnið verður prufukeyrt í bæn- um Ammarnas í norðurhluta Sama- byggða. Gangi það eftir má búast við að sænsk stjórnvöld styrki önnur þorp Sama til þess að skipta um far- skjóta, úr vélhjólum yfir í íslenska hesta. Sjá nánar á blaðsíðu 2. Sigri fagnaö yfir ísraelsmönnum. Tímamynd Ámi Bjama Stjómarandstaðan lýsir eftir viðbrögðum forsætisráð- herra vegna EB-ummæla utanríkisráðherra: Einkaálit eða stefna? Stjómarandstaðan á þingi hefur brugðist hart við orðum Jóns Baldvins Hannibalssonar utan- ríkisráðherra í skýrslu um utan- ríkismál sem lögð var fyrir Al- þingi í vikunni. í skýrslunni segir m.a. að rétt sé að kanna hvaða áhrif hugsanleg innganga íslands í Evrópu- bandalagið kynni að hafa á efna- hagslíf og stjórnkerfi íslands. Jafnframt þyrfti að ganga úr skugga um það hvort yfirhöfuð verði komist hjá því að ganga í EB. Stjómarandstaðan telur hins vegar að allar grundvallarupplýs- ingar liggi þegar fyrir í málinu og ekki sé annað hægt en að túlka ummæli utanríkisráðherra sem svo að stefnubreyting hafi orðið innan ríkisstjórnarinnar á þann veg að innganga íslands í EB komi fyllilega til greina. Stjórnarandstaðan lýsir því eftir viðbrögðum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra við ummælum utanríkisráðherra. Sjá viðtöl við leiðtoga stjómar- andstöðuflokkanna á blaðsíðu 9. Íslandí A-keppni íslenska handboltaliðið tekur þátt í A-keppni HM í Svíþjóð á næsta ári. Allt um úrslitin í Austurríki á blaðsíðu 6 Síðasta afgreiðsla Ríkissamningsins o o er í nánd en með honum er veittur vemlegur afsláttur af Macintosh-tölvubúnaði. Aðgang að samningnum eiga: Ríkisfyrirtæki, sveitarfélög landsins og starfsmenn þeirra, kennarar, nemendur á háskólastigi, nemendur VI, nemendur innan BÍSN og allir menntaskólanemar. Lokadagur pantana er 31. mars Apple-umboðið Skipholti 21, Rvk. Sími: (91) 624800 ■ v IP*/ Innkaupastofnun ríkisins Borgartúni 7, Rvk. Sími: (91) 26844

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.