Tíminn - 28.03.1992, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 28. mars 1992
Byggðastofnun segir að reynsla hinna Norðurlandanna af því að flytja stofnanir út á land sé ekki góð:
Byggðastofnun er andvíg
því að hún verði flutt norður
Stjóm Byggöastofnunar hefur sent forsætisráðherra greinargerð
þar sem lýst er sjónarmiðum stofnunarinnar til hugmynda um
flutning rðdsstofnana út á landsbyggðina. í greinargerðinni er lýst
andstöðu við hugmyndir um að flytja Byggðastofnun til Akureyrar
og fullyrt er að reynsla hinna Norðurlandanna af því að flytja stofn-
anir út fyrir stærstu þéttbýlissvæðin sé ekki góð. Forsætisráðherra
segist ekki vera sammála sjónarmiðum Byggðastofnunar og segir
að Alþingi verði að ákveða hvort Byggðastofnun verði flutt til Akur-
eyrar.
Mál þetta var rætt á Alþingi þegar
Davíð Oddsson forsætisráðherra
svaraði fyrirspum frá Gunnlaugi
Stefánssyni (Alfl.) um flutning ríkis-
stofnana út á land.
Forsætisráðherra minnti á í svari
sínu skýrslu sem var unnin fyrir 20
árum, en nefnd sem vann hana lagði
til að 25 stofnanir yrðu fluttar út á
land. Aðeins ein af þessum stofnun-
um hefur verið flutt frá Reykjavík,
þ.e. Skógrækt ríkisins. Formaður
nefndarinnar var Ólafur Ragnar
Grímsson. Hann sagði að það væri
betra ef farið hefði verið eftir tillög-
um nefndarinnar. Nú væri það erfið-
ara því að búið væri að byggja þær
upp á þessum tíma sem liðinn er í
Reykjavík. Því miður hefðu menn
ekki haft pólitískt hugrekki til að
fylgja tillögum nefndarinnar eftir.
lgreinargerð Byggðastofnunar er
vísað til reynslu hinna Norðurland-
anna af flutningi stofnana út fyrir
þéttbýlissvæði. Þar segir að þau
vandamál sem upp hafi komið sam-
fara þessum flutningum hafí reynst
umfangsmeiri en talið var í upphafi.
Mikill kostnaður hafi fylgt endur-
skipulagningu stofnana á nýjum
stað og starfsmenn hafi verið tregir
til að flytja með stofnunum. í grein-
argerðinni segir að á grundvelli
fenginnar reynslu telji stjórnvöld á
hinum Norðurlöndunum að flutn-
ingur af þessu tagi sé ekki fram-
kvæmanlegur.
f greinargerðinni er lagst gegn því
að Byggðastofnun verði flutt til Ak-
ureyrar. „Vegna tengsla stofnunar-
innar við ríkisstjórn og ráðuneyti er
hagkvæmast að staðsetja aðalskrif-
stofuna í Reykjavík. Stofnunin
gegnir hlutverki sínu sem málsvari í
stjórnkerfinu vel ef hún er staðsett í
Reykjavík. Eins og glögglega hefur
komið í ljós í ársskýrslu stofnunar-
innar og öllum lýsingum á starfsemi
hennar eru samskipti og samvinna
við Alþingi, ríkisstjórn, ráðuneyti,
ríkisstofnanir, banka og sjóði, sem
öll eru í Reykjavík, veigamikill þátt-
ur í starfsemi stofnunarinnar.
Tengsl stofnunarinnar við þessa að-
ila fer tíðum fram í gegnum per-
sónuleg samskipti. Staðsetning
Byggðastofnunar í fjarlægð frá þess-
um aðilum dregur úr möguleikum
hennar til að sinna hlutverki sínu.
í hinum nýju Iögum um Byggða-
stofnun er gert ráð fyrir auknu sam-
ráði við stofnanir á höfuðborgar-
svæðinu frá því sem verið hefur.
Staðsetning stofnunarinnar á Akur-
eyri veldur auknum kostnaði og fyr-
irhöfn fyrir þá sem til hennar þurfa
að sækja. Þeir sem til hennar þurfa
að leita þurfa að ná fundum æðstu
yfirmanna stofnunarinnar. Ef stofn-
unin er á Akureyri eiga þeir engin
önnur erindi þangað en samskipti
við hana. Reykjavík er augljóslega
ódýrasti staðurinn á landinu undir
starfsemi sem á að þjóna fólki alls
staðar af landinu."
Davíð sagði að röksemdir stjórnar
Byggðastofnunar gegn flutningi
hennar til Akureyrar mætti nota um
hvaða stofnun sem er. Hann sagðist
ekki vera alveg sammála þessum
röksemdum en sagðist heldur ekki
vilja hafna þeim algerlega. Davíð
sagði nauðsynlegt að Alþingi fjalli
sjálft um það hvort flytja eigi
Byggðastofnun til Akureyrar. Hann
sagðist ætla að mæla með því við
þingið að það verði gert. Hann
kvaðst hafa sett það inn í drög að
reglugerð um Byggðastofnun sem
sett var í vetur að stofnun verði stað-
sett á Akureyri, en honum hafi verið
bent á að sér væri tæplega heimilt
að ákveða það án samráðs við Al-
þingi. Leitað yrði eftir viIjaAlþingis í
þessu máli.
Allmargir þingmenn tóku til máls
við umræðuna. Nær allir mæltu
með því að Byggðastofnun yrði flutt
til Akureyrar.
-EÓ
Menningardagar á Héraði:
Don Kíkóti
og Sancho
komnir til
Egilsstaða
Þessa dagana standa yfir menningardagar á Héraði. Stærsta atriði
daganna er sýning Leikfélags Fljótsdalshéraðs á söngleiknum Æv-
intýrariddarinn Don Kíkóta eftir Dale Wasserman og Joe Darion eft-
ir sögu Cervantes. Söngleikurinn var frumsýndur í gærkvöldi. Þetta
er í fyrsta skipti sem leikur er sýndur hérlendis, en hann hlaut
mikla aðsókn og viðurkenningu þegar hann var fluttur á Broadway
og var sýndur þar 2.328 sinnum.
M-hátíð á Suðurnesjum
Leikritið um Don Kíkóta gerist á
Spáni í lok 16. aldar og segir frá að-
alsmanninum Alonso Quijana sem
ruglaðist eilítið í ríminu og lagði af
stað út í heim sem riddarinn Don
Kíkóti ásamt þjóni sínum Sancho,
til að berjast fyrir réttlætinu og
frelsa fagrar konur. Þetta er fisléttur
gamanleikur með fjölda söngva.
Þýðandi leiksins er Óskar Ingi-
marsson og leikstjóri er Einar Þor-
bergsson.
Önnur sýning á Don Kíkóta verður
í dag, 28. mars, kl. 20.30. Ráðgerðar
eru átta sýningar á leikritinu, sú síö-
asta 12. apríl.
Fleira verður boðið upp á á menn-
ingardögum á Héraði. I dag verður
opnuð sýningin „Ljóð og litir" á
verkum eftir Guðrúnu TVyggvadótt-
ur í húsakynnum RARIK á Egils-
stöðum. Þann 4. apríl opnar Mynd-
listarfélag Fljótsdalshéraðs mynd-
listarsýningu að Miðvangi 22 á Eg-
ilsstöðum. 10. apríl verða tónleikar
hjá Djasssmiðju Austurlands og
daginn eftir sýna nemendur Fella-
skóla leikritið „Föstudagur hjá smá-
fúglunum," eftir Iðunni Steinsdótt-
ur. Sýnt verður í Fellaskóla kl.
20.30. Þá verða kvikmyndasýningar,
skoðunarferðir, rútuferðir á skíða-
svæðið í Oddsskarði, myndlistarsýn-
ingar, tónleikar og fleira.
Flugleiðir býður upp á sérstaka
helgarpakka til Egilsstaða í tengsl-
um við menningardaganna. Innifal-
ið er flug, gisting, matur og leikhús-
miði. Þá býður Hótel Valaskjálf upp
á mat að hætti Don Kíkóta. -EÓ
Á morgun verður setningarhátíö,
M- hátíðar á Suðurnesjum og hefst
hún í Félagsheimilnu Stapa
kl.16.00.
Fjöibreytt dagskrá verður við setn-
inguna og má þar nefha að Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngur við undirleik
Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur,
Jón Böðvarsson ritstjóri flytur erindi
og fleira verður boðið upp á. M-há-
tíðin er haldin á vegum Mennta-
málaráðuneytisins í samstarfi við
sveitarfélögin á Suðumesjum. Á
meðfyigjandi mynd má sjá þá sem
hafa veg og vanda af M-hátíðinni, frá
vinstri: Stefán Baldursson þjóðleik-
hússtjóri, Erlendur Kristjánsson,
deildarstjóri í menntamálaráðuneyt-
inu, Ólaiúr G. Einarsson mennta-
málaráðherra, Björk Guðjónsdóttir,
formaður framkvæmdanefndar, og
Guðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga
á Suðumesjum. Tímamynd Ami Bjama
Umferðarslys við
Skutulsfjörð:
Ökumenn
fluttir á
sjúkrahús
Ökumenn tveggja fólksbifreiða
voru fluttur á sjúkrahúsið á ísafirði
eftir umferðarslys í Kirkjubólshlíð-
inni við Skutulsfjörð klukkan 8.30 í
gærmorgun.
Fólksbfiarnir lentu saman, en
slæmt skyggni var, ofankoma og
skafrenningur. Beita þurfti klippum
til að ná öðrum ökumanninum út úr
bifreiðinni og eins og áður sagði
voru báðir ökumenn fluttir á sjúkra-
hús, annar lítið meiddur, en hinn
meira. Samkvæmt upplýsingum
læknis á sjúkrahúsinu er hann ekki í
lífshættu, en líðan að öðru leyti eftir
atvikum. Farþegi sem var í öðmm
bílnum slapp ómeiddur. —PS
Leikfélag Keflavíkur:
Gísl í
Keflavík
Leikfélag Kefiavíkur frumsýndi
leikritið Gísl eftir Brendan Behan
í Félagsbíói í Keflavík í gærkvöldi.
Leikstjóri er Pétur Eggerz, en
með aðalhlutverk fara Jóhannes
Kjartansson, Halla Sverrisdóttir,
Hafsteinn Gíslason og Vigdís Jó-
hannsdóttir.
Önnur sýning verður sunnu-
dagskvöldið 29. og sú þriðja
mánudagskvöldið 30. mars.
Gísl er annað verkefni Leikfé-
lags Keflavíkur á 30 ára afmælisári
félagsins. Á sl. hausti sýndi félagið
revíuna Fréttaveita Suðurnesja Gísli Gunnarsson, Brynja Aðalbergsdóttir og Jóhannes Kjart-
eftir Ómar Jóhannsson. ansson í hlutverkum sínum í Gísl á sviðinu í Félagsbíói.