Tíminn - 28.03.1992, Side 14

Tíminn - 28.03.1992, Side 14
14 Tíminn Laugardagur 28. mars 1992 „Mér finnst ég ætíð vera að koma heim til Borgarness leið min liggur þar um“ EKKI HEFUR farið fram hjá neinum að Borgnesingar fagna 125 ára afmæli verslunarréttinda sinna um þessar mundir, og hefur þess verið minnst að undanfömu heima í héraði og víðar. Timinn hefurfrá þvl fýrsta átt marga velunnara í Borgamesi, og er að því kom hvemig við hér á blaðinu mættum leggja okkar skerf til að minnast Borgamess af þessu tilefni, datt okkur í hug aö biðja Halldór E. Sigurðsson, fyrrum ráð- herra og sveitarstjóra í Borgamesi í fjórtán ár, að rifja með okkur upp sitthvað frá árum sínum þar. Hall- dór varð vel við beiðni okkar. Hann segir hér á eftir frá tildrögum þess að hann eftir átján ára búskap að Staðarfelli í Dalasýslu brá búi til þess að taka við sveitarstjóm. Tími Halldórs í Borgamesi varð tími at- hafna og vaxtar í byggðinni og ekki tök á að gera öllu því skil sem á daginn dreif. Hann átti og sæti á Alþingi langmestan hluta sveitar- stjóratíðar sinnar og vann byggð- inni á þeim vettvangi einnig. Urðu afskipti hans af málefnum Borgar- ness þannig löng og heilladrjúg og er Borgarfjarðarbrúin sjálfsagt viðamesta merki þess. Varð úr að hann rifjar hér upp, auk aðdrag- andans að komu sinni í Borgar- nes, þróun vatnsveitumála sem mjög tóku upp tíma hans og krafta þessi ár, en í vatnsveitumálum Borgarness var oft við ærinn vanda að glíma. Má það vera íhugunarefni þeim, sem yngri eru, að leiðin til þeirra hagsbóta og þæginda, sem menn nú lifa við, var ekki ætið auðsótt. „Það var haustið 1954 að ég hafði ferið um Suðurland til fundarhalda og persónulegra samtala við fólk að ósk forystumanna Framsóknar- flokksins," segir Halldór. „Fór ég um Vestur-Skaftafellssýslu ásamt Óskari Jónssyni í Vík, sem var bráð- skemmtilegur maður og ágaetur vin- ur minn. Síðan fór ég um Rangár- vallasýslu og varð þetta allmikill leið- angur, en heim komst ég fýrir jól. Eftir þetta ferðalag var mér efst í huga að setjast um kyrrt á búi mínu og sinna því næstu árin. Ég leit svo á að erindrekstri mínum fyrir Fram- sóknarflokkinn væri lokið og hafði raunar ekki áhuga á meiri ferðalög- um af þessu tagi um sinn. Símtal að sunnan Jól og áramót liðu í friðsæld með venjulegum hætti, en ekki var langt Iiðið á árið 1955 þegar dró til tíö- inda. Ég held að það hafi verið 4. janúar sem beðið var um mig í sí- mann úr Reykjavík. Þar var Þráinn Valdemarsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, og kvað erindi sitt að færa mér nýársóskir og góðar kveðjur frá forystumönnum Fram- sóknarflokksins, þeim Hermanni og Eysteini, og það með að ég kæmi til Reykjavíkur að ræða við þá, meðal annars um mjög áríðandi mál er varðaði Borgarnes. Meira sagði hann ekki, en það nægði til þess að mig fór að gruna sitt af hverju. Leitað ráða hjá Þórði Pálmasyni Þetta var rétt fyrír helgi og bauðst Þráinn til að láta sækja mig upp að Dalsmynni, ef ég gæti komið mér þangað sjálfur. Það varð úr að ég fór þessa ferð og hugsaði ég mikið um hvert erindið mundi vera. Hafði ég að vísu heyrt ávæning af því að þá vantaði sveitarstjóra í Borgarnesi, og þar sem mig grunaði að erindið kynni að tengjast þessu, lagði ég lykkju á leið mína á leiðinni til Reykjavíkur og kom við í Borgar- nesi, þar sem ég fann að máli Þórð Pálmason kaupfélagsstjóra og spurði hann hvemig mál stæðu í bænum og þá einkum um sveitarstjóramál- ið. Meirihluti sveitarstjórnar í Borg- arnesi var þá skipaður tveim fram- sóknarmönnum, einum Alþýðu- flokksmanni og einum Alþýðu- bandalagsmanni. Sagði Þórður mér að þessi meirihluti, sem hafði aðeins 13 atkvæði fram yfir Sjálfstæðis- flokkinn, væri nú að leita sér að sveitarstjóra og hafði hann snúið sér til skrifstofu Framsóknarflokksins í Reykjavík, sem hefði bent sér á mig. Ég spurði nú margs um málefni Borgarness og varð þetta mér góður undirbúningur og nú hafði ég líka fengið fulla vissu um hvert erindi flokksforystunnar syðra væri við mig. Ráðagerðir flokksforingjanna Þegar til Reykjavíkur kom, hitti ég þá Hermann Jónasson, Eystein Jóns- son og Þráinn Valdemarsson. Sem mig grunaði var erindið að ég tæki að mér sveitarstjórastarfið í Borgar- nesi, að beiðni meirihlutans, og flyttist þangað. Spyrja þeir nú hvort ég vilji taka þetta að mér. En hér lá meira að baki. Andrés Eyjólfsson í Síðumúla, þingmaður Mýramanna á síðasta kjörtímabili, var kominn um sjötugt og búinn að hafa orð um það að hann færi ekki oftar í framboð. Hugmynd þeirra Hermanns og Ey- steins — svo og einhverra frammá- manna Framsóknarflokksins í Mýra- sýslu — var að ég tæki virkan þátt í flokksstarfmu í Mýrasýslu og gæfi kost á mér til framboðs í kjördæm- inu, ef heimamenn leituðu eftir því. Ég ræddi málið lengi við þá Her- mann og Eystein og hugleiddi að- stöðu mína, benti þeim á að þetta gæti orðið nokkuð tvísýn ráða- breytni fyrir mig og ekki hægt að ganga að því vísu að þessi ráðagerð gengi eftir. Þótt ég yrði ráðinn sveit- arstjóri í Borgarnesi, væri ekki víst að ég héldi því starfi nema þetta eina kjörtímabil. Þá gæti annar meiri- hluti komið til og ráðið annan sveit- arstjóra. Enn meiri óvissa væri um að ég fengi pólitíska staðfestu í Mýrasýslu. Slíkt væri auðvitað alveg óráðin gáta. Ef þetta hvort tveggja brygðist, stæði ég atvinnulaus uppi og ætti ekki afturkvæmt í Staðarfell. Nú stæðu mín mál hins vegar þann- ig að ég ætti gott bú á Staðarfelli og væri vel í stakk búinn að reka þar sæmilega arðsaman búskap áfram. Auk þess ætti ég konu og börn og yrði að gæta þess að kasta ekki frá mér því sem áunnist hefði á mörg- um árum á Staðarfelli, fýrir óvíst gengi í Borgarnesi og Mýrasýslu. Ef stutt yrði í sveitarstjórastarfinu og ekki kæmi til framboðs í Mýrasýslu eða ég næði ekki þingsætinu, hefði ég gloprað úr hendi mér lífsafkomu, sem ég hefði nú allörugga. Erfið ákvörðun Hermann og Eysteinn sögðu að þeir yrðu auðvitað að taka á sig þá ábyrgð að útvega mér lífvænlegt starf, ef ég hyrfi að þeirra ráði og verr færi en þeir vonuðu. Ég efaðist að vísu ekki um að þeir mundu standa við þau orð, ef til kæmi, en mér var það heldur hvimleið hugs- un að veröa þannig háður annarra hjálp og ég hef oft hugsað um það síðar hve lán mitt var þó mikið að ég skyldi ekki þurfa að verða þannig upp á aðra kominn með lífsframfæri mitt og fjölskyldu minnar, úr því að svo fór að ég sleppti því landi sem ég hafði náð. Það hefði mér þótt heldur þungt hlutskipti og ekki að mínu skapi. Ég hélt heim án þess að gefa ákveðið svar. Ég sagði konu minni og börnum hvers farið hefði verið á leit við mig og hvernig það hefði verið lagt fyrir. Margrét var ekki fljót til svars og hugleiddi málið vel og við ræddum um það frá ýmsum hliðum. En niðurstaða hennar var sú að þótt hún kynni vel búskapn- um á Staðarfelli, hefði hún aldrei hugsað sér að leggja stein í götu mína né setja mér stól fyrir dyr. Ég yrði því að taka ákvörðun um þetta sjálfur. Hún kvaðst vita að ég hefði áhuga á félagsmálum og stjórnmál- um. Hið sama sagði móðir mín. Og þótt áhættan væri jafnmikil og aug- ljós við að stíga þetta skref út í óvissuna og ég hafði gert mér grein fyrir, varð það niðurstaða mín að verða við beiðninni og sækja um sveitarstjórastarfið í Borgarnesi. Sú umsókn var samþykkt. En það var mikil ákvörðun að láta af búskapnum að Staðarfelli og flytja í Borgarnes og svo var innra með mér óttinn við að þetta mis- tækist. Flutt í Borgarnes Þann 25. febrúar var gengið form- lega frá ráðningu minni sem sveit- arstjóra. Ég fór fljótlega að leita fyr- ir mér um íbúð í Borgarnesi og festi brátt kaup á henni. Annars fór mik- ill tími í það næstu vikumar að gera upp reikninga sveitarfélagsins frá fyrra ári, svo og fyrirtækja þess, og hafði ég lokið því í maí. Þá fór ég vestur að Staðarfelli til þess að ganga frá málum mínum þar og flytja fjölskylduna og búslóð okkar til Borgarness. Og 2. júní 1955 flutt- umst við Margrét þangað með syni okkar. Veður var bjart og heiðskírt þennan dag, en vindur allhvass á eftir. Að morgni 4. júní, aðeins tveimur dögum eftir að við komum til Borg- arness, fæddist okkur dóttir. Móður og barni heilsaðist vel og dóttirin var okkur sannkallað óskabam, þar sem við áttum tvo syni fýrir en enga dóttur. Ég þekkti satt að segja ekki mikið til Borgarness áður en ég settist þar að, hafði að vísu komið þangað nokkrum sinnum á liðnum árum og kynnst nokkmm ágætum Borgnes- ingum, en kynni mín af byggðarlag- inu og fólki þess gátu ekki talist ná- in. En ég var nokkuð fljótur að bæta úr þessu. Mér leist þegar vel á mig þama. Fólkið var alúðlegt, staður- inn fallegur, ekki síst frá náttúmnn- ar hendi og það leið ekki á löngu þar til mér fannst ég eiga þarna heima. Og satt að segja hefur sú heimakennd aldrei vikið frá mér síðan. Mér finnst ég ætíð vera að koma heim til Borgarness, þegar leið mín liggur þar um á síðari ár- um, þótt ég sé nú fluttur þaðan fýrir alllöngu. Vatnsveitumál Mín biðu mörg og margvísleg verkefni, en þegar ég minnist ára minna sem sveitarstjóri em það þó vatnsveitumálin sem mér finnst hæst bera. Þau urðu líka það fýrsta sem ég varð að fást við í þessu emb- ætti. Neysluvatnslindir em lífæð hverr- ar byggðar. í Borgarnesi em þær ekki ríkulegar á heimaslóðum. Á fýrstu ámm mun mjög hafa verið notast við bmnna og þeirra sér enn nokkum stað, jafnvel frá öldunum áður en þéttbýlið tók að myndast. Svo hagaði einnig til í Borgamesi eftir að atvinnustarfsemi vatt þar fram, að hún var mjög frek til góðs vatns, einkum hin mikla vinnsla landbúnaðarafurða sem þar festi rætur. í grennd við kauptúnið vestan fjarðar er ekki að finna nægjanlegt og síst nógu gott neysluvatn. Brunnar vom eina úrræðið og 1911 eða 1912 stofnauðu allmargir íbúar vatnsveitufélag og leiddu vatn í all- mörg hús úr svonefndum Þorbergs- Halldór E. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, rifjar hér upp tildrög þess að hann tók við sveitarstjórastarfi í Borgarnesi 1955 og oft örðuga baráttu við að koma vatnsveitumálum byggðarlagsins í viðunandi horf. bmnni. Þetta vom fýrst og fremst íbúar við Egilsgötu. Leið svo fram um 1930 með ein- hverjum fleiri og svipuðum úr- lausnum, en þá vom íbúar orðnir 432. Þessi fólksfjöldi knúði mjög á um frambúðarlausn á vatnsveitu- málinu, enda var þá risið mjólkur- samlag og sláturhús. Á fjórða ára- tugnum var því leitin að góðu neysluvatni og ráðum til þess að ná því heim mjög fast sótt. Árið 1934 hvatti stjórn Kaupfé- lags Borgfirðinga sveitarstjóm til þess að láta kanna hvort gerlegt væri að leiða vatn í kauptúnið sunn- an yfir Borgarfjörð, og 1936 knúði Kvenfélag Borgarness hreppsnefnd fast til þess að hefjast handa um nýtilegar vatnsveituframkvæmdir. Verkalýðsfélagið lagðist á sömu sveif. Á þessum árum hafði Finnbogi Rútur Þorvaldsson verkfræðingur verið fenginn til að kanna vatn- sveitumöguleika Borgarness. Hann komst að þeirri niðurstöðu að væn- legasti kosturinn væri að leiða vatn- ið úr Hafnarfjalli yfir fjörðinn. Veturinn 1937 veitti almennur hreppsfundur um vatnsveitumálið hreppsnefndinni heimild til lántöku vegna vatnsveituframkvæmda og var þá gerð nánari áætlun um þær. Finnbogi verkfræðingur taldi að leiðslan frá lindunum í Hafnarfjalli ætti að liggja niður á Seleyri og það- an yfir á botni fjarðarins. Leið síðan fram að 1940, en þá kom enska setuliðið til Borgarness og settist þar að. Það var svo mikið fjölmenni að fólksfjöldi þar tvöfald- aðist rúmlega. Yfirstjóm setuliðsins var gerð grein fyrir vatnsmálum kauptúnsins og að það væri ekki af- lögufært í þeim efnum. Tókst þá samstarf við setuliðið um vatn- sveituframkvæmdina. Það sam- komulag var í aðalatriðum á þá lund að hreppurinn skyldi leggja veituna og láta setuliðið fá vatn ókeypis úr henni, ef það legði til efnið í leiðsl- una. Framkvæmdir hófust þegar haustið 1940. Stífla var gerð í Sel- eyrargili í Hafnarfjalli, en þar var vatnsbólið. Haustið 1941 var leiðsl- unni lokið og vatnið farið að renna í hús Borgnesinga, en þó var unnið að innanbæjarkerfmu til vors 1942. Vatnsgeymir til miðlunar var reistur á Brennuholti. Vatnsleiðslan úr Þor- bergsbmnni var keypt og notuð um sinn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.