Tíminn - 28.03.1992, Síða 18
18 Tíminn
Laugardagur 28. mars 1992
Höfundur: Jean-Paul Sartre
Þýðlng: Þuríður Kvaran
og Vlgdis Flnnbogadóttir
Leikstjóm: Eriingur Gislason
Lelkmynd: Steinþór Sigurðsson
Lýsing: Alexander Ólafsson
Búningar: Andrea Oddsteinsdóttir
Garðaleikhúslö sýnlr i Kópavogs.
Leikritið segir frá þremur
persónum, sem komnar eru yf-
ir móðuna miklu. Þau gera sér
fljótlega grein fyrir því að stað-
ur þessi er tæpast himnaríki.
Refsingin fyrir misgjörðir í lif-
anda líft liggur í loftinu. En
hvers eðlis verður refsingin?
Hér er enginn böðull mættur á
staðinn með glóandi tengur.
Hvað bíður þeirra?
Það er óbragð í munni þessa
fólks, enda biðja flestir um
tannbursta sem hingað koma,
segir þjónninn, sem vísar
mönnum til sætis í vistarveru
þessari, en hans hlutverk er
ekki ýkja meira, því á hæla
hans er dyrunum lokað og til
lítils að kalla á hjálp eftir það.
Þremenningarnir, sem skikk-
aðir eru til að dvelja bak við
luktar dyrnar, eru í raun böðl-
ar hvers annars. Þau róta upp í
fortíð hvers annars, grípa á
kýlum og kreista fast. Hreins-
unareldurinn brennur á þeim
og hvert og eitt þeirra kyndir
þann eld.
Þrenningin í „Luktum dyr-
um“ fær ekki að hvfla í friði,
eins og burtkölluðum sálum er
yfirleitt óskað. Hvert og eitt
þeirra gerist einskonar löggilt-
ur endurskoðandi á lífi hinna
og dregur fram í dagsljósið
ávirðingar þeirra og glæpi.
Persónurnar reyna að bera
hönd fyrir augu, en ljós sann-
leikans skín í gegnum fing-
urna, ljósið sem aldrei er
slökkt. Hér getur sálin hvorki
lokað augum né eyrum, og það
er ekki unnt að kalla á hjálp,
því það heyrir enginn til þín.
Þeim er skapað að gera upp
reikningana með þeim sárs-
auka sem því fylgir.
Fjórar persónur koma við
sögu í leiknum. Þórir Stein-
grímsson leikur Garcin,
Margrét Ákadóttir Ines, Aldís
Baldvinsdóttir Estelle og Valdi-
mar Lárusson þjóninn. Leikur
þeirra er mjög góður og skapa
þau öll mjög eftirminnilegar
persónur. Þórir og Margrét eru
margreyndir leikarar, en Aldís
er að stíga sín fyrstu skref á ís-
lensku sviði og örugglega ekki
þau síðustu. Leikur hennar var
bæði kröftugur og heillandi.
Þetta er sterk sýning, sem
lætur áhorfandann ekki
ósnortinn. Textinn er að sönnu
ekkert léttmeti, en innan um
dýpri spekina er ívaf hæðni og
léttleika, þannig að telja má að
flestum ætti að reynast nokk-
uð auðvelt að melta það, sem
fram er borið bak við luktar
dyr í Félagsheimili Kópavogs
þessa dagana.
Gísli Þorsteinsson
F ermingarbamamótið
Leikfélag: Hugleikur
Höfundar: Ármann Guðmundsson,
Áml Hjartarson, Hjördís Hjartardóttir,
Innglbjörg Hjartardóttir, Sigrún Ósk-
arsdóttir, Sævar Sigurgeirsson
Leikstjóri: Viðar Eggertsson
Tónllst: Ármann Guðmundsson, Ámi
Hjartarson, Sævar Sigurgelrsson, Þor-
gelr Trygavason
Lýsing: Olafur Öm Thoroddsen
Búningan Vilborg Valgarðsdóttir
Sýningarstaöur: Brautarholt 8, Reykja-
vik
Hugleikhúsið, sem nú er á
níunda ári, frumflutti s.l. Iaug-
ardag sjónleikinn FERMING-
ARBARNAMÓTIÐ. Nafnið gefur
ekki nema að litlu leyti til
kynna innihaldið. Það stendur
reyndar til að hóa saman ferm-
ingarhópnum módel 1955 eða
þar um bil. Ráðherrafrúin
Dúrra er potturinn og pannan í
þeim undirbúningi. En áður en
til sjálfs mótsins kemur, þarf að
kynna til sögunnar fermingar-
börnin og líka hann séra Jón,
sem sá um hina kristilegu upp-
fræðslu á sínum tíma.
Áhorfendur fá m.a. að kynnast
Amljóti útfararstjóra, sérlega
geðstirðum manni, sem auk
áhuga á sundi sporðrennir
hverjum telpnabókaflokkinum
á fætur öðrum og er þegar leik-
urinn hefst á kafi í Möttu Maju-
bókunum. Hann er kvæntur
sérlega geðgóðri konu, Sigur-
línu, sem dansar Svanavatnið á
svefnherbergisgólfinu þá hún
rís úr rekkju morgun hvern af
einskærri lífsgleði.
Þá kemur við sögu opinber
starfsmaður með góð sambönd
innan stjórnkerfisins, Hjörleif-
ur að nafni. Sá
ágæti maður
virðist eingöngu
nærast á osti,
sem hann skolar
niður með drykkjum sem hið
opinbera framleiðir og selur.
Það er bullandi stress á at-
hafnamanninum Sighvati, sem
vinnur að því
nótt sem nýtan
dag að koma á
fót súrkálsfa-
brikku í Krísu-
vík, er nægi til að seðja allan
hinn þýskumælandi heim.
Eiginkona hans Hallveig lendir
í allskyns dulspeki og rugli
vegna vanrækslu húsbóndans
og kynnist Ingólfi Arnarsyni,
fræðimanni og ex-landnáms-
manni eða þannig.
Er hér aðeins drepið á nokkr-
ar þeirra persóna er fram
koma, en æði margra
kúnstugra karaktera er ógetið.
Segja má að í verkinu sé
imprað á ýmsum dægurmál-
um og síðan er sú súpa krydd-
uð með spaugi og flippi og út-
koman verður skratti góð
skemmtun.
Leikarar eru fjölmargir og
auk þess hljóðfæraspilarar.
Leikurinn er ljómandi góður
og leikgleðin hreinlega
streymir fram í salinn til
áhorfenda.
í léttleikandi umQöllun um
verkið, sem birt er í leik-
skránni, segir svo í lokin:
„Boðskapur verksins er tíma-
bær og á erindi við alla mann-
kind. Hver hann svo er verður
hver og einn að dæma sjálfur."
Þetta eru vissulega orð að
sönnu, því það er vandalaust
fyrir hvern og einn með vott af
innsæi i mannlegt samspil að
lesa út úr verkinu hverskyns
tákn, svo æra mætti óstöðugan
að henda reiður á öllu því
safni.
Eitt er víst. Það þarf mikla
hörku og forherðingu til að
láta sér leiðast á sýningu Hug-
leiks að Brautarholti 8.
Gísli Þorsteinsson
HUGLEIKUR
SÝNIR SÖNGLEIKINN
FERMINGARBARNAMÓTIÐ
LEIKSTJÓRI: VIÐAR EGGERTSSON
gírmótorar
rafmótorar
Þýsk gæðavara á góðu verði.
Einkaumboð á íslandi.
GÍRAMÓTORAR
verö m/VSK
0,37KW 40SN Kr. 22.993.-
0.75KW 40SN - 28.894,-
1.50KW63SN - 29.776.-
2.20KW63SN - 38.897,-
4.00KW63SN - 50.700.-
5.50KW63SN - 73.693.-
7.50KW 100SN - 83.772,-
RAFMÓTORAR
verð mA/SK
0.37KW 1500SN Kr. 6.820.-
0.75KW1500SN - 8.380.-
1,50KW 1500SN - 12.220.-
2.20KW 1500SN - 15.110.-
4.00KW 1500SN - 22.360.-
5.50KW 1500SN - 28.800,-
7.50KW 1500SN - 36.410.-
Ef mótorinn er ekki til á lager
okkar þá útvegum viö hann á
skömmum tíma.
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 814670
%
Vélamarkaður
JÖTUNS
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
• MF 50D 1983 grafa
• MF 205 1987 m/iönaðartækjum
• MF60H 1987 grafa
• MF 50HX 1988 grafa
• MF5CHX 1989
• MF 690 2wd 1984
• Claas R46 m/vélbúnaöi 1990
• Krone 1990 njnubindivól 120x120
• Claas R66 87 njllubtndivól 150x120
• Deutz-Fahr 87 rúllubindivól 120x120
• Deutz-Fahr 87 niilubindivól 120x120
• MF 47 heybindivél 1987. Frótekin
• UND 7510 pökkunarvól 90
• UND 7510 pökkunarvéi 90
• MF 350 dráttarvél 2wd 1987 47 hð.
• MF 365 drattarvél 2wd 1987 65 hö.
• MF 355 dráttarvél 4wd 1988 55 hö. Frétekin
• MF 390T dráttarv. 4wd 1990 90 hö. Frótekin
• MF 350 dráttarv. 2wd 1988 47 hö.
• MF 240 dráttarv. 2wd 1986 47 hö.
• Case 1394 dráttarv. 4wd 1985 71 ha. m.
ámoksturstækjum
• MF 390T dráttarvól 4wd 1990 90 hö.
• IMT 577 dráítarvól 4wd 1987 70 hö.
• Univ 445 dráttarvél 2wd 1986 47 hö.
• Same Expl. dráttarvél 4wd 1985 60 hö.
• D. Brown 990 dráttarv. 2wd 1968 60 hö. m.
einvirk-um ámoksturstækjum. Frátekin
• IH XL585 dráttarv. 2wd 1985. 58 hö.
• MF 3080 dráttarv. 4wd 1987 m/frambúnaöi.
Frétekin