Tíminn - 14.04.1992, Side 9
Þriðjudagur 14. apríl 1992
Tíminn 9
DAGBOK
Ný þjónusta Gulu línunnar fyrir landsbyggóarfólk
Hinn 21. mars, kl. 10 fyrir hádegi, tók Gula línan formlega upp grænt númer, sem er
99-6262. Þar með gefst landsbyggðarfóiki kostur á að afla sér upplýsinga um vörur og
þjónustu á Gulu línunni, án þess að þurfa að greiða fyrir langlínusímtal.
Miðlun hf. stofnaði Gulu línuna árið 1987 og hefur þjónustan vaxið jafnt og þétt ár
frá ári. Gula línan gefur upplýsingar um vörur og þjónustu og er ekkert smátt of smátt,
og ekkert stórt of stórt. Vanti fólk upplýsingar um smávörur, verslanir, heildsölufyrir-
tæki, umboð, iðnfyrirtæki eða hvers konar þjónustu, liggur beinast við að hringja í
Gulu línuna, fá allar þessar upplýsingar á einu bretti og spara sér þar með tíma og fyr-
irhöfh.
Þessi þjónusta er augljós hagræðing fyrir landsbyggðarfólk, sem hefur alla tfð þurft
að nota símann mikið við að afla sér upplýsinga.
Þórir Ólafsson, rektor KHl, og Grimur Laxdal, forstjóri Apple-umboðsins á
fslandi, við nýju Macintosh LC vélarnarfrá Apple.
Apple-umboðið færir KHÍ tölvur aó gjöf
Kennaraháskóli Islands hefur um langt
skeið haldið uppi fræðslu um tölvur og
notkun þeirra í skólastarfi. Nú hefur
tölvukostur skólans til nemendavinnu og
kennslu aukist mjög og batnað frá því
sem verið hefur.
Skólinn hyggst efla hvers konar
gagnagerð á tölvur og hefur meðal ann-
ars fest kaup á búnaði frá Apple-umboð-
inu á íslandi í því skyni. Apple-umboðið
hefur ákveðið að styðja þessa viðleitni og
efla tölvukennslu við skólann með
rausnarlegri gjöf að andvirði á þriðju
milljón króna. Um er að ræða tíu Macint-
osh LC tölvur 4/80 með litaskjám. Tölv-
umar verða notaðar í tölvustofu skólans,
jafnt til kennslu og verkefnavinnu nem-
enda. í stofunni eru einnig tíu PC-vélar
sem skólinn þáði að gjöf frá IBM, en
komnar eru mjög til ára sinna. Sá tölvu-
kostur verður endumýjaður með nýjum
og öflugri vélum á þessu ári.
Apple-umboðið hefur í ár og á síðasta
ári stutt Nemendafélag Kennaraháskól-
ans við að koma upp tölvubúnaði fyrir
nemendur til verkefnavinnu. Nú er svo
komið að nemendur hafa alfarið til eigin
nota á annan tug véla frá Apple. Áður
hafði félagið eignast tíu Macintosh Class-
ic vélar ásamt myndskanna, mótaldi og
öðmm aukabúnaði og í ár hafa þrjár
Macintosh LC bæst f hópinn.
Apple-umboðið og Kennaraháskólinn
hafa gert með sér samning um samstarf,
sem miðar að því að efla í skólanum þró-
un og gerö tölvugagna til notkunar í
grunnskólum. Gagnasmiðja skólans
mun hafa forgöngu um þetta starf í sam-
m
Framsóknarmenn
í sveitarstjórnum og nefndum
á vegum þeirra
Málefnahópar þingflokks Framsóknarflokksins um byggðamál
og félagsmál, ásamt þingmönnum flokksins,
bjóða til funda í öllum
kjördæmum landsins
sem hér segir:
Suðurnes
28. apríl kl. 20.30
í Framsóknarhúsinu í Keffavík:
Guðmundur Bjarnason og
Ingibjörg Pálmadóttir.
Guðmundur
Inglbjörg
FUNDAREFNI:
Málefni sveitarstjórna og samskipti
ríkis og sveitarfélaga
Mike Tyson dæmdur í 6 ára
fangelsi fyrir nauðgun
m
I spegli
Timans
Rosie Jones, Ungfrú blakka Ameríka, kærði Tyson í fyrra fyrir kyn-
ferðislega áreitni. Skaðabótakrafan er upp á 100 milljón dollara.
Hnefaleikakappinn Mike Tyson hef-
ur nú verið dæmdur í 6 ára fangelsi
fyrir nauðgun. Reyndar var hann
dæmdur í þrisvar sinnum 10 ára
fangelsi á grundvelli þriggja ákæra,
en í öllum tilvikum var fjögurra ára
dómur skilorðsbundinn og dómar-
inn ákvað að öllum dómunum yrði
fullnægt samtímis. Auk þess var
TVson dæmdur í 30.000 dollara
sekt. Hann fær ekki lausn gegn
tryggingu þar til áfrýjun hefúr ver-
ið tekin fyrir þar sem hætta þykir á
að hann kunni að halda áfram að
brjóta af sér ef hann gengur Iaus.
Það var 19 ára gömul blökk feg-
urðardrottning, Desiree Washing-
ton, sem ákærði Mike TVson fyrir
nauðgun sem hann neitaði stað-
fastlega að hafa framið. Reyndar
sagðist hún myndi hafa fallið frá
ákærunni ef TVson hefði beðið sig
afsökunar, en hann hefði látið það
ógert og þess vegna hefði málið
haft sinn gang.
Nú hefur ýmislegt komið upp úr
kafinu um umgengni Mikes við
konur. Hann var ekki nema 12 ára
þegar hann náðist eftir að hafa þrif-
ið handtösku af konu í Brooklyn og
var sendur á betrunarheimili fyrir.
Það var þó ekki fyrr en í hjóna-
bandinu með sjónvarpsstjömunni
Robin Givens og í hávaðasömum
og grimmdarlegum skilnaðarbar-
daga þeirra sem Ijósinu var beint
að því að hnefaleikakappinn var
ekki ljúfur eins og lamb í viðureign
sinni við konur. Hann hafði iðulega
beitt konu sína valdi og á að hafa
sagt félaga sínum að besta höggið á
ferlinum hefði hann greitt Robinl
Eftir skilnaðinn við Robin hélt Tý-
son uppteknum ofbeldisfullum
hætti. Fyrir tveim árum lagði
Phyllis Polander blaðafulltrúi fram
kæru á hann fyrir að hafa ráðist á
sig kynferðislega meðan hann var
enn giftur Robin. Reyndar flaut Ro-
bin með í ákærunni fyrir að hafa „af
illkvittni" ekki skorist í Ieikinn.
Fyrir þrem árum gerðist hann svo
nærgöngull við Sandra Miller á
diskóteki f New York að hún fór
Þaö varð dýrt spaug fyrir Mike
Tyson að giftast Robin Givens
og skiija við hana. Skilnaðurinn
varö honum dýr.
Villidýrið og kvennaskeifirinn Mike Tyson er nú í vondum máium.
Robin Young var hin altillegasta
við hnefaleikakappann til að
byrja með en nú liggur fyrir
krafa frá henni um tvær milljónir
dollara fyrir „auömýkingu, kvöl
og likamsmeiðingar".
fram á 3,5 milljón dollara skaða-
bætur. Henni voru dæmdir 100
dollarar.
Sama kvöld og á sama stað káfaði
hann á Lori Davis, sem fór fram á 7
milljón dollara bætur en um það
mál var samið áður en til afskipta
dómstólanna kæmi.
Diskótekin í New York hafa reynst
Mike TVson dýr freisting. Það var
einmitt á einu slíku sem hann
rakst á Robin Young. Það fór vel á
með þeim í fyrstu en svo gerðist
hann of ágengur, að því er hún seg-
ir, og hún hefur lagt fram kæru og
krefst tveggja milljón dollara
skaðabóta fyrir „auðmýkingu, kvöl
og líkamsmeiðsl".
Það virðast gjama vera bakhlutar
kvenna sem hafa komið Mike í
bobba. Trena Archie, dansmær f
Los Angeles, heldur því fram að
hann sé faðir sonar hennar, Jaston.
Mike Ieitaði á hana á kaffihúsi fyrir
þrem árum og fékk hana til lags við
sig með því að segja að hann væri
hrifinn af „fallega rassinum" henn-
ar. Tyson neitar að vera faðir Ja-
stons.
Það var að vísu kæra Desiree
Washington sem mesta athygli hef-
ur vakið. Atburðurinn gerðist þeg-
ar hún var að keppa um titilinn
Ungfrú blakka Ameríka. En hún
var ekki ein um að vekja upp dýrið
í boxaranum. Nú hefur starfsmað-
ur við keppnina Iagt fram alls 607
milljón dollara skaðabótakröfu á
hendur Tysons fyrir að hafa ofsótt
keppendur og aðrar konur með
kynferðisþmngnu atferli.
Og síðast en ekki síst lagði Ungfrú
blakka Ameríka, Rosie Jones, fram
sína eigin 100 milljón dollara
skaðabótakröfu gegn Týson á árinu
sem leið. Þá átti honum enn einu
sinni að hafa orðið á að grípa í
bossann á fallegri konu og fara
fram á eitthvert afbrigðilegt kyn-
ferðislegt athæfi.
Mike Tyson á því mörg mál óupp-
gerð vegna óstýrilátrar náttúm og
kannski er það honum sjálfúm fyr-
ir bestu að vera bara lokaður bak
við lás og slá næstu árin.
Þingfíokkur framsóknarmanna