Tíminn - 16.04.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.04.1992, Blaðsíða 1
Guðmundur J. segir Dagsbrúnarmenn ekki vera tilbúna til að samþykkja samning um lægri kaupmátt en á þjóðarsáttartímanum: Dagsbmn íhugar að draga sig út úr samningaviðræðum Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar, segir líklegt að félagið muni draga sig út úr viðræð- um um nýjan kjarasamning, en reiknað er með að viðræðumar heQ- ist að nýju eftir páska. Forseti ASÍ segir að ef Dagsbrún dregur sig út úr viðræðunum, sé óvíst um framtíð þeirra. Guðmundur J. segir að samn- ingamenn Dagsbrúnar muni mæta á fyrsta samningafund eftir páska og sjá svo til. Guðmundur sagði að þær tillögur, sem voru á samningaborðinu þegar menn gengu frá því um síðustu mán- aðamót, væru ekki að skapi Dags- brúnarmanna. Hann sagði flest benda til að tillögumar verði samninga- grundvöllur, þegar þráðurinn verður tekinn upp eftir páska. „Við teljum þetta ekki vera samningagrundvöll," sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að Dagsbrún vildi að verkalýðshreyfingin gengi samein- uð til samningaviðræðna. Félagið muni hins vegar ekki semja um hvað sem er. Það muni ekki semja undir styrk sínum. Guðmundur sagði óvíst hvað félagið muni gera, ef það dregur sig út úr viðræðunum. Það verði skoðað, þegar þar að kemur. Guðmundur sagði að Dagsbrún hefði verið eitt þeirra verkalýðsfélaga, sem vom í fararbroddi fyrir þjóðar- sáttinni. Félagið hefði barist fýrir því að halda verðlagi niðri, í trausti þess að félagsmönnum yrði umbunað í næstu kjarasamningum. „Nú tala menn um að semja til 18 mánaða um eitthvað sem í hæsta lagi geti orðið núll, þ.e.a.s. ef guð og gæfan verður okkur hliðholl. Atvinnurekendur og stjómvöld hrópa að nú megi ekkert gera, sem hafi kostnað í för með sér fyrir atvinnulífið, því þá fari hér allt á annan endann.“ Guðmundur sagði að það væri kurr í sínum félögum með kaup fyrirtækja á frystitogumm, en 6-8 slíkir togarar em nú í smíðum erlendis. „Fyrir þessum togumm em tekin erlend lán. Á sama tíma er verið að tala um að það megi ekki auka erlendar skuld- ir þjóðarinnar og að það verði að minnka fiskiskipaflotann. Það em sem sé til peningar í ótrúlegustu hluti, en þegar kemur að því að verka- fólk setur fram kröfu um að fá að halda þeim kaupmætti, sem það hafði skástan á þjóðarsáttartímabilinu, þá segja atvinnurekendur nei, vegna þess að það muni setja efnahagslífið á annan endann." Guðmundur sagði að flestir sér- kjarasamningar Dagsbrúnar væm ófrágengnir. Atvinnurekendur hefðu óskað eftir að þeim yrði ýtt út af borð- inu. Hann sagði þetta ekki auka áhuga Dagsbrúnar á að gera kjara- samning í þeim anda, sem nú er verið að ræða um. Dagsbrún hefur haft verkfallsheim- ild síðan í nóvember á síðasta ári. Guðmundur sagði einkennilegt að stór félög innan ASÍ séu ekki enn bú- in að afla sér verkfallsheimildar, þrátt fyrir að samningar hafi verið lausir í allan vetur. Hann sagði að sér fyndist þetta ekki bera vott um mikinn sam- stöðuvilja. Heildar landnýtingaráætlun strandar á því að gróðurfarskort eru ekki til: Fjársveltið heldur áætl- uninm fastri Undanfarin þrjátíu ár hefur Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins unnið að gerð landnýtingarkorta fyrir landið í heild. Nú er einungis eftir að kortleggja um fjórðung Iandsins á þennan hátt. Þeir, sem unnið hafa að verkefninu, sjá ekki fram á að hægt verði að ljúka því í bráð, vegna fjárskorts, en framlög til kortagerðarinnar á fjárlögum hafa farið minnkandi ár frá ári. Enn hefur ekki verið mörkuð nein heildaráætlun varðandi landnýt- ingu. Eitt af grundvallarskilyrðum þess að unnt sé að gera landnýtingar- áætlun fyrir allt Island í heild, er að fyrir hendi séu kort af landinu í nægilega stómm mælikvarða, sem sýni gróðurfar þess og landkosti í byggð og á hálendi. Á fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að um það bil tvær milljónir króna renni til gerðar landnýtingar- kortanna hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. „Við gætum klárað þetta á fimm til sex ámm, ef við fengjum peninga til þess,“ segir Ingvi Þorsteinsson náttúmfræðingur hjá RALA „Við höfum nógan mannskap og alla tækni til þess að ljúka við kortagerð- ina. Það eina, sem vantar, em pen- ingar.“ Gerð landnýtingarkortanna var hafín að fmmkvæði RALA fyrir um þrjátíu ámm. Að sögn Ingva er biðin eftir því að þetta verkefni verði klár- að orðin óþarflega löng. „Við hefð- um getað verið búnir að vinna þetta fyrir áratug síðan, ef við hefðum haft fjárveitingar til þess,“ segir hann. „Þá hefðum við verið tuttugu ár að vinna þetta starf, og það er ekki langur tírni." Umferðarráð varar við hættum á vegum úti um helgina. Málsháttur páskanna er: BETRA ER AÐ KOMAST ALLA LEIÐ EN HÁLFA Páskamir em seint á ferðinni í ár, sem verður til þess að fleiri leggj- ast í ferðalög. En þó komið sé fram í miðjan apríl, má ekki afskrifa páskahret. Mikilvægt er að kynna sér veður- spá, sem og ástand vega, áður en haldið er af stað. Einnig er æskilegt að láta einhvem vita af ferðum sín- um, þannig að hægt sé að gera ráð- stafanir, beri eitthvað út af. Það á sérstaklega við um fjalla- ferðirnar, sem færast sífellt í auk- ana. Óli H. Þórðarson, formaður Um- ferðarráðs, bendir á að vetrardekk auka hættu á steinkasti á malar- vegum. „Nú em margir ungir öku- menn að fara sína fyrstu ferð úti á malarvegunum, þar sem gilda dá- lítið önnur lögmál," segir Óli. „Æskilegt er að þeir öðlist þar sína reynslu hægt og rólega." Meðan stórlega hefur dregið úr akstri á fjórhjólum, hafa vélsleð- amir sífellt orðið vinsælli. Slys á vélsleðum hafa að sama skapi færst í aukana. Umferðarráði hafa borist spumir af því að áfengi hafi sums staðar verið þar með í för. Táka skal fram að áfengi og vélknúin öku- tæki fara aldrei saman. —GKG. ALDREI ÓDÝRARA TIL NOREGS! Sigling til Noregs með bíl og helgardvöl í Færeyjum *VerÖ fró kr. 14.540.- með gistingu ó farfuglaheimili (3 nætur) í Færeyjum. *Verö fró kr. 22.885.- méb hótelgistingu (3 nætur) í Færeyjum. •miSoSva41611^31/3 NORRÆNA 'ERÐASKRIFSTO AN Sími 91 - 626362 og 97 21111

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.