Tíminn - 16.04.1992, Qupperneq 2

Tíminn - 16.04.1992, Qupperneq 2
2 Tíminn Fimmtudagur 16. apríl 1992 Áfengisdrykkja á mann nú aftur svipuð og síðasta árið fyrir bjór: Afengisdrykkja nú 10% minni en síðustu 2 ár Áfengissala ÁTVR, mæld í lítrum hreins alkóhóls, var um 10% minni fyrsta ársfjórðung þessa árs en á sama ársfjórð- ungi bæði árin 1991 og 1990. Sala á bjór hefur minnkað enn meira, eða um rúmlega 21% á tveim árum. Áfengissala á raann, miðað við 15 ára og eldri, er nú aftur orðin álíka, eða jafnvel heldur minni, en 1988, þ.e. síðasta árið fyrir bjór. Frá því í fyrra hefur sala minnkað verulega á nær öllum áfengis- tegundum nema freyði- og kampavíni, sem óx um nær 18% milli ára. Sala minnkaði aftur á móti um 11 til 12% á mest seldu tegundunum, viskf, brennivíni og vodka. Og sala á bjór var nú 14% minni en sömu mánuði í fyrra. Stjórn Samtaka fjárfesta mótmælir hugmyndum um skattlagningu sparifjár: Hætt við að erlendar skuldir vaxi enn frekar Stjórn Samtaka fjárfesta, al- mennra hlutabréfa- og sparifjár- eigenda mótmælir þeim hug- myndum um að skattleggja sparifé, sem fram komu í áfangaskýrslu nefndar um sam- ræmda skattlagningu eigna og eignatekna. Hún telur að verði tillögurnar framkvæmdar „muni nývakið traust sparifjár- eigenda sem komið hefur fram í stórauknum innlendum sparn- aði, bresta á ný. Hætta sé á að erlendar skuldir vaxi því enn frekar", eins og segir í fréttatil- kynningu. Stjórnin álítur að mikilvægt sé að reglur um skattlagningu séu hvetjandi til peningalegs sparn- aðar þar sem ástandið í efna- hagslífi landsmanna er alvar- legt. —GKG. Það eru sölutölur frá ÁTVR sem sýna þennan mikla samdrátt í áfeng- issölu milli ára, en ekki orsakir hans. Síðustu fimm árin hefur áfengissala þróast sem hér segir: Lítrar hreins alkóhóls janVmars Ár: Alls lítrar: (Þ.a.bjór) 1988 183.000 lítrar 1989 226.600 „ (61.100) 1990 209.500 „ (70.300) 1991 210.300 „ (64.300) 1992 189.100 lítrar (55.300) Salan er meira en 20 þúsund lítr- um, eða kringum 10% minni á fyrsta fjórðungi þessa árs en tvö hin síðustu. Og þegar til þess er litið að landsmönnum 15 ára og eldri hefur fjölgað um meira en tíu þúsund á síðustu fimm árum virðist áfengis- salan jafnvel heldur minni í ár en 1988, þ.e. á síðasta bjórlausa árinu. Áberandi er að sala bjórs skuli hafa minnkað um meira en fimmt- ung á aðeins tveim árum. Minna seldist nú af bjór á fyrstu þrem mán- uðum ársins en fýrsta mánuðinn sem bjór var seldur, í mars 1989. í lítrum talið minnkaði bjórsalan úr 1.360 þús. lítrum á fyrsta ársfjórð- ungi 1990, niður í 1.090 þús. lítra á fyrsta ársfjórðungi í ár. Samdráttur- inn er því 270 þúsund lítrar, og gæti því hæglega orðið meira en milljón lítrar á árinu öllu. Mikill sölusamdráttur hefur orðið á nær öllum áfengistegundum sem áður segir og hvað mestur á sterk- ustu drykkjunum. Sala borðvína hefur hlutfallslega lítið minnkað síðan í fyrra og er m.a.s. töluvert meiri nú en fyrstu mánuðina 1990. Þegar litið er á sterku drykkina kemur aftur á móti í Ijós 5-13% samdráttur í sölu allra tegunda nema romms og portvíns. Fáar ef nokkrar áfengistegundir hafa þó Iátið eins í minni pokann um mörg undanfarin ár eins og brennivínið. Rúmlega 66 þúsund lítrar seldust af brennivíni á fyrsta fjórðungi ársins 1988, um 47 þús- und lítrar tveim árum síðar og nú er salan komin niður í tæplega 38 þús- und lítra. Vodka er sem fyrr lang- samlega söluhæsta áfengistegundin. Af vodka seldust um 127 þús. lítrar fyrstu þrjá mánuðina í ár, en það er 42 þúsund lítrum minna en sömu mánuði 1988. Ríkisútvarpið fann í gær m.a. þá skýringu á þessum mikla sölusam- drætti á áfengi, að páskainnkaup hafi lent á 1. ársfjórðungi í fyrra en í ár kaupi menn ekki páskaölið fyrr en á 2. ársfjórðungi. En benda má á að páskar lentu líka á 2. ársfjórðungi 1990 og verður ekki séð að það hafi skipt verulegu máli þegar borið er saman við söluna í fyrra, samanber töfluna hér að framan. Sala á sígarettum hefur aðeins minnkað örlítið milli ára, eða 0,2% frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Vindíasala minnkaði miklu meira, eða hátt í 5%. Neftóbak virðist hins vegar vera að ryðja sér til rúms á ný. Af neftób- aki seldust nú 3.390 kíló á fyrsta fjórðungi, sem er 11% aukning frá sama tíma í fyrra. - HEI Mjólkurfræðingar boða verkföll eftir páska: til helgar- innar Mjólkurfræðingar hafa boðað þrjú eins dags verkföll í næstu og þar- næstu viku. Þar af leiðandl hættu vinnuveitendur við að koma á sáttafundi sem hafði verið boðað- ur hjá sáttasemjara í fyrradag. Vegna verkfallsboðana sem og stífari túlkun mjólkurfraeðinga I yfirvinnubanni smu, var ekki hægt að dreifa allri þeirri mjólk sem þurfti í þann daginn. í Hagkaup Skeifunni var rjómi búinn strax um miðjan dag í gær, sem og í Versluninni Nóatúni þar sem mjóik var einnig uppurin. Þar hafði borið á því að fólk væri að hamstra. Sama var uppí á ten- ingnum í Matvöruversluninni Austutveri, fólk hamstraði óg enginn rjómi var til lengur. í Bón- us var allt með kyrrum kjörum og einungis vantaði léttmjólk sem hafðl eldd verið til hjá Mjólkur- samsölunni um morguninn. Búist er við alvarlegum mjóikur- skorti t vikunni eftir páska og strax á þriðjudag getur fólk farið að fmna fyrir honum, fáist mjófk- urfræðingar efcki í vinnu á annan í páskum. Eins dags verkföllin þijú verða dagana 22., 24. og 27. apríl. —GKG. Framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda segir frétt Tímans í gær ranga: Sjömannanefnd skilar tillögum á miðvikudag Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda og nefndarmaöur í Sjömannanefnd, segir það rangt sem kom fram í Tímanum í gær að Sjömannanefnd sé óstarfhæf vegna ósamkomu- lags. Hákon segir að nefndin muni skila tillögum til landbúnaðar- ráðherra næstkomandi miðvikudag. í gær birtu Tíminn og Morgun- blaðið fréttir um störf Sjömanna- nefndar, en eins og kunnugt er vinn- ur hún að tillögum um hagræðingu í framleiðslu og úrvinnslu mjólkur. Að sögn Hákons Sigurgrímssonar og fleiri nefndarmanna í Sjömanna- nefnd eru þessar fréttir rangar. Há- kon sagði að nefndin sé að störfum og allt bendi til að hún skili tillög- um til landbúnaðarráðherra næst- komandi miðvikudag. Nokkuð öruggt má telja að tillög- ur Sjömannanefndar verða um- deildar enda miklir hagsmunir á ferðinni. Þrátt fyrir að Tfminn hafi kannski fullyrt meira hann getur staðið við í frétt sinni í gær um að nefndin sé óstarfhæf vegna ósamkomulags, þá stendur þó eftir að hart hefur verið tekist á í nefndinni um tillögur sem þar hafa verið ræddar. Skiptar skoð- anir eru einnig meðal forystumanna bænda um tillögur sem nefndin er nú að skoða. -EÓ Tillögur um endurskipulagningu í mjólkuriðnaði stranda m.a. á því að ekki næst samkomulag um hvaða samlag eigi að leggja niður: Verður Mjólkursamlagið í Borgarnesi lagt niður? Eitt af því setn Sjömannanefnd, sem vinnur að tillögum um endur- skipulagningu í mjólkuriðnaði, hefur Qaliað um er að einstök mjólk- ursamlög verði lögð niður. Samkvæmt heimildum Tímans hefur einkum verið horft til Mjólkursamlagsins í Borgarnesi og Mjólkur- samlagsins á Blönduósi. Ólíklegt er talið að nefndin leggi fram bein- ar tillögur um niðurlagningu mjólkursamlaga enda er hér um afar viðkvæmt mál að ræða sem erfitt er að ná samkomulagi um. í dag eru starfandi 16 mjólkursam- lög á landinu. Það er almennt viður- kennt að samlögin séu of mörg og húsakynni þeirra of stór. Þegar ákvarðanir voru teknar um bygg- ingu nýrra húsakynna yfir samlagið í Borgarnesi og Mjólkursamsöluna í Reykjavík var innvegin mjólk í öll- um samlögunum í kringum 110- 120 þúsund lítrar. Framleiðslan var t.d. rúmlega 120 þúsund lítrar árið 1978. Aðeins 10 árum áður var framleiðslan um 92 þúsund lítrar. Það var við þessar aðstæður sem ákvarðanir voru teknar um að byggja ný og stór samlög. Menn gerðu ráð fyrir vexti í þessari iðn- grein, en ekki samdrætti eins og orðið hefur. í dag er neysla á mjólk hér innan- Iands um 100 þúsund lítrar á ári. Framleiðslan á síðasta ári var rúm- lega 105 þúsund Iítrar. Samdráttur- inn heldur því áfram. Á sama tíma verður krafan um hagræðingu og lægra verð á mjólkurafurðum há- værari. Tvö stærstu samlögin á landinu eru á Selfossi og á Akureyri. Hjá Mjólk- urbúi Flómanna eru lögð inn um 36% af allri mjólk sem framleidd er í landinu og Mjólkursamlagið á Akur- eyri tekur á móti 19,4% af allri mjólk. Þriðja stærsta samlagið er í Borgarnesi. Þangað fara 9,3% af allri mjólk sem framleidd er í landinu. Stjórnendur samlagsins í Borgar- nesi hafa brugðist við samdrætti í mjólkuriðnaði með því að nýta húsakynni samlagsins til annarrar starfsemi. Þar eru í dag framleiddir grautar, pitsur og áfengi. Þar á bæ segjast menn því hafa hagrætt. Eftir sem áður telja menn sig geta reiknað það út að hagstætt sé að leggja niður samlagið í Borgarnesi og keyra mjólkina til Reykjavíkur. Það hefur verið nefnt að Borgnes- ingar gætu í staðinn fengið ísgerð Mjólkursamsölunnar til sín. Þeir telja hins vegar að atvinna við ísgerð sé ótrygg því vitað er að eitt af því fyrsta sem verður byrjað að flytja inn af unnum mjólkurafurðum þeg- ar opnað verður fyrir innflutning, er einmitt ís. Á aðalfundi Mjólkursamlagsins í Borgarnesi fyrir skömmu var borin upp tillaga um að skoðuð verði hag- kvæmni þess að leggja samlagið nið- ur. Tillagan var felld eftir miklar umræður. Umræður hafa einnig farið fram um að leggja Mjólkursamlagið á Blönduósi niður. Þangað fara um 3,8% af heildarmjólkurinnleggi í landinu. Mjólkursamlag er einnig rekið á Hvammstanga. Hörð and- staða er við þessar hugmyndir á Blönduósi. Guðmundur Lárusson, formaður Landssamtaka kúabænda, hefur lýst því yfir að óhjákvæmilegt sé að mjólkursamlögum verði fækkað. Hann sagði að samtök kúabænda hefðu ekki gert neina tillögu um það hvaða samlög ættu að hætta starf- semi. Hann sagðist ekki líta svo á að það væri hiutverk samtaka bænda að koma með slíkar beinar tillögur um framtíð einstakra mjólkursam- laga. Guðmundur sagðist telja að aðeins eigendur samlaganna geti tekið ákvörðun um að leggja þau niður. Guðmundur sagði að ef ekkert samlag verði lagt niður verði sam- lögin að sætta sig við minni tekjur. Framleiðsla á næsta ári muni minnka um 5% og krafa sé um að framleiðni í greininni aukist um 2- 3% á ári. Ástæðan fyrir því að menn eru tregir til að loka einstökum samlög- um er sú að þar með glatast dýrmæt störf. Fólk sem yrði að hætta störf- um við úrvinnslu mjólkur hefur ekki í önnur störf að hverfa. For- ystumenn verkalýðsfélaga í Borgar- nesi og á Blönduósi hafa t.d. þrýst á Sjömannanefnd að leggja ekki til að samlögin verði lögð niður. - EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.