Tíminn - 16.04.1992, Síða 4

Tíminn - 16.04.1992, Síða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 16. janúar 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Sími: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, (þróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verö I lausasölu kr. 110,- Gmnnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Hátíð við allra hæfí Páskafrí er gefið til að kristnir menn minnist pínu og dauða frelsara síns og fagni upprisu hans, sigurs lífsins yfir dauðanum. Páskarnir eru sönnunarmerki um að menn eigi eilíft líf í vændum. Páskarnir eru staðfesting þeirra íyrirheita, sem Kristur gaf mönnunum um eilífa vistun hjá drottni sínum. Heilög kirkja setur sínum börnum miklar föstur fyrir páskahátíð; hin evangelísk-lúterska þjóðkirkja boðar ekki meinlæti, en ætlast til alvarlegrar íhugun- ar á bænadögum og gleðihátíðar á páskadag, þegar allt að sjö sólir á lofti gera ekki upp á milli kirkjudeilda og allir kristnir söfnuðir fagna upprisu drottins síns. Á síðari tímum er sá siður upp tekinn að vandaðir kórar og góðir hljóðfæraleikarar flytja einhver af stór- verkum tónbókmenntanna á kirkjuhátíðum, og svo verður um þá páska sem senn ganga í garð. Sú guðs- dýrkun og tilbeiðsla fegurðar er ef til vill ekki síðri en hefðbundnar kirkjugöngur. En allt er það ágætt hvað með öðru, og eru þeir ágætu kórar, sem einbeita sér að fáguðum flutningi kirkjutónlistar, viðbót við kirkju- legt starf, sem verður ríkulegra en ella. En páskar og frídagarnir, sem þeim fylgja, eru nýtt- ir til margvíslegra annarra athafna en þeirra, sem tengjast beint kirkju og kristni. Skammdegið er um garð gengið og tími til kominn að sletta úr klaufunum. Margir leggjast því í ferðalög. Spurnir eru af að nokkur þúsund manns hafi brugðið sér til útlanda til að eyða þar páskahelginni. En mest er ferðast innanlands. Flugflotinn hefur ekki við að flytja skíðafólk vestur og norður til að iðka íþróttir sínar í snjósælum landshlutum. En flestir munu ferðast í bílum um landið þvert og endilangt, og má með sanni segja að með nútíma far- artækjum liggi vegir til allra átta. Fjallabílar, sérstyrkt- ir jeppar og snjósleðar eru þau farartæki, sem ótaldar þúsundir munu geysast um fjöll og firnindi á næstu daga. Alltof mörg dæmi sanna að kappið í svona ferðalög- um er einatt meira en forsjáin, og trúin á tæknina og getu farartækjanna er ofmetin. Hins vegar eru nátt- úruöflin, veðurfar og landshættir á ókunnum slóðum vanmetin. Um það tjóir víst ekki að fást, því þar er eins og hver og einn óbyggðagarpur þurfi að reka sig á og verða reynslunni ríkari, en láti öll varnaðarorð sem vind um eyru þjóta. Ekki sakaði þótt þess væri beðið í kirkjum um há- tíðina að allir þeir, sem í óbyggðir leggja, nái heim aft- ur heilir á húfí. Samt mun tryggara að björgunarsveit- ir séu í viðbragðsstöðu, en vonandi verður þeirra ekki þörf. Þeir, sem heima sitja, komast hvergi nærri yfir að njóta uppstyttulítilla hátíðadagskráa sjónvarpa og hljóðvarpa, á milli borðhalda. Páskar eru fjölskrúðugasta hátíð ársins. Þeir eru kirkjuhátíð og dýrðartími tónlistarunnenda. Börnin fá ómælt súkkulaði að borða og þeir fullorðnu steikur. Vetraríþróttir eru stundaðar af kappi, aðrir sleikja sól- ina á suðlægari breiddargráðum, fjölmenni þeysir vítt og breitt um óbyggðir og upp um jökla, og ljósvakinn ruglar þá heimakæru með offramboði. Flestir hafa eitthvað að iðja við sitt hæfi, og guð gefi að allir verði jafnheilir á bak hátíðinni. Gleðilega páska. Að vígja ráðhús Vegna stöðu minnar hér á Tíman- um varð ég þeirrar lífsreynslu að- njótandi að vera við vígslu ráð- húss Reykjavíkur. Ég ákvað að slá til og fara; komst að þeirri niður- stöðu að ég væri ekki nógu merkilegur til þess að sitja heima, þjóðin mundi ekki taka eftir því. Ráðhús, mál Reykvíkinga Ég hef ekki tekið þátt í opin- berum umræðum um ráðhúsið. Við alþingismenn látum okkur margt koma við, en ég hef álitið að það væri mál Reykvíkinga hvort þeir byggðu ráðhús eða ekki. Nú er þetta hús risið og gamla Alþingishúsið okkar er orðið eins og garðhús við hliðina á því. Svona er lífið. Þetta er glæsilegt hús, utan sem innan, en mér fmnst það ekki falla inn í umhverfi sitt og að það sé of þröngt um það á þessum stað. Svona hluti er hægt að deila um endalaust; það, sem byggist á smekk og tilfinningu, fæst ekki niðurstaða um. Almættið og borgarsjóður Þetta er ekki fyrsta vígsla mannvirkis, sem ég hef verið við um dagana. Alþingismenn eru oftar en ekki boðsgestir, þegar tímamótum er fagnað og ný mannvirki tekin í notkun, þar með talin hin glæsilegu skip sem byggð hafa verið heima og er- lendis á undanfömum árum. Það er hins vegar ekki á hverjum degi sem hús, sem valdið hefur eins miklum deilum og ráðhús Reykjavíkur, er tekið í notkun. Uti um landsbyggðina gegna prestar veigamiklu hlutverki í vígslum af því tagi, sem nefndar hafa verið. Nær fastur liður er að sóknarpresturinn fari með bæn- arorð um að það verk, sem unnið hefur verið, verði til heilla fyrir land og lýð. Þessu var ekki svo farið í ráðhúsinu. Borgarstjóm- armeirihlutinn í Reykjavík telur sig greinilega ekki þurfa á al- mættinu að halda eða þurfa að biðja það um neitt. Er þetta af því að borgarsjóðurinn er svo öflug- ur? hugsaði ég, þegar ljóst var að bæn yrði ekki flutt við þessa at- höfn. Davíð á staðnum Það kom hins vegar í ljós að guðirnir voru ekki langt undan. Opnunarathöfnin sjálf minnti á helgiathöfn. Tjöldin vom dregin frá og tónarnir hljómuðu: „Við Reykjavíkurtjörn á rölti eftir dansleik", höfundur texta Davíð Oddsson, fyrrverandi borgar- stjóri. Það kom sem sagt í ljós að hann var í hlutverki almættisins við þessa athöfn. Hann talaði líka sem slíkur, hratt og hiklaust eins og hans er vandi, og afgreiddi málin á einfaldan hátt. Einn milljarður fram úr kostnaðar- áætlun væri ekkert mál, vegna þess að það er betra að fara fram úr fyrir að vera fljótur að byggja, en að vera lengi að byggja eins og þeir í Þjóðarbókhlöðunni. „Úr- töluliðið" hefði talað um að húsið sykki og fuglarnir á Tjöminni mundu drepast; Tjörnin hyrfi jafnvel á þremur dögum, ef ráð- húsið yrði byggt á þessum stað. í máli Davíðs kom fram að fuglam- ir á Tjörninni væm lifandi og all- ir boðsgestirnir þurrir í lappirnar. Menn drógu andann léttar, sólin skein og æðarkollurnar kinkuðu kolli inn um gluggann, syndandi á Tjörninni sem var þarna enn á sínum stað, og allt var harla gott. Borgarfulltrúar mæta til leiks Svo gengu borgarfulltrúamir til fundar í nýja salnum, og þar vom líka mættir þeir sem vom í fýlu og komu ekki í vígsluna. Samþykkt var í hvelli að gera upp Iðnó fyrir nokkra tugi milljóna, en það gamla og góða hús er ósköp umkomulaust við brúar- sporð göngubrúarinnar ffá ráð- húsinu yfir Tjörnina, brúarinnar sem kostaði álíka mikið og brúin sem við þingmenn Austurlands vorum að fresta að byggja yfir Fjallsá í Öræfum. Ég komst að þeirri nið- urstöðu að þessir menn þyrftu ekki á almættinu að halda til að biðja fyrir far- sæld og árgæsku. Borgarsjóður- inn er svo sterkur. Veitingar með þeim útvöldu Svo fór ég að þiggja veitingar með þeim útvöldu, sem Mogginn og Ellert vom að reka homin í. Einkennileg árátta að vera í fýlu á hátíðarstundum. En allt tekur enda og fljótlega gekk ég aftur inn í gamla þing- húsið okkar, sem nú er orðið eins og garðhús við hliðina á ráðhús- inu sem á að bera vitni um ís- lenskt handverk og arkitektúr í næstu fimmhundmð ár eða svo, ef marka má orð núverandi borg- arstjóra. í Alþingishúsinu tekur hvers- dagsleikinn við. Alls konar vanda- mál, sem erfiðlega gengur að leysa. Kannske er það fyrir það hvað ríkissjóður er veikur. Það er líka beðið fyrir okkur þingmönn- um í kirkjum á sunnudögum. Þeir hjá borginni þurfa ekki að biðja fyrir sér. J.K. Vitt off breitt

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.