Tíminn - 16.04.1992, Qupperneq 15
Fimmtudagur 16. apríl 1992
Tíminn 15
r
gert okkur það fullljóst á undan-
fömum árum að frekari tvíhliða
samningar, þar sem EB gengi til
móts við helstu viðskiptakröfur okk-
ar, hlytu að fela í sér einhliða fisk-
veiðiheimildir EB hér við land.
fslendingar þurfa því frekar en
nokkur önnur EFTA-þjóð á samn-
ingi í líkingu við EES-samninginn
að halda, viljum við forðast að ein-
angrast frá Evrópuþjóðum í efna-
hagslegu tilliti.
Þótt áhugi þeirra EFTA-ríkja, sem
þegar hafa sótt um aðild að EB, á
EES hafi dvínað eru þau skuldbund-
in til að ljúka samningunum ef þess
er nokkur kostur. Þá er ljóst að
samningaviðræður um aðild að EB
munu taka nokkur ár. Þess vegna er
EES einnig nauðsyn fyrir þau ríki
sem sótt hafa eða hyggjast sækja um
aðild að EB. Á endanum gæti EES
einfaldlega breyst í tvíhliða samning
milli íslands og EB. Nú er að koma
betur og betur í ljós hversu vel hefur
til tekist að gæta íslenskra hags-
muna í þeim samningi.
GATT
Andstæðingar EES hafa gjarnan
bent á að ekki megi einblína á Evr-
ópu sem markaðssvæði heldur verði
að hugsa um allan heiminn sem
markað. Undir þetta sjónarmið skal
tekið en jafnframt bent á að með
aðild að EES erum við alls ekki að
loka okkur inni bak við tollmúra.
Við höfum fullt frelsi til að semja við
aðra og efla viðskipti við ríki og álfur
utan Evrópu.
Hið almenna samkomulag um
tolla og viðskipti (GATT) er ein af
þremur meginstoðum í skipan
alþjóðaefnahagskerfisins. Hinar eru
Alþjóðabankinn og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn. Á grundvelli GATT
hafa farið fram nokkrar viðamiklar
samningalotur þar sem aðilar að
samkomulaginu hafa samið um
lækkun tolla og annarra viðskipta-
hindrana.
ísland og GATT
ísland gerðist fullgildur aðili að
GATT árið 1968 að lokinni Kennedy-
samningalotunni. í henni var m.a.
samið um verulegar tollalækkanir á
ýmsum mikilvægum útflutnings-
vörum. í Tókíó-samningalotunni,
sem lauk árið 1973, tókst að tryggja
verulegar tollalækkanir á íslenskum
útflutningsvörum í Bandaríkjunum,
Kanada og Japan, einkum sjávar-
afurðum, ullarvörum og osti.
Úrúgvæ-samninga-
lotan
Viðamesta og flóknasta samn-
ingalota GATT til þessa, Úrúgvæ-
samningalotan hófst árið 1986.
Henni er enn ekki lokið. 108 ríki
taka þátt í þessari samningalotu,
fleiri en nokkru sinni fyrr. í henni er
í fyrsta skipti rætt um þjón-
ustuviðskipti sem verða sífellt mik-
ilvægari þáttur alþjóðaviðskipta. Til
þjónustuviðskipta teljast m.a. fjár-
málaþjónusta, fjarskipti, flutningar,
útvarps- og sjónvarpssendingar. Því
er afar mikilvægt að um þau verði
settar skýrar leikreglur eins og um
vöruviðskipti.
Að ýmsu leyti svipar GATT-samn-
ingaviðræðunum á þessu sviði til
samningaviðræðnanna um EES en
vegna fjölda þátttakenda og ólíkra
aðstæðna er í mörgum tilfellum
ekki unnt að ganga eins langt og í
EES.
GATT og íslenskur
landbúnaður
Á einu sviði ganga GATT-
viðræðurnar mun lengra en samn-
ingsdrögin um EES. Eins og kunn-
ugt er var landbúnaðarmálum að
mestu haldið utan EES-
viðræðnanna. Landbúnaðarmál eru
hins vegar eitt helsta þrætueplið í
GATT-viðræðunum.
Það var erfitt fyrir samningamenn
íslands í viðræðunum um EES að
feta það einstigi að berjast fyrir frí-
verslun með sjávarafurðir en
viðhalda öllum höftum á viðskipt-
um með landbúnaðarvörur því í
Hlutfallsleg skipting vöruútflutnings
eftir afuröum, 1970-1991
1970 1975 1980 1985 1990 1991
verði Fríverslunarsamtök Norður-
Ameríku sem er skammstafað
NAFTA eftir enska heitinu. Nú eru
aðeins liðin nokkur ár ffá því að
Bandaríkin og Kanada gerðu með
sér fríverslunarsamning en NAFTA
myndi hins vegar einnig ná til Mex-
íkó. Verði stofnun NAFTA að veru-
leika myndast þar viðskiptablokk
með rúmlega 360 milljón íbúa. Til
samanburðar skal nefnt að íbúar á
EES-svæðinu eru um 380 milljónir
og íbúar Japans um 125 milljónir.
Lokaorð
fslenska þjóðarbúið glímir nú við
andstreymi. Atvinnuvegimir hafa
ekki skilað aukinni framleiðslu um
nokkurt árabil. Þó sýndi iðnaðurinn
vöxt 1990 og 1991. Útgjöld þjóðar-
innar hafa farið fram úr tekjum.
Einmitt við slíkar aðstæður er þörf
fyrir nýjar lausnir.
Sannleikurinn er sá að oft hvetja
erfiðleikarnir menn til dáða. Eitt
mikilvægasta verkefni Alþingis og
ríkisstjórnar er að tryggja stöðu
íslands í alþjóðaviðskiptakerfinu til
þess að við getum unnið okkur út
úr vandanum. Þess vegna eru við-
ræðurnar um EES- og GATT-samn-
ingana mikilvægustu viðskipta-
viðræður íslendinga á lýðveldis-
tímanum. Við þurfum að róa á ný
mið. Til þess þurfum við að opna
ný hlið út í heiminn gegnum EES
og GATT.
Sjávarafuröir
| Landbúnaöarafuröir ss Iðnaöarvörur
l-l-H Ýmsarvörur
Greinin er byggö i erindi sem flutt var
f Samvinnuháskólanum i Bifröst 23.
mars sl.
ríkjum EB eru landbúnaður og sjáv-
arútvegur lagðir að jöfnu. Það tókst
en allt bendir til þess að nýr GATT-
samningur rjúfi einangrun íslensks
landbúnaðar frá alþjóðlegum
markaðsáhrifum.
í drögum að GATT-samningi felst
viss opnun markaða fyrir land-
búnaðarvörur og skref í frjálsræðis-
átt. Því fer þó fjarri að GATT-samn-
ingur á þeim nótum vérði til þess að
rústa íslenskum landbúnaði. Svig-
rúm stjórnvalda til að útfæra samn-
ingsákvæðin um landbúnað verður
væntanlega það mikið að neytend-
um og samtökum þeirra mun án efa
þykja nóg um, enda er það án alls efa
hagur neytenda að leyfa aukna sam-
keppni á þessu síðasta vemdaða
sviði atvinnulífs hér á landi.
Norður-Ameríka
Athygli íslendinga hefur að und-
anfömu beinst mjög að Evrópu en
við þurfum ekki síður að stefna að
öflugu samstarfi við Norður-Amer-
íku, bæði í verslun og almennum
viðskiptum. Að þessu vom lögð drög
í ferð minni vestur um haf í janúar
sl. þegar ég átti viðræður við
viðskiptaráðherra Bandaríkjanna
um fríverslunarsamning milli ríkj-
anna, bæði á vettvangi GATT og tví-
hliða samskipta. Við þurfum að
horfa bæði til austurs og vesturs í
viðskiptum.
Bush, forseti Bandaríkjanna, og
Clinton, líklegasti mótframbjóðandi
hans í forsetakosningunum í haust,
em báðir fylgjandi því að stofnuð
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykjavlkur,
óskar eftir tilboðum I viögeröir og endurbætur á þökum Álftamýrarskóla,
2. áfanga.
Helstu magntölur eru:
Þak suöurálmu um 600 m2
Þak tengigangs um 240 m2
Þak á austari tengibyggingu um 122m2og
lægra þak Iþróttahúss um 324 m2
Múreinangnjn um 26 m2
Útboösgögn veröa afhent á skrífstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavfk,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama staö fimmtudagion 7. mal 1992, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
Sveitarstjórnarmenn í
Austur-Skaftafellssýslu
Sýsluþing er boðað föstudaginn 24. apríl
1992 kl. 14.00 að Hrollaugsstöðum.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlanir
2. Ársreikningar
3. Sameining sveitarfélaga
4. Önnur mál
Sýslunefnd Austur-Skaftafellssýslu
Viö þökkum ykkur öllum sem hafiö sýnt okkur hlýhug og samúð viö lát
Önnu Stefánsdóttur
kennara frá Eyjardalsá