Tíminn - 16.04.1992, Qupperneq 16

Tíminn - 16.04.1992, Qupperneq 16
16 Tfminn Fimmtudagur 16. apríl 1992 ■ ■ ■ ■■■ KUHN - HEWINNUVÉLAFt GÆfll OG GOn VERÐ í FYRIRRÚMI Kuhn. verksmiðjurnar eru stærsti framleiðandi heyvinnuvéia í heiminum. Við eigum úrval heyvinnuvéla frá Kuhn til afgreiðslu: Diskasláttuvélar, heyþyrlur og stjörnumúgavélar. Vélin fylgir yfirborði mjög vel. Vélarnar eru með vökvalyftitjakk. Vélin hefur lítil áhrif á stöðug- leika dráttarvélar í flutningum. Vinnslubreidd diskasláttu- vélanna sem seldar eru hér er frá 2 metrum og upp í 2.8 metra. Uiskasláttuvélar eru nú að ryðja sér til rúms hérlendis. Eftir að rúllubaggatæknin kom til sögunnar hefur sjálfur slátturinn orðið flöskuháls í heyöfluninni. Þareru hinar stóru, létt- byggðu og vandvirku Kuhn- diskasláttuvélar lausnin. Á síðasta áratug hefur orðið mikil þróun í diskasláttuvél- um. Þær eru léttbyggðari en fyrr og þurfa minna afl. Þess- ar vélar slá mjög vel og fylgja landslagi ótrúlega vel eftir, þótt vinnslubreidd sé mikil. Verðið hefur líka lækkað og er nú fyllilega samkeppnis- fært. Sem dæmi má nefna að vél með 240 sm vinnslu- breidd kostar aðeins uml 266 þúsund krónur. Þessar vélar hafa verið 10 ár í notkun hérlendis og hafa verið prófaðar á Hvanneyri. KUHN STJÖRNUMÚGA VÉLAR fást með vinnslubreidd frá 3 metrum og upp í 7.3 metra, en þær vélar sem við erum með á lager eru af gerðinni Kuhn GA 402N og eru með 4 metra vinnslubreidd. Þær eru lyftutengdar. HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 670000. KUHN HEYÞYRLUR eru til með vinnslu- breidd allt frá 3.1 metra og upp í 7.35 metra, en þær vélar sem við höfum á lager eru með 5 metra vinnslubreidd. Heyþyrlurnar eru bæði dragtengdar og lyftu- tengdar. Þetta eru vandaðar vélar og reynsla íslenkra bænda af þeim er mikil og góð. DAGBÓK Afmælishátíð Kolaportsins á laugardaginn Kolaportsmarkaðurinn verður þriggja ára nú í apríl, og að venju verður haldið upp á afmælið laugardaginn fyrir páska, sem nú ber upp á 18. aprfl. Afmaelishátíðir Kolaportsins hafa ver- ið mjög vinsælar á undanfömum árum og reynt er að hafa þær í skemmtilegum kamivalstfl. Seljendur klæðast skraut- legum búningum og gestir eru hvattir til hins sama. Aðstandendur markaðstorgsins búast við glampandi sól og góðu veðri á afmæl- isdaginn og að hátíðarhöldin verði ekki síður utan dyra en f sjálfu Kolaportinu. Vonast er til að fá fjölda einstaklinga og hópa til að vera með í alls konar uppá- komum og að allir taki þátt í hressileg- um samba-dansi að suður-amerískum kamivalstfl. Sunnudagurinn á mánudegi Þessa helgi verður Kolaportið lokað á sjálfan páskadag, en hefðbundinn sunnudagsmarkaður færist yfir á mánu- dag, annan í páskum. Verður þá einnig mikið um dýrðir og margar óvæntar uppákomur. Þess má geta að samkvæmt nýlegri skoðanakönnun íslenskra markaðsrann- sókna hafa 62% þjóðarinnar einhvem tíma komið í Kolaportið og 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Aðstandendur Kolaportsins telja að um tvær milljónir gesta hafi heimsótt markaðstorgið frá upphafi, og reiknað er með að um 30.000 manns bætist við þann hóp þessa páska- helgi. Happdrætti Samtaka endur- hæföra mænuskaddaöra Dregið var í byggingarhappdrætti sam- takanna þann 8. aprfl sl. Vinningar komu á eftirtalda miða: Bifreið af gerðinni Ford Explorer XLT kom á miða nr.: 209564. Tvær Saab 9000 CS bifreiðar komu á miða nr.: 65522 og 71647. Tíu Ford Escort 1300 CLX bifreiðar komu á miða nr.: 28243, 75927, 76766, 84684,124704,184574,191035,194224, 205498,214761. Fimm sumarbústaðalóðir f Úthlíð í Biskupstungum komu á miða nr.: 90072, 143930,176306,183588, 233556. Fjórtán vikudvalir í sumarhúsi SEM- samtakanna í Úthlíð í Biskupstungum komu á miða nr.: 44301, 45059, 69153, 97960,102882,140028,153569,155436, 197021, 224176, 233375, 233668, 234091,234636. Vinninga má vitja í síma 91-677470. SEM-samtökin þakka landsmönnum fyrir stuðninginn. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð- ur 18. aprfl. Undir páskasólinni höldum við áfram að ganga og komum í Fann- borg 4 uppúr hálftíu laugardaginn fyrir páska. Bæjarrölt Hana nú er fýrir alla. Nýlag- að molakaffi. Ferðir Strætis- vagna Reykja- víkur um bæna- daga og páska 1992 Skfrdagur: Akstur eins og á sunnu- dögum. Föstudagurinn langi: Akstur hefst um kl. 13. Ekið eftir sunnudagstíma- töflu. Laugardagun Akstur hefst á venju- legum tíma. Ekið eftir laugardags- tímatöflu. Páskadagun Akstur hefst um kl. 13. Ekið samkvæmt sunnudagstíma- töflu. Annar páskadagur: Akstur eins og á sunnudögum. Opnunartími íþróttamann- virkja yfir páskana Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug, Breiöholtslaug og Sundhöllin: Skír- dagun Opið 08-17:30. Föstudagurinn langi: Lokað. Laugardagur: Opið 07:30-17:30. Páskadagun Lokað. Ann- ar í páskum: Opið 08-17:30. Skautasvelliö í Laugardak Skírdagun Opið 10-18. Föstudagurinn langi: Lokað. Laugardagun Opið 13- 18. Páskadagun Lokað. Annar í páskum: Opið 10-18. Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skála- fellú Opin 10-18 alla dagana. Opnunartími í Bláfjöllum/Skálafelli og á skautasvellinu er með fyrirvara um veður. Upplýsingar í símsvara á skautasvell- inu í síma 685533 og á skíðasvæðun- umísíma 801111. AA-samtökin á íslandi Afmælisfundur AA-samtakanna verð- ur haldinn að venju, föstudaginn Ianga 17. apríl 1992 í Háskólabíó kl. 21.00, og eru allir velkomnir. Þar tala nokkrir AA-félagar og gestur frá Al- Anon-samtökunum, sem eru samtök aðstandenda alkóhólista. Kaffiveitingar verða að fundi lokn- um. AA-samtökin á íslandi voru stofnuð föstudaginn langa 1954, eða fyrir 38 árum síðan. Síðan hefur þessi dagur verið hátíðis- og afmælisdagur sam- takanna, alveg sama hvaða mánaðar- dag hann ber uppá. í dag eru starfiandi um 198 deildir um land allt, þar af í Reykjavík um 104 deildir; erlendis eru 5 íslenskumæl- andi deildir. Hver þessara deilda held- ur að minnsta kosti einn fund í viku, og er fundarsókn allt frá 5-10 manns og uppí 150 manns á fundi. Hér í Reykjavík eru margir fundir á dag og byrja fyrstu fundimir kl. 11.00 fyrir hádegi og þeir síðustu um mið- nætti. Upplýsingar um fundi og fundarstaði er hægt að fá á skrifstofu AA-samtak- anna, Tjamargötu 20,101 Reykjavík. Skrifstofan er opin alla virka daga rnilli kl. 13.00-17.00. Og er síminn 91- 12010. Einnig hafa AA-samtökin símaþjónustu alla daga milli kl. 17.00- 20.00. Síminn er 91-16373. Næturþjónusta apótekanna yfir páskana Helgar-, kvöld- og næturþjónusta apótekanna I Reykjavik vikuna 17. til 23. apríl er I Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, og Holts Apóteki, Langholtsvegi 84. Þaó er Laugavegs Apótek sem ann- ast eitt vörsluna sklrdag, föstudag- inn langa, páskadag og 2.1 páskum, en Holts Apótek sinnir vörslunni á laugardag frá kl. 10-22, samhliða næturvörsluapótekinu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.