Tíminn - 26.05.1992, Qupperneq 7

Tíminn - 26.05.1992, Qupperneq 7
Þriðjudagur 26. maí 1992 Tíminn 7 Hörður í Mosfellsbæ: Glæsilegt íþróttamót Ávallt er tilhlökkunarefni að koma á hestamót í Mosfellsbæ. Glæsilegt mótssvæði og einstök fegurð um- hverfisins ásamt sumum bestu hesta- mönnum landsins gerða ferðina allt- af magfalt fararinnar virði og fyrir flesta Islendinga er ekki lengra upp eftir en í vinnuna. Náttúran er að vakna, leirurnar óma af fuglasöng og Esjan býr sig undir að grænka upp á topp. Sögusvið Kjalnesingasögu blas- ir við og innan seilingar eru hinstu legstaðir hetjanna Ingólfs Amarsonar og Egils Skallagrímssonar. Jarðfræði- lega erum við í hjarta fomrar eld- stöðvar, sem árþúsunda ísaldir hafa núið og gníst. Hestamennskan er ekki bara einstök fyrir dýrlega gæð- inga og einstakan félagsskap, heldur sprettur sagan upp við hvert fótmál og jarðfræðina áreiðleiðum má nema eins og stafi af bók. Kóngur um stund, knapinn, sem hleypir fráum gæðingi eftir Ieimnum er nákvæm- lega í spomm forfeðranna og Egill Skallagrímsson er stiginn úr haugn- um og dreifir gullinu, það slær geisl- um svo vítt sem er séð. Mótið fór í alla staði vel fram, enda engir aukvisar í mótsstjóm. Pétur Jökull, Valdimar og Þorsteinn Aðal- steinsson héldu styrkum höndum um framkvæmdina og um kvöldið var svo slegið upp dúndrandi balli í nýja félagsheimilinu á svæðinu. Til hamingju Harðarmenn. Óöalsbændur frá Dalsskarði mættu snemma og tryggðu sér sæti. / Jj Jz 'v Fimm efstu í 5-gangi. Frá vinstri: Sigurður Sigurðsson, Trausti Þór Guðmundsson, Brynjar Gunnlaugsson, Haraldur Sigvaldason og Eysteinn Leifsson. Trausti Þór Guömundsson. Fimm stigahæstu I tölti. Frá hægri: Berglind Árnadóttir, Trausti Þór Guömundsson, Eysteinn Leifsson, Kristfn Birna Óskarsdóttir og Snorri Dal Sveinsson. Erna Arnardóttir vann jómfrúrbikarinn. Á ýmsu gekk í skeiöinu f 5- gang- inum. Sigurður Sigurðarson. Trausti Þór Guömundsson, varð Brynjar Gunnlaugsson. stigahæstur knapa. Haraldur Sigvaldason Eysteinn Leifsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.