Tíminn - 26.05.1992, Side 9

Tíminn - 26.05.1992, Side 9
Þriðjudagur 26. maí 1992 Tíminn 9 Kosningar ungs fólks í AlþýAu- bandalaginu Þessa dagana standa yfir kosningar ungs fólks f Alþýðubandalaginu. Kosið er um einn fulltrúa flokksfólks undir þrftugu f framkvæmdastjóm og annan til vara. Þá eru kjömir sjö fulltrúar ungs fólks í mið- stjóm Alþýðubandalagsins og fjórir til vara. Frestur til þess að skila inn tilnefning- um er liðinn og eru 4 í framboði til fram- kvæmdastjómar og 13 til miðstjómar. Frambjóðendur til framkvæmda- stjómar Alþýðubandalagsins eru: Flosi Eiríksson, Gunnar TVyggvason, Sigþrúð- ur Gunnarsdóttir og Sigvarður Ari Huld- arson. Frambjóðendur til miðstjómar Al- þýðubandalagsins em: Amar Guð- mundsson, Auðunn Guðmundsson, Ás- dís Sigmundsdóttir, Dýrleif Dögg Bjama- dóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Hall- gerður Pálsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Kolbeinn Einarsson, Matthfas Matthías- son, Ragnheiður Hjálmarsdóttir, Svein- þór Þórarinsson og Unnar Ingvarsson. Kosning fer fram bréflega og lýkur um mánaðamótin. Síðasti landsfundur Al- þýðubandalagsins breytti lögum flokks- ins á þann veg að viðhöfð skyldi allsherj- arkosning um fulltrúa imgs fólks f fram- kvæmdastjóm og miðstjóm og er þetta í fyrsta sinn sem svo er gert Því sem næst 400 flokksfélagar eiga rétt á að taka þátt í kjörinu og hefur tals- vert af ungu fólki ákveðið að ganga form- Iega f Alþýðubandalagið til þess að hafa atkvæðisrétt í kosningunni. Hólaskóli Hólum í Hjaltadal iB Á Hólum getur þú stundað lifandi starfs- nám á fögrum og friðsælum stað! Almenn búfjámækt — sauðljárrækt — jarðrækt — bútækni — bústjóm — tölvufræði — bleikjueldi—hrossarækt Á Hólum eru ný kennslufjárhús og athyglisverður fjárstofn! Á Hólum er miðstöð rannsókna í bleikjueldi! Á Hólum er Hrossakynbótabú ríkisins! Á Hólum er gott hesthús og reiðkennsluhús! Á Hólum hafa nemendur aðgang að vel búnu tölvuveri! Umsóknarfrestur til 10. júní Takmarkaður nemendafjöldi Bændaskölinn Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími: 95-35962 . Símbréf: 95-36672 Reykjanes — Leiðarþing Steingrfmur Hermannsson alþm., formaður Framsóknar- flokksins, heldur leiðarþing á eftirtöldum stöðum: Hafnarffrði 26. maf I félagsheimili framsóknarmanna að Hverfisgötu 25. Kópavogi 27. maf ki. 20.30 f Framsóknarhúsinu v/Digra- nesveg. Stelngrfmur Stjóm Kjördæmlssambandsins. Hermannsson Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 18. maf er skrifstofa okkar f Hafnarstræti 20, lil. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. Framsóknarflokkurlnn. fj 4 •f *** WBk Æ Æ Guömundur Valgerður Jóhannes Geir Bjamason Sverrfsdóttir Sigurgeirsson Norðurland eystra Fundir með alþingismönnum Þingmenn Framsóknarflokksins (kjördæminu txjða til almennra stjómmálafunda, sem hér segir Bergþórshvoll, Dalvik, þriðjudaginn 26. mai kl. 20.30. Þingmenn veröa til viðtals i Bergþórshvoli kl. 18.00-19.00 Félagsheimllið Tjamarborg, Ólafsfirði, miövikudaginn 27. maf kl. 20.30. Garöar, Húsavfk, laugardaginn 30. maf kl. 10.00 f.h. Framsóknarflokkurinn. Kópavogsbúar— Vormarkaður Vormarkaður Freyju verður haldinn laugardaginn 30. mal kl. 10.00-16.00 að Digranesvegi 12. Á markaðnum kennir margra grasa, svo sem: Fjölær útiblóm, trjáplöntur, stofublóm, kökur o.m.fl. Auk þess verða kaffiveitingar á staðnum. Hluti af ágóöanum rennur til Vlmulausrar æsku. Þeir, sem vilja leggja málefninu liö eöa vilja fá nánari upplýsingar, hringi I Ástu I slma 40229. Stjóm Freyju. Saman eiga þau hjón fjögur börn: synina Hamzeh 12 ára og Hashem 10 ára, og dæturnar Iman 9 ára og Rayah 6 ára. Fyrir átti kóngur 8 börn I þrem hjónaböndum. Riðar hjónaband konungshjóna Jórdaníu til falls? Ekki hefur veriö annaö aö sjá en aö hiö besta hafi fariö á meö hjón- unum Noor og Hussein til þessa. Drottningin er fjóröa kona kóngs- ins og nú gengur sú saga fjöllunum hærra aö sú fimmta sé f sjón- máli. Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að senn megi Jórdanir eiga von á nýrri drottningu. Hussein konungur er sagður orðinn afhuga Noor drottningu og hafa þegar fengið augastað á annarri. Sagan fékk byr undir báða vængi þegar hún var birt í A1 Quds, aðal- blaði Palestínumanna á hemumda vesturbakkanum. Þar sagði að hinn 57 ára gamli einvaldur ætlaði að gera að fimmtu konu sinni 25 ára blaðakonu af palestínskum upp- runa, Rana Najem, sem hann hefði kynnst á dögum Persaflóastríðsins. Þetta kom flestum á óvart, líka þeim sem hafa fylgst náið með ferli kóngsins og komist að þeirri niður- stöðu að hann hefði alltaf leitað sál- arfriðar í ástinni þegar á móti hafi blásið. En þeir áttu jafnerfitt og aðrir með að trúa því að kóngurinn ætlaði að skilja við Noor drottn- ingu. Lisa Halaby fæddist fyrir 40 ár- um í Ameríku, en tók sér naínið Noor AI-Hussein (ljós Husseins) þegar hún gerðist fjórða kona Hus- seins 1978. Síðan hefur hún staðið við hlið manns síns í blíðu og stríðu og hvað stríðast var það á dögum Persaflóastríðsins, þegar maður hennar skipaði sér við hlið nafha síns íraksforseta, sem var yf- irlýstur erkióvinur föðurlands drottningarinnar. Hún hefúr þó sagt, eftir að þeim hildarleik Iauk, að aldrei hafi þau staðið jafnnærri hvort öðm. Þegar Lisa Halaby giftist Hus- sein, hafði hann misst þriðju konu sína, Alia, í þyrluslysi. Hann átti eina dóttur og tvo syni úr fyrsta hjónabandinu með Dina Abd-el Hamid prinsessu og tvær dætur úr hjónabandi nr. 2 með Toni Gardner, enskri ofurstadóttur sem breytti nafni sínu í Muna. En þó að Muna snerist til islam, fengu synir þeirra tveir ekki erfðarétt til krúnunnar þar sem hún var ekki fædd mús- limi. Það varð því Alia, af palest- ínskum ættum, sem hann giftist eftir skilnaðinn frá Muna 1972, sem ól honum krúnuerfingja, auk tveggja dætra. Noor er sögð hafa eignast ást og virðingu allra þessara barna og þjóðarinnar. En hvemig stendur þá á núver- andi söguburði? Rana Najem, sem vann á vegum CNN í Persaflóastríð- inu, harðneitar að nokkur fótur sé fyrir honum. Hið sama gera tals- menn jórdanska sendiráðsins í London og yfirmaður CNN í Am- man. Heimildir í höllinni rekja orð- róminn hins vegar til bróður Hus- seins, Hassans, sem nú er titlaður krónprins. Þær segja áhrifamikla hópa í Jórdaníu vilja fá hann í há- sætið og aldrei gefast upp við ráða- brugg til að ná því markmiði. Þeir vfli jafnvel ekki fyrir sér að leggja hjónabandshamingju konungs- hjónanna í rúst. „Ljós Husseins" á því kannski ekki eftir að lýsa honum öllu leng- ur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.