Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 1
Fimmtudagur
28. maí 1992
97. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Andriessen, varaforseti framkvæmdastjórnar EB, telur að EES- samn-
ingurinn gildi áfram fyrir ísland jafnvel þó að önnur EFTA-ríki gang í EB:
EES-stofnanakerfið
einfaldað ef ísland
verður eitt í EFTA
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segir að það sé
sameiginlegur skilningur sinn
og Prans Andriessen, varafor-
seta framkvæmdastjórnar Evr-
ópubandalagsins, að samning-
urinn um Evrópskt efnahags-
svæði gildi áfram fyrir ísland
jafnvel þó að öll aðildarríki
EFTA, nema ísland, gangi í Evr-
ópubandalagið. Úrskurðar- og
eftiriitskerfi EES verði hins
vegar einfaldað og því breytt í
svipað horf og gildir um þann
fríverslunarsamning sem nú er í
gildi milli íslands og EB.
Andriessen kom hingað til lands
í tengslum við ráðherrafund EFTA
sem haldinn var í síðustu viku.
Jón Baldvin hafði lýst því yfir á Al-
þingi að hann myndi ræða við
Andriessen um stöðu íslands í
EES ef öll EFTA-ríkin, nema ís-
land, gengju í EB. Fjögur af EFTA-
ríkjunum sjö hafa þegar lagt fram
umsókn um aðild að EB og reikn-
að er með að Noregur og Liech-
tenstein óski eftir aðild síðar á
þessu ári.
„Samningur okkar um aðildina
að Evrópska efnahagssvæðinu er í
reynd tvíhliðasamningur, þ.e.a.s.
samningur milli íslands og Evr-
ópubandalagins, þótt EFTA-ríkin
sjö hafi staðið saman á samnings-
ferlinum," sagði Jón Baldvin.
„Jafnvel þó að EB breytist, hvort
heldur er með fjölgun aðildarríkja
eða breytingu á innri gerð þess, þá
heldur þessi samningsskuldbind-
ing. EB er eftir sem áður skuld-
bundið til að virða þennan samn-
ing við lýðveldið ísland. Frá pólit-
ískum sjónarhóli séð eru engar
líkur á því að nokkur vilji sé á því,
af hálfu EB eða nýrra aðildarríkja
þess, að segja sig frá þeim skuld-
bindingum þó að formlega sé upp-
sagnarákvæði í samningnum sem
hægt er að beita með 12 mánaða
fyrirvara.
Fari svo, einhvern tímann síðar á
þessum áratug, að ísland verði eitt
eftir í EFTA þá heldur þessi samn-
ingur, en það eru öll líkindi að því
að aðilar komi sér saman um að í
staðinn fyrir eftirlitskerfi og
stofnanakerfi við lausn deilumála,
komi einfaldari eftirlits- og úr-
skurðarferill. Sá ferill yrði þá bara
samkomulagsatriði tveggja aðila,
íslands og EB, og verður trúlega
með svipuðum hætti og er varð-
andi fríverslunarsamninginn sem
nú er í gildi.
Jón Baldvin sagði að þetta væri
sameiginlegur skilningur sinn og
Frans Andriessen. Andriessen
hefði hins vegar tekið fram að
þetta mál hefði ekki verið rætt í
framkvæmdastjórn EB og hún
hefði því ekki gefið neinar yfirlýs-
ingar um málið. Jón Baldvin sagði
að Andriessen hefði sagt að þetta
væri sitt mat á stöðunni, en hann
teldi að ekki væru álitamál um
þetta efni.
Jón Baldvin sagði að í samtölum
sínum við Andriessen hefði einnig
komið fram að hann teldi ólíklegt
að EFTA-ríkin verði öll komin í
EB árið 1995, eins og sum þeirra
vonast eftir. EES verði því lausn
til fleiri ára. -EÓ
Frá sýningunni f Prófess-
orsbústaðnum frá Kleppi.
Sumarstarfsemi Árbæjar-
safns hefst á sunnudag:
Það er svo
geggjaó að
geta hneggjað
Hefðbundið sumarstarf Árbæj-
arsafns hefst nk. sunnudag og
þá verða jafnframt opnaðar tvær
sýningar í Prófessorsbústaðnum
frá Kleppi. önnur þeirra nefnist
„Það er svo gcggjað og er
helguð árabilinu frá 1968 til
1972. Sett er á svið mannlíf
þessara litskrúðugu ára og því
gerð skil með ýmsum hættl og
sýndar eru fjölmargar blaöaljós-
myndir af viðburðum tímabils-
ins og „hippar" kyjja friðar-
söngva.
Á hinni sýningunni er dæmi-
gerð skólastofa og smíöa-
kennslustofa frá byijun þessarar
aidar með ýmsum munum
tengdum skólahaldi fyrr á tíð.
Flestum munanna á sýningunni
var safnað saman í tengslum við
skólasýningu sem haldin var í
Austurbæjarskólanum í Reykja-
vík fyrir 30 árum í tilefni aidar-
afmælis samfellds skólahalds í
Reykjavík. —sá
Uppgræðsla landsins
styrkt:
Pokasjóður
Landverndar
Úthlutað var úr Pokasjóði
Landvemdar í gær til skóg.ækt-
arfélaga og ýmissa samtaka sem
starfa með hag landsins fyrir
bijósti.
AIIs nemur upphæðin
20.072.995 kr. sem úthlutað er
í ár og er það u.þ.h. helmingi
hærra en í fyrra. 85 vericefni eru
styrkt að þessu sinnL —GKG.
KVEIKT I KOFA VIÐ RAUÐAVATN Slökkviliðið var þrisvar sinnum kall-
að út í gær og fyrst kl. 10:32 vegna gamals manns á Grettisgötu sem hafði læst sig inni. Fara varð inn
um glugga til að hjálpa honum. Klukkutíma síðar fór eldvarnarkerfi í gang á Kleppsvegi vegna vatns-
gufu frá slöngu. Auðvelt reyndist að koma því í samt horf. Að síðustu var slökkviliðið kallað út að kofa
við Rauðavatn sem skíðlogaði í. Nota þurfti vatn úr tveimur slökkvibílum til að vinna bug á eldinum.
Grunur leikur á íkveikju. Á myndinni sést slökkviliðið að störfum við Rauðavatn.
Tímamynd Sigursteinn —GKG.
Innflutningur meiri en minna selt úr landi:
Utflutningur í mars 10% minni en í fvrra
Jákvæður vöruskiptajöfnuður (fob/fob) á fyrsta ársfjórðungi hefur
farið hraðminnkandi ár frá ári að undanfömu. í ár var hann aðeins
350 milljónir kr., borið saman við 2.200 milljónir árið 1991 og um
3.600 milljónir (tíu sinnum hærri upphæð) á fyrsta fjórðungi 1990
og raunar 1989 einnig. Útflutningurinn var þá svipaður og nú, en
innflutningurinn hins vegar nær 4 milljörðum minni.
Útflutningur landsmanna skilaði uði á þessu ári en í sama mánuði í
rúmlega 1.000 milljónum króna fyrra. Alls voru fluttar út vörur fyr-
(rúmlega 10%) minna í marsmán- ir um 20,4 milljarða kr. á fyrsta
fjórðungi þessa árs, sem er 1.070
milljónum kr. (5%) minna en á
sama ársfjórðungi í fyrra. Og raun-
ar er útflutningur nú sáralítið
meiri (0,3 og 0,5 milljörðum) en á
fyrsta ársfjórðungi bæði árin 1990
og 1989. Innflutningur marsmán-
aðar var aftur á móti 1.360 millj-
ónum kr. (19%) meiri nú en í fyrra
og felst sá munur í flugvélakaup-
um. Almennur innflutningur var
hálfum milljarði (3%) minni á
fyrsta ársfjórðungi nú en í fyrra.
Alls voru fluttar inn vörur fyrir
20,1 milljarð króna á fyrsta fjórð-
ungi ársins, borið saman við 19,3
milljarða á sama tíma í fyrra og að-
eins 16,2 milljarða á fyrsta árs-
fjórðungi 1990.
- HEI