Tíminn - 28.05.1992, Side 9
Tíminn 9
Fimmtudagur 28. maí 1992
DAGBOK
Skáldakynning í Sandgeröi
Sunnudaginn 31. maí n.k. verður efnt til
kynningar á Ingibjörgu Sigurðardóttur
skáldkonu og verkum hennar í Sand-
gerði. Dagskráin hefst kl. 20.30 í Sam-
komuhúsinu.
Efni á dagskránni verður sem hér seg-
in
Kynning á skáldkonunni Ingibjörgu
Sigurðardóttur: Þuríður Elísdóttir.
„Sigrún í Nesi“. Halldóra Ingibjöms-
dóttir les kafla úr bókinni.
„Laeknir í leit að hamingju". Ólafur
Gunnlaugsson les kafla úr bókinni.
Sigurbjörg Jónsdóttir leikur á blokk-
flautu við undirleik Franks Herlufsen.
Samlestur úr sögunni „Beggja skauta
byr“. Sögumaður: Guðjón Þ. Kristjáns-
son. Aðrir lesarar: Alma Jónsdóttir, Guð-
jón Norðfjörð, Gunnlaugur Hauksson,
ósk Valdimarsdóttir, Fanney D. Hall-
dórsdóttir, Guðbjörg Vignisdóttir og Sæ-
unn Guðmundsdóttir.Sigurbjörg Hjálm-
arsdóttir leikur á þverflautu við undir-
leik Franks Herlufsen.
„Feðgamir á Fremra-Núpi“. Einar
Arason les kafla úr bókinni.
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
syngur einsöng, píanóleikari Ólafúr
Vignir Albertsson.
Stefán Jón Bjamason les kvæðið
„Kvæðalaun".
Kynnir á dagskránni er Alma Jóns-
dóttir.
Að lokinni dagskrá verður kvenfélagið
Hvöt með kaffisölu í Samkomuhúsinu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomn-
ir.
Dagskrá þessi er liður í M-hátíð á Suð-
umesjum.
Ingibjörg Sigurðardóttir skáldkona
fæddist 17. ágúst 1925 að Króki í Skaga-
firði. Hún fluttist 21 árs til Sandgerðis
og bjó þar í 45 ár. Út hafa komið 30 bæk-
ur eftir hana, sú fyrsta 1958 og nýjasta
bók hennar, „Glettni örlaganna", kom út
1991.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður 30. maí. Lagt af stað frá
Fannborg 4 kl. 10.
„Blár sumarhiminn, iðagræn jörðin
og gul morgunsólin — þetta blasir við
augum þeirra Kópavogsbúa, sem taka þá
áhættu að koma í Fannborg 4 upp úr
hálftíu á laugardagsmorgni til að drekka
nýlagað molakaffi og skiptast á almælt-
um tíðindum. Setjið vekjaraklukkuna,"
segir í fréttatilkynningu frá Hana nú.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIl) ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
5-6 tonna krókaleifis-
bátur óskast til leigu
eöa vera meö fyrir annan, á handfæraveiöar,
hvar á landi sem er. 20 ára sjómennska. Meö
réttindi. Upplýsingar í síma 33736.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Skólaslit verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 29. maí kl.
14.00. Ættingjar útskriftarnemenda og velunnarar skólans
velkomnir.
VERSLUNARSTJORI
Óskum eftir að ráða verslunarstjóra.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, ásamt kaupkröfu, óskast
fyrir 10. júní n.k.
Upplýsingar um starfið gefur kaupfélagsstjóri.
/KVH/ kaupfélag Vestur-Húnvetninga
LmmmmmmmL 530 Hvammstanga . Sími 95-12370
--------------------------------------------------------A
Ástkær eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa-
langafi
Þórmundur Guðsteinsson
Ártúni 17, Selfossi
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 30. maí kl. 15.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Sigrún Þórmundsdóttir Eggert Ólafsson
Guömundur Kr. Þórmundsson Katla Kristinsdóttir
Þuríður Þórmundsdóttir B. Ragnar Jónsson
Gunnar Þórir Þórmundsson Svanheiður Ingimundardóttir
Anna Kolbrún Þórmundsdóttir
bamabörn, barnabarnaböm og barnabarnabarnabarn
Marie Helvin á fjölbreyttan feril aö baki en er kannski fyrst nú aö ná takmarki sínu, aö vera sjálfstæö
og engum háð.
Fyrrum toppfyrirsæta
er nú fatahönnuður
Marie Helvin hefur nýlega dvalist í
frfi hjá vinkonu sinni Jerry Hall á
eyjunni Mustique og er vel að frí-
inu komin. Hún hefur nefnilega
ekki tekið sér frí í eitt og hálft ár
og á þeim tíma sýnt fatahönnun
sína sex sinnum.
Marie var einhver frægasta fyrir-
sæta heims í 15 ár og þar af gift
Ijósmyndaranum David Bailey í 10.
Þau giftust 1975 en skildu 1985 og
þá venti Marie sínu kvæði í kross.
Hún hafði alltaf umgengist fatnað
af ást og virðingu og þess vegna var
ekki undarlegt þó að hún veldi sér
verkefni í fataiðnaðinum.
Útlit Marie hefur alltaf þótt
áhugavert, enda kemur í ljós að í
æðum hennar rennur blóð af ýms-
um þjóðemum. Mamma hennar er
japönsk og pabbi hennar sagður
hollenskur, en faðir hans var Dani.
Enda segist hún hafa lært heilmik-
ið af báðum foreldrum sínum,
mamma hennar hafi kennt henni
að meta fegurð og mýkt. Frá pabba
sínum hafi hún erft uppreisnar-
andann og í rauninni sé hún
stjórnleysingi!
Marie ólst upp á Hawaii og segist
vera eilíflega þakklát fyrir það.
Eina sorgin sem hún hefur enn
orðið fyrir í Iífinu hafi verið þegar
systir hennar Suzon lést af slysför-
um á Jamaica 1978. En Marie seg-
ist líka hafa dregið margan lær-
dóminn af því.
Þó að 10 ára hjónabandi hennar
og Davids Bailey hafi lokið með
skilnaði segist hún vera svo lán-
söm að þau séu enn bestu vinir og
engan stuðningsmann eigi hún
dyggari en fyrrverandi eiginmann-
inn. Og sjálf sé hún mikill aðdá-
andi hans. Hvemig þau kynntust,
segist hún ekki muna alveg nógu
vel, sennilega um borð í flugvél, en
hún segist muna mæta vel hverju
hún hafi fyrst tekið eftir við hann.
Það voru skórnir! Hann hafi verið
kæruleysislega klæddur, í galla-
buxum og gallaskyrtu. En á fótun-
um hafi hann borið stóríallega
dansskó í stíl Freds Astaire. í ljós
kom að hann hafði gleymt að hafa
skóskipti frá kvöldinu áður!
Marie Helvin gengur sem sagt
allt í haginn eins og er, enda er hún
bjartsýnismanneskja eins og lesa
má úr ofanskráðu.
Joan Collins beðin afsökunar
Joan Collins var fyrir skömmu
stödd í Suður-Afríku og var erindi
hennar að veita sveltandi Afríku-
búum stuðning sinn. í því tilefni
gaf hún viðtal í þætti á vegum
sjónvarpsstöðvarinnar MTV sem
fór svo úr böndunum að stöðin
neyddist til að biðja leikkonuna af-
sökunar.
Þátturinn var þannig á svið sett-
ur að Joan svaraði spumingum
sem áður höfðu verið teknar upp
fyrir framan 90 áhorfendur. Spum-
ingarnar höfðu frægir karlar í
landinu lagt fram, þeirra á meðal
Gary Bailey, fyrmm markvörður
Manchester United, sem nú er
knattspymufréttamaður í Suður-
Afríku. Fljótlega kom í ljós að
spurningarnar margar hverjar
vom svo dónalegar og nærgöngul-
ar að Joan varð miður sín svo að
sjáanlegt var. Hún sagði áhorfend-
um sínum að aldrei fyrr hefði hún
orðið að fást við neitt þessu líkt og
þetta fengi nokkuð á sig. „Ég vildi
að ég væri í Frakklandi. Frakkar
em kurteisir við konur,“ sagði hún.
Að undanförnu hefur Joan Coll-
ins dvalist í húsi sínu í Frakklandi
að vinna að nýrri bók, eftir vel-
heppnaða leikför í Englandi með
leikrit Noels Coward, Private Li-
ves.