Tíminn - 30.09.1992, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 30. september 1992
Tíminn 7
Sarajevo — Ástandiö I
Sarajevo í gær var það versta
í margar vikur. Sprengjum
rigndi yfir borgina og bardag-
ar brutust í úthverfum hennar.
Þær fregnir hafa borist frá
Bandaríkjunum að flug með
hjálpargögn, sem var stöðvað
eftir að (tölsk flugvél var skotin
niður þann 3. september sl.,
verði hafið að nýju I þessari
viku.
Kathmandu — Nepalskar
bjö’rgunarsveitir hafa fundið
brunnin og illa farin lík I flaki
pakistönsku flugvélarinnar
sem fórst á mánudag. Einnig
fannst hinn svokallaði „svarti
kassi“ en i honum kunna aö
vera upplýsingar um hvað
varð til þess að flugvélin fórst,
en hún brotlenti f fjallshlíð og
brann aðeins nokkrum mínút-
um áður en hún átti að koma
inn til lendingar.
Brasilía — Neðri deild bras-
iiíska þingsins hefur nú hafið
undirbúning atkvæöagreiðslu
um hvort svifta eigi forseta
landsins, Fernando Collor de
Mello, völdum. Undirbúning-
urinn felst meðal annars í þvf
að formenn 17 flokka þingsins
halda ræðu (þinginu.
Jóhannesarborg — Man-
gosuthu Buthelezi Zuluhöfö-
ingi hefur ásakað hvita leið-
toga Pretoríu og Afríska þjóð-
arráðiö fyrir aö skipuleggja
þjóðarmorð á Zulu-mönnum til
þess að geta síðan skipt Suð-
ur-Afríku á milli sin.
Washington — Milljarða-
mæringurinn frá Texas, Ross
Perot, segist munu keppa
gegn Bill Clinton, frambjóð-
anda demókrata, og Bush for-
seta I sjónvarpi ef hann
ákveður að bjóða sig fram til
forseta. Skoðanakannanir
sýna að ef Perot býöur sig
fram muni það einkum skaða
Clinton.
Róm — Vonir um að hægt
yröi að binda enda á átökin í
Suður-Afríku dofnuðu veru-
lega þegar skæruliðaforinginn
frá Mósambík, Afonso Dhlak-
ama, dró sig út úr friðarsamn-
ingi sem undirrita átti á ftaliu.
Bonn — Þýskir leiðtogar,
sem eru miður sín vegna of-
beldisaðgerða hægri öfga-
manna, heimsóttu minnis-
merki um gyðinga sem fórust i
helför nasista og fordæmdu
kynþáttahatur. Ennfremur
ræddu þeir hvort þýsk stjórn-
völd ynnu nóg gegn hægri
öfgastefnu. En talsmenn iðn-
aðarins sögðust munu hunsa
alla gagnrýni og halda sínu
striki með hátiðahöld vegna
50 ára afmælis V2 eldflaugar
Hitlers.
Zagreb — Skotið var á tvær
þyrlur Sameinuðu þjóðanna er
þær komu til höfuðborgar
Króatíu, Zagreb. Að sögn tals-
manna SÞ voru báðar þyrlurn-
ar vandlega merktar Samein-
uöu þjóðunum, en samt var
skotið á þær úr loftvarnar-
byssum. Flugmönnum beggja
þyrlanna tókst þó að lenda
þeim heilu og höldnu.
Zagreb — Talsmenn Sam-
einuðu þjóðanna hafa sagst
munu beita valdi til þess að
koma í veg fyrir að þúsundir
króatískra flóttamanna haldi
inn á svæði sem Serbar hafa
á valdi sínu.
Meistara- og verktakasamband byggingarmanna mótmælir harðlega tillögum ríkisstjórnarinn-
ar um að draga úr endurgreiðslum á vsk. af vinnu manna við íbúðabyggingar:
Mun auka skattsvik og
hækka byggingakostnað
Meistara- og verktakasamband
byggingarmanna telur að hug-
myndir ríkisstjómarinnar um
að skerða endurgreiðsluhlutfall
virðisaukaskatts af vinnu
manna við íbúðabyggingar leiði
til verri skattskila og dragi úr
atvinnu. Þetta séu vanhugsaðar
hugmyndir, sem leiði tii 2,5%
hækkunar á byggingavísitölu.
Ríkisstjómin áformar að lækka
endurgreiðsluhlutfallið niður í
60%.
í ályktun frá framkvæmdastjórn
Meistara- og verktakasambands
byggingarmanna segir að með upp-
töku virðisaukaskatts hafi verið
stigið skref í þá átt að draga úr svo-
kallaðri „svartri vinnu“. Með því að
endurgreiða virðisaukaskatt af
vinnu manna við íbúðabyggingar
hafi falist hvati fyrir viðskiptavini
iðnaðarmanna að viðskiptin færu
fram fyrir opnum tjöldum og full
grein sé gerð fyrir inn- og útskatti.
Þá hafi með þessu fyrirkomulagi
falist hvati til framkvæmda af hálfu
íbúðaeiganda. Með því að draga úr
endurgreiðsluhlutfalli sé verið að
taka í burtu þennan hvata að hluta
til.
í ályktuninni segir enn fremur að
fyrirhugaðar breytingar komi sér-
staklega illa við viðgerðir og endur-
bætur á eldra húsnæði, en undan-
farið hefur sú grein byggingaiðnað-
ar verið í hvað mestum vexti. Bent
í ræðu, sem Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra hélt við
upphaf allsherjarþings Samein-
uðu þjóðanna í New York, Iýsti
hann yfir vonbrígðum með að ára-
tugur fatlaðra hafi ekki náð tilætl-
uðum árangrí. Ríkisstjómir
heims verði að virða skuldbind-
ingar sínar gagnvart hálfum millj-
arði fatlaðra manna um heim all-
an og gefa þeim sömu tækifæri og
öðrum.
Utanríkisráðherra sagði í ræð-
unni að eftir lok kalda stríðsins
hafi opnast nýjar Ieiðir til sam-
vinnu á sviði efnahags- og félags-
mála. Nokkuð vanti á að þjóðir
hafi skapað farveg til að nýta þessa
möguleika. í því sambandi nefndi
hann hversu erfiðlega Uruguay-
viðræðurnar hafi gengið. Hann
sagði að ekki megi gefast upp,
enda myndi það stefna í voða hag-
vexti í iðnþróuðu ríkjunum og að-
gangi þróunarríkja og ríkja Aust-
Athugasemd
Kátir karlar, sem heiðruðu Noregs-
konung með nærveru sinni og
mynd birtist af í spegli Tímans í gær,
voru allir nafngreindir rétt, en
starfstitill eins þeirra skolaðist hins
vegar til. Sagt var að einn mann-
anna væri Ólafur Jónsson, upplýs-
ingafulltrúi Reykjavíkurborgar. Svo
er ekki. Á myndinni var Ólafur Jóns-
son, fulltrúi borgarstjórans í Reykja-
vík.
er á að þessar viðgerðir séu þjóð-
hagslega mjög hagkvæmar. Þá segir
að launakostnaður sé 70-80% af
heildarkostnaði við viðgerðir. Sam-
dráttur í þessari grein auki því enn
á það atvinnuleysi, sem fyrir er, og
dragi úr tekjum ríkissjóðs.
„Mjög alvarlega verður að telja
þessa stefnubreytingu ríkisstjórn-
arinnar, sem leiða mun til al-
ur-Evrópu að alþjóðaviðskiptum.
Evrópubandalagið og Bandaríkin
verði að axla ábyrgð sína gagnvart
öðrum jarðarbúum.
Utanríkisráðherra sagði umhverf-
isráðstefnuna í Ríó vera tímamót
og árangur hennar hafa skapað
góðan grundvöll fyrir framtíðar-
störf á sviði umhverfismála. Hann
nefndi í því sambandi mikilvægi
þess að koma í veg fyrir mengun
Gylfi Kristinsson, formaður starfs-
menntaráðs félagsmálaráðuneytis-
ins, segist búast við því að ráðið út-
hluti fyrstu styrkveitingum sínum
til starfsmenntunar um miðjan
næsta mánuð.
Nýlega skipaði félagsmálaráðherra í
starfsmenntaráð, sem í sitja fulltrúar
frá aðilum vinnumarkaðarins. Ráðið
hefur þegar haldið tvo fundi og verð-
ur sá þriðji 1' dag. Starfsmenntaráð-
inu er fyrst og fremst ætlað að styðja
við bakið á starfsfræðslunefndum að-
ila vinnumarkaðarins í því skyni að
efla starfsmenntun starfsfólks úti í
atvinnulífinu. Jafnframt er sá mögu-
mennra skattahækkana þvert ofan í
yfirlýsingar um að skattar og álögur
á atvinnurekstur yrðu ekki hækk-
aðar,“ segir í ályktuninni. Skorað er
á ríkisstjórnina að draga hugmynd-
ir sínar til baka og auka fremur
endurgreiðsluhlutfall vegna við-
gerða og endurbóta á húsnæði.
Meistarasambandið bendir að fyr-
irhugaðar framkvæmdir í vegamál-
hafsins og nauðsyn þess að allar
lifandi auðlindir hafsins verði
nýttar. Ráðherra fagnaði þeirri
ákvörðun umhverfisráðstefnunn-
ar að boða til alþjóðlegrar ráð-
stefnu um að koma í veg fyrir
mengun frá Iandstöðvum.
Utanríkisráðherra vék enn frem-
ur að stríðinu í ríkjum fyrrum
Júgóslavíu og hörmungarástand-
inu í Sómalíu. -EÓ
leiki fyrir hendi að ráðið styðji fýrir-
tæki og jafnvel skóla, sem eru þá í
samstarfi við aðila vinnumarkaðar-
ins um aðgerðir á þessu sviði. Enn-
fremur mun starfsmenntaráð leggja
sitt af mörkum til að efla endur-
menntunarnámskeið fyrir atvinnu-
laust fólk.
Gylfi segir að félagsmálaráðuneytið
hafi þegar styrkt tvö námskeið til
endurmenntunar fyrir atvinnuleys-
ingja. Annað var haldið á vegum
Námsflokka Reykjavíkur í samvinnu
við Ráðningarskrifstofu borgarinnar,
hitt var námskeið til endurmenntun-
ar og var haldið í Keflavík. -grh
um skapi ekki miklum fjölda fólks
atvinnu, en vegagerð er sem kunn-
ugt er ekki mannaflafrek starfsemi.
-EÓ
Ályktun frá hús-
næðishópi BSRB:
Enn á að
pina þa
tekju-
lægstu
Húsnæðishópur BSRB mót-
mælir fyrirhuguðum hækkun-
um á vöxtum á lánum bygg-
ingasjóðs verkamanna úr 1% í
2,4% afturvirkt til 1984.
Kaupmáttur launafólks hefur
ekki aukist á síðustu árum og
því er ríkisstjómin á villigöt-
um þegar hún eykur með þess-
um hætti álögur á hina tekju-
lægstu í þeirri viðleitni sinni
að minnka halla ríkissjóðs.
Húsnæðishópur BSRB telur
nærtækara að sækja fé þangað
sem það er að hafa, Ld. með
skattlagningu fjármagnstekna
og hátekjuskatti.
Húsnæðishópur BSRB telur
mikilvægt að þess sé gætt að
félagslega húsnæðiskerfiö
gagnist þeim sem það upphaf-
lega var hugsað fyrir.
Þá bendir húsnæðishópur
BSRB á að verulega má draga
úr útgjöldum ríkisins til fé-
lagslegra ibúða með lækkun
byggingarkostnaðar.
Vegna frétta í síðustu viku vill
húsnæðishópur BSRB ítreka
þá kröfu sína að tekið verði á
vandamáli þeirra íbúðarkaup-
enda, sem íenda á milli kerfa
vegna þess að tekjur þeirra em
of háar tíl þess að þeir fái inni
í félagslega kerfinu. Húsnæð-
ishópur BSRB bendir á að
með því að koma á húsaleigu-
bótum og með lækkun láns-
hlutfails í húsbréfakerfinu úr
65% af verði íbúðar í 75% tU
þeirra, sem eru að kaupa sína
fyrstu ibúð, sé stígið skref í átt
til tausnar vanda þessa hóps.
—Fréttatilkynning
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, við setningu allsherj-
arþings Sameinuðu þjóðanna:
Lýsti vonbrigðum
með áratug fatlaðra
Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins:
Úthlutar styrkjum
til starfsmenntunar