Tíminn - 30.09.1992, Síða 12

Tíminn - 30.09.1992, Síða 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 L0ND0N - NEW YORK - STOCKHOLM DALLAS TOKYO Kringlunni 8-12 Sími 689888 il JU' HÖGG- > DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahlutir amarsbolða I - s. 67-6744 ] TVOFALDUR1. vinningur Tímiiui MIÐVIKUDAGUR 30. SEPT. 1992 Vinnuverndarlöggjöfin gerir ráð fyrir minnst einum frídegi í viku: ASÍ og VSÍ sömdu um sunnudaginn Þótt vinnuverndarlöggjöfin kveði á um að það skuli vera minnst einn frídagur í hverri viku, er ekki þar með sagt að það skuli vera sunnu- dagur. í kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins frá árinu 1981 er hins vegar gengið út frá því að hann sé sunnudagur að öllu jöfnu. Eins og kunnugt er hefur stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur farið þess á leit við Vinnueftirlit ríks- ins að kanna hvort hvíldartíma- ákvæði vinnuverndarlöggjafarinnar séu brotin með sunnudagsopnun verslana í Kringlunni. Á vegum Vinnueftiurlitsins er unnið að þeirri athugun og er niðurstöðu að vænta von bráðar. Guðmundur Eiríksson, forstöðu- maður eftirlitsdeiidar Vinnueftirlits ríkisins í Reykjavíkurumdæmi, segir að samkvæmt löggjöfinni skuli hvíldartími á sólarhring vera 10 tím- ar. Frá því er þó undanþága vegna Kennarasambandið ályktar: Aðför að skólastarfi Á fundi stjórnar Kennarasam- bands íslands fyrir helgina var samþykkt ályktun þar sem varað er við þeim hugmyndum sem kynntar hafa verið um virðisauka- skatt á menningarstarfsemi, þar með taldar íslenskar bækur. Slík ákvörðun yrði til þess að þrengja enn frekar fjárhag heimil- anna í landinu og bitnaði harðast á foreldrum barna og unglinga sem stunda nám í grunnskólum og framhaldsskólum. „Þannig yrði enn vegið að þeim sem minnst mega sín, í stað þess að afla tekna með sérstakri skattlagningu á há laun og fjármagnstekjur," segir orðrétt í ályktuninni. Þá kemur fram í þessari samþykkt K.í. að það er eitt grundvallarskil- yröi jafnréttis til náms að kostnaði vegna námsgagna sé haldið í lág- marki og að Námsgagnastofnun sé ætlað að sjá grunnskólanemum fyrir ókeypis námsgögnum. Því sé skattheimta af þessu tagi í raun ekki annað en skerðing á framlög- um til stofnunarinnar sem tak- marki þannig það úrval námsbóka sem stofnunin geti boðið nemend- um. Kostnaður vegna námsbóka- kaupa framhaldsskólanema segir K.í. að sé stór útgjaldaliður fyrir fjölmörg heimili og því brýnt hagsmunamál að þessum útgjalda- lið sé haldið í lágmarki. - BG vaktavinnu þar sem kveðið er á um að hvíldartíminn skuli ekki vera minni en átta tímar. Guðmundur segir að það sé stað- reynd og tölfræðilega sannað að þar sem hvíldartíminn er í lágmarki virðist slysatíðni rísa. Hann segir að forsendan fyrir öryggi og vellíðan starfsmanna á vinnustað sé að þeir gangi ekki þreyttir til vinnu. -grh Stofnun fiskmarkaður á Akranesi hefur verið í deiglunni í 3 ár: Tekur til starfa í næsta mánuði Stofnun flskmarkaðar á Akranesi hefur verið í deiglunni í þijú ár en það er fyrst núna sem einhver skriður er kominn á málið og er stefnt að því að markaðurinn taki til starfa í næsta mánuði. þeir til ferðaþjónustunnar, eflingu smáiðnaðar í bænum en síðast en ekki síst til gerðar jarðganga und- ir Hvalfjörð. Þeir bjartsýnustu gera ráð fyrir að fiskmarkaðurinn geti selt allt að sex þúsund tonn á ári, en hinir hófsömu reikna þó frekar með minna umfgangi til að byrja með. Þótt óraunhæft sé að ætla að allur sá afli fari til vinnslu í héraði, er Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi, segir að stofhun fiskmarkað- arins sé liður í þeirri viðleitni heimamanna að efla atvinnu- ástandið í bænum en eins og kunnugt er hefur bæjarfélagið ekki farið varhluta af atvinnuleys- inu. Fyrir utan stofnun fiskmark- aðarins sjá Skagamenn ýmsa möguleika til að efla atvinnulífið á staðnum og meðal annars horfa Tímamynd Árnl Bjarna Aðstandendur Kvennaathvarfsins kynna landssöfnunina í gær. Aðstandendur Kvennaathvarfsins: Þörfin fyrir nýtt hús orðin brýn Forsvarsmenn Kvennaathvarfsins kynntu í gær fyrirhugaða lands- söfnun til að fjármagna nýtt hús fyrir athvarfið. Takmark þeirra er að safna 13 miUjónum króna. Föstudaginn 2. október ætla að- standendur Kvennaathvarfsins að hefja söfnunina með því að selja töl- ur í átta mismundandi litum merkt- ar Kvennaathvarfinu hverja á 200 kr. undir kjörorðinu ,AUir með tölu.“ Tákmarkið er að þeirra sögn að selja eina tölu á hverja fjögurra mana íjölskyldu í landinu. Kvennaathvarfið á nú tíu ára af- mæli og hafa yfir 1600 konur og yfir 1100 böm komið í athvarfið. Ymis- legt bendir til að í ár verði metað- sókn að athvarfinu. Forsvarsmenn söfnunarinnar segjast hafa fundið hús sem fullnægi þörfum þeirra og hafa þegar fest sér það með þeim fyr- irvara að landsmenn taki því vel að vera þátttakendur í óvenjulegri af- mælisgjöf. í máli söfnunarmanna kom fram að konur með börn dveljast lengst í athvarfinu. Komið hefur fyrir að níu konur og tuttugu og böm hafi dval- ist þar samtímis en í athvarfinu eru sex svefnherbergi. Samtök um Kvennaathvarf hafa m.a. gefið út bækling þar sem ýmsar fróðlega upplýsingar koma fram. Þar segir að engar áreiðanlegar töl- ur séu til um það hve útbreitt heim- ilisofbeldi sé á íslandi en að víða sé það einhver alvarlegasti glæpur þjóðfélagsins og jafnframt sá sem sjaldnast sé kærður. Þá kemur og fram að ofbeldi fyrirfinnist í öllum stéttum samfélagsins og að áfengi sé aðeins haft um hönd í rúmlega 30% þeirra tilvika sem valda því að konur flýja í Kvennaathvarfið. Meðalaldur kvenna sem koma nú í athvarfið er 35 ár en var hærri fyrir nokkrum árum. Elsta konan sem komið hefur til dvalar var rúmlega áttræð en sú yngsta 13 ára. Um 70% kvenna sem hafa komið í athvarfið hafa verið búsett á höfuðborgar- svæðinu. Þá virðast sumar konur koma oftar en einu sinni því að árinu 1991 höfðu 38% þeirra sem þá komu komið áður. -HÞ engu að síður viðbúið að markað- urinn muni efla fiskverkun á svæðinu fyrir utan þau margföld- unaráhrif sem starfsemi hans mun hafa á aðrar atvinnugreinar. Þegar áhugi heimamanna á stofnun fiskmarkaðs vaknaði á ný fyrir skömmu var fyrst rætt um að það yrði í samstarfi við fiskmarkað Breiðafjarðar í Ólafsvík og jafnvel við Faxamarkað í Reykjavík. En með vaxandi áhuga útgerðaraðila í bænum og þá einkum trillukarla varð sú skoðun ofan á að best væri að reka hann sem sjálfstætt fyrir- tæki. -grh Magnús Steinþórsson, hót- eleigandi í Englandi, safnar hlutafé á íslandi til kaupa á hóteli í London: Hlutafé til hótelkaupa í Englandi safnaó hér Magnús Steinþórsson, hótel- eigandi á Englandi, er að vinna að stofnun hlutafélags sem m.a. mun hafa það á stefnu- skránni að kaupa hótel í Lond- on. Magnús er nú, með aðstoð lögfræðings síns, að safna hlutafé hér heima á íslandi. Hluthöfum verður boðinn af- sláttur á gistirými í hótelinu. Magnús hefur undanfarin fimm ár rekið hótel, Manor House Hotel, í gömlum herragarði, eins konar kastala á suðurströnd Englands. Herragarðurinn á sér merka sögu. Nefna má að þar er rithöfundurinn Agatha Christie fædd. Hún skrifaði þar nokkrar af sínum bestu sögum. Magnús segir að rekstur hótelsins hafi gengið vel. Gestum hafi fjölg- að margfalt frá því hann tók við rekstrinum. Um 40% dvalargesta eru íslendingar. Nú hefur Magnús áhuga á að færa út kvíarnar og stofna hlutafélag um kaup á hóteli í London. Hug- myndin er að greiða upp þau lán sem hvíla á Manor House, en þau eru að sögn Magnúsar lítil, og nota hótelið til veðsetningar við kaup á hóteli í London. Markmiðið er að fá sem flesta einstaklinga til að kaupa hlutafé, frekar en fáeina stóra að- ila. Þessu markmiði hyggst hann ná m.a. með því að afhenda hlut- höfum sérstakt afsláttarkort sem gildir á hótelinu. Hluthafi fengi 30% afslátt af gistirými. Verðmæti Manor House Hotel er um 200 milljónir króna. Verðmæti hvers hlutabréfs verður 100 pund. Markmiðið er að safna ekki lægri upphæð í hlutafé en 20 milljónir króna. -EÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.