Tíminn - 04.11.1992, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 4. nóvember 1992
Tíminn 7
í síðasta mánuði voru afgreiddar 60 lokasölur í gjaldþrotamálum hjá sýslumannsembættinu í Keflavík:
rotamál eru hvergi
og á Suðurnesjum
Jón Eysteinsson, sýslumaður í Keflavík, segir að óvíða annars staðar á
landinu séu gjaldþrotamál jafntíð og á Suðumesjum. Hann telur engan vafa
leika á að það slæma atvinnuástand sem þar hefur ríkt lengi skýri þetta að
stórum hluta. Jón segir að ef atvinnuleysi á Suðumesjum eigi eftir að auk-
ast enn meira eins og útlit er fyrir þá megi búast við að gjaldþrotamálum
fjölgi enn hjá embætti hans.
í síðasta mánuði voru afgreiddar 60
beiðnir um lokasölur á eignum hjá
sýslumannsembættinu í Keflavík. Jón
Eysteinsson sýslumaður sagði að þessi
mikli fjöldi mála væri tilkominn af dá-
lítið sérstökum aðstæðum. Verið sé að
ljúka afgreiðslu margra gamalla mála,
en sem kunnugt er eru nýlega gengin
í gildi ný gjaldþrotalög sem breyta í
nokkrum veigamiklum atriðum gjald-
þrotameðferð. Jón tók fram að ekki
hafi farið fram sala í öllum þessum 60
tilvikum.
Jón sagði að nokkur tími líði áður en
hans embætti verði vart við afleiðing-
ar aukins atvinnuleysis í fleiri gjald-
þrotamálum og ekki sé hægt að tala
um að málum hafi fjölgað hjá emb-
ættinu síðustu mánuði. Hann sagði
hins vegar að í nokkur ár hafi gjald-
þrotamál á Suðurnesjum verið mjög
mörg.
Ástæðan sé vafalaust slæmt atvinnu-
ástand á svæðinu. Jón sagðist telja að
tíðni gjaldþrotamála hjá sýslumanns-
embættinu í Keflavík sé með því
hæsta sem gerist á landinu. Páll Jóns-
son, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði
Keflavíkur, segir að ekki fari hjá því að
hann verði var við afleiðingar aukins
atvinnuleysis á Suðurnesjum. Meira
sé um að fólk komi og biðji um fram-
lengingar á lánum. Hann sagði að
margt fólk eigi í miklum erfiðleikum
með að standa í skilum með þau lán
sem það hafi tekið, enda hafi fólk ekki
gert ráð fyrir þeim möguleika þegar
lánin voru tekin að það myndi missa
vinnuna. Páll sagði að margir sem
komi á skrifstofuna til sín séu örvænt-
ingafullir. Atvinnulaust fólk sjái af
skiljanlegum ástæðum fáar leiðir til
að standa í skilum með lán þegar enga
vinnu sé að fá.
Atvinnuleysi á Suðumesjum er nú
um 6%, þar af yfir 10% meðal kvenna.
Reiknað er með að þessar tölur eigi
eftir að hækka á næstu mánuðum ef
ekki komi til sérstakar aðgerðir af
hálfu ríkisvaldsins og sveitarfélag-
anna. Horfur eru á að á næstu mánuð-
um taka gildi uppsagnir hjá íslensk-
um aðalverktökum, álverinu í
Straumsvík og fleiri fyrirtækjum.
BHMR hafnar alveg,
lausnum ASÍ og VSÍ
Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna hefur sent frá sér ályktun
um atvinnumál þar sem þeim lausnum sem forystumenn ASÍ og VSI ræða
þessa dagana á vanda atvinnulífsins er hafnað. Bent er á að allar þær hug-
myndir sem aðallega hafa verið ræddar feli í sér skerðingu á kaupmætti eða
réttindum launafólks.
„BHMR hafnar alfarið þessum leið-
um þar sem þær gera ráð fyrir að
lausn á vanda efnahagslífsins verði
sótt í vasa launamanna. Ef hinn að-
steðjandi vandi er slíkur sem sagt er
verður hann aðeins leystur með
sameiginlegum aðgerðum þar sem
ríkisvald og fyrirtækin leggja sinn
skerf með almenningi í landinu. Til
þess að svo megi verða þarf að ríkja
gagnkvæmt traust og heiðarleiki
milli aðila. Ákvarðanir stjórnvalda
verða að vera hafnar yfir pólitíska
hentistefnu þannig að tiltrú á að-
gerðum ríkisins aukist og íslending-
ar geti unnið saman að bættum lífs-
kjörum," segir orðrétt í ályktuninni.
Mikið hefur verið rætt um að ís-
lendingar feti í fótspor Svía í efna-
hagsmálum og grípi til svipaðra að-
gerða og þeir hafa nýlega gripið til.
BHMR bendir á að sú skerðing á
réttindum launamanna sem hafi
verið ákveðin í Svíþjóð sé ekki sam-
bærileg við það sem um er rætt hér
á landi. Réttindi launafóiks í Svíþjóð
t.d. varðandi veikindagreiðslur,
sumarleyfi, ellilífeyrisaldur og
barnabætur séu meiri þar en hér á
landi. -EÓ
Ný Ijósritunartækni:
Keppir við offsetprent
Nýheiji hf. kynnti nýlega nýjustu kynslóð ljósritunarvéla sen hannaðar og
smíðaðar eru til þess að keppa við hefðbundna offsetprentun og - fjölritun.
Vélar þessar eru af gerðinni Rank
Xerox og eru að sögn Björns Blang-
sted, fulltrúa Rank Xerox í Dan-
mörku, fúllkomnustu, afkastamestu
og bestu Ijósritunarvélar sem fram-
leiddar eru.
Hann segir að hin nýja kynslóð
ljósritunarvéla sé hönnuð og smíð-
uð með það fyrir augum að keppa
við hefðbundna offsetprentun sem
ljósritun hafi ekki hingað til ráðið
við. Sú ljósritunarvél sem best nær
þessu markmiði nú sé Xerox 5090.
Hún afkasti 135 eintökum á mínútu
sem er ekki minna en bestu offset-
vélar ráða við. Háþróaður rafeinda-
búnaður fylgist stöðugt með prent-
gæðum hvers einasta eintaks sem
síðan fer í röðunar og bókbands-
hluta vélarinnar þar sem hún límir
og heftar saman síöurnar og bindur
inn.
samskipti við í gegnum venjulegar
einkatölvur. Við þessa breytingu hafi
gríðarlegar fjárhæðir sparast.
Auk hinnar öflugu ljósritunarvélar
eru til sýnis í húsakynnum Nýherja
við Skaftahlíð aðrar smærri vélar
sem ljósritað geta litmyndir og
stækkað allt að 400 sinnum án þess
að myndgæði fari við það forgörð-
um. Jafnframt er í húsakynnum Ný-
herja uppi sýning á ljósmyndum af
fjölmörgum myndverkum Margrét-
ar Þórhildar Danadrottningar. Gefur
Björn Blangsted, fulltrúi Rank Xer-
ox í Danmörku, viö stjórnborö risa-
vaxinnar Ijósritunarvélar sem
prentar og bindur inn heilu bæk-
urnar áöur en viö er litiö. Vélinni er
stjómaö meö þvi að snerta ýmsa
staöi á sjónvarpsskjá ofan á henni.
Tímamynd Áml Bjama
þar að líta bæði málverk, teikningar,
leikmyndir og búninga sem drottn-
ingin hefur gert af ýmsu tilefni.
Hóffjaðragjald á Landsþingi hestamanna. Árni Mathiesen:
Tilgangslaust ef enginn vill
Á tímum hagræðingar og endur-
skipulagningar er mikinn sparnað
að sækja með því að endurskipu-
leggja skrifstofuþátt fyrirtækja og
stofnana og Nýherji og Rank Xerox
bjóða fram ýmsa möguleika í þeim
efnum, meðal annars við að draga
stórlega úr Ijósritunar- og útgáfu-
kostnaði. Hin nýja og fullkomna
ljósprentunarvél gæti í því efni
komið vel til skjalanna. Áð sögn
Björns Blangsted hefur t.d. Kaup-
mannahafnarháskóli aflagt flestar
venjulegar Ijósritunarvélar sínar og
komið sér upp einni Xerox 5090 sem
einstakar deildir skólans hafa síðan
I tilefni af fréttum Tímans í gær af
Landsþingi hestamanna á Flúðum
um sl. helgi óskar Árni Mathiesen
alþingismaður að taka fram að
hann hefði ekki sagt á þinginu að
hann þyrði ekki að styðja hugmynd-
ir um hóffjaðragjaid nema að fyrst
lægju fyrir yfirlýsingar hestamanna
sjálfra um að þeir styddu þær.
„Ég var að reyna að segja mönnum
að það væri tilgangslaust að setja á
hóffjaðragjald, og að ég styddi það
ekki, nema ef klárt væri að bæði þeir
sem eiga að greiða gjaldið og njóta
þess séu sáttir við það.
Ef menn eru ósáttir við hóffjaðra-
gjald þá er tilgangslaust að setja lög
um það. Lög sem ekki ná tilgangi
sínum vil ég ekki samþykkja," sagði
Árni.
Freyja, félag framsóknar-
kvenna í Kópavogi
Almennur fundur I Freyju verður haldinn að Digranesvegi 12 fimmtudaginn 5. nóv-
ember kl. 20.30.
Stef fundarins: Hvert land bjargast við sin gæði.
Á dagskrá verður m.a. hvatning, félagsmál og fræðsluefni.
Freyjukonur eru hvattar til að mæta og taka með sér gesti.
Stjómln
Aðalfundur fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í
Reykjavík
verður haldinn mánudaginn 9. nóvember 1992, kl. 20:30, að Hótel Lind.
Dagskrá:
Kl. 20:30 Setning: Valdimar K. Jónsson formaður.
Kosning starfsmanna fundarins.
Skýrsla stjómar
a) formanns,
b) gjaldkera.
Kosningar:
a) Formanns.
b) Aðalmanna i stjóm (5) og varamanna (3).
c) Tveggja endurskoðenda og eins til vara.
d) Aðal- og varamanna i miðstjórn (8).
e) Aöal- og varamanna i stjórn Húsbyggingasjóðsins (3).
Kl. 21:15 Stjórnmálaviðhorfið: Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins.
Efnahags- og kjaramál: Bolli Héðinsson, stjómandi málefnahóps.
Umræður.
Kl. 23:15 Önnur mál.
Stjórnin
Félagsvist
Hin áriegu spilakvöld Framsóknarfélags Árnessýslu hefjast 6. nóvember kl. 21 I nýja
félagsheimilinu Þingborg i Hraungerðishreppi. Spilað verður i Aratungu 13. nóvem-
ber kl. 21. Aöalverölaun utanlandsferð. Góð kvöldverölaun.
Stjórnin
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilað verður á sunnudagskvöldum 15. nóvember, 29. nóvember, 13. desember
og 10. januar. Auk kvöldverðlauna verða ein heildarverðlaun: Dagsferð fyrir 2 með
Flugleiöum til Kulusuk.
3 hæstu kvöld gilda.
Framsóknarfélag Rangirvaiiasýsiu
Reykjavík
Fulltaiaráð framsóknarfélaganna i Reykjavlk hefur opnað skrifstofu að Hafnarstræti
20, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 13:00-17:00.
Stjóm fulltrúaráðsins.
Hafnarfjörður
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hafa opna skrifstofu að Hverfisgötu 25 á þriðjudags-
kvöldum frá kl. 20.30. Litiö inn, fáið ykkur kaffisopa og spjallið.
Stjórnlmar
Keflavík —
Suðurnesjamenn
Vetrarstarfið er hafið. Opið hús alla mánudaga kl. 20.30. Mætum öll. Alltaf heitt á
könnunni. Framsóknarfélögin I Keflavik.
Siglufjörður
Almennur félagsfundur Framsóknarfélags Siglufjarðar verður haldinn að Suðurgötu
4, þriöjudaginn 10. nóvember 1992 kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Bæjarmál. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing. 3. Önnur mál.
Stjómin
Kópavogur — Opið hús
Framsóknarfélögin I Kópavogi hafa opiö hús á laugardögum kl. 10-12 að Digranes-
vegi 12. Litið inn, fáið ykkur kaffisopa og spjalliö. Framsóknarfélögln
Borgarnes —
Breyttur opnunartími
Frá og með 1. október verður opið hús I Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á
þriðjudögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur
undanfarin ár.
Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viðtals á þessum tlma og ennfremur enj allir,
sem vilja ræða bæjarmálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögðu verður hellt á
könnuna eftir þörfum.
Framsóknarfélag Borgamess.
Akranes — Bæjarmái
Fundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 7. nóvember kl. 10.30.
Farið veröur yfir þau mál sem efst eru á baugi I bæjarstjóm. MorgunkafTi og meðlæti
á staönum.
Bæjarfulltrúamlr