Tíminn - 10.11.1992, Page 1
Þriðjudagur
10. nóvember 1992
196. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Milljónatjón
á Bíldudal
Milljónatjón varð er fískverk-
unarhús á Bfídudal brann til
kaldra kola um helgina.
Nágrannar urðu eldsins varir
og kölluðu á slökkvilið. Ekki
fékkst neitt við ráðið og brann
allt sem brunnið gat. Bráðlega
var ætlunin að hefja rækju-
vinnslu í húsinu og voru tæki
til þess komin í húsið. Þá voru
geymd veiðarfæri í húsinu sem
ekki tókst að bjarga.
Tálið er að eldsupptök megi
rekja til vinnu við logsuðu á
föstudaginn var.
Vopnað rán
í Reykjavík
Vopnað rán var framið í
Reykjavík í gærmorgun. Lög-
reglan handtók ræningjann
eftir umsátursástand seinni
partinn í gær.
Maðurinn, sem naut þjónustu
á sólbaðsstofu, réðst að starfs-
stúlku stofunnar og ógnaði
henni með hnífi. Hann komst
undan með 90.000 kr í
greiðslukortanótum og 50.000
kr. í reiðufé.
Eftir talsverða leit hafðist
uppi á manninum þar sem
hann hafði leigt sér herbergi á
Hótel íslandi. Lögreglan sat
um hótelið og eftir talsverða
leit tókst að hafa hendur í hári
hans. Þetta mun vera einn af
títtnefndum góðkunningjum
lögreglunnar. -HÞ
Stórkaupmenn óhressir
með ferðir landans til er-
lendra stórborga:
Verslað fyrir
2,5 milljarða
Um 400 störf tapast og opin-
berir aðilar tapa um 750 millj-
ónum kr. þegar verslun fyrir
2,5 milljarða kr. fíyst úr landi.
Þetta kemur fram í frétt frá
Félagi íslenskra stórkaup-
manna. Þar segir að reikna
megi með að um 25.000 ís-
lendingar fari utan í skemmti-
og innkaupaferðir til erlendra
stórborga á þessu hausti.
Það er heldur hærri tala en
komið hefur fram í viðræðum
við forráðamenn ferðaskrif-
stofa en þeir áætla að milli 12
og 15.000 manns fari í þessar
ferðir.
Stórkaupmenn gefa sér þá
forsendu að hver einstaklingur
versli fyrir 1.000 pund eða um
100.000 kr. og því flytjist versl-
un að andvirði 2,5 milljarða úr
landi. Þeir telja enn fremur að
þessi verslun myndi skila 600
millj. kr í virðisaukaskattstekj-
ur til ríkissjóðs. Þar til viðbótar
koma 125 millj. kr sem tapast
vegna aðflutningsgjalda. Þá er
talað um að sveitafélög tapi
u.þ.b. 25 millj. kr. af aðstöðu-
gjaldi. Þegar þessar tölur eru
lagðar saman segja stórkaup-
menn að hið opinbera tapi ekki
undir 750 millj. kr -HÞ
Klukkan tifar á atvinnumálanefnd ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins:
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, og Magnús Cunnarsson, for-
maður VSÍ, ræddu við forsætisráðherra og utanrfídsráðherra í gær
um hugmyndir atvinnumálanefndar rfídsstjórnarinnar og aðila
vinnumarkaðarins í atvinnu- og efnahagsmálum. Á fundinum
skýrðu Ásmundur og Magnús gang mála í nefndinni. Jafnframt
gerðu þeir rfídsstjórninni grein fyrir skilyrðum sem stjórnin verður
að uppfylla ef grundvöllur á að vera fyrir frekari viðræðum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra hefði verið jákvæður og mál hefðu
sagði á Alþingi í gær að fúndurinn þokast í rétta átt. Hann sagði
hugsanlegt að síðar í vikunni yrði
kominn grundvöllur fyrir að kalla
formenn flokka stjórnarandstöð-
unnar til viðræðna. Hann sagðist
vona að samstaða verði um þær til-
lögur sem nú er verið að móta.
Forsætisráðherra hefur sagt að
tillögur í atvinnu- og efnahags-
málum verði kynntar fvnr 15. nóv-
ember.
„Við gerðum forsætisráðherra og
Þrykkimynd af bifreið
Ölvuð kona með eiginmann sinn sem far-
þega ók á hús lögreglustöðvarinnar á Sel-
tjarnarnesi aöfaranótt sl. laugardags. Höggiö
var verulegt og þurfti að beita verkfærum til
að losa fólkið úr bílnum eftir áreksturinn. Bíll-
inn stimplaði „andiit" sitt í múrinn eins og sjá
má á myndinni og næstum má lesa númerið
af veggnum. Það er Sæmundur Pálsson, lög-
reglumaður á Seltjarnarnesi, sem hefur hönd
á „stuðara" bílsins. Timamynd Arni Bjarna
Byssumanninum
sleppt í gær
Manni, sem verið hefur í gæslu lögreglunnar á ísafírði vegna
meintrar skotárásar, var sleppt í gær. Eins og kunnugt er af fréttum
veittist maður að tveimur mönnum á Flateyri um helgina og skaut á
þá úr haglabyssu. Skotið geigaði og fór á milli mannanna og áttu
þeir fótum fjör að launa. í framhaldi þessa handtók lögreglan á ísa-
fírði þijá menn sem grunaðir voru um verknaðinn.
Tveimur þeirra var sleppt fljótlega
en sá þriðji var áfram í gæslu og var
farið fram á gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir honum. í gær þótti málið það
vel upplýst að ekki þótti ástæða að
halda manninum lengur. Að sögn
lögreglunnar á ísafirði lá játning
mannsins ekki fyrir og ber hann fyr-
ir sig minnisleysi. Framburður
fjölda vitna liggur fyrir um afbrot
mannsins. Málið verður bráðlega
sent ríkissaksóknara.
Að sögn Jónmundar Kjartanssonar,
aðalvarðstjóra lögreglunnar á ísa-
firði, hefur maðurinn ekki komið
áður við sögu lögreglunnar. Hann
segir að lögreglan hafi ekki lagt hald
á fíkniefni en segir að játning liggi
fyrir um neyslu fíkniefna.
í máli Jónmunds kemur og fram að
stundum komi upp lögreglumál
sem tengist fjórum verbúðum á
Flateyri. -HÞ
utanríkisráðherra grein fyrir hvað
hefði verið að gerjast í þessum
málum að undanförnu. Það liggur
ekki fyrir nein endanleg niður-
staða á einn eða annan veg. Við
munum því halda áfram að skoða
málið,“ sagði Ásmundur.
Ásmundur sagði að ekkert lægi
fyrir um hvort hugmyndir nefnd-
arinnar nytu stuðnings ríkis-
stjómarinnar. Spumingu um
stuðning hennar yrði ekki svarað
fyrr en tillögur nefndarinnar lægju
endanlega fyrir. Ásmundur sagði
þó að ríkisstjórninni hefði verið
gerð grein fyrir nokkrum skilyrð-
um sem hún yrði að uppfylla til
þess að frekari umræður í atvinnu-
málanefndinni þjóni tilgangi.
Hann vildi ekki greina frá hver
þessi skilyrði væru, en sagði að
þau fjölluðu m.a. um skattkerfis-
breytingar. Ásmundur sagðist gera
ráð fyrir að ríkisstjómin muni fara
yfir þessi skilyrði áður en hún gef-
ur skýr svör um sína afstöðu.
Ásmundur sagðist ekki geta svar-
að því hvort lagðar verði einhverj-
ar beinar tillögur fyrir þing ASÍ
sem hefst í lok mánaðarins. Það
fari eftir því hvernig málið standi
þegar þingið hefst. -EÓ
Hafþór Sveinjónsson
knattspyrnumaður hefur á
undanförnum árum æft
með dönskum félögum,
en þau bera honum ekki
góða söguna:
Svíkur út fé og
lætur sig hverfa
Nokkur dönsk knattspymufé-
lög eru orðin langþreytt á því
sem þau kalla svik íslenska
knattspymumannsins Haf-
þórs Sveinjónssonar, en hann
hefur á undanfómum árum
dvalist við æflngar hjá nokkr-
um þeirra. Þar mun Hafþór
hafa stofnað til skulda við fé-
lögin og ýmsa starfsmeun
þcirra. Ekki er um háar fjár-
hæðir að ræða, en málið hefur
komið til kasta dönsku lög-
reglunnar og er án efa mjög
slæmt fyrir ísienska knatt-
spymu. Tíminn hafði sam-
band við framkvæmdastjóra
Fremad Amager í Kaup-
mannahöfn og sagði hann í
samtali við blaðið að hann
væri búinn að fá nóg af sam-
skiptum sínum við Hafþór og
það væri ekki orð að marka
sem hann segði. Fjallað var
um mál Hafþórs í danska blað-
inu Extra Bladet og er ekki
farið bh'ðum höndum um
hann á síðum blaðsins.
Sjá blaðsíðu 6-7