Tíminn - 10.11.1992, Side 3

Tíminn - 10.11.1992, Side 3
Þriðjudagur 10. nóvember 1992 Tíminn 3 Trúnaðarmannafundur Trésmiðafélags Reykjavíkur skorar á verkalýðshreyfinguna að sam- einast gegn auknum álögum á launafólk og vill þvinga atvinnurekendur og ríkisstjórn til að taka upp nýja og öfluga atvinnustefnu: Auknar álögur þýða gjaldþrot heimilanna Trúnaðarmannafiindur Trésmiðafélags Reykjavíkur telur mikilvægt að verkalýðshreyfingin sameinist í baráttu sinni gegn hugmyndum um auknar álögur á launafólk en þvingi þess í stað atvinnurekendur og ríkisstjórn til að taka upp nýja og öfluga atvinnustefnu sem tryggi bætt kjör í framtíðinni. Slapp naum- lega úr húsbruna Karlmaður slapp naumlega út úr brennandi húsi á Flateyri um heigina. Maðurinn, sem bjó einn f húsinu, kveðst hafa vaknað við að heítt hafi verið orðið í herbergi því sem hann svaf í. Þá færði hann sig um set í annað herbergí og vaknaði við reyk og eld. Hann komst út án teljandi meiðsla en fékk lítils háttar reykeitrun. Nágrannar urðu eldsins varir og og stóðu þá eldtungur út um stofugiugga á neðri hæð hússins. Slökkviiiðið kom fljótlega á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Húsið, sem er gamalt tvflyft steinhús, er mjög illa farið af völdum elds, reyks og vatns. Nokkuð Ijóst þyldr að kviknað hafl í út frá glóð í vindiingi. -HÞ í ályktun fundarins er því mótmælt að launafólk taki á sig auknar byrðar vegna fjárfestingamistaka atvinnu- rekenda og slæmrar efnahagsstjórn- ar ríkisstjórnarinnar. Að mati fund- arins eiga mörg heimili í miklum fjárhagslegum erfiðleikum m.a. vegna öflunar húsnæðis og því mundu auknar álögur á þau leiða til fjölda gjaldþrota með þeim efna- hags- og félagslegu afleiðingum sem því fylgja. Þrátt íýrir að launafólk hafi lagt mest af mörkum til að skapa þau já- kvæðu efnahagslegu skilyrði sem fs- lendingar hafa búið við sl. þrjú ár fara lífskjör versnandi vegna styttri vinnutíma og minni yfirborgana. Þá minnir fundurinn á að þrátt fyrir að verkalýðshreyfingin hafi lagt höfuð- áherslu á að ná niður verðbólgu og tryggja stöðugleika í efnahagslífinu við gerð síðustu kjarasamninga, hafa stjórnvöld ekki staðið við sitt að lækka vexti. „íslensk heimili og fyr- irtæki greiða einhverja hæstu vexti sem þekkjast," segir í ályktun fund- arins. Að sama skapi virðist fjöldi fyrirtækja ekki hafa nýtt sér þau hagstæðu efnahagslegu skilyrði sem skapast hafa í kjölfarið og ennfrem- ur virðist sem verulega hafi skort á frumkvæði þeirra og þess opinbera til nýsköpunar í atvinnulífinu. -grh Alþýðuleikhúsið með nýtt leikrit í nýju leikhúsi: Hræðileg hamingja í Hafnarhúsinu Nýlega frumsýndi Alþýðuleikhúsið Ieikritið „Hræðileg hamingja" eftir sænska leikskáldið Lars Norén í þýðingu Hlínar Agnarsdóttur sem einnig er leikstjóri. Sýningar á leikritinu eru í Hafnarhúsinu 2. hæð í gamalli vöruskemmu Skipaútgerðar ríkisins. Hræðileg hamingja var skrifað 1981 og er með fyrstu verkum Lars Noréns, en hann er eitt afkasta- mesta og vinsælasta leikskáld Svía. Leikritið fjallar um fjóra vini, pörin Teó og Tessu og Erik og Helen, sem eru mennta- og listamenn á fer- tugsaldri. Þau hittast kvöld eitt í subbulegri íbúð og vinnustofu Teós til að skemmta sér. Þar er etið og drukkið fram eftir nóttu og leitað að ást og hamingju. Bæði parasam- böndin virðast vera að fjara út og persónumar hafa Iitla eða enga stjóm á tilfinningalífi sínu. Norén fjallar í þessu leikriti um flesta þá hluti sem angra nútímamanninn eins og t.d. árangurlitla sjálfsleit, misheppnuð hjónabönd og upp- lausn fjölskyldunnar. Persónur hans flýja inn í veröld áfengis, þar sem mglað kynlíf og ofbeldi er ríkj- andi, en það virðist oft vera eina undankomuleið manneskjunnar í hamingjuleitinni. Leikarar í sýningunni em þau Arni Pétur Guðjónsson, Valdimar Flygenring, Rósa Guðný Þórsdóttir og Steinunn Ólafsdóttir. Elín Edda Ámadóttir gerir leikmynd og bún- inga og Jóhann Bjami Pálmason sér um lýsingu. Aðstoðarleikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. -EÓ Valdimar Flygenring og Steinunn Ólafsdóttir í hiutverkum Eriks og Helen í „Hræðilegri hamingju". Eiður Guðnason umhverfisráðherra: Brýnt að rannsaka vel rjúpnastofninn Talsvert hefur verið rætt um að takmarka þyrfti rjúpnaveiðar þar sem stofninn gæti verið í hættu. Þá var nýlega lýst ólöglegum veiðiað- ferðum þar sem bráðin er elt uppi á vélsleðum og öflugum margskota byssum beitt. Eiður Guðnason um- hverfisráðherra telur biýnt að fylgj- ast með ólöglegum veiðiaðferðum og segir að með tilkomu veiðikorta væri hægt að fjármagna rannsóknir á ijúpnastofninum Eiður segir að löggæslan sé fáliðuð. „Það er aldrei hægt að halda uppi eftirliti með öllum veiðimönnum á öllum stöðum á landinu,“ segir Eið- Forseti ASí segir forstjóra ísal gefa alranga mynd af stööu samningsmáia og uppsögnum hjá fsai í sjónvarpsviðtali fyrir viku: Mótmælir hjásögli dr. Roth Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýöusambands íslands, hefur fyrir hönd samninganefndar verkalýðsfélaganna í álverinu í StraumsvTk, mót- mælt hjásögli dr. Roth forstjóra ísals í sjónvarpsviðtali sL þriðjudag og segir forstjórann gefa þar upp alranga mynd af stöðu samningsmála og uppsagna hjá ísal. Forseti ASÍ segir það rangt að ísal hafi boðið 4,5% launahækkun sem samninganefnd verkalýðsfé- laganan hafi hafnað. Hið rétta sé að starfsmenn samþykktu mála- miðlunartiOögu ríkissáttasemjara en henni hafi VSÍ hafnað að kröfu fyrirtæksins. Þá hafi fyrirtækið ekki boðiö fram kjarabætur heldur krafist þess að kaffitímar verði af- lagðir, en samkvæmt samningum hafa hópar starfsmanna valfrelsi um hvort þeir kjósi þessi skipti. „Tilboð íssd er ekki um kjarabæt- ur hefdur afnám þessa valfrelsis,“ segir í fréttatilky’uningu forseta ASÍ. Þá hrekur Ásmundur þá fullyrð- Ingu dr. Roths að uppsagnir 10 starfsmanna hafi verið gerðar tll að lækka kostnað og bendir á að jafnframt hafi fyrirtækið ráðið 16 nýja starfsmenn. En vegna þess hvemig staðið var að þeim upp- sögnum hefur ASl höfað mál fyrir Félagsdómi. Ennfremur telur Ásmundur það vera útúrsnúnlnga hjá dr. Roth þegar hann í lok áðumefnds við- tals segir að deilan í álverinu sé dæmigerð ísaldeila þar sem eldd $é deöt um laun heldur völd verka- lýðsfélaga. „Það sem forstjórinn kallar völd er í reynd spuraingin um að halda samninga og um rétt- indi starfsfólks.“ -grh ur. Hann telur að brýnt sé að auka rannsóknir á rjúpnastofninum. „Við höfum mjög takmarkað fjármagn til umráða," segir Eiður. Hann segir að þegar menn þurfi að greiða gjald fýr- ir veiðikort verði það notað til að standa straum af rannsóknum á rjúpnastofninum. Eiður ætlar að leggja fram frum- varp um veiðar og vernd villtra fugla frá síðasta þingi. Hann segir að þar hafi verið gert ráð fyrir að allir veiði- menn hefðu veiðikort. „Með því móti mundu fást mjög verðmætar upplýsingar um hversu mikið er veitt,“ segir Eiður. Hann segir að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi á ný í vetur. Hann segist hafa orðið undrandi á þeim viðtökum sem það fékk á síðasta þingi. Þar á hann sér- staklega við gagnrýni sem kom fram á notkun veiðikorta. Hann segir slíka notkun vera við lýði í flestum löndum sem hann þekki til. „Þar telja veiðimenn sjálfsagt og eðlilegt að gera grein fýrir því hvað þeir veiða, hvar og hvenær," segir Eiður. Eiður segir að frumvarpið sé til umræðu milli stjórnarflokkanna. „Það kom fram ósk frá sjálfstæðis- mönnum um að þeir vildu ræða ein- hver atriði málsins," segir Eiður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.