Tíminn - 10.11.1992, Page 4

Tíminn - 10.11.1992, Page 4
4 Tíminn Þriðjudagur 10. nóvember 1992 Tímiim MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Ttminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðamtstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisiason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Simi: 686300. Auglýsingasfml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Kratamir og EB Þá hafa ungir jafnaðarmenn tekið af skarið og gengist við Evrópubandalagshvötum sínum opin- berlega. í ályktun, sem þeir samþykktu um helgina, er hvatt til þess að ísland sæki strax um aðild að Evr- ópubandalaginu, svo tryggt verði að við getum fylgt öðrum EFTA- ríkjum í fyrirsjáanlegum Evrópusam- runa. í sjálfu sér kemur það ekki á óvart að ungir jafnað- armenn skuli nú skipa sér í þá framvarðarsveit sem vill koma íslandi inn í Evrópubandalagið. Slíkar til- lögur hafa áður verið bornar upp hjá ungkrötum, en ekki hlotið almennt brautargengi fyrr en nú. Raunar hafa forystumenn Alþýðuflokks gert sér far um það fram að þessu, að gera lítið úr fyrri tilburðum ung- krata í þessa veru. Það er e.t.v tímabært að rifja upp hversu heiftarleg viðbrögð forystu Alþýðuflokksins voru í síðustu kosningabaráttu, þegar framsóknarmenn, og raunar Alþýðubandalagið og Kvennalistinn líka, höfðu orð á því að kratar og sjálfstæðismenn hefðu uppi loðnar og tvíræðar yfirlýsingar um afstöðuna til EB í stjórn- málaályktunum sínum. Heilög reiði Jóns Baldvins Hannibalssonar var slík fýrir kosningarnar að hann talaði um svik og ódrengilega og ómaklega kosn- ingabaráttu, einkum af hálfu framsóknarmanna. í þessu samhengi var það viðkvæði hins hneykslaða leiðtoga Alþýðuflokksins að það væri mikill barna- skapur að halda að umræðan um EB væri á dagskrá eða að komast á dagskrá. Jón Baldvin hafði um það stór orð og spámannleg að spurningin um aðild að EB kæmist ekki á dagskrá á þessu kjörtímabili og hvorki hann né aðrir sérfræðingar um Evrópu teldu líklegt að sú spurning kæmi fram á þessari öld. Þess- ari framtíðarsýn þáverandi og núverandi utanríkis- ráðherra var teflt fram gegn því sem var kallað skammsýn og tækifærissinnuð sjónarmið, sjónar- mið sem töldu að EB-umræðan ætti eftir að koma fram af krafti á kjörtímabilinu og því væri brýnt að kjósendur vissu fyrir víst hver staða flokkanna væri. Ungir jafnaðarmenn hafa nú sýnt að þeir taka ekki alvarlega framtíðarsýn flokksformanns síns. Því hlýtur sú spurning að vakna hvers vegna aðrir ættu að taka framtíðarsýn hans alvarlega, jafnvel þó þetta sé sá maður sem hvað fjálglegast hefur talað um að færa þjóðinni vegabréfið inn í 21. öldina. Augljóst er að framvinda mála hefur sýnt að það var fyllilega tímabær og réttmæt krafa fyrir síðustu kosningar að stjórnmálaflokkarnir gerðu skilmerki- lega grein fyrir afstöðu sinni til aðildar að Evrópu- bandalaginu. Krötum tókst að drepa því máli á dreif með því að endurtaka í sífellu að maálið væri ekki á dagskrá og saka pólitíska andstæðinga um ómakleg- an og ódrengilegan málflutning þegar málið var bor- ið upp. Fyrir vikið telur Alþýðuflokkurinn sig ekki skuldbundinn gagnvart kjósendum til eins eða neins í Evrópumálum og veldur það óneitanlega áhyggj- um. Ungir jafnaðarmenn hafa þegar opinberað sinn hug til EB. Trúi því hver sem vill, að slík ályktun sé samþykkt nær átakalaust án þess að hafa fýrst hlotið blessun a.m.k. sumra forystumanna flokksins í heild. Einn þeirra hornstelna vestrænn- ar menningar, sem rekja má tii Kómveija, er almenningsbö&in. Þetta gagnmerka fyrirbæri reis í sínar mestu hæðir með Rómar- veldi og í Róm nútímans má sjá fjölm&rg stórmerk mlnnismerki um baðmenningu Rómverja. ís- fenska sjónvarpsáhorfendur þarf t.d. varia að minna á að „tónleikar aldarinnar" sumarið 1990 þegar hetju-tenoramir Domingo, Carr- eras og Pavarotti komu fram sam- an, fóru einmitt fram í rústum hinnar frægu baðhallar Karaköllu í Róm. Það er haft fyrir satt að stjóm- vitringar Rómarveldis úr stétt Patrisea hafí ekká alltaf talið sér fært að notast við almenningsböð þar sem mannþröng var mikil og örtröð og því haft sérstök böð þar sem þeir gátu átt friðsælli fundi. Á vettvangi baðanna voru leyst hin óltkiegustu mál, jafnt per- sónuleg vandamál sem sljóm- sýsluleg álitacfni heimsveldisins. Þvf var það mikilvaegt stjómvitr- ingum Rómaveldis að hafa nokk- urt næði í sínum sérstöku bað- húsum þar sem þeir greiddu úr stjómmálaflækium og undir- bjuggu mál sín og frumvörp áður en þau fóru til sinnar formiegu af- greiðslu í öldungaráðinu. Ekki verður annað sagt en þessi hað- húsamenning hafl geflst vei enda dafnaöi Rómarveldi lengst af og stórsigrar voru unnir á sviði stjómunar og sjómsnýslu. Blýið og neysluvatnið Enn í dag rífast menn um orsak- ir hnignunar Rómarvcldis og sýn- ist sitt hverjum. Þó Garri treysti sér ekki tii að gera upp á milli kenninga, er hún vissulega heiD- andi alþýðuskýringin um að b|ý- mengun í neysluvatni, og þar með baðvatni hafl smám saman ruglað forystusveit Rómveija í rfminu og þeir þess vegna glutrað heims- veldinu úr höndum sér. í fjármálaráðuneytinu vírðast menn nú vera að vakna tíl vitund- ar um baðhúsamenningu Róm- vatbaðhúsa". Þessi vhundarvakn- ing kemur f kjöifar þess að tfl- raunir Friðríks Sophussonar tíl um leiddu tíl þess að fíárlagahall- inn í ár verður næsturo þrefalt það sero áætlað var. Útlitíð fyrir næsta ár er jafnvel enn delckra. Því er það liður í efnahagsráðstöfunum fíármálaráðherra og ríkisstjómar- innar að samhliða handahófs- kenndum níðurskuröi, álagningu þjónustugjalda, o.fi. sé tímabært að reisa rómverskt baðhús í kjall- ara fíármálaráðuneytisins. Þannig geta sérfræðingamir í ráðuneyt- inu, pólitískir ráðgjafar og ráð- herrann sjálfur rætt málin í baði í vinnutímanum, en þessa grund- vallaraðstöðu hefur einmitt vant- að í ráðuneytiö. Með bættri vtnnu- aðstöðu má líka búast við betri stjómsýslu og er þá að vona að fíárlagafmmvarpið fyrir 1994 muni verða í grundvaUaratriðum betur unnið en hlngað til hefur þekkst í gufubaðslausu ráðuneyt- inu. Útbreiðslan að vaxa? Raunar virðist þessi rómverska baðhúsastjómsýsla eða tílbrigði við hana vera aö hreiðra um síg víðar f hinu pólitfska sfíómkerfi þvf samflokksmaður fíármálaráð- henra og formaður viðskipU- og efnahagsnefndar, Vilhjálmur Eg> ilsson, sagði einmitt frá því f við- tali að hann hafi farið með þing- nefnd sína á Hótel Örk tfl að funda, en það hótel bíður einmift upp á ýmis böð, bæði gufuböð og Ieirhöð. Garra er raunar eldd kunnugt um einstök atriði f fúndafyrirkomulagi þingnefndar- innar, hvort fundir vom haldnir f gufubaði, leírbaði eða bara í heit- um pottí. Formaður nefndarinnar upplýsti þó í samtali við Tfmann f síðustu viku að framhald gæö orðið á svona hótelfundum hjá nefndinni enda tilgangurinn að spara sem mest fyrir skattborgar- ana. Og þegar menn em að spara hvað er þá betra en að spara >>fir góðri kvöldmáltfð og glasi af rauð- víni á góðu hóteli með góða bað- aðstöðu? Garri getur ekki annað en glaðst f hjarta stnu yflr því að stjóm- málaleiðtogar úr Sjálfstæðis- flokknum hafl nú uppgvötað þau ráð sem duga tíi að takast á við efnahagsvanda íslendinga. Erfið- legar gengur þú að Iosna við þann nagandi efa að blýmengunar eða sambæröegra áhrífa sé þegar farið að gæta hjá þeirrí forystu sem nú ætlar að tileinka sér hina róm- versku baðhúsasfíómsýsiu, Sé það rétt má búast við að hin ís- Iensku baðhús verði pólitískar rústir fyrr en varir og þar munu þvf miður engir hefíutenórar syngja heimsbyggðinni tii dýrðar í beinum sjónvarpsútsendingum. í rústum baðhúsasfíúmsýslu ís- lensku ríkisstjómarinnar gæti hins vegar verið við hæfi, að bjóða Garðari Hólm stöðu einsöngvara. Garri Örlagafréttir Stórpólitísk framhaldssaga með örlagaríku, dramatísku ívafi var flutt í einni af hinum almennu skemmtideildum menntamála- ráðuneytisins um helgina. Búið var að hafa nokkrar forkynningar á stykkinu áður en reglulegar út- sendingar hófust undir lok síðustu viku. Þá voru líka í hverjum frétta- tíma alls ljósvakaeflis ríkisins sendir út kaflar úr örlagasögu bæj- arstjórnarmeirihlutans í Ól- afsfirði. Mikil breidd er í frásögnun- um frá Ólafsfirði eins og hæfir efninu. Þeir sem leggja sig eftir bókmenntafræði vita til að mynda að Stríð og friður eftir meistara Leo Tolstoj er breið skáldsaga og frásögnin teygð og toguð í margar áttir og ekki er allt- af einfalt að sjá hvar söguþráður- inn liggur. í Ólafsfjarðarsennu hinni nýrri er svipað uppi á teningnum í útgáfu útideildar menntamálaráðuneytis- ins. Fréttaneytanda er haldið í spennu og er aldrei upplýst hver er að kljást við hvern og er eina stundina látið svo sem allir séu á móti öllum og síðan að einhverjir hafi bundist samtökum um að vera saman á móti einhverjum örðum. Faríð milli hluta í þáttunum er annað slagið minnt á að meirihluti sjálfstæðismanna stjórnar kaupstaðnum. Þessi sami meirihluti réð bæjarstjóra. Svo hljóp hundur í annaðhvort meiri- hluta eða minnihluta innan meiri- hlutanns og ósætti varð milli bæj- arstjórans og einhvers hluta meiri- hlutans eða alls meirihlutans. í einum af mörgum þáttum sem sendir voru út síðari hluta Iaugar- dags var farið að nefna að einhver í meirihlutanum í meirihluta bæj- arstjóranar væri að leggjast á sveif með minnihlutanum í meirihlut- anum og mynda þar með nýjan meirihluta í meirihluta bæjar- stjórnarinnar og þá var fyrrverandi meirihluti að verða að minnihluta í meirihlutanum. Þar með var stóllinn farinn að verða valtur undir bæjarstjóran- um. Enn var haldið áfram frásögnum af hvernig minnihlutinn varð að meirihluta í meirihlutanum og að lokum réðust örlög bæjarstjórans þegar meirhlutinn náði meirihluta í sjálfum sér og hann var rekinn. Endir? En breiða frásögnin er svo víð- feðm að henni var hvergi nærri lokið þótt bæjarstjóri meirihlutans væri kominn í minnihluta og fengi pokann sinn. Frásögnin átti enn eftir að rísa í hæðir þegar farið var að skýra frá að enn væri eftir að semja við bæj- arstjórann um starfslok. Svo komu fréttir um að starfslokasamningur -væri á veg kominn og bæjarsjóður þar með kominn á hausinn vegna þess að endar ná ekki saman í fjár- hagsáætlun kaupstaðarins eftir þennan merka samning við bæjar- stjórann, sem verður svona óskap- lega verðmætur þegar búið er að reka hann. Hætta verður við framkvæmdir upp á margar milljónir kr til að framkvæma þann vilja meirihlut- ans, að losna við bæjarstjórann. Hluti meirihlutans sagði sig í bæjarstjórninni annaðhvort til að mótmæla brottrekstri og starfslokasamningi við bæj- arstjórann eða til að fagna því að nú verður hægt að ráða nýjan bæjarstjóra. Af frásögnum síðustu þátta fram- haldssögunnar er ekki hægt að átta sig á hvort heldur var. Það slfyrist kannski seinna. I Ólafsfjarðarþáttunum er aldrei minnst á að til sé einhver minni- hluti, annar en minnihlutar innan meirihluta sjáflstæðismanna. Að minnsta kosti er svoleiðis minni- hluti aldrei kallaður til sögu, lík- lega marklaus með öllu. Eftir því sem hin breiða frásögn flýtur fram er von til að það fari að skýrast hvert deiluefnið er. Það var nefnilega aldrei upplýst um helg- ina hvað bar á milli meirihluta og minnihluta meirihlutans eða hvers vegna bæjarstjórinn var rek- inn og af hverju sjálfstæðismenn voru ekki sammála um það. Aðeins var haft eftir einum þeirra að flokkurinn stæði heill og einhuga eftir??? Vonandi kemst maður að því um hvað allar fréttirnar frá Ólafsfirði fjölluðu þegar dagblöðin koma út í dag. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.