Tíminn - 10.11.1992, Qupperneq 8
Þriöjudagur 10. nóvember 1992
Tíminn 8
Stjórnmálanefnd LFK
heldur fund þriðjudaginn 10. nóvember n.k. kl. 17 I Hafnarstræti 20, II. hæð.
Til umræðu eru áherslur á flokksþingi. Allar framsóknarkonur eru hvattar til aö mæta
og taka þátt i umræðunni.
KFNE
37. kjördæmisþing framsóknarfélaganna I Norðuriandskjördæmi eystra verður hald-
ið á lllugastööum I Fnjóskadal dagana 13. og 14. nóvember 1992.
Föstudagur 13. nóvember
Kl. 20:30 1. Setning þingsins.
Dagskrá:
2.
3.
4.
5.
Kosning starfsmanna þingsins.
Skýrsla stjómar og reikningar.
Umræður um skýrslur stjómar og afgreiðsla reikninga.
Fra.nlagning mála.
HalldórÁsgrlmsson, ályktun atvinnumálahóps.
Guðmundur Stefánsson, ályktun byggðarnálahóps.
Daniel Ámason, ályktun umhverfismálahóps.
Ávarp Steingrlms Hermannssonar.
Umræður.
Laugardagur 14. nóvember
Kl. B
Kl. 9 til 12
Kl. 12 til 13
Kl. 13 til 16
Kl. 16 til 16:30
Kl. 16:30
KJ. 17
Kl. 17:15
Kl. 18
Morgunverður.
Nefndastörf.
Matarhlé.
Afgreiðsla mála.
Kaffihlé.
Kosningar.
Ákvörðun um gjald til KFNE.
Önnur mál.
Þingslit.
Arnesingar— Félagsvist
Hin áriegu spilakvöld Framsóknarfélags Ámessýslu hefjast 6. nóvember kl. 21 I nýja
félagsheimilinu Þingborg I Hraungerðishreppi. Spilað verður I Aratungu 13. nóvem-
ber kl. 21.00 og að Flúðum 20. nóv. kl. 21.00. Aðalverðlaun utanlandsferð. Góð
kvöldverðlaun.
Stjómln
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilað verður á sunnudagskvöldum 15. nóvember, 29. nóvember, 13. desember
og 10. janúar. Auk kvöldverðlauna verða ein heildarverðlaun: Dagsferð fyrir 2 með
Flugleiöum til Kulusuk.
3 hæstu kvöld gilda.
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Reykjavík
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna I Reykjavik hefur opnað skrifstofu að Hafnarstræti
20, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 13:00-17:00.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Hafnarfjörður
Framsóknarfélögin I Hafnarfirði hafa opna skrifstofu að Hverfisgötu 25 á þriðjudags-
kvöldum frá kl. 20.30. Lítið inn, fáið ykkur kaffisopa og spjallið.
St/ómlmar
Keflavík —
Suðurnesjamenn
Vetrarstarfið er hafið. Opiö hús alla mánudaga kl. 20.30. Mætum öll. Alltaf heitt á
könnunni. Framsóknarfélögin i Keflavik.
Siglufjörður
Almennur félagsfundur Framsóknarfélags Siglufjarðar veröur haldinn að Suðurgötu
4, þriðjudaginn 10. nóvember 1992 kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Bæjarmál. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing. 3. Önnur mál.
Stjórnin
Borgarnes —
Breyttur opnunartími
Frá og með 1. október verður opið hús i Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðju-
dögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur undan-
farin ár.
Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viötals á þessum tima og ennfremur eru allir,
sem vilja ræða bæjarmálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögðu veröur hellt á
könnuna eftir þörfum.
Framsóknarfélag Borgarness.
Vestur-Skaftfellingar
Aðalfundur framsóknarfélaganna IV-
Skaftafellssýslu verður haldinn I Kirkju-
hvoli, Kirkjubæjarklaustri, föstudaginn 13.
nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á flokksþing.
3. Önnur mál.
Á fundinn mæta Jón Helgason alþingis-
maður og Ólafia Ingólfsdóttir, formaður
KSFS. Nýir félagar velkomnir.
Sfjómln
Varanleg lausn
á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaldsfrí.
Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur.
Einnig sólbekkir og borðplötur í mörgum litum.
Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum.
Sterkt og fallegt.
Marmaraiðjan, Höfðatúni 12.
Sími 629955. Fax 629956.
Afengismeðferð er
persónuleikameðferð
Nokkuð hefur verið ritað og rætt
um drykkjusýki og áfengismeðferð
eftir að til tals kom að draga ætti úr
fjárframlögum ríkissjóðs til með-
ferðarstofnana, sem fást við alkó-
hólisma. Ekki eru allir á eitt sáttir
hvort drykkjuskapur sé sjúkdómur,
en um það álitamál stendur deilan
að nokkru leyti líka. Drykkjuskapur
herjar að mínu mati á eina mann-
gerð öðrum fremur. Það er veik-
lundað fólk. Þess háttar skapgerð er
undirrót áfengissýkinnar, að mín-
um dómi.
En þó einn hafi sterkan og stað-
fastan persónuleika, þýðir það ekki
að hinn veiklundaði þurfi að vera
sjúkur. Þama eru í raun á ferðinni
tvær manngerðir sem báðar eru
heilbrigðar, svo langt sem sú skil-
greining nær. Þó á sá veiklundaði
frekar á hættu að verða kvíðinn,
taugaveiklaður, þunglyndur og per-
sónuleikatruflaður. En persónu-
leikatmflun er eitt
sameiginlegt ein-
kenni alkóhólista, að
mati meðferðarfull-
trúa og sérfræðinga í áfengismeð-
ferð, sem telja sig vita manna best
um eðli sjúkdómsins og lækningu
við honum.
Annað einkenni er einmitt líka
taugaveiklunin og kvíðinn, sem
hrjáir marga í meðferðinni og
fyrstu mánuði á eftir. Þessi einkenni
telur fagfólk stafa af áfengisnotkun.
Ég held þó að þau hafi áður gert
vart við sig, jafnvel löngu áður en
fólk fór að dreypa á gullnum veig-
um.
Það er nú einu sinni svo að áfengi
er lyf, og raunar elsta lyfið sem not-
að hefur verið við kvíða og spennu
og ýmsum áföllum. Menn hafa
dmkkið í sig kjark, þeir hafa róað
spenntar taugar og harmi slegið
hjarta í aldanna rás.
En þeir hafa einnig glaðst yfir
staupi af góðu víni í góðra vina hópi
og jafnvel í einvemnni séð fegurri
heimi bregða fyrir undir léttum
áhrifum áfengis, eða eins og hið
fomkveðna segir: „Hóflega dmkkið
vín gleður mannsins hjarta."
Áfengið er fyrst og fremst lyf sem
hægt er að misnota illilega, og víst
er að fólk endar fársjúkt af ofneyslu
áfengis eins og af hverri annarri eit-
urlyfjaneyslu. En andlega heilbrigð-
ur maður misnotar ekki áfengi. Það
gera engir aðrir en þeir sem em
eitthvað sinnisveikir fyrir. Þeir em
að friða sálina. Kaupa sér stundar-
frið undan kvíða og vanlíðan. Þeir
em jafnvel haldnir miklu vonleysi,
þunglyndi og sjálfseyðingarhvöt.
Þegar þeir síðan em orðnir ölvaðir,
koma þessi einkenni hvað best í
ljós. Með þetta veiklundargeð að
leiðarljósi þarf áfengismeðferð að
byggjast á. Því þegar fengist er við
áfengissýki þarf fyrst og síðast að
fást við hugarfar einstaklingsins,
svo að hann hætti að skaða sjálfan
sig á þeirri annars ágætu guðsgjöf
sem gleður mannsins
hjarta, sé hennar neytt í
hófi og af skynsemi.
Einar Ingvi Magnússon
Draumafjárlög og dú dú-ijárlög
Eftir því sem fréttir herma em nú f
uppfærslu tvennskonar fjárlög á
Alþingi íslendinga, en það mun
vera alveg nýtt í sögu Alþingis frá
stofnun þess. Hér er um að ræða
draumafjárlög Jóns B. Hannibals-
sonar og dú dú-fjárlög Friðriks
Sophussonar. Menn hafa spurt sig
að því hvaða draumar eða draum-
órar fjárlagasmiðsins Jóns féllu
best að draumafjárlögunum.
Jón hefur tjáð þjóðinni að í fyrsta
lagi væri draumur um afnám orlof-
speninga sem félli vel að drauma-
íjárlögunum. Og númer tvö,
draumur um að engar kýr væru
heilagar þegar um efnahagsvanda
væri að ræða.
Hér var talið að utanríkisráðherr-
ann ætti við heilagar kýr og kúabú
utanríkisþjónustunnar, sem em að
sjálfsögðu sendiráð íslands austan
og vestan hafs, en svo er ekki. Ef
þessar kýr og bú yrðu afskráð og
þjóðin tileinkaði sér nútímatækni,
s.s. fax o.fl., myndi það eitt bjarga
efnahagsvandanum all verulega.
Benda má á að kostnaður vegna ut-
anlandsferða til og frá þessum bú-
um nam á annan milljarð 1991.
Einnig skal bent á að sendiráð í
Stokkhólmi var selt fyrir 80 millj-
ónir núna fyrir stuttu, en því mið-
ur var flottræfilshátturinn svo
mikill hjá utanríkisþjónustunni að
hún keypti íbúð í Snobbhill fyrir 50
milljónir. Þetta sýnir okkur að
þjóðin á miklar ónýttar eignir á er-
lendri gmnd, sem nauðsynlegt og
sjálfsagt er að selja til að bjarga við
efnahag þjóðarinnar. Milljarða
spamaður og mikill hagnaður af
sölu heilsárs sumarhúsa, sem
ganga undir fölsku nafni, sendiráð.
Dæmið um söluna á sendiráðinu
og allan kostnaðinn við sendiráðin
sýnir okkur glöggt að utanríkis-
þjónustan fellur ekki að drauma-
fjárlögum Jóns B. Hannibalssonar.
Það er því númer eitt að núver-
andi ríkisstjórn segi þegar í stað af
sér, því hún er ekki fær um að
stjórna, en gælir við það eitt að
svíkja land og þjóð með því að
framselja ísland og íslensku þjóð-
ina undir lög EB.
Magnús Guðmundsson
Þórarinn Eldjám.
O fyrir framan
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út
sagnasafnið Ó fyrir framan eftir Þór-
arin Eldjám, einn okkar fjölhæfustu
rithöfunda, en á liðnum árum hefur
hann sent frá sér hátt á annan tug
skáldverka: ljóð, skáldsögur og smá-
sagnasöfn.
Þessi nýja bók Þórarins hefur að
geyma fjórtán sögur, sem eiga það
gjaman sammerkt að þegar minnst er
á gæfu, heppni eða hamingju er kom-
ið ó fyrir framan þar sem síst skyldi.
Heppni hjónanna Aðalsteins og
Eddu snýst til að mynda í óheppni á
sömu stundu og þau álpast í epla-
kassann forboðna í sjoppunni Parad-
ís. — Sá gæflyndi og spaki heimilis-
hundur, LiIIi, reynist ógæfan ein og
umhverfist í trylltan klámhund að
gefnu tilefni. — Og þó að Sigurlaug,
sjónvarpskonan virtsæla, finni ham-
ingjuna um stund f viðtalsþáttum
sínum, uggir stúlkan ekki að sér fyrr
en hún hefur ánetjast óhamingju
trylltrar fíknar sem rekur hana f
endalaus opinská og einlæg viðtöl.
f kynningu Forlagsins segir: „Sjald-
an hefur frásagnargleði og húmor
Þórarins Eldjárns notið sín jafn vel og
í þessu sagnasafni. Þó að sögumar
hafi á sér sakleysislegt yfirbragð, þá
er flest með þeim ólíkindum að hætt
er við að tvær grímur renni á lesend-
ur, enda skýtur höfundurinn sér
óspart á bak við gráa glettu og hér er
flest annað en sýnist. Sumir kunna að
telja sig hafa milli handanna hald-
góðar dæmisögur um hégóma og flá-
ræði. En eins víst er að um misskiln-
ing sé að ræða, því þær eru sannast
sagna hálar. Og hætt er við að um
boðskapinn og merkinguna muni
menn endalaust þræta."
Ó fyrir framan er 144 bls. Steingrím-
ur Eyfjörð Kristmundsson mynd-
skreytti bókina og hannaði kápu.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
Kynjaber
Úf er komin hjá Máli og menningu
skáldsagan Kynjaber eftir enska rit-
höfundinn Jeanette Winterson. Bókin
er gefin út f ritröðinni Syrtlur.
Söguhetjumar, Jórdan og Hunda-
konan, em nokkurs konar mæðgin
og þau skiptast á að segja frá þeim
furðum sem á daga þeirra drífa. Bak-
sviðið er England 17. aldar. Borgara-
strfð geisar og plágur herja á mann-
fólkið, en frásögnin bindur sig hvorki
tímabilinu né sagnfræðinni, því Jórd-
an og Hundakonan em ekki nema að
hluta til af þessum heimi, hann sæ-
farinn sem ferðast um ósýnileg höf til
staða sem hvergi em til nema í ólmu
ímyndunarafli.
Áðiu hefur komið út á íslensku
skáldsagan Ástríðan eftir sama höf-
und.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi bókina,
sem er 182 blaðsíður. Bókin var unn-
in í G. Ben. prentstofu hf.
Hafið í bók
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér leikritið Hafið eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Ólafur hefur fyrir löngu
getið sér orð sem eitt ágætasta leik-
ritaskáld á íslensku og eftir hann
liggur hátt á annar tugur Ieikrita, sem
sýnd hafa verið víða.
Hcifið var fmmsýnt í Þjóðleikhúsinu
19. september sl. og hefur hlotið skin-
andi dóma og vinsældir leikhúsgesta.
Þar segir frá Þórði útgerðarmanni og
fjölskyldu hans; leikritið er sneið úr
íslenskum vemleika þar sem höfund-
ur bregður ljósi á fólk og tilfinningar
á bak við daglegar fréttir af ástandi
mála í sjávarútvegi.
í kynningu Forlagsins segir: „Hér
em dramatísk fjölskylduátök samofin
einkar skarplegri samfélagsgagraýni.
Ekkert er dregið imdan, allt er lagt
imdir — ástin, hafið, dauðinn. Per-
sónur leiksins em bráðskemmtilegir
íslenskir orðhákar, en oftar en ekki er
fyndnin og orðheppnin sprottin af
sárri reynslu. Það er sjaldgæft að fá
jafnleiftrandi átakaverk úr amstri
dagsins, verk sem í senn er mein-
fyndið og dapurlegt, áleitið og satt."
Hafið er 85 bls. Stensill prentaði
bókina.