Tíminn - 10.11.1992, Side 9
Þriðjudagur 10. nóvember 1992
Tíminn 9
DAGBÓK
Félag eldri borgara
Opið hús (Risinu kl. 13-17. Dansað kl.
20.
Breiöfiröingafélagið
Árshátíð félagsins verður 21. nóvember.
Forsala aðgöngumiða verður sunnudag-
inn 15. nóvember kl. 13-15 í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14.
Sigurvegarar á
Golfmóti Sævars Karis
Sunnudaginn 8. nóvember hélt Sævar
Karl styrktarmót fyrir meistaraflokks-
menn Golfklúbbs Reykjavíkur. Þeir eru á
leið í keppnisferð til Spánar, þar sem þeir
munu taka þátt í Evrópukeppni klúbb-
liða. Allur aðgangseyrir af mótinu rann
til ferðarinnar.
Mótið var 12 holu púttmót, haldið f
blíðskaparveðri í Kringlunni, fyrir fram-
an búðina og inni í versluninni.
Þátttakendur voru 114, þar af margir af
bestu kylfingum landsins. Mikil
stemmning var og hörð keppni um efstu
sætin.
Sigurvegari varð Sigurjón Amarsson
GR eftir harða keppni við ungliðana
Tryggva Pétursson, Þorkel Snorra Sig-
urðsson og Amar Elíasson. Sigurjón
gekk út í alkiæðnaði.
Efstu sætin skipuðu:
1. Sigurjón Amarsson. 2. TVyggvi Pét-
ursson. 3. Sigurður Pétursson. 4. Amkell
B. Guðmundsson. 5. Einar Long Þóris-
son. 6. Þorkell Snorri Sigurðsson. 7.
Haraldur Þórðarson. 8. Eyjólfur Jónsson.
9. Amar Aspar Jónsson. 10. Amar Elías-
son.
Ráöstefna um glasafrjóvgun
Ráðstefna á vegum Bandalags kvenna í
Reykjavík um „Glasafrjóvgun í nútíð og
framtíð“ verður haldin 12. nóvember í
Borgartúni 6 kl. 18.
Um þetta viðkvæma mál halda fram-
söguerindi Dögg Pálsdóttir, deildarstjóri
í Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu, Ólafur W. Stefánsson, skrif-
stofustjóri Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytis, Vilhjálmur Ámason, dósent við
Háskóla íslands, og Þórður Óskarsson
dósenL
Ávarp flytur Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra, sem gegnir störfúm
heilbrigðisráðherra um þessar mundir.
Lög og reglugerðir hafa ekki verið sett-
ar um þetta mál, sem brennur á fleirum
en maður ætlar.
Ráðstefhuna setur Sjöfn Sigurbjöms-
dóttir, formaður Bandalags kvenna f
Reykjavík.
Ráðstefnan er öllum opin.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIÚ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
ÖXAFtFJAJRDARUnEPP UR
Greiðsluáskorun
Öxarfjaröarhreppur skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa
staðið skil á útsvari, aöstööugjaldi og fasteignagjaldi álögöum
1992 eða fyrr, auk verðbóta af útsvari og aöstöðugjaldi ásamt
áföllnum dráttarvöxtum, sem gjaldfallin voru 1. nóvember 1992,
að gera skil nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá birtingu
þessarar áskorunar.
Aðfarar veröur krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftir-
stöðvum gjaldanna að þeim tíma liðnum.
Kópaskeri 10. nóvember 1992.
Sveitarstjóri Öxarfjarðarhrepps.
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræðings, óskar eftir tilboöum I lóðarfrágang viö leikskólann Eggertsgötu
12-14.
Um er að ræða jarðvegsskipti, snjóbræðslu, leiktæki og hellulögn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu voni, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavlk,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama stað þriðjudaginn 17. nóvember 1992, kl.
11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Astkær eiginmaöur minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi
Jóhann Hjálmtýsson
Suðurhólum 28
sem lést 2. nóvember, veröur jarðsunginn frá Fríkirkjunni miðvikudaginn
11. nóvember kl. 13.30.
Herdis Hauksdóttlr
Stefán Jóhannsson Katrfn Árnadóttir
Þóninn Rafnar Hallgrimur Jónsson
Hlldur Rafnar James Padgett
og barnaböm
Christina Onassis og Thierry Roussel með Athinu litlu á meðan hjónabandið hékk ennþá saman.
Seinasti eiginmaður Christinu Onassis:
Vill fá full yfirráö yfir auö-
æfum dóttur sinnar
Thierry Roussel, umhverfis-
væni franski viðskiptajöfurinn,
var seinasti eiginmaður Christinu
Onassis og faðir eina barns henn-
ar, Athinu.
Þegar Christina lést voru hún
og Roussel skilin, en hún fól hon-
um umsjá dótturinnar og einnig
skyldi hann vera einn af umsjónar-
mönnum auðæfanna sem litla
stúlkan erfði. Fyrir vikið skyldi Ro-
ussel fá 1,4 milljónir dollara ár-
lega. Árstekjur Athinu litlu eru
mun ríflegri, en eru háðar sveifl-
um á verðbréfamörkuðum.
Nú hefur Thierry Roussel kraf-
ist þess að fá full yfirráð yfír auðæf-
um dóttur sinnar, en það samræm-
ist frönskum lögum. En með-
stjórnendur hans hafa ávallt fylgt
grískum lögum.
Ekki hefur fengist uppgefið
hversu mikils virði eignirnar eru í
dag. En árið 1975, þegar Aristotle
Onassis lést, arfleiddi hann Christ-
inu dóttur sína að helmingnum,
en hinn helmingurinn gekk til On-
assis- sjóðsins. Á hverju ári renna
úr þeim sjóði 12 milljónir dollara í
námsstyrki, sjö milljónir dollara í
verðlaun til afreksmanna á sviði
Iista og vísinda og enn aðrar þrjár
milljónir dollara fara til skólabygg-
inga.
Svo það er ekki að furða þó að
Roussel vilji fá yfirráð yfir hinum
helmingnum.
Thierry Roussel ásamt seinni konu sinni Gaby, börnum þeirra og milljaröaerfingjanum Athinu.