Tíminn - 17.11.1992, Qupperneq 1
Óvíst er hvernig ríkisstjórnin bregst við kröfu ASÍ um 3% vaxtalækkun:
Þriðjudagur
17. nóvember 1992
191.tbl.76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Sqómin hótar skerðingu
á félagslegum réttindum
Ef miðstjórn ASÍ hefði ekki samþykkt að halda viðræðum áfram um
aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum er talið víst að rfldsstjórnin
hefði lagt fram tillögur í eigin nafni í vikunni. Tillögur ríkisstjórn-
arínnar byggja á hugmyndum atvinnumálanefndarínnar en í þeim er
að auki gert ráð fyrir skerðingu á réttindum launamanna eins og td.
minni greiðslum í orlofssjóði og sjúkrasjóði verkalýðsfélaganna.
Fyrir helgi lýstu nokkrir áhrifamikl- við hugmyndir atvinnumálanefnd-
ir verkalýðsforingjar yfir andstöðu arinnar um að færa skatta af fyrir-
Guðmundur J., formaður Dagsbrúnar, gekk
út af miðstjórnarfundi ASÍ og sagði sig úr At-
vinnumálanefnd. Þóra Hjaltadóttir:
„Hef áður séð í
iljarnar á honum“
„Ég var aðllega að tala um hann sjálfan og setti út á hans
umfjöllun um menn og málefni. Manni finnst dálítið stórt
upp í sig tekið þegar menn kalla félaga sína í hreyfingunni
„hryðjuverkamenn" á sama tíma og þeir sitja hinum megin
við vegginn.
Menn sem ekki þola aðfinnslur frá
öðrum ættu þá að passa munninn á
sér“ segir Þóra Hjaltadóttir, fulltrúi
Félags verslunar- og skrifstofúfólks á
Akureyri, í miðstjóm Alþýðusam-
bands íslands.
Á miðstjómarfúndi Alþýðusam-
bandsins sl. sunnudag gegg formað-
ur Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar, Guðmundur J. Guðmundsson
út af miðstjómarfúndinum, auk
þess sem Guðmundur J. tilkynnti að
hann væri hættur þátttöku í at-
vinnumálanefnd ríkis og aðila
vinnumarkaðarins. Ástæða útgöng-
unnar vom ma umvöndun Þóm í
garð Guðmundar J. og gagnrýni
hennar á Verkamannafélagið Dags-
brún sem varð til þess að Guðmund-
ur missti hreinlega þolinmæðina og
raukút
„Það kemur stundum fyrir þegar
menn em orðnir mjög heitir að það
má ekki setja neista í þá, því þá
kviknar í öllu,“ sagði Guðmundur J.
og bætir því að Dagsbrún væri nú
síðasta félagið sem ætti skilið ein-
hvem skæting af hálfú Þóm eða ein-
hverra annarra. ,/Etli henni hafi
ekki fundist ég sækja málið af full-
miklu kappi og of mikilli hörku,“
sagði Guðmundur J. formaður
Dagsbrúnai'.
,Jíg átta mig hreinlega ekki á því
hvað gerði Guðmund J. svona reið-
an og útgangan kom einnig á óvart
vegna þess að ég taldi enga ástæðu
til þess auk þess hélt ég mig ekki
vera að segja nokkum skapaðan
hlut En þetta er ekkert nýtt, hann
hefur gertþettaáðurog þetta vi rðast
vera einhverjir taktar sem fólk notar
og ég hef áður séð í iljamar á hon-
um,“segirÞóraHjaltadóttir. „-grh
Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar.
Þóra Hjaltadóttir, formaður
VA.
tækjum yfir á launamenn. Ásmund-
ur Stefánsson, forseti ASÍ, mat stöð-
una þannig að stuðningur við hug-
myndirnar væri ekki nægur innan
verkalýðshreyfingarinnar og því
væri rétt að fresta öllum frekari um-
ræðum um þær fram yfir þing ASÍ
sem hefst í næstu viku. Þegar til
kom vildi mikill meirihluti mið-
stjórnarmanna halda viðræðum
áfram.
Það sem vakir fyrir miðstjórninni
er ekki síst að koma í veg fyrir að til-
lögur ríkisstjórnarinnar um skerð-
ingu á félagslegum réttindum
launafólks nái fram að ganga. Rætt
hefur verið um að greiðslur í orlofs-
sjóði og sjúkrasjóði verkalýðsfélag-
anna verði lækkaðar eða jafnvel
hreinlega afnumdar og upphæðin
greidd beint til launþega. Þá hefur
verið nefnt að greiða fólki ekki
fyrstu tvo veikindadagana. Sömu-
leiðis að stytta orlof um tvo daga.
Þessar hugmyndir hafa verið viðrað-
ar í atvinnumálanefndinni en þar
var þeim algerlega hafnað af fulltrú-
um launþega.
Ekki Iiggur fyrir hvernig ríkis-
stjórnin hyggst bregðast við kröfu
miðstjórnar ASÍ um 3% vaxtalækk-
un. Stefna ríkisstjórnarinnar er að
hafa sem minnst afskipti af vaxta-
þróun. Fjármálaráðherra hefur t.d.
nýlega ákveðið að láta vexti á spari-
skírteinum ríkissjóðs ráðast á al-
mennum markaði en ekki með
ákvörðunum úr ráðuneytinu. Við-
skiptaráðherra hefur alla tíð verið
mjög andvígur afskiptum stjórn-
valda af vaxtaþróun.
Það er hins vegar ljóst að Dagsbrún
og Verkamannasambandið munu
ekki styðja tillögur atvinnumála-
nefndarinnar nema að vaxtalækkun
sé inni í myndinni. BSRB hefur
einnig lagt höfuðáherslu á vaxta-
lækkun. -EÓ
Mengun herjar
í miðborginni
Trén í miðbæ Reykjavíkur eru farin
að bera merki vaxandi bílaumferðar.
Hinn umtalaði vindstrengur Kvos-
arinnar, sem oft feykir ósómanum á
brott, nær ekki alltaf að skila sínu.
Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri hjá
borginni, segir að svokallaðar
skorpufléttur á trjám gefi góða
mynd af því hvort andrúmsloftið sé
mengað. Hér má sjá gamalt tré í
miðbænum og leyna skorpuflétt-
urnar sér ekki þar sem þær eru flest-
ar neðst á trénu en þar er útblástur
bifreiða einnig mestur.
-HÞ - Tímamynd Aml Bjama
Lánstraust
íslands
hefur ekki
rýrnað
Lánstraust íslands á aiþjöðleg-
um lánamarkaði hefur lítið
breyst á síðustu fjórum árum
þritt fyrfr að skuldir þjóðarinn-
ar hafi aukist á þessu tímabili.
Tvö viðurfcennd alþjóðieg fyrir-
tsid sem sérhæfa sig í að meta
lánstraust ríkja, Institutionai
Ivestor og Euromoney, telja að
ef eitthvað er hafi ísiand þokast
ofar á lista yfir þjóðir sem mest
lánstraust er borið til Þetta
kemur fram í fréttabréfi Verð-
bréfaviðskipta Samvinnubank-
ans.
ísland var í 36. sæti á lista Ins-
títutíonai Ivestor árið 1988, en
nú komið í 31. sætíð. Á lista
Euromoney var ísland í 26. sætí
árið 1988, en er nú í 24. sætl.
Skýringin á því að Island hefur
aðcins þokast upp á við á listan-
um er ekki vegna þess að eriend-
ar fjármálastofnanir beri aukið
traust til íslands, heldur vegna
þess að nokkrar þjóðir A-Evr-
ópu, eins og Sovótrfldn og
Tékkóslóvakía, hafa hrapað nið-
ur listann.
Þrátt fýrir að ísland hafi haldið
sínu og vel það á listunum geta
íslendingar eldd verið mjög
ánægðir með það iánstraust sem
fsland nýtur á alþjóðlegum lána-
markaði. Til dæmis eru aðeins
tvær þjóbir í V-Evrópu, Týrkir og
Grilddr, neðar en lslendingar á
Ustanum. Hin Norðurlöndln eru
talsvert ofar á llstunum. Staða
Svía og Flnna hefur hins vegar
versnað talsvert.
Þær þjóðir sem mest traust er
borið til á alþjóðlegum lána-
mörkuðum eru Sviss, Japan,
Þýskaland og Holland. -EÓ