Tíminn - 17.11.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 17. nóvember 1992
Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasam-
takanna:
Hefur efa-
semdir um
virka sam-
keppni
Verðmunur hjólbarðaverkstæða
á þjónustu við að skipta af sum-
ardekkjum yfir í vetrardekk er
meiri en 24,5% þegar í hlut
eiga jeppar og sendibifreiðar.
Munurinn er minni fyrir fólks-
bfla eða smáa sendibfla eða
7,4%. Flest verkstæðin hafa ekki
hækkað verð á þessari þjónustu
milli ára. Þetta kemur fram í ný-
legri könnun Verðlagsráðs. „Það
hljóta að vakna ákveðnar efa-
semdir um hvort á þessum
markaði sé virk samkeppni,"
segir Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna.
Könnun Verðlagsstofnunar er
frá því í síðustu viku. Þar segir
að þjónusta verkstæðanna hafi
yfirleitt ekkert hækkað milli ára
en fjögur verkstæði hafa samt
hækkað þjónustuna á milli 2,9%
og 6,3%.
Þegar í hlut eiga jeppar og
sendibifreiðar er Iægsta verð
4.000 en það hæsta 4.980 og er
munurinn 24,5%. Lægra verðið
er hjá Hjólb.viðg. Jóns Ólafss.
Ægissíðu Reykjavík en það
hærra í Hjólbarðahöllinni,
Fellsmúla 24.
Innifalið í verðinu er skipting,
umfelgun og jafnvægisstilling á
fjórum dekkjum.
Sama þjónusta fyrir fólksbfla
og smáa sendibfla kostar minnst
3.500 kr. en mest 3.760 kr. Enn
sem fyrr er verð á þjónust
Hjólb.viðg. Jóns Ólafss. lægst en
dýrust er þjónustan hjá Höfða-
dekkjum, Tángarhöfða 15,
Reykjavík.
„Þessi könnun staðfestir fyrri
kannanir um sáralítinn verð-
mun á þjónustu hjólbarðaverk-
stæða,“ segir Jóhannes. Hann
bendir samt á að mjög hörð
samkeppni geti leitt til þess að
verðlag verði svipað. „Það er
samt full ástæða til að vera með
efasemdir um þessa grein hvort
um fulla samkeppni sé að ræða,“
scgir Jóhannes.
Athygli vekur að nær enginn
verðmunur er á vetrarhjólbörð-
um milli verkstæða. T.d. er að-
eins 5 kr. verðmismunur, 0,17%,
á milli verkstæða sem selja
Norðdekk stærðina 165x13 eða
2.990 annars vegar og 2.995
hins vegar.
Verð á vetrardekkjum hefur
hækkað að meðaltali um 4,3% á
milli ára. Sóluð dekk hækkuðu
minna eða að meðaltali um
2,4% en ný dekk hækkuðu að
meðaltaki um 5,3%. -HÞ
Einar Benedikts-
son ráðinn for-
stjóri Olís
Einar Benediktsson hefur verið
ráðinn forstjóri Olís frá og með
1. febrúar á næsta ári.
Einar útskrifaðist sem við-
skiptafræðingur frá Háskóla ís-
lands árið 1976. Sama ár hóf
hann störf hjá Sfldarútvegs-
nefnd þar sem hann hefur að
undanfömu starfað sem fram-
kvæmdastjóri.
Einar er 41 árs gamall, fæddur
og uppalinn í Bolungarvík, son-
ur hjónanna Benedikts Bjama-
sonar útgerðar- og kaupmanns
og Hildar Einarsdóttur. Einar er
kvæntur Maríu Guðmundsdótt-
ur húsmóður og eiga þau fjögur
böm. -HÞ
Hjá Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja eru 35 manns á atvinnuleysisskrá:
ísfélag Vestmannaeyja hefur lagt þremur veiðiskipum og þar af einum tog-
ara, Bergey VE. Hörður Óskarsson, fjármálastjóri fyrirtæksins, segir að
ástæðurnar fyrir þessu séu m.a. viðhald skipanna, tregfiskirí og þá sé verið
að flytja bolfiskvinnslu fyrirtækisins á milli húsa. Tvö skipanna fara vænt-
anlega á veiðar eftir áramót en það er þó ekki fullákveðið.
„Kvótinn fer ekkert á meðan og svo
er þetta spuming um að skipuleggja
veiðarnar og reyna að ná kvótanum á
sem hagkvæmastan hátt þegar þar að
kernur." Á meðan einbeitir fyrirtækið
sér að vinnslu sfldar og af tvö þúsund
tonnum af sfld sem fyrirtækið hefur
fengið til vinnslu hafa aðeins 5% far-
ið til bræðslu; annað hefur verið
heilfryst og flakað. Hörður segir að
enginn af áhöfn skipanna gangi at-
vinnulaus um götur bæjarins þótt
ráðstöfunartekjur þeirra sem vinna í
landi kunni að vera eitthvað minni
en ef þeir væru á sjónum. Aðrir em í
afleysingaplássum en áður höfðu
bæði skipstjóri og vélstjórar á Bergey
verið búnir að segja upp. Elías
Björnsson, formaður Sjómannafé-
lagsins Jötuns í Eyjum, segir að þetta
séu afleiðingar kvótakerfisins og m.a.
hafi nýlega einn útgerðaraðili ákveð-
ið að leggja bát sínum og leigja kvót-
ann.
Jón Kjartansson, formaður Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja, segir að
við síðustu atvinnuleysisskráningu
hafi 35 manns verið á skrá sem er
mun minna en í haust þegar tala at-
vinnulausra „nartaði í eitt hundrað."
Hann segir að mun bjartara sé yfir
atvinnulífmu í Eyjum en oft áður en
það sveiflast þó eftir árferðinu til
Líffræðihópur hefur rannsakaö Lækinn í Hafnarfirði og komist að því að hann er mikið mengaður af
saurgerlum. Hér má sjá hópinn með kennara sínum Jóhanni Guðjónssyni. Mynd Sveinbjörn Berents-
son.
Lækurinn í Hafnafirði
hættulega mengaður?
Saurgerlar finnast í miklu magni í Læknum í Hafnafirði. Þeir geta valdið
sýkingu og þá sérstaklega blóðeitrun og þvagrásarsýkingu. Lækurinn renn-
ur fram hjá einum af stærri grunnskólum Hafnarfjarðar. Ekkert reglulegt
eftirlit er haft með mengun í Læknum og ekki er til nein reglugerð um há-
mark saurgerla.
Þetta kemur m.a. fram í rannsókn
sem líffræðinemendur í Flensborg-
arskóla unnu að nýlega undir leið-
sögn kennara. Þar segir m.a.: „Þegar
leitað var til heilbrigðisfulltrúa
Hafnarfjarðar og spurst fyrir um
hvað reglugerðir leyfðu sem hámark
saurgerla í fersku vatni eins og
Læknum var komið að tómum kof-
um því engin reglugerð er til um
slíkt. Aftur á móti leyfa reglugerðir
allt að 100 gerla í 100 ml vatns með
ströndum fram. Þessar niðurstöður
fara þar langt fram úr því magni eða
yfir 358 saurgerlar í hverjum 100
ml.“
Nemendurnir hafa eftir heilbrigðis-
fulltrúa að ekkert reglulegt eftirlit sé
með saurgerlum í Læknum og því sé
ekkert vitað hvort þarna sé um var-
anlegt ástand að ræða. Nemendurn-
ir telja mjög brýnt að gripið verði til
aðgerða til að draga úr þessari saur-
mengun.
Þá benda Iíffræðinemar á að meng-
unin sé varasöm skólabörnum og
segja: „Við Lækinn er einn af stærri
grunnskólum í Hafnarfirði og liggur
leikvöllur hans alveg fram á lækjar-
bakkann. Oft berast boltar og fleira
út í Lækinn svo segja má að vatnið
úr honum komi oft í snertingu við
börnin í skólanum."
Þeir telja að mengun af völdum
saurgerla geti stafað af lekum skólp-
leiðslum en eitt liggur undir Lækn-
um að frá Tjarnarbraut að Lækjar-
götu. Þá telja þeir að skólp sígi í
gegnum hraunið frá lekum skóip-
rörum. Jafnframt telja þeir að saurg-
erlar geti borist frá fuglum sem
halda sig mikið á Læknum framan
við Tjarnarbraut.
-HÞ
Eistlendingum lánaðar
um 332 milljónir
Norræni fjárfestingabankinn lánar
Eistlendingum um 332 millj. kr til
að fjárfesta í fyrirtækjum sem tengj-
ast norrænum hagsmunum.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Norræna fjárfestingabank-
anum. Lánið er veitt til nýstofnaðs
fjárfestingabanka Eistlands í Tallin.
Þá segir að gengið sé út frá markaðs-
kjörum og að krafan um norræna
hagsmuni sé uppfyllt með samvinnu
við Norðurlönd eða með kaupum á
fjárfestingavörum frá Norðurlönd-
um.
Einnig kemur fram að lánveitingin
sé ætluð til að fjármagna verkefni,
sem unnin eru að frumkvæði Eist-
lendinga. Jafnframt segir að Nor-
ræni fjárfestingabankinn hafi til
skoðunar um sextíu verkefni í
Eystrasaltslöndunum sem fyrirtæki
á Norðurlöndum hafa unnið að.
Þess má geta að í mars á þessu ári
ákváðu Norðurlöndin að koma á fót
sérstökum sjóði, um 7 milljarða kr.,
sem ætlað er að nota til að efla
markaðsvæðingu Eystrasaltsland-
anna. -HÞ
sjávar. Fyrir tveimur árum var at-
vinnuleysi nánast óþekkt fyrirbrigði í
Eyjum en síðan þá hafa alltaf ein-
hverjir tugir manna verið á skrá.
-grh
Fjármálaráðherrar á
.. Norðurlandaráðsþingi
lýstu ráðherrar yfir áhyggjum af
að hagvöxtur á Norðuriöndum
væri minnl en víðast í Vestur-
Evrópu.
Þetta kemur ma. fram í frétta-
tilkynningu frá fjánnálaráðu-
neytinu. Þar segir og að hag-
vöxtur á Norðuriöndum verði
nánast enginn en búist er við að
heldur rofi til á næsta ári.
Á fundinum voru ráðherramir
sammáia um nauðsyn efna-
hagsaðgerða sem örvuðu hag-
vöxt og atvinnu. Lögðu þeir
áherslu á að Ijúka þyrfti GATT-
viðræðum um tollamál þannig
að alþjóðleg viðskipti auídst og
hagvöxtur eflisL Telja þeir að
viðskiptastríð miUi aðlldarríkja
yrði einkar varhugavert þar sem
heimsviðskiptin þyrftu nauð-
synlega að eflast.
Þá segir að ráðherramir hafi
verið sammála um að lækkun
vaxta sé forsenda þess að fjár-
festing glæðist og að úr at-
vinnuleysi dragi. Þá telja þeir að
áframhaldandi hagræðing hjá
fyrirtækjum sé nauðsynleg tfl
þess að bæta samkeppnisstöðu
þeirra og skilyrði til hagvaxtar.
Ráðherramir mæia því með
aukinni íjárfestingu af hálfu
stjómvalda í samgöngumann-
virkjum og öðru því sem örvað
getur hagvöxt um leið og hvatt
var tíl þess að dregið yrði úr tii-
færsium og rekstri hins opín-
bcra. Til álita koma samnorræn
íjárfestingarverkefni og á að at-
huga hvort Norræni fjárfesting-
arbankinn geti aðstoðað við
fjármögnun slíkra verkefna -HÞ
Beðið eftir
gögnum
Engin ákvörðun hefur enn verið
tekin um rannsókn vegna um-
mæia sem yfirmaður fíkniefna-
deiidar iögreglunnar í Reykjavik
iét falla í garð fyrrum sam-
starfsmanna á dögunum, m.a.
um að þeir spilltu fyrir rann-
sóknum máia.
Hallvarður Einarsson ríkissak-
sóknari bíður eftir frekari gögn-
um fra iögregiustjóranum í
Reykjavík. Óstaðfestar heimíld-
ir herma að fyrrum lögreglu-
menn, sem óskuðu eftir rann-
sókninni, hafi boðið Blmi Hall-
dórssyni, yfirmanni fíkniefna-
defldar, að draga beiðnina tfl
baka ef hann ieiðrétti þessi um-
mæii sín en Bjöm hafi ekki orð-
ið við því. -HÞ