Tíminn - 17.11.1992, Síða 3
Þriðjudagur 17. nóvember 1992
Tíminn 3
Miðstjórn ASí og formenn lands- og svæðissambanda gáfu grænt Ijós á áframhaldandi tilraun til að ná víðtækri sátt
um aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum:
Vaxtamálin í brennidepli
Fundur miðstjómar og formanna lands- og svæðissambanda ASÍ
sl. sunnudag gaf grænt Ijós á að áframhaldandi tilraun verði gerð til
að ná víðtækri sátt um aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum, að
því viðbættu að tekið var undir sjónarmið Samtaka fiskvinnslu-
stöðva um 3% lækkun nafn- og raunvaxta og að meðallánstími lána
sjávarútvegsfyrirtækja verði lengdur.
Þórarinn V. Þóarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, telur enn mögu-
leika á að sátt takist um tillögur At-
vinnumálanefndar og segist skynja
vilja til vaxtalækkunar í þeim við-
ræðum sem fram hafa farið við
stjórnvöld og bankana. Hann árétt-
ar þó þá skoðun að óraunhæft sé að
lækka vexti með handafli.
„Okkur fannst viturlegra að reyna
að halda þessu starfi áfram og hafa
þannig áhrif á til hvaða aðgerða
verður gripið í stað þess að láta
rúlla yfir okkur. En auðvitað veltur
þetta allt á afstöðu ríkisstjórnar-
innar. Auk þess höfum við veruleg-
ar áhyggjur af stöðunni í sjávarút-
veginum og viljum að reynt verði
að ná sáttum um leiðir sem tryggja
afkomu hans til lengri tíma, því
þetta er jú spurning um atvinnu og
atvinnuöryggi," sagði einn mið-
stjórnarfulltrúi ASÍ.
Þá hefur útganga Guðmundar J.
Guðmundssonar, formanns Verka-
mannafélagsins Dagbrúnar, af mið-
stjórnarfundinum og úrsögn hans
úr Atvinnumálanefndinni ásamt
eindreginni kröfu félagsins um að
ríkisstjórnin standi við gefin fyrir-
Ása Richardsdóttir á ráðstefnunni Konur á barmi jafnréttis.
Konur á barmi jafnréttis:
Anægðar með
árangurinn
„Viö vorum bara mjög ánægöar
meö árangur af ráðstefnunni og
ætlum aö hittast bráölega og bytja
aö meta árangurinn af henni,“
segir Ása Richardsdóttir, einn af
forvígismönnum ráöstefnu um
jafnrétti kynjanna sem boðaö var
tii um helgina.
Samstarfshópur kvenna í ung-
Iiðahreyfingu íslenskra stjóm-
málaflokka gekkst fyrir ráðstefn-
unni og mættu um 100 manns.
Á meöal þátttakenda voru Friðrik
Sophusson fjármálaráöherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir fétagsmála-
ráðherra og Halldór Ásgrímsson,
varaformaöur Framsóknarflokks-
ins.
Vanbúnar bifreiðar á Hellisheiði um helgina og:
Tvær bílveltur
á Suöurlandi
Tveir bílar ultu á Suðurlandi í gær.
Margir árekstrar urðu á Hellisheiði
um helgina og er vanbúnum bílum
kennt um.
Um miðjan dag í gær valt bifreið á
móts við Þingborg þegar bifreiða-
stjóri missti vald á bílnum í hálku.
Sama var uppi á teningnum á Gaul-
verjabæjarvegi er bifreið valt þar
seinni partinn og hafnaði úti í
skurði. Engin slys urðu á fólki í
þessum óhöppum en bifreiöarnar
eru mikið skemmdar. -HÞ
heit um vaxtalækkun frá því í vor,
hleypt nýju lífi í þá kröfu, bæði inn-
an Atvinnumálanefndarinnar og
einnig innan verkalýðshreyfingar-
innar.
Enginn formlegur fundur var í At-
vinnumálanefnd ríkis og aðila
vinnumarkaðarins í gær vegna
anna formanns nefndarinnar en
talið er næsta víst að boðað verði til
fundar í dag. Meðal þeirra mála sem
verið er að skoða í nefndinni er að
hækka tekjuviðmiðunarmörk
þeirra sem eru með sjálfstæðan at-
vinnurekstur.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, telur enn vera
möguleika á þjóðarsátt um aðgerð-
ir í atvinnu- og efnahagsmálum
jafnframt því sem hann telur tölu-
verðan vilja fýrir því meðal hlutað-
eigandi aðila að ná fram vaxtalækk-
un, en leggur áherslu á að það verði
að gerast með leiðum markaðarins
en ekki með handafli. Þórarinn V.
segir að áhrif verðbréfamarkaða á
vaxtastigið séu mun meiri en bank-
anna og því óraunhæft að ætla sér
að ná árangri í lækkun vaxta með
því að keyra þá niður með handafl-
inu einu saman. „Það er mjög mik-
ið af alls kyns bréfum í umferð og
alls ekki hægt að banna fólki að
selja eigur sínar.“ Framkvæmda-
stjóri VSÍ segir að ein höfuðfor-
sendan fyrir því að hægt sé að
lækka vexti sé að fjármálakerfið
hafi trú á áframhaldandi stöðug-
leika í efnahagslífinu jafnframt sem
hann telur kröfu Samtaka fisk-
vinnslustöðva um 3% lækkun nafn-
og raunvaxta sem langtímasjónar-
mið sem stefna beri að.
Árni Benediktsson, framkvæmda-
stjóri hjá Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna og fulltrúi í At-
vinnumálanefnd, segir að vaxta-
málin séu býsna erfið viðfangs en
að þau verði skoðuð mjög nákvæm-
lega næstu daga þar sem reynt
verður að finna flöt sem menn geta
sætt sig við. Hann segir að Atvinnu-
málanefndin muni halda sínu striki
og trúlega klára sína vinnu í þessari
viku þótt engar tímasetningar hafi
verið ákveðnar í þeim efnum.
Árni segir að það gangi ekki að
lækka alla vexti um töluna þrjá því
taka verði tillit til þess hvað við-
komandi vextir eru háir í hverju til-
viki fyrir sig. Þar fyrir utan verði að
huga vandlega að því hvaða áhrif
vaxtalækkun hefur á tekjur bank-
anna og á almennan sparnað í land-
inu svo nokkuð sé nefnt.
-grh
Verslanir hafa tekið lækkun á verði nautakjöts til sín:
Bændur lækka um 15-25%
en verslanir um 1 -7%
Lækkun á verði nautakjöts til bænda, sem kom til framkvæmda
í haust, hefur ekki skilað sér í lægra verði á nautakjöti til neyt-
enda. Þetta kemur glöggt fram í könnun sem Verðlagsstofnun
gerði í 17 verslunum á höfuðborgarsvæðinu nýlega. Verðlækkun
til bænda nam 14-15% á algengum verðflokkum og 25% á
vinnslukjöti. Verslanir hafa hins vegar aðeins lækkað nautakjöt
út úr búð um 1,1-6,8%. Dæmi eru um að verslanir hafl hækkað
verð á nautakjöti.
Verðlagsstofnun kannaði verð á
nautakjöti nú í nóvember og bar það
saman ríð könnun sem stofhunin
gerði í febrúar og mars í fyrravetur.
Almenn verðlækkun á nautakjöti
hafði aðeins orðið í tveimur af þeim
verslunum sem Verðlagsstofnun
kannaði, í þremur verslunum var
verðið óbreytt, en aðrar verslanir ým-
ist lækkuðu eða hækkuðu verðið á
einstökum tegundum nautgripa-
kjöts. Að meðaltali hafði hakk lækkað
um 6,8%, gúllas um 4,4%, snitsel um
4,4%, buff um 5%, T-beinssteik um
1,1%, innanlærisvöðvi um 4,3% og
nautalundir um 1,5%. Nautafile
hækkaði hins vegar um 1,8%.
Verðlagsstofnun skoðaði einnig
verðlista þriggia afurðastöðva. Þeir
sýna að engin verðlækkun hefur orð-
ið hjá einni þeirra, önnur iækkaði um
5% en verðið hjá þeirri þriðju hefur
lækkað um 14-15% að jafnaði.
Stjóm Neytendasamtakanna hefur
sent frá sér ályktun þar sem lýst er
furðu á því að verðlækkun á nauta-
kjöti skuli ekki hafa skilað sér til neyt-
enda. Ekki síst í ljósi þess að tals-
menn verslunarinnar hafa lengi
gagnrýnt hátt verð á innlendum
landbúnaðarvörum. Neytendasam-
tökin krefjast þess að verslanir og af-
urðastöðvar lækki verð á nautakjöti
strax til samræmis við þá verðlækkun
sem bændur hafa tekið á sig. Verði
ekki orðið við þessari kröfu krefjast
samtökin að upplýst verði hvaða
verslanir hafa komið sér hjá því að
lækka.
Verðlagsstofnun kannaði einnig
verömun á nautakjöti. Munurinn er
verulegur, eða á bilinu 41-78%. Mest-
ur var verðmunurinn á nautabuffi
. -EÓ
EES-samningurinn
er enn í nefnd
Frumvarp til staðfestingar á EES-
samningnum verður ekki afgreitt
frá utanríkismálanefnd í þessari
viku eins og starfsáætlun þingsins
gerði ráð fyrir. Nefndin fjallaði um
samninginn í gærmorgun, aðal-
lega landbúnaðarþátt hans. Enn
liggur ekkert fyrir hvenær sjávar-
útvegssamningur íslands og EB
verður frágenginn, en stjómarand-
staðan hefur krafíst þess að hann
Iiggi fyrir áður en EES- samning-
urinn verður afgreiddur á Alþingi.
Ólíklegt er talið að önnur umræða
um EES-samninginn fari fram á Al-
þingi fyrr en undir lok mánaðarins.
Utanríkismálanefnd hefur enn ekki
lokið umfjöllun um samninginn og
sjávarútvegssamningurinn við EB
liggur ekki fyrir. Rætt er um að
samningamenn íslands og EB hitt-
ist um mánaðamótin eða í byrjun
desember og ræði efni samnings-
ins.
Fylgifrumvörp með EES-samn-
ingnum eru að koma úr nefndum
eitt af öðru. Ekki er talið bráðnauð-
synlegt að ljúka afgreiðslu þeirra Ijóst að annir á þingi verðamiklará
allra fyrir áramót. Það er hins vegar næstuvikum. -EÓ
Útafakstur, ökuleyfissvipting og óveður um helgina:
Erilsamt á
Suðurnesjum
ökumaður slasaðist þegar hann sem hámarkshraði er 50 km og
hugðist aka fram úr flutningabíl voru þeir svipti ökuréttindum í
um helgina á Keflavíkurvegi. mánuð.
Flutningabfílinn fluttl sumarbú- Á sunnudaginn var verulega
stað í fyigd lögreglunnar og dugði vindasamt í Njarðvfk og nágrenni.
það ekki til að afstýra slysinu. Lögreglunni tókst með snarræði
Betur fór en áhorfðist og slapp að bjarga einum báti sem hafði
ökumaður nær ómeiddur frá slitnaö upp og var á lelð upp í
óhappinu. fjöru. Einnig þurfti lögreglan að
Þá voru tveir piltar teknir í festa allmarga báta sem hætta var
Njarðvík á yfír 100 km hraða þar á að annars slitnuðu frá. -HÞ