Tíminn - 17.11.1992, Síða 7

Tíminn - 17.11.1992, Síða 7
Þriöjudagur 17. nóvember 1992 Tíminn 7 Aðgengi umferðar úr austri að Hekluhúsi leyst með umferðarljósum: Hekla á grænu umferðarljósi? Á þessari teikningu sjást hugmyndir aö breytingum á Laugavegi á móts viö Sjónvarpshúsiö. Bolholti veröur lokaö inn á Laugaveg, en heldur áfram gegnum bílastæöi fyrir framan húsin nr. 178 og 176. Gert er ráð fyrir vinstri beygju úr austurátt viö Laugarnesveg. Nýlega var lögð fyrir umferðar- nefnd tillaga, sem virðist miða að betra aðgengi að fyrirtækinu Heklu. Hún felst m.a. í uppsetn- ingu umferðarijósa á nýjum gatnamótum við Laugarnesveg og Laugaveg. Þá geta ökumenn, sem koma austan að, tekið vinstri beygju inn á lóð Heklu. Einnig er fyrirhugað að loka Bolholti og leggja götu þar sem bílastæði húsa í nágrenni sjónvarpsins eru. „Þetta er ekkert forgangsverkefni í umferðarmálum. Mörg og brýnni mál bíða fjárveitinga sem ekki fæst,“ segir Margrét Sæmunds- dóttir, sem sæti á í umferðamefnd fyrir Kvennalistann. Bókanir af fundum umferðar- nefndar borgarinnar leiða í ljós að engin svör fást við því hvers vegna þetta mál virðist á forgangslista umfram hættulegar slysagildrur sem þarf að lagfæra. „Fé til eyðinga á svartblettum er aðeins 9 millj. og þær eru skornar miskunnarlaust niður þar til þeirri tölu er náð. Þessi eina framkvæmd kostar lík- lega 7 millj. kr. og er því um 80% af þessu fé og það í framkvæmd sem kannski kemur sér illa fyrir gangandi fólk,“ segir Margrét. Tillagan gerir ráð fyrir að umferð- arljósin verði sett upp þar sem Laugarnesvegur og Laugavegur mætast. Bolholti verður lokað við Laugaveg og verður þess í stað lát- ið halda áfram yfir bílastæði þar sem m.a. er hús Ríkissjónvarpsins við Laugaveg 176. Þar sem Heklu- lóðin og útkeyrsla af bílastæðinu liggja saman yrðu gatnamót. Þar yrði þá prýðileg vinstri beygja inn á Heklulóð fyrir umferð úr austri. Margrét segir að til að þessi fram- kvæmd yrði að veruleika þyrftu samt ýmsar hliðarframkvæmdir að koma til. Fyrst nefnir hún aðkomu strætisvagna, sem yrði að færa austur á móts við Bolholt norðan- megin götunnar, þar sem ella yrði aðkoman of nálægt gatnamótun- um. Þá þyrfti fatlað fólk og íbúar í Hátúni að ganga aðra leið en nú. í dag notast fólkið við upphitaðan göngustíg með handriði. Margrét telur ljóst að þennan göngustíg þyrfti að færa og hefði það óneitan- lega kostnað í för með sér. Jafn- framt þyrfti fatlaða fólkið að notast við umferðarljósin í stað sérstakra gönguljósa sem það notar nú. Það finnst Margréti slæmur kostur, þar sem hætta af beygjuljósum er yfir- leitt meiri en af gangbrautarljós- um. Þessu til viðbótar segir Margrét að það yrði að breikka Laugaveginn til norðurs, við ljósin, til að koma fyr- ir beygjuakreinum. Þar er mjög bratt og myndi því þurfa mikið gatnagerðarefni til að byggja undir breikkunina. Burtséð frá þessum hugmyndum, þá þykir vafasamt í meira lagi að leggja götu þar sem nú er bíla- stæði. Þar kemur tvennt til. Ann- ars vegar bendir allt til þess að bíla- stæðin séu hluti af lóð Sjónvarps- ins og húsanna í kring. Hins vegar þykir hæpið að taka bílastæðin undir götu án þess að finna þeim annan stað. Þegar rýnt er í fundargerðir um- ferðarnefndar kemur í ljós að á fundi í umferðarnefnd þann 2. september s.l. var lögð fram til kynningar tillaga um breytt fyrir- komulag umferðar á Laugavegi milli Nóatúns og Kringlumýrar- brautar. Fulltrúi Kvennalistans bar fram munnlegar fyrirspurnir sem ekki var hægt að svara, þar sem þær voru ekki skriflegar. Það var þó gert á næsta fundi nefndarinn- ar. Þegar spurningarnar eru athug- aðar, kemur m.a. fram að spurt er hvort þetta verk væri á forgangs- lista um úrbætur í umferðarmál- um árið 1993 eða fyrr. Svarað var að listi yfir forgangsröðun verk- efna á næsta ári liggi ekki fyrir, þar sem hann sé yfirleitt gerður í tengslum við gerð fjárhagsáætlun- ar. Hvorki var hægt að veita upplýs- ingar um kostnað né hagkvæmni framkvæmdanna. Flestum spurn- ingum var svarað með því að segja að allir þættir málsins yrðu skoð- aðir í tengslum við breytt skipulag. Þar á meðal voru spurningar um göngustíga fyrir fatlaða og fyrir- komulag gatnamóta við sjónvarps- húsið. Ekkert svar fékkst við spurningu um hvort það ætti að leggja lóð fyr- ir framan Laugaveg 176 til 178 undir akbraut, eins og tillögur geri ráð fyrir vegna lokunar á Bolholti. Jafnframt var spurt um það hvar bifreiðastæði Ríkissjónvarpsins og fyrirtækja í nágrenni þess ættu að vera og hvort leyfilegt væri að leggja lóð, sem skipulögð væri sem bílastæði, undir akbraut. Það er skemmst frá að segja að þessum spurningum var ekki heldur svar- að. -HÞ Ráðhús- veiðar án kvóta Það var ekki laust við að saknaðar- tónn heyrðist í húsverðinum í Ráð- húsi Reykvíkinga, þegar heimaln- ingamir hans frá því í vor vom fjar- lægðir úr hústjöm hússins í gær. I allt sumar hafa eldisfiskar, tveir laxar og 8 silungar, hafst við í tjörn- inni. Hrekkjalómar komu fiskunum fyrir í tjörninni í vor, og átti tilvon- andi brúðgumi að spreyta sig á veið- unum. Það náði aldrei svo langt, því laganna verðir gátu forðað fiskun- um frá hættulegum önglinum á síð- ustu stundu. Þeir voru samt hvergi nærri í gær til að stöðva þessar ný- stárlegu veiðar. Hætt er við að börnin finni einnig til saknaðar, því að sögn ráðhús- manna hafa þau tekið sérstöku ást- fóstri við fiskana. Til marks um það fréttist af strákahópi í sumar við veiðar á hornsílum til að gauka að þessum blautu vinum sínum. Ástæðan fyrir þessum óhefð- bundnu veiðum er hreinsun hús- tjarnarinnar, sem að sögn borgar- starfsmanna var orðin tímabær. Ekki fengust upplýsingar um hvað ætti að gera við aflann. -HÞ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.