Tíminn - 17.11.1992, Síða 9
Þriðjudagur 17. nóvember 1992
DAGBÓK
Fyririestur í Norræna húsinu um ástandiA í Eystrasaltsríkjunum
Miðvikudaginn 18. nóvember kl. 17.30,
þjóðhátíðardag Lettlands, heldur Jens
Zvirgzdrauds frá Lettlandi fyrirlestur f
fundarsal Norræna hússins. Fyrirlestur-
inn er fluttur á dönsku og nefnist
„Etikken i den moderne baltiske po-
litik".
Jens Zvirgzdrauds er í námi við Háskóla
íslands og hefur einnig stundað nám við
háskólana í Kaupmannahöfn, Ósló og í
Riga (hefur aðallega lagt stund á hag-
fræði). í Lettlandi starfaði hann sem
túlkur og þýðandi og aðstoðaði á marg-
víslegan hátt við alþjóðlega fundi.
BÆNDASKÓLINN Á HVANNEYRI
Innritun á vor-
önn er hafin
Athygli er vakin á því að hægt er að hefja nám við
Bændaskólann á Hvanneyri um áramót.
- Fyrsta önn hefst 6. janúar.
- Stúdentar geta hafið nám í janúar, apríl,
eða júní.
- Kennsla á 5. önn hefst 6. janúar,
búfræðingar hafið samband.
Námið skiptist í ijórar annir, þar af ein verkleg á viður-
kenndu býli. Á síðustu önn er kennt á tveimur sviðum:
búfjárræktarsviði og rekstrarsviði. Dæmi um valgreinar
kenndar veturinn 1992-1993: hrossarækt, ullariðn,
skógrækt, vinnuvélar, búsmíði, siáturhússtörf, ferða-
þjónusta o.fl.
Við veitum upplýsingar í síma 93- 70000.
Umsóknarfrestur ertil 10. desember 1992.
Bændaskólinn á Hvanneyri
311 Borgarnes
Varanleg lausn
á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaidsfrí.
Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur.
Einnig sólbekkir og borðplötur i mörgum litum.
Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum.
Sterkt og fallegt.
Marmaraiðjan, Höfðatúni 12.
Sími 629955. Fax 629956.
VÉLAVERKSTÆDIÐ KISTUFELL HF.
BRAUTARHOLTI 16, RVÍK. SÍMI 622104.
Til sölu endurbyggðar vélar, m.a.:
Benz diesel 621 4ra sýl., Ford 5000 traktor, GM 2,5 I árg.
‘85 4ra sýl., Leyland 4ra sýl. 3,8 I, Toyota diesel 2,2 I,
Volvo B 20, Volvo B 21.
Einnig sveifarásar af ýmsum gerðum.
-------------------------------------------\
í
Kristinn Bjarnason
Kjartansgötu 4, Reykjavík
er látinn.
Kristófer Bjarnason
_________________________________________J
Tíminn 9
Létt yfirbragð sýningardamanna vakti athygli.
>nd eru
toniu
Sonia Rykiel
tískudrottning
Duttlungar tískunnar hafa
alltaf verið óráðin gáta og þeir,
sem henni stjórna, sjálfsagt
mjög flóknir persónuleikar.
Þegar stóru tískuhúsin í París
kynna tísku næsta árs, flykkist
að múgur og margmenni hvað-
anæva úr heiminum. Öllum
þessum þúsundum er hnappað
saman á stað, sem engu líkist
nema kvikmyndaveri, og svo
eru náttúrlega ótal ljósmynd-
arar eins og krækiber í helvíti
innan um öll herlegheitin.
Sonia Rykiel sýndi heimin-
um tískuhugmyndir sýnar í
Louvre-höllinni í París um
daginn, en kellan sú hefur
lengi verið fræg fyrir glæsifatn-
að, sem líka er hægt að nota í
vinnunni.
Að vinnumóralnum sleppt-
um, þá fylgja hér nokkrar hug-
myndir tískudrottningarinnar
Soniu Rykiel.
Faldarnir síkka. Slör og höfuðprýði var llka áberandi á sýningunni.
Ljósm.: G.T.K.
limvvtvv«uttt v \ \ v v