Tíminn - 17.11.1992, Page 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaiþróttagallar á ffábæru verði. Umboðssala á notuðum bamavömm. Sendum í póstkröfu um land allt! BARNABÆR, Ármúla 34 Slmar: 685626 og 689711.
|VERIÐ VELKOMIN!|
Bílasala Kópavogs
Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi
SÍMI 642190
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
«
Tímiiin
ÞRIÐJUDAGUR17. NÓVEMBER 1992
Því miður er myndin svart hvít þannig að rauði liturinn sést ekki
sem skyldi. Ef vel er að gáð má þó sjá Ijósar skellur þar sem rauðri
málningu hefur verið úðað á tréð. Tímamynd Árni Bjarna
Skemmdarvargar
á ferð:
Gam-
alttré
úðað
með
rauðri
máln-
ingu
Margir vegfarendur hafa furðað
sig á áberandi rauðum lit á
gömlu tré við Vonarstræti. „Það
voru skemmdarvargar sem
sprautuðu rauðri málningu á
hlyninn í vor. Eg treysti mér
ekki til að fjarlægja hana en hún
dofnar með tímanum þegar ysta
barkarlagið fer,“ segir Jóhann
Pálsson, garðyrkjustjóri í
Reykjavík. Hann reiknar með að
þeir sem þarna voru að verki
hafi notað úðabrúsa með lakk-
málningu.
Jóhann segir að það beri meira á
þessu lýti þar sem lauf hylji það ekki
lengur eins og í sumar. Um það
hversu fljótt málningin myndi
hverfa treysti Jóhann sér ekki að
segja en telur að það gæti tekið
nokkur ár. Hann telur að svonefnd
„kemísk" efni þyrfti til að ná máln-
ingunni af en þau myndu líklega
skaða tréð. Sem dæmi um afleiðing-
ar af skemmdarverkum af þessu tagi
nefnir Jóhann fótstall styttu Jóns
Sigurðssonar sem varð fyrir svipaðri
árás og hlynurinn. „Þá voru allir sér-
fræðingar kallaðir til að reyna að
hreinsa málninguna en við höfum
aldrei náð henni almennilega," bæt-
ir Jóhann við.
Jóhann álítur að tréð muni ekki
skaðast vegna þessa og bendir á að
áður fyrr hafi verið notuð málning
til að bera í sár á trjám þó það sé
sjaldséðara nú.
Jóhann segir að víða í borgum er-
lendis séu vandræði af skemmdar-
verkum af þessu tagi. Hann álítur að
sem betur fer sé þetta ekki verulegt
vandamál í borginni. „Þetta var
tímabundið en ég held að það sé
gengið yfir,“ bætir Jóhann við. Hann
segir það heyra til undantekninga
nú að unnin séu skemmdarverk á
gróðri í miðbænum.
Þess má geta að flest þau tré sem
prýða miðbæinn eru orðin um eða
yfir 100 ára gömul. -HÞ
4
...ERLENDAR FRÉTTIR...
BRUSSEL
Frakkar spyrna viö fótum
Aðeins tveimur dögum fyrir fyrir-
hugaðar viðræður Evrópubanda-
lagsins og Bandaríkjanna, sem
ætlað er að reyna að koma i veg
fyrir viðskiptastrið milli þessara
aðila, hafa Frakkar lýst yfir and-
stöðu sinni við þá skilmála sem
Bandarikin kunna að setja fram.
SARAJEVO
Vopnahlé á brauöfótum
Forkólfar Sameinuðu þjóðanna í
Bosniu hafa hitt herforingja allra
striðsaðila til að reyna að halda
við hinu fimm daga gamla vopna-
hléi sem sýnir nú öll merki þess
að vera að riða til falls.
BELGRAD
Friöargæslumenn slasast
Þrir friðargæsluliðar Sameinuðu
þjóðanna særðust af völdum jarð-
sprengju, þar af tveir alvarlega, i
þorpi sem er í þeim hluta Króatíu
sem Serbar hafa á valdi sinu, að
sögn fréttastofu í Belgrad.
BANAA
Flóttamenn frá Sómalíu
Flutningaskip kom í gær með
3.000 flóttamenn frá Sómaliu, en
þar hefur mikil hungursneyð verið
að undanförnu. Að sögn starfs-
manna Sameinuðu þjóðanna var
ástand flóttamannanna vægast
sagt hræðilegt.
MOSKVA
Enginn lætur undan siga
Rússneskir hermenn og her-
menn uppreisnarríkisins Chechen
vilja hvorugir hörfa frá landamær-
um þeim sem deilan stendur um,
þrátt fyrir samkomulag sem gert
hafði verið til að koma í veg fyrir
vopnuð átök.
VILNIUS
Landsbergis játar sig
sigraöan
Vytautas Landbergis, maðurinn
sem stýrði Litháen til sjálfstæðis á
siðasta ári, hefur orðið að játa sig
sigraöan af sínum fornu féndum,
kommúnistum, í fyrstu frjálsu
kosningunum eftir að landið losn-
aði undan sovéska hramminum.
VATlKANIÐ I RÓM
Syndunum fjölgar
Kaþólska kirkjan hefur nú sent frá
sér nýja stefnuskrá i fyrsta sinn i
meira en 400 ár. Bókin inniheldur
og staöfestir fordæmingu á göml-
um syndum en bætir við ýmsum
nútíma syndum og freistingum.
Fordæmd eru enn afbrot á borð
við fóstureyðingar, getnaðarvarn-
ir, kynlif utan hjónabands og
hjónaskilnað, en í hópinn hafa
bæst syndir eins og skattsvik, ölv-
unarakstur, eiturlyfjasala og alls
kyns fikt í erfðavísum.
JERÚSALEM
Sprengju varpaö á
markað
Sprengju var varpað inn á mark-
að í gamla borgarhlutanum í Jerú-
salem og drap palestinskan kaup-
mann og stórslasaði ellefu araba,
að sögn lögreglu. Lögreglan
kvaðst ekki vita hver hefði varpað
sprengjunni ofan af húsþaki en
palestínsk vitni segja að þar hafi
gyðingar verið að verki.
JÓHANNESARBORG
Öllum brögöum beitt
Réttarrannsókn hefur leitt í Ijós
staðreyndir sem koma sér illa fyr-
ir suður-afrísk stjórnvöld. Sagt er
að herinn hafi notað dæmdan
morðingja til að stjórna hópi
vændiskvenna og eiturlyljasala til
að spilla liösmönnum Afríska
þjóöarráðsins.
Steingrímur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin verði
að beita sér fyrir vaxtalækkun ef sátt eigi að
takast um aðgerðir í efnahagsmálum:
Telaðþetta
gangiekki
„Ég er sannfærður um að til að þetta gangi upp þurfi ríkisstjórnin
að bijóta ísinn með verulegri vaxtalækkun. Það er eina leiðin tii að
opna þetta,“ segir Steingrímur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, um þá stöðu sem nú er í viðræðum aðila vinnu-
markaðarins um aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum.
Steingrímur sagöi að það væru
margar leiðir færar til að lækka
vexti. Hægt sé að lækka eða fella
niður bindiskyldu bankanna. Hægt
sé að greiða hærri vexti af bundnu
fé. Nauðsynlegt sé að lækka vexti á
ríkisskuldabréfum, þó ekki væri
annað en að draga til baka þá
vaxtahækkun sem varð í vor. Stein-
grímur sagði að þá væri hægt, með
lánsfé, að dreifa þeim miklu af-
skriftum sem bankarnir eru að
taka á sig núna á lengri tíma.
Bankarnir fjármagna þessar af-
skriftir núna með miklum vaxta-
mun. Steingrímur benti á að í
Bandaríkjunum hafi miklar af-
skriftir sparisjóðanna þar í landi
verið fjármagnaðar með lánsfé úr
ríkissjóði.
„Það er vel hægt að lækka vexti og
það er nauðsynlegt að gera það ef
takast á sátt um þær aðgerðir í
efnahags- og atvinnumálum sem
nú eru til umfjöllunar. Ég tel að án
vaxtalækkunar komi þessar að-
gerðir ekki í veg fyrir leiðréttingu á
genginu," sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra lýsti því yfir á
Alþingi í síðustu viku að viðræð-
urnar væru að komast á það stig að
um eða eftir helgi verði rætt við
stjórnarandstöðuna með formleg-
um hætti. Steingrímur sagði að
enn hafi ekkert verið leitað til
framsóknarmanna. -EÓ
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 3.426.168
2. 4af5? íf 7 104.396
3. 4al5 127 9.925
4. 3af5 4.993
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
kr. 11.784.460
DENNI DÆMALAUSI
„Ruslfæði erþað sem þeir kalla allt sem er gott
á bragið. “