Tíminn - 08.12.1992, Síða 1
Þriðjudagur
8. desember 1992
211.tbl.76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Svisslendingar hafa hafnað EES-samningnum sem þýðir meðal annars að
samningurinn tekur ekki gildi um áramót:
Svisslendingar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina samn-
ingnum um Evrópskt efnahagssvæði. Þessi niðurstaða hefur þau
áhrif að EES-samningurinn tekur ekki gildi um áramót eins og
áætlað hafði verið. Á næstunni munu þau ríki sem enn hyggja á
samstarf um EES koma saman og ræða um framhald EES-samn-
ingsins og væntanlega gera breytingar á samningnum. Rætt er um
að EES- samningur taki hugsanlega gildi um mitt næsta ár en ekki
er útilokað að það frestist enn frekar og til eru þeir sem fullyrða að
EES sé nú endanlega úr sögunni.
samninginn. Aðeins þau ríki sem
hafa hafnað samningunum verða
útilokuð frá þátttöku í ráðstefnunni.
Á fundinum kom fram að líkur eru á
að Holland, Grikkland og Ítalía verði
ekki búin að samþykkja EES um
áramót en þessi ríki munu engu að
síður taka þátt í umræðum um
framhald EES.
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, hafði áður haldið því
fram að ísland fengi ekki að taka
þátt í frekari umræðum um fram-
hald EES-málsins nema Alþingi hafi
samþykkt samninginn. Þetta mun
ekki vera rétt mat. Utanríkisráð-
herra telur hins vegar æskilegt að
Alþingi samþykki samninginn sem
íyrst svo að ekki þurfi að leika vafi á
vilja þingsins. -EÓ
Tveir lögreglu-
menn ávítaðir
Lögrvglustjóri hefur ávftað
tvo lögreglumenn í kjölfur
ummæla yflrmanns fíkni-
efnadeildar lögrcglunnar í
tímaritsgrein á dögunum.
Óstaðfestar heimildir herma
að annar lögregiumaðurinn
sé Bjöm Halidórsson, yflr-
maður fikniefnadeildar.
í tímaritsgrein á dögunutn
sakaði Bjöm Haiidórsson
fyrrverandi iögreglumenn
um að hafa spilit fyrir rann-
sókn mála. í kjöifar þess
óskuðu tíu fyrrverandi
starfsmenn deildarinnar eft-
ir opinnberri rannsókn ríkis-
saksóknara á þessum stað-
hæfingum. Nú hefur málið
verið ieyst með því að lög-
reglustjóri áminnti tvo lög-
regiumenn. -HÞ
Aðeins átta af 25 kantónum (fylkj-
um eða héruðum) samþykktu tiílög-
una um aðild Sviss að EES og í heild
var naumur meirihluti andvígur
samningnum (50,3% gegn 49,7%).
Ef tillagan hefði átt að öðiast sam-
þykki hefðu allar kantónumar orðið
að samþykkja hana. Mikið vantaði á
að svo yrði. í sumum þeirra var yfir
80% íbúanna á móti samningnum.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar hafa
þau áhrif að EES-samningurinn
tekur ekki gildi um áramót eins og
ráðgert var. Enginn veit með vissu
hvenær samningurinn tekur gildi
en svo virðist sem forystumenn EB
og EFTA stefni að því að það geti
orðið um mitt næsta ár. Sumir
halda því fram að ekkert verði úr
EES, EB ákveði einfaldlega að semja
um beina aðild að EB en flest EFTA-
ríkin hafa þegar sótt um beina aðild
að EB. Það hefur ísland hins vegar
ekki gert Þessi lausn er hins vegar
tímafrek og EFTA-ríkin telja sig ekki
geta beðið lengi eftir að komast inn
fyrir tollmúra EB.
Á næstu vikum munu fulltrúar
framkvæmdastjórnar EB og fulltrú-
ar þeirra EFTA-ríkja sem enn hyggja
á aðild að EES koma saman og
væntanlega semja um breytingar á
samningnum. í vissum greinum er
nægilegt að þurrka út nafn Sviss en
það dugar ekki alls staðar. EES-
samningurinn er byggður á því að
EFTA komi á fót sérstökum dóm-
stóli og eftirlitsstofnun. Þessum
stofnunum verður að breyta því að
eitt EFTA-ríkjanna, Sviss, mun ekki
eiga aðild að EES. Þá hafði verið
samið um að Sviss greiddi miklar
fjárupphæðir í sérstakan þróunar-
sjóð sem á að hafa það hlutverk að
styðja byggð og atvinnulíf í fátækum
EB- ríkjum. Ákveða verður hvort
hin EFTA-ríkin taki að sér að greiða
fyrir Sviss eða hvort hlutur Sviss
verður einfaldlega felldur niður.
Utanríkismálanefnd kom saman í
gærmorgun til að fjalla um þá stöðu
sem nú er komin upp. Fram kom á
fundinum að ekki eru skilyrði fyrir
þátttöku í ráðstefnunni sem kemur
til með að fjalla um framhald máls-
ins, að ríkin hafi samþykkt EES-
Handhafar tilnefninga eða fulltrúar þeirra í Listasafni íslands í gær. Timamynd Ami Bjama
Tíu bækur hafa verið tilnefndar til íslensku bókmennta-
verðlaunanna:
Tveir hundar hafa drepist með einkenni af smáveirusótt:
Ekki áður greinst
í hundum hérlendis
Vart hefur orðið við svokallaða smáveirusótt í hundum og getur þessi
hundasjúkdómur verið banvænn. Þetta er í fyrsta skipti sem sjúkdómur
sem þessi kemur upp hér á landi. Tvö tilfelli hafa þegar greinst við krufn-
ingu og voru báðir hundamir frá sama stað á Suðurlandi. Bóluefni er á leið-
inni til landsins og verður trúlega hægt að byrja að bólusetja hunda við
þessarí sótt strax í þessarí viku ef að líkum lætur.
Brynjólfur Sandholt, yfirdýralækn-
ir, segir að ekki sé vitað á hvem hátt
þessi veira barst hingað til landsins.
Smitleiðir veirunnar eru venjulegast
með hundum en ekki útilokað að
hún hafi komist hingað með saur
sem hefur loðað við skósóla einhvers
ferðalangs. Veiran sem veldur þess-
um sjúkdómi er mjög harðger og
getur lifað nokkuð Iengi og meðal
annars í jarðvegi.
Einkenni veikinnar hjá eldri hund-
um lýsa sér m.a. í slappleika, hita,
uppsölum og heiftarlegum niður-
gangi sem leiðir oft til dauða. Yngri
hundar sem veikinna fá verða fyrst
slappir en geta síðan hresst við en
geta drepist seinna meir af hjartabil-
un undir miklu álagi. Dánartíðni
hunda sem sýkjast af þessari veiru er
um 10% en það er þó misjafnt eftir
hundastofnum.
Getum hefur verið leitt að því að
veiran hafi borist hingað til lands
með smygluðum hundi, en það er
með öllu ósannað. En eins og kunn-
ugt er verða allir innfluttir hundar
að fara í sóttkví í 2-3 mánuði. -grh
Þrjár Ijóðabækur
voru tilnefndar
Þrjár íslenskar ljóðabækur voru valdar í flokki fagurbókmennta sem
keppa um íslensku bókmenntaverðlaunin, en tilnefning til verðiaun-
anna fór fram við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands í gær. Alls voru
tíu bækur tilnefndar, fimm í flokki fagurbókmennta og flmm í flokki
fræðirita og bóka almenns efnis.
í flokki fagurbókmennta voru
eftirtaldar fimm bækur athyglis-
verðastar að mati dómnefndar:
„klukkan í turninum", ljóðabók
eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur,
útgefandi Forlagið. „Kynjasög-
ur“, smásögur eftir Böðvar Guð-
mundsson, útgefandi Mál og
menning. „Mold í Skuggadal",
Ijóðabók eftir Gyrði Elíasson, út-
gefandi Mál og menning. „Sæfar-
inn sofandi", ljóðabók eftir Þor-
stein frá Hamri, útgefandi Bóka-
. forlagið Iðunn. „Tröllakirkja"
skáldsaga eftir Ólaf Gunnarsson,
útgefandi Forlagið.
í flokki fræðirita og bóka al-
menns efnis voru fimm athyglis-
verðustu bækurnar að mati dóm-
nefndar:. .Bókmenntasaga I" eftir
Véstein Ólason, Sverri Tómasson
og Guðrúnu Nordal, útgefandi
Mál og menning. „Dómsmálaráð-
herrann" eftir Guðjón Friðriks-
son, útgefandi Bókaforlagið Ið-
unn. „Fjarri hlýju hjónasængur"
eftir Ingu Huld Hákonardóttur,
útgefandi Mál og menning. „Ut-
anríkisþjónusta Islands og utan-
ríkismál" eftir Pétur Thorsteins-
son, útgefandi Hið íslenska bók-
menntafélag. „Þroskakostir" eftir
Kristján Kristjánsson, útgefandi
Rannsóknastofnun Háskóla ís-
lands í siðfræði.
Nefndirnar sem völdu bækurnar
voru skipaðar þeim Heimi Páls-
syni, Helgu Kress og Ingibjörgu
Haraldsdóttur í flokki fagurbók-
mennta og Sigríði Th. Erlends-
dóttur, Þorleifi Haukssyni og
Örnólfi Thorlacius í flokki ann-
arra rita. Heimir og Sigríður voru
formenn nefndanna.
Þriggja manna lokadómnefnd
mun síðan velja eina bók af fimm
tilnefndum úr hvorum flokki til
verðlauna sem forseti íslands af-
hendir eftir áramót. í henni taka
sæti formenn nefndanna, þau
Heimir og Sigríður auk Vilhjálms
Árnasonar.sem tilnefndur er af
forseta íslands.
-EÓ