Tíminn - 08.12.1992, Qupperneq 3

Tíminn - 08.12.1992, Qupperneq 3
Þriðjudagur 8. desember 1992 Tíminn 3 Innbrot og íkveikja í verkstæð- ishúsi Verkstæftis- og birgðabraggi í Gelgjutanga skemmdist mikið í eldsvoða síðastliðið fðstu- dagskvöld en vel þykir hafa teldst til að koma í veg fyrir að eidur næði að breiðast út í dæluverkstæöi Olíufélasins sem er samfast verkstæðinu. Fullvíst er að um íkveikju hafl verið að ræða en samkvæmt upplýsingum Rlr hefur enginn verið handtekinn vegna þessa máls. Það var um kl 19 á fóstudag sem allt tiltækt slökkviliö Reykjavíkur var kallað út og var slökkviliðið á Reykjavíkur- flugvelli í viðbragðsstöðu. Tókst að raða niðuriögum eidsins á þremur tímum. Mik- inn reyk lagði yfir næsta ná- grenni en húsið var einangrað með plasti og texi. Mestur hluti hússins var leigöur út en eigandi hússhts Sigurgeir Sig- urdórsson hefur haft skrif- stofuaösöðu í húsinu. Heild- sali sem verslar með pappírs- vörur var nýfluttur út með starfssemi sína. Hurð á einu af úthýsum verk- stæðisins hafði verið brotin upp og þykir fullvíst að um íkveikju hafí verið að ræða. -HI> Tveir slösuð- ust í hörðum árekstri Tveir slösuðust í mjög hörðum árekstri er varö á mótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar ígær. Okumaður og farþegi í öðrum bflnum slösuðust en ekki alvar- lega að taiíð er. Tækjabíli lög- reglunnar var kvaddur á siys- stað til að iosa þá. Báðar bifreið- araar voru óökufærar eftir áreksturinn og þurfti að draga þær af vettvangi. -HÞ Utanríkisráðherra leggur áherslu á að Alþingi taki afstöðu til EES- samningsins þrátt fyrir að Svisslendingar hafi hafnað samningnum: Hugmyndin um tveggja stoða lausn úr sögunni Algjör óvissa ríkir um afgreiðslu EES-samningsins á Alþingi eftir að Sviss hafnaði samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjómarandstaðan segir tíl- gangslaust að ræða frekar um þennan samning í núverandi mynd þar sem fyrir liggi að breyta þurfl honum. Utanrfldsráðherra leggur hins vegar áherslu á að Alþingi afgreiði samninginn hið fyrsta þannig að enginn vafl þurfi að leika á afstöðu þingsins til hans. Ekkert samkomulag er um af- greiðslu málsins á Alþingi næstu daga. Sú staða sem nú er kominn upp í EES-málinu var rædd á Alþingi í gær að frumkvæði Kristínar Einars- dóttur, þingkonu Kvennalistans. „Svissneska þjóðin hefur sagt álit sitt á Evrópska efnahagssvæðinu. Þar með er EFTA ekki lengur aðili að þessum samningi. Sá samningur sem undirritaður var í Oporto er ekki í samræmi við raunveruleik- ann. Alþingi stendur því frammi fyr- ir því að vera með til umfjöllunar frumvarp sem ekki endurspeglar stöðu mála. Samningurinn frá Op- orto gildir ekki lengur. EFTA-stoðin er fallin og þar með getur meðal annars ekki orðið af stofnun eftir- litsstofnunar EFTA og dómstóls og þar með eru ekki öll EFTA-ríkin lengur aðilar að málinu. Það er hreint út í bláinn að ætla að fara af- greiða þennan úrelta samning á Al- þingi," sagði Kristín. Kristín sagði það algeran misskiln- ing hjá utanríkisráðherra að íslend- ingar fengju ekki að taka þátt í um- ræðum um framhald málsins ef þeir afgreiddu ekki samninginn á Alþingi fyrir áramót. Aðeins þau ríki sem hafna samningnum eru útilokuð frá frekari umræðum um málið. Kristín sagði það einnig misskilning hjá ráðherranum að aðeins þyrfti að gera tæknilegar breytingar á samn- ingum. Semja þyrfti um ýmis mikil- væg atriði að nýju m.a. um eftirlits- stofnun EFTA og dómstól. Jón Baldvin sagði að þrátt fyrir nið- urstöðu Svisslendinga væri fslend- ingum ekkert að vanbúnaði að sam- þykkja EES-samninginn í þeirri mynd sem hann er í núna. Hann las upp þann texta samningsins sem fjallar um hvernig bregðast eigi við ef eitthvert ríki hafnar EES. Þá er boðað til ráðstefnu eins fljótt og auðið er og breytingar gerðar á samningnum með sérstakri bókun. Bókunin verður síðan lögð fyrir Al- þingi. Utanríkisráðherra sagði að þetta væri hin eðlilega málsmeð- ferð. Jón Baldvin sagði erfitt að segja til um hvenær samningurinn myndi taka gildi. Það skýrðist á næstu vik- um og mánuðum, en Ijóst væri að hann tæki ekki gildi um áramóL Ráðherrann lagði áherslu á að AI- þingi afgreiddi EES-samninginn hið íyrsta. „Það er þýðingarmikið fyrir hagsmuni íslensku þjóðarinnar að það leiki ekki á tveimur tungum að pólitískur vilji okkar til að staðfesta þennan samning sé óbreyttur," sagði Jón Baldvin. „Staða málsins er gjörbreytt. Það sér hver maður. Hugmyndin um að- ild EFTA að Evrópsku efnahags- svæði er með atkvæðagreiðslunni í Sviss dauð. Hugmyndin um tveggja stoða lausn, þar sem EFTA væri önnur stoðin, er að sjálfsögðu líka dauð. Það er algjör fásinna að ætla Alþingi að lögfesta samning sem fyr- irsjáanlega verður aldrei að veru- Ieika," sagði Páll Pétursson. Hann sagði einnig tilgangslaust að ræða frekar um fylgifrumvörp EES og um sjávarútvegssamning íslands við EB. Fjölmargir þingmenn tóku til máls í umræðunum. Meginþunginn í ræðum stjórnarandstæðinga var að tilgangslaust væri að ræða málið frekar í núverandi mynd. Björn Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra. Bjarnason, formaður utanríkismála- nefndar, og fleiri stjórnarliðar sögðu hins vegar mikilvægt að Alþingi tæki afstöðu til málsins þannig að ekki þurfi að leika vafi á umboði ís- lenskra stjórnvalda til að fjalla frek- ar um málið í samskiptum við aðrar þjóðir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Kvl.) tók að sumu leyti undir að það væri slæmt fyrir stjórnvöld að vita ekki fyrir víst um afstöðu Alþingis til málsins. Nokkrar umræður fóru fram um það samkomulag sem gert var í síð- ustu viku milli flokkanna um af- greiðslu EES-samningsins á þingi. Samið hafði verið um að önnur um- ræða færi fram næstkomandi laug- ardag. í umræðunni kom hins vegar fram að stjórnarandstaðan haföi tek- ið fram þegar samkomulagið var gert að ef Sviss feildi EES-samning- inn yrði að ræða um afgreiðslu málsins að nýju. Geir H. Haarde, þingflokksformaður sjálfstæðis- manna, sagði ijóst að flokkarnir yrðu að ræða saman næstu daga um hvernig yrði staðið að málinu á næstu vikum. Endurskoða yrði sam- komulagið um að ræða EES á laug- ardag. Ólafur Ragnar Grímsson (Alb.) sagði að rétt væri í þeirri stöðu sem upp er komin að frumvarp tii stað- festingar á EES-samningnum verði vísað að nýju til utanríkismála- nefndar. -EÓ Hluthafafundur Hluthafafundur í Eignarhaldsfélaginu Iðnaðarbankinn h.f. verður haidinn í Súlnasal Hótels Sögu, Reykjavík, föstudaginn 11. desember n.k. Ríkisstjórnin náði saman um niðurskurð en óánægja er með niðurstöðuna: Skorið verður niður um 800 milljónir Rfldsstjórnin náði samkomulagi um helgina um frekari niðurskurð í ríkisfjármálum. Niðurskurðurinn verður um 800 milljónir, en rflds- stjórnin hafði áður sett sér það mark að skera niður um 1.240 milljón- ir. Minna verður skorið niður í félagsmálum og landbúnaðarmálum en ráðgert var. Óánægja er í báðum flokkum með niðurstöðuna. Utanrflds- ráðherra og formaður fjárlaganefndar töldu að skera hefði átt meira nið- ur en í Sjálfstæðisflokknum er meðal annars óánægja með niðurskurð- inn í landbúnaðarmálum. Stærstur hluti niðurskurðarins kemur í hlut heilbrigðisráðuneytis- ins eða um 600 milljónir. Skorið verður niður um 100 milljónir í fé- lagsmáiaráðuneytinu og um 100 í landbúnaðarráðuneytinu. Bamabætur verða lækkaðar um 30% eða um 500 milljónir. Um þriðjungur þessarar upphæðar verður notaður til að hækka barna- bótaaukann, en hann er tekju- tengdur. Mæðra- og feðralaun með fyrsta bami verða felldar niður, en meðlag verður hækkað á móti úr rúmum 7.000 krónum í rúmar 11.000 krónur á mánuði. Áformað er að lækka vaxtabætur um 400 milljónir, en þessi lækkun kemur ekki til framkvæmda fyrr en 1994. Ríkið mun á næsta ári greiða 2,6 milljarða. Hins vegar hafa hug- myndir um hækkun vaxta í hús- næðiskerfinu verið lagðar til hliðar, ekki síst vegna kröfu félagsmála- ráðherra þar um. Hætt var við að skerða fæðingarorlof og framlag í Framkvæmdasjóð aldraðra. Jöfn- unarsjóður sveitarfélaga verður hins vegar skertur um 110 milljón- ir. Dregið verður úr endurgreiðslum vegna tannlæknaþjónustu. Hér eft- ir verða böm yngri en 15 ára að greiða 25% kostnaðar og 16 ára unglingar greiða 50%. Sú regla verður sett að TYygginga - stofnun taki ekki þátt í greiðslu kostnaðar vegna þjónustu sérfræð- inga nema sjúklingur leiti til sér- fræðings með tilvísun frá heimilis- lækni. Með þessu er vonast eftir að hægt verði að draga úr sérfræði- kostnaði. Ríkisstjómin fjallaði mikið um skattlagningu hitaveitna. Niður- staðan var að hækkunin yrði alls staðar sama krónutöluhækkun. í heild mun ríkissjóður ná 300 millj- ónum með þessari skattlagningu, en ekki 500-600 eins og útlit var fyrir ef engin jöfnun hefði komið til. Á laugardaginn lagði ríkisstjómin fram tekjuöflunarfmmvörp sín á Alþingi. Þar er meðal annars stað- fest að stjómin er hætt við að lækka virðisaukaskattinn en lækkun hans var um tíma tillaga hennar. Þetta þýðir að skattbyrði þyngist um 1% og fer í fyrsta skipti upp fyrir 25% sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu. í gær var tekin ákvörðun um að fresta annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið fram til fimmtudags. Ráðgert var að um- ræðan færi fram í dag. -EÓ og hefst hann kl. 16:00. Á fundinum verður samrunasamningur félags- ins við íslandsbanka h.f. kynntur og borinn upp til samþykktar, en á aðalfundi 1. apríl s.l. var stjóm félagsins heimilað að undirbúa samruna þess við íslandsbanka h.f. Dagskrá 1. Tillaga síjórnar félagsins um samruna viö Islandsbanka h.f. 2. Önnurmál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum þeirra í íslands- banka h.f., Bankastræti 5 (4. hæð), Reykjavík, dagana 8. og 9. og 10. desember n.k., svo og á fundardegi. ✓ Samrunasamningur við Islandsbanka h.f. ásamt fylgiskjölum og tillögum þeim, sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Reykjavík, 1. desember 1992 Stjórn Eignarhaldsfélagsins Iðnaðarbankinn h.f.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.