Tíminn - 08.12.1992, Page 9

Tíminn - 08.12.1992, Page 9
Þriðjudagur 8. desember 1992 Tíminn 9 Durydíijua iii* iijiui i iij w Borgarljós hf. hefur flutt alla starfsemi sína að Armúla 15, á homi Armúla og Veg- múla, en starfsemi fyrirtækisins hefur verið að Skeifunni 8, frá 1984. Borgarljós hf. sérhæfir sig í verslun með lampa, lýsingarbúnað, rafvörur og smáheim- ilistæki. Auk smásöluverslunar rekur fyrirtækið heildverslun með sömu vörutegundir og þjónar raftækjaverslunum, rafverktökum og stórmörkuðum. Borgarljós er með um- boð fyrir marga heimsþekkta framleiðendur, s.s. Black & Decker, Massive nv, Noral a.s. og fleiri. Verslunin í Ármúla er hönnuð af Baldvin Baldvinssyni, yfirsmiður var Einar Steins- son og rafverktakar Rafglit. Borgarljós hf. er í eigu Hauks Þórs Haukssonar og Amdísar Þorvaldsdóttur. Félag eldri borgara Opið hús í dag kl. 13-17. Lesið úr nýjum bókum kl. 15. Helga Guðrún Johnson les úr bók sinni, „Lífsganga Lydíu með Guð- mundi frá Miðdal“, og Ómar Valdimars- son les úr bók sinni, „Guðni rektor — Enga mélkisuhegðun, takk“. Dansað kl. 20. Svarti markaöurinn í JL-húsinu Svarta markaðs-egg alla daga fram að jólum. Svarti markaðurinn selur eggin á kr. 120 kflóið frá og með deginum í dag. Þetta er örugglega botninn í eggja- verðsstríðinu í ár. fram að jólum. Á þetta jafnt við um sunnudaga sem helga daga. í fréttatilkynningu frá ísafold segir að um sé að ræða tilraun. Hafa forráða- menn verslunarinnar orðið þess varir að fólk myndi vilja hafa betri tíma til að kaupa bækur en oft gefst í jólaönnum. Því hafi þeir ákveðið að hafa verslunina opna öll kvöld til kl. 22, jafht virka daga sem um helgar. Þegar hefur verið opið nokkra daga og hefur þessi nýbreytni mælst vel fyrir. Viðskiptavinimir hafa gjama verið fólk á hressingargöngu um miðborgina, sem hefur staldrað við í bókabúðinni til þess að ylja líkama og sál. Jól í Þjóðminjasafni íslands Jóladagskrá Þjóðminjasafns fslands hófst nú um helgina. Opnuð var jólasýning safnsins. Á henni getur að líta sýnishom ýmissa hugmynda, sem myndlistarmenn hafa gert sér um íslensku jólasveinana. Á sýningunni em dæmi um karlmannsföt frá fyrri tíð og í tengslum við þau er efnt til nokkurs konar hugmyndasamkeppni meðal sýningargesta um það hvemig ís- lenskir jólasveinar geta litið úL Auk þess em á sýningunni ýmsir kirkjumunir, sem veita innsýn í kirkjuferðir og helgi- hald. Nú um næstu helgi, eða þann 12. des- ember, kemur Stekkjarstaur til byggða. Þá verður viðbúnaður í safninu til að taka á móti honum kl. 11.15. Síðan koma jólasveinamir einn af öðmm dag- lega í safnið allt þar til Kertasníkir rekur lestina á aðfangadag jóla. Um næstu helgi lýkur einnig sýning- unni ,Jómsvíkingar“, svo hver fer að verða síðastur að skoða hana. Vísnaplata löunnar komin út á ný Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið út V'ísna- plötuna, geisladisk og snældu sem hafa að geyma öll lögin af plötunum Einu sinni var og Út um græna gmndu, og hafa þau nú verið endurhljóðblönduð. Þessar plötur komu út fyrir allmörgum ámm og nutu þá fádæma vinsælda og seldust í stærri upplögum en dæmi em til um aðrar fslenskar hljómplötur. Margir þekktustu söngvarar og hljóð- færaleikarar fslendinga sjá um tónlistar- flutninginn. Bókaverslun ísafoldan Opið öll kvöld til kl. 22 Bókaverslun ísafoldar, Austurstræti 10, Reykjavík, verður opin öll kvöld til kl. 22 Sýning Árbæjarsafns ■ Nýhöfn: Víkin og Viöey Opnuð hefur verið í Nýhöfn, Hafnar- stræti 18, sýningin Vfldn og Viðey, Fom- ieifar frá landnámi til siðaskipta í Reykjavík, á vegum Árbæjarsafns. í Reykjavík hafa allnokkrir fomleifauppgr- eftir farið fram síðustu 20 árin, einkum tengdir landnámsbænum f Aðalstræti og Viðey. Á sýningunni má sjá merkustu gripina, sem fundist hafa f þessum upp- gröftum, og em þeir frá 9.-16. öld. Um uppsetningu sáu Skia fomleifafræðing- ur, Bjami F. Einarsson fomleifafræðing- ur og Margrét Hallgrímsdóttir borgar- minjavörður. Sýningin stendur fram til 23. desember, Þorláksmessu. Ljóöatímaritiö Ský Út er komið áttunda hefti af ljóðatíma- ritinu Skýi. Fmmsamin Ijóð em í ritinu eftir Dag Sigurðarson, Jón Hall Stefáns- son, Stefán Snævarr, Svein Yngva Egils- son, Atla Harðarson og Úlfhildi Dags- dóttur. Einnig em í heftinu þrjár mann- lýsingar eftir Nóbelsverðlaunaskáldið Elias Canetti í þýðingu Gunnars Harðar- sonar og kvæði eftir belgíska skáldið Maurice Maeterlinck í þýðingu Braga Ól- afssonar. Þá em þrjár stuttar sögur eftir Sigurlaug Elíasson f tímaritinu, ljóð eft- ir írska skáldið Derek Manon og Ijóð og hækur eftir þýska skáldið Ralf Thenior. Tímaritið er til sölu í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveginn og í Bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar í Aust- urstræti. Verð í lausasölu er kr. 400. Opinn fundur starfsmenntaráðs félagsmálaráðuneytisins Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins heldur opinn fund aö Borgartúni 6 í Reykjavík, miðvikudaginn 9. desember nk., kl. 16.00 til 19.00. Á dagskrá fundarins eru lög nr. 19/1992, um starfsmenntun í atvinnulifinu, fjallað verður um úthlutun úr starfs- menntasjóði og kynnt umsóknareyðublöð um styrki úr sjóðnum. Félagsmálaráðuneytið, 2. desember 1992. Brigítte Bardot hefur ekki verið mikið í fréttum í mörg undanfarin ár og þegar til hennar hefur frést er það vegna þess að hún hefur verið að vasast í dýravemdunarmálum við misjafnar undirtektir. Árið 1992, og þá sérstaklega frá og með ágústmánuði, hefur hins vegar Amman er ungleg og hamingju- söm, þegar hún hefur endurheimt soninn Nicholas og kynnst sonar- dætrunum. Þaö eryngri dóttir Nic- holas, Thea, sem er meö pabba og ömmu á myndinni. brugðið svo við að dembst hafa yfir fréttir af þessari fyrrum kvikmynda- gyðju Frakka. Sumar eru góðar og aðrar miður góðar. Þær stórfréttir bárust út um heim- inn að hún hefði gengið í heilagt hjónaband í ágúst með franska stjómmálamanninum Bemard D’Ormale, stuðningsmanni hins umdeilda, hægrisinnaða öfgamanns Jean-Marie Le Pen. Athöfnin fór fram í Ósló, en þar var Brigitte jafn- framt í öðrum erindagerðum. í Ósló er nefnilega búsettur einka- sonur Brigitte, Nicholas, sem orð- inn er 32 ára, en hún hefur haft iítið samband við um ævina og alls ekki neitt síðustu tíu árin. Hann býr þar með norskri eiginkonu, Anneline Bjerkan, og tveim dætrum. Honum hefur ekki gengið sérlega vel að koma undir sig fótunum í atvinnu- lífinu og stundum orðið að komast af á atvinnuleysisbótum. En kon- umar þrjár í lífi hans hafa verið hans hamingja og nú er sú fjórða komin til sögunnar, alsæl amma að sjá son- ardæturnar í fyrsta sinn, og nýbök- uð brúður. En því miður var hamingjusólin ekki orðin allsráðandi í lífi Brigitte enn. Nú nýlega bámst fréttir af því að læknar hefðu orðið að bjarga lífi hennar eftir að hún hafði tekið of stóran skammt af róandi lyfjum. Maður hennar sagði hana hafa verið orðna úttaugaða vegna allrar þessar- ar hröðu atburðarásar og dropinn, sem fyllti mælinn, hefði verið réttar- höld í dýravemdunarmáli sem hún hefði lagt sig alla í. 1992 sviptingaár Brigitte Bardot Gérard Depardieu barði píanóleikara — á yfir höfði sér kæru Franski leikarinn Gérard Depardieu hlýtur að vera stór í skapinu. Þar að auki er hann fyrrverandi hnefaleik- ari. Svo mikiö er víst að bráður er hann og nú á hann yfir höfði sér ákæm vegna þess hvað honum var laus höndin í New York nýlega. Depardieu hafði verið viðstaddur frumsýningu nýjustu myndar sinn- ar, „Tous Les Matins Du Monde", ásamt meðstjörnunum Guillaume syni sínum og Anne Brochet á Man- hattan. Á eftir var haldið í matsal hótels eins þar sem svo óheppilega vildi til að einn gestanna hafði einhverja tónlist í frammi. Hvorki betur né verr vildi til en svo að frönsku stjörnunni mislíkaði svo mjög tón- leikarnir að hann gaf píanóleikaran- um einn á lúðurinn. Þegar svona er komið dugir ekki til að vera heimsfrægur leikari, De- pardieu var kærður fyrir verknað- Franski leikarinn Gérard Depardieu er stórskorinn til llkama og sálar. Sonur hans inn. Guiiiaume líkist fööur slnum mjög í útliti. Meö þeim á myndinni er Anne Brochet,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.