Tíminn - 08.12.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR
& 686300
Askriftarsími
Tímans er
686300
Nýjungar á döfinni í
atvinnulífi Hornfirð-
inga:
Huga að
stofnun
gabbró-
verksmiðju
Um nokkurt skeið hafa staðið
yfír tæknilegar athuganir á
stofnun gabbróverksmiðju á
Höfn í Hornafírði. Mjög fljót-
lega og jafnvel í þessari viku er
að vænta niðurstöðu markaðs-
sérfræðings um málið og á
þeim grundvelli verður svo
tekin ákvörðun um framhald-
ið.
Sturlaugur Þorsteinsson bæj-
arstjóri á Höfn segir að enn sé
of snemmt að fullyrða nokkuð
um það hvort ráðist verður í
stofnun gabbróverksmiðju og
segir málið vera enn á könnun-
arstigi. Hins vegar sé engin
launung á því að heimamenn
hafi verið að skoða þetta dæmi
með útflutning í huga en í ná-
grenni Hafnar er nokkuð um
gabbró og m.a. í Eystra og
Vestra Horni í Lóni og finnst
einnig á Snæfellsnesi. En gabb-
ró er djúpberg með sömu efna-
samsetningu og basalt.
í þessu sambandi hafa Horn-
firðingar einkum horft til
vinnslu á steinflísum úr gabbró
til klæðningar á veggi og gólf.
Ef af stofnun verksmiðjunnar
verður getur svo farið að þar
verði vinnu að hafa fyrir 10-20
manns.
Smá vísir að vinnslu steinflísa
úr íslensku gabbrói er þó þegar
fyrir hendi hérlendis og m.a.
eru steinflísar úr gabbrói í
Seðlabankahúsinu og í húsa-
kynnum Hafnamálastofnunar
og jafnvel víðar.
-grh
KERRUVAGNAR OG KERRUR
Bamaíþróttagallar á ffábæru verði.
Umboðssala á notuðum bamavömm.
Sendum í póstkröfu um land allt!
BARNABÆR, Ármúla 34
Slmar: 685626 og 689711.
VERIÐ VELKOMIN!
Bílasala Kópavogs
Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
Tímiiin
ÞRIÐJUDAGUR 8. DES. 1992
Alls 28 karlar og 8 konur fórust í eldsvoðum á árunum 1971—1990:
Um 75% þeirra sem fórust
í eldsvoðum voru ölvaðir
Nýlegar rannsóknir sýna að dauðsföll af völdum eldsvoða hér á
landi verða oftast í kjölfar mikillar áfengisneyslu. í ljós kom að
75% þeirra sem létust í eldsvoðum á árunum 1971—1990
höfðu neytt áfengis skömmu fyrir andlát sitt. Reyndist áfengis-
neysla algengari og ölvun jafnframt meiri en í banaslysum sem
urðu af öðrum orsökum á þessu árabili.
Læknablaðið greinir frá rann-
sókn þessari en að henni stóðu
þeir Jakob Kristinsson, Þorkell
Jóhannesson og Ólafur Björns-
son. Rannsóknin náði til 36
manns sem létust af völdum
eldsvoða, 28 karla og 8 kvenna á
aldrinum 3ja til 74 ára, sem vís-
að hafði verið til réttarlæknis-
fræðilegra og réttarefnafræði-
legra rannsókna á árunum
1971—1990.
í ljós kom að 24 einstaklingar
(75%) höfðu neytt áfengis
skömmu fyrir andlát sitt.
Meðalgildi etanóls í blóði þeirra
var 2,34 prómill (frá
0,47—3,37).
Af þessum hópi létust 32 í elds-
voða í íbúð eða öðru íveruhús-
næði, þrír um borð í fiskiskipi og
einn á vinnustað.
Vinnlngstölur laugardaginn (o)(V7) 5. des. 1992
20)(f§ff
[29)[3 6) (V)
I VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
| 1. 5af 5 0 2.671.985
2. 4aÍ5Í W 6 77.285
3. 4af5 133 6.014
4. 3af5 3.684 506
Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 5.799.661
Söfnun mæörastyrksnefndar stendur nú yfir. Unnur Jón-
asdóttir, formaöur nefndarinnar, segir að ovenju margir hafi þegar leitaö eftir aðstoö og mun fleiri en
í fyrra. Þá leituðu um 500 manns aðstoðar en nú þegar hafa um 100 manns leitaö ásjár nefndarinnar.
Aðstoðin felst í fatagjöfum, matarkortum til úttektar á mat í verslunum og fjárhagsaðstoð. Unnur seg-
ir að sömu aðilar leggi málstaðnum lið ár eftir ár. Þeim sem vildu bætast í hópinn er bent á gírónumer
nefndarinnar sem er 36600-5 en einnig er heillegur fatnaður vel þeginn. Á myndinni er Kristín Ólafs-
dóttir starfsmaður nefndarínnar. Tímamynd Ámi Bjama.
UPPLÝSINGAR:SlMSVARI 91-681511 LUKKULÍNA991002
. . . E R L E N D A R F R É T T I R . . .
NÝJA DEHLI
180 drepnir í óeiröum
Næstum 180 manns voru drepnir og
mörg hundruö særölr þegar óeiröir
brutust út um allt Indland eftir aö her-
skáir Hindúar bnjtu niöur ævafoma
mosku í Ayodya og hófust handa um
aö reisa lítiö musteri á staönum, aö þvl
er embættismenn og indverskar frétt-
astofur skýröu frá I gær.
Kongressflokkurinn, sem fer meö stjóm
Indlands, baröist viö aö koma i veg fyrir
forystukreþpu eftir aö stjómarandstaö-
an og háttsettir starfsbræöur P.V. Nar-
asimha Rao, forsætisráóherra, réöust
aö honum vegna þess sem þeir álitu
vangetu hans til aö vemda moskuna,
sögöu aöstoöarmenn Raos.
MOGADISHU
Ástandið kannaö úr lofti
Vestrænar herflugvélar svifu I gær yfir
Mogadishu, sennilega I könnunarleiö-
angur fyrir fjölþjóöaher undir forystu
Bandaríkjanna. Herínn á aö halda uppi
lögum og reglu viö úthlutun hjálpar-
gagna til sveltandi fólks i Sómaliu.
JÓHANNESARBORG
Svartir lýsa yfir stríöi
Skæruliöahópur svartra hefur lýst yfir
strlði gegn hvltum Suöur- Afríkumönn-
um og hótaö aö drepa leiötoga rikis-
stjómarinnar, þ.á m. F.W. de Klerk for-
seta, hermdu fréttir frá suöur-afriskri
fréttatofu I gær.
MOSKVA
Stjórnin lægir öldurnar
Umbótastjóm Rússlands reyndi aö
lægja öldumar á fulltrúaþingi landsins i
gær eftir aö ekki munaöi nema hárs-
breidd aö Bóris Jeltsin, forseti, biöi
lægri hlut i mikilvægri atkvæöagreiöslu
um helgina.
SARAJEVO
Flugvöllurinn enn lokaður
Bardagar I Sarajevo neyddu starfs-
menn Sameinuöu þjóöanna til aö halda
flugvelli borgarinnar áfram lokuöum fyr-
ir flugvélum meö hjálpargögn. Þeir
veröa aö halda áfram aö gripa til ann-
arra aöferöa til aö útdeila hjálp um alla
Bosniu.
BRÚSSEL
Vilja vernda Kosovo
Bandarikin og ýmsir bandamenn þeirra
ihuga nýjar aögeröir til aö hindra aö
júgóslavnesku átökin berist til sjálf-
stjómarhéraösins Kosovo aö sögn hátt-
setts embættismanns NATO i gær.
ZÚRICH
Ráöherrar vilja viðræöufund
(gær uröu Svisslendingar aö sætta sig
viö afdráttariausa höfnun I atkvæöa-
greiöslu á samruna viö Evrópu en virt-
ust ekki hafa margar lausnir i staöinn.
Ráöherrar ríkisstjómarinnar höföu ekki
annað aö bjóöa en fyrirheit um viöræö-
ur eftir aö kjósendur höfnuöu alfariö
stefnu þeirra um EES I þjóöaratkvæöa-
greiöslu á sunnudaginn.
BRÚSSEL
EB harmar ákvöröun
Svisslendinga
Ríki Evrópubandalagsins hörmuöu
höfnun svissneskra kjósenda á risa-
vöxnum sameinuöum markaöi en ekk-
ert þeirra lagöi til aö hin 18 löndin sem
aöild eiga aö samningnum biöu eftir
Svisslendingum.
LONDON
Svissneski frankinn upp
Svissneski frankinn snarhækkaöi á
gjaldeyrismörkuöum heimsins eftir aö
hafa lækkaö lítillega i veröi fyrst eftir
svissnesku þjóöaratkvæöagreiösluna.
GAZA
3 ísraelskir hermenn drepnir
Vopnaöir múslimar skutu til bana þrjá
Israelska hermenn á hemumda svæö-
inu I Gaza til aö minnast þess aö fimm
ár eru liöin slöan uppreisn Palestlnu-
manna gegn stjóm [sraela hófst. Tals-
menn hersins sögöu aldrei fleiri ísra-
elska hermenn hafa veriö drepna I
einni árás Palestlnumanna á hemumdu
svæöunum frá því uppreisnin hófst.
DENNI DÆMALAUSI
■vn
fi) NAS/Dittr. BULLS
„Ég er ekkert hræddur við smáþrumur. Ég er
hræddur við drynjandiþrumur.“