Tíminn - 23.12.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.12.1992, Blaðsíða 9
Miövikudagur 23. desember 1992 Tíminn 9 Fyrsta Öddubókin endurútgefin Öddubækur þeirra Jennu og Hreið- ars hafa notið mikilla vinsælda. Adda er fyrsta bókin í þessum frá- bæra bókaflokki og kemur nú út í nýrri útgáfu og með myndum eftir Rebekku Rán Samper. Hinar Öddu- bækumar munu svo koma á eftir næstu ár. Adda átti í fyrstu erfiða daga sem munaðarleysingi og niðursetningur hjá roskinni konu í Reykjavík. Síðar eignast hún fyrir tilviljun kjörfor- eldra — Iæknishjón — og flyst með þeim í þorp úti á landi og þar lendir hún bæði í vanda og skemmtilegum ævintýrum. Bókin er um 130 bls., prentuð í Odda. Útgefandi er Almenna bókafélagið. Verð kr. 1.295. (Sáftland Á vit öriasannð CJrösíír ciö veöi Á valdi ástar Bókaútgáfan Skuggsjá hefur sent frá sér þrjár nýjar þýddar skáldsögur, sem allar eru þýddar af Skúla Jens- syni. Bækumar eru þessar: Á vit örlaganna eftir Barböru Cart- land. Ást og undirferli eftir Erik Nerlöe. Orðstír að veði eftir Theresu Charles. Litlar sögur Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út bókina Litlar sögur, smásagnasafn eftir Sverri Pál Er- lendsson á Akureyri. Höfundurinn Sverrir Páll hefur áður gefið út Ijóðabókina „Þú og heima" og þýtt bækumar um Önnu („Kæri herra Guð, þetta er hún Anna" og „Önnubók"). Einnig hefur hann skrifað kennslubækur í hljóðfræði, málsögu og tjáningu. „Litlar sögur" eru fyrstu frumsamdar sögur hans, sem dregnar eru upp úr skúffu og koma fyrir augu manna. Á kápu segir: „Litlar sögur eru safn sextán sagna um fólk og fyrirbæri og óvenjulegar hliðar hversdagsleikans. Meðal annarra koma við sögu Þór- unn Sveinsdóttir fyrirmyndarhús- móðir, Herjólfur skósmiður, Jóhanna af Örk, unglingurinn Gunnar og ég. Farið er á tónleika á gulum Renault, f leikhús, fylgst með kosningadegi, hlýtt á söng fiskanna og horft á húsið málað svart." „Litlar sögur" er 217 bls. Höfundur setti sjálfur bókina og gekk frá henni til prentunar. Bókin var prentuð í Prisma, Hafnarfirði, og bundin í Fé- lagsbókbandinu-Bókfelli, Kópavogi. Kápu gerði Friðrik Ó. Friðriksson, Akureyri. Listamannslíf Benjamín heitir skáldsaga eftir Einar Öm Gunnarsson, sem Almenna bókafélagið hefur gefið út. Einar Örn er upprennandi höfundur sem sendi frá sér sína fyrstu skáld- sögu 1990 og hlaut hún góða dóma. Þessi nýja skáldsaga hans gerist í Reykjavík og fjallar einkum um lista- manninn Benjamín og samskipti hans við sögumenn. Merkileg per- sónulýsing, í senn kímin og harm- ræn. Þessi listamaður er málgefinn og nokkuð kæmlaus á yfirborði, en allt annar er tekst að gægjast undir skelina. Bókin er 140 bls. Hún er prentuð í Prentbæ. Verð kr. 2.945. Tónmyndaljóð á ensku Komin er út ensk útgáfa Tónmynda- ljóða þeirra Gríms Marínós Stein- dórssonar, Gunnars Reynis Sveins- sonar og Hrafns Andrésar Harðar- sonar og heitir Tone-Pictures-Poems with Greetings from Iceland. Bókin, sem er 72 bls. að stærð, er prýdd ljósmyndum Ragnars Th. Sig- urðssonar af myndum Gríms Marín- ós við ljóð Hrafns Andrésar og geym- ir nótur við tónlist Gunnars Reynis við myndir og ljóð. Hönnuður bókarinnar er Birgir Andrésson, en prentun, umbrot og bókband annaðist G.Ben. Prentstofa h.f. f Kópavogi. Þessi vaidaða og alíslenska bók er árangur samstarfs þeirra þremenn- inganna, sem m.a. kristallaðist á sýn- ingu Gríms Marinós í Perlunni s.l. vor. Á sýningunni varð vart við mik- inn áhuga fjölda erlendra gesta á að fá bókina á máli, sem þeir gætu skil- ið. Því varð að ráði að gefa hana út í enskri þýðingu með aðstoð Dominics Cooper, ensks íslandsvinar og rithöf- undar, sem m.a. skrifaði skáldsöguna um Sunnefumálin. Hér er því komin fögur gjöf handa vinum, vandamönnum eða við- skiptavinum erlendis í anda íslenskr- ar menningar, íslenskrar listar og ís- lensks iðnaðar. Bókin verður til sölu í helstu bóka- búðum og kostar kr. 2000. Einnig má panta hana hjá útgefendunum, Al- Ietre, sem eru höfundamir Hrafn, Gunnar og Grímur. Ævisaga Jóns Þorlákssonar J6n Þorláksson forsætisráðherra heitir nýútkomin bók eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, sem Al- menna bókafélagið gefur út. Þetta er geysimikið ritverk, um 600 bls., og hefur verið lengi í smíðum. Jón Þorláksson var verkfræðingur að mennt og sem landsverkfræðingur var hann brautryðjandi hér í vega- málum og byggingamálum. Fyrir Reykvíkinga var hann frumkvöðull í vatns-, rafmagns- og hitaveitumál- um. Síðan sneri hann sér að stjóm- málum og var samherji Hannesar Hafsteins. Hann var einn af stofnend- um íhaldsflokksins og síðar Sjálf- stæðisflokksins og fyrsti formaður þess flokks, ráðherra fyrir íhalds- flokkinn, fyrst fjármála- og loks for- sætisráðherra. Hann endaði feril sinn sem borgarstjóri í Reykjavík, einhver sá framkvæmdasamasti og dugmesti sem í því starfi hefur setið. Lif þessa húnvetnska bóndasonar var fjöl- breytt og beindist þó raunar allt í eina átt — að verklegum fram- kvæmdum og því að vinna þjóðina út úr húskuldanum og samgöngu- leysinu og fátæktinni. Bókin er 600 bls. að stærð og prent- uð í Prentstofu G. Ben. Verð kr. 3.995. Saltfiskur á spænska vísu Almenna bókafélagið hefur sent frá sér matreiðslubókina Suðrænir salt- fiskréttir. Höfimdar eru Jordi og Maite Busquets. Þýðandi er Sigríður Stephensen. íslenska ráðgjöf veittu Úlfar Eysteinsson og Rúnar Marvins- son. í þessari bók kynnumst við því hvemig spænskir matreiðslusnilling- ar matbúa saltfiskinn okkar. Bókin er 59 uppskriftir að saltfiskréttum, sem sýna okkur hve fjölbreytilegt lostæti má gera úr þessari íslensku fram- leiðslu. „í rauninni em allir þessir réttir veislumatur," segir á bókar- kápu. Bókin er gefin út í samvinnu við Sölusamband íslenskra fiskfram- leiðenda. Hún er 92 bls. að stærð og prentuð í Prentstofu G. Ben. Verð kr. 1.492. Veðraþytur Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út skáldsöguna Veðraþytur eftir Doris Lessing. Þetta er sjálfstætt framhald bókanna „Marta Quest" og „í góðu hjónabandi", sem út hafa komið á ís- lensku, og þriðja bindið af fimm í þeim meistaralega sagnabálki sem Doris Lessing nefndi síðar „Böm of- beldisins". Hjörtur Pálsson þýddi söguna. I kynningu Forlagsins segir: „Heimsstyrjöldin síðari er í algleym- ingi. Marta Quest hefur yfirgefið eig- inmann sinn og dóttur og eignast pilt í flughemum að elskhuga. Vissan um að hann verði sendur á vígstöðvamar og að hamingjudagar þeirra eigi sér kvöld, eykur einungis á Ijóma þeirra. Þau em systkini í alþjóðlegu bræðra- bandi ungra róttækÚnga og fyrirlfta það þjóðfélag Suður-Afríku sem þau hrærast í. En hvert stefna þau? Til hvers er að sitja og „skilgreina stöð- una" endalaust í landi spillingar, þar sem milljónum þeldökkra er haldið í ógnarklóm, og allar tilraunir til áhrifa virðast vonlausar? Og þetta unga og róttæka fólk virðist jafn ráðalaust í einkalífi sínu, því Marta hafnar aftur í hjónabandi sem hún kærir sig í rauninni ekki um — leiksoppur draumóranna." „Veðraþytur" er 302 bls. Bókin er prentuð í Danmörku. Verð 1.980 kr. innb., 990 kr. kilja. pétur ri ZOPHONÍASSON J VÍKINGS IÆKJARÆTT SKUGGSJA 6. bindið af Vík- ingslækjarætt Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur sent frá sér sjötta bindi af Vík- ingslækjarætt, niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjama Halldórsson- ar, hreppstjóra á Víkingslæk. Niðjatalið er verk Péturs Zophonías- sonar ættfræðings, er varð eldd gefið út nema að hluta á sinni tíð. Ætlunin er að leiða verk Péturs til lykta, en til em drög hans að síðari hluta niðja- talsins í vélriti Zophoniasar Péturs- sonar. í þessu sjötta bindi verksins er 2. hluti h-Uðar ættarinnar, niðjar Stefáns Bjamasonar. Þar sem ákveðið var að rekja niðja hans fram á þetta ár, en rrúða ekki eins og f fjórum fyrstu bindunum við þau mörk, er æviskeið Péturs Zophoníassonar setti verkinu, verður að skipta rúðjum Stefáns Bjamasonar í nokkur bindi, slíkur sem vöxtur ættarinnar hefur verið. Rúmur helmingur þessa bindis em myndir. Hvert bindi er sér um blað- síðutal, og bíður allsherjamafnaskrá Iokabindis útgáfunnar. „Víkingslækjarætt VI" er alls 357 bls. að stærð. Bókin var unrún og prentuð í Steindórsprenti og bundin í Félagsbókbandinu-Bókfelli. Frændsystkin í furðuheimi Út er komin á vegum Almenna bóka- félagsins ný bamabók eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson, Glerf jallið. Aðal- steinn er höfundur verðlaunabókar- innar „Dvergasteins", sem kom út í fyrra. Þetta er ævintýraleg saga um tvo bræður, Halla og Frikka, og frænk- una Gúndínu. Frikki týnist með dul- arfullum hætti og Gúndína og Halli fara að leita hans og lenda inn í furðuheim þar sem hættur leynast við hvert fótmál. Þar kynnast þau blákonum, musteri morgundraug- anna, óhugnémlegum illfyglum svo að eitthvað sé nefnt. Bókina myndskreytti Rebekka Rán Samper. Glerfjallið er 141 bls., prentuð í Prentstofu G.Ben. Verð kr. 1.295. Nýaldarkristur Bókin Endurkoma Krists er komin út á íslensku. Þessi bók er úr 25 bóka vönduðum ritflokki eftir Alice A. Ba- iley og er þetta önnur bókin á ís- lensku eftir þennan höfund. Bókin hefur verið þýdd úr ensku yfir á þýsku, frönsku, ítölsku, grísku, hol- lensku, dönsku og sænsku m.a. og verið seld í hundruðum þúsimda eintaka. í bókinrú er nýöldin skilgreind og fjallað um væntanlega endurkomu Krists og áhrif hennar á andlega framþróun mannsins og mannssálar- innar og er þessi fróðleikur settur fram á einfaldan og skilmerkilegan hátt. Efni bókarinnar skiptist í 7 kafla og fjallar sá fyrsti um almennar kenn- ingar varðandi komu Krists og ann- arra guðlegra sendiboða. Síðan er fjallað um þá möguleika sem Kristur stendur frammi fyrir og erfiðleika Krists samfara komu hans. í bókinrú er birt Ákall eða bæn sem Kristur er sagður nota daglega ásamt tugum þúsunda fólks um heim allan og not- ar fólk Ákallið á yfir 20 tungumálum. Einnig er fjallað um opnun Iaun- helganna, en Frímúrarareglan er ytra tákn þeirra leyndardóma, en Kristur mun opinbera þá. Fjallað er um ábyrgð mannanna við að koma á heimsfriði og framlag Krists í þeim efnum. Þetta eru nokkur af þeim við- fangsefniun sem bókin fjallar um. Bókaútgáfan Geislar gefur bókina út og að gefnu tilefrú skal tekið fram að þessi bókaútgáfa er alþýðleg, fram- sækin og sjálfstæð og er ekki á veg- um og ekki í tengslum við neina trú- flokka eða sértrúarsöfnuði. Bókin er 203 blaðsíður og er unrún að öllu leyti í prentsmiðjunni Odda og kost- ar úr búð 2.940 krónur. Hverjir eru ríkastir á íslandi? Út er komin bókin íslenskir auð- menn eftir Jónas Sigurgeirsson og Pálma Jónasson. Bókin „íslenskir auðmenn" er upp- Iýsingarit um vel á annað hundrað auðugustu íslendingana, þá sem eiga í hreinum eignum að minnsta kosd 200 milljórúr króna. Á bókarkápu segir að viðfangsefnið sé „viðkvæmt mál... Hér er hulunrú svipt af þeirri Ieynd sem umlykur auð og perúnga" og greint sé frá hverrúg auðurinn hafi safnast. Höftmdarrúr segja í formála að víða hafi verið leitað fanga við gerð bókar- innar. Stuðst sé við allar opinberar upplýsingar sem fyrir liggja, en þó byggist upplýstngar bókarinnar „ekk síst á viðtölum við fjölmarga sérfr jða aðila, sem skiljarúega haífa farið fram á nafnleynd". Margir cif þeim, sem um er fjallað, hafa sjálfir veitt upplýsingar, segja höfundar. Einhverjir hafi þó skorast undan og ekki hirt um að leiðrétta það sem kunrú að vera missagt. í bókinni eru fjölmargar myndir, bæði af einstaklingum og mannvirkj- um, auk margs konar skýringar- mynda. Hún er 320 bls. og prentuð i Prentstofu G.Ben. Útgefandi er Al- menna bókafélagið. Verð kr. 2.995. FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Jólaalmanak SUF Eftirfarandi númer hafa hlotið vinning i jólaalmanaki SUF: l.desemben 525,3570. 2. desemben 3686,1673. 3. desember: 4141, 1878. 4. desemben 1484, 2428. 5. desember 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389. 7. desember 3952, 5514. 8. desember 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169. 10. desember 5060, 289. 11. desember 1162,1601. 12. desember 1235, 522. 13. desember 4723, 2429 14. desember 288,2834. 15. desember 1334, 4711. 16. desember. 2833, 4710 17. desember 3672,1605. 18. desember: 3235, 4148. 19. desember 3243, 2497. 20. desember. 1629,1879. 21. desember: 1676, 1409. 22. desember 1473, 3436. Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins Dregið verður I nýárshappdrætti Framsóknarfiokksins 6. janúar 1993. Velunnarar flokksíns eru hvattir til aö greiöa heimsenda giróseðla fyrir þann tima. Ailar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91- 28408 eða 91- 624480. Óskum velunnurum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum stuðninginn á árinu sem er að liða. Framsóknarflokkurinn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.