Tíminn - 24.12.1992, Síða 2

Tíminn - 24.12.1992, Síða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 24. desember 1992 Tvö stúlkubörn fæddust í fyrra með alvarleg einkenni meðfæddrar bogfrymlasóttar: ..Enda þótt mörgum þyki gaman að umgangast ketti og gott að borða snöggsteikt kjöt, mætti á stundum minnast þess að hvort tveggja felur í sér hættu á bogfrymlasótt", segir í grein í Læknablaðinu. Bogfiymill er frumu- dýr, sem fjölgar sér inni í frumum og sýkir bæði dýr og menn. Dýr af katta- ætt eru aðalhýslar bogfrymla. Bogfrymlasótt er venjulega einkenna- og hættulaus sjúkdómur í heilbrigðum einstaklingum. Hins vegar er hann hættulegur og hefur alvarlegar afleiðingar í ónæmisbældum sjúklingum og fóstrum sem sýkjast. Á Landakotsspítala komu í fyrra tvö stúlkuböm, 10 vikna og 7 mánaða, með meðfædda bogfrymlasótt og áberandi einkenni hennar. Báðar höfðu dreifðar kalkanir í heila og sjónhimnubólgu og önnur var blind. Önnur var með smátt höfuð og hin flogaveik. Áður hefur aðeins eitt tilfelli greinst með vissu í barni fæddu 1979. „Tilgangurinn með skrifum þessum er að vekja athygli á að meðfædd bogfrymlasótt er til á íslandi", segja greinarhöfundar sem eru fjórir Iækn- ar bamadeildar Landakotsspítla. For- varnir, einkum fræðsla fyrir ófrískar konur, eru einfaldasta og hagkvæm- asta leiðin til þess að stemma stigu við þessum sjúkdómi. Ófrískum konum er ráðlagt að forð- ast umgengni við ketti og að borða ekki hrátt eða léttsteikt íslenskt kjöt. Þar sem tiltölulega fáar (4—17%) ís- lenskar konur hafa mótefni gegn bogfrymlum eru ófrískar konur einn- ig í töluverðri hættu á að smitast á ferðalögum erlendis. Þar ættu þær því sérstaklega að varast ketti, blóð- ugar steikur og illa þvegið grænmeti. Rannsóknir sýna, að um 40% kvenna sem sýkjast af bogfrymlasótt á meðgöngu, fæða sýkt böm. Um það bil 70% bama með meðfædda bogfrymlasótt eru einkennalaus við fæðingu en 15% hafa svæsin ein- kenni og verða þau yfirleitt fjölfötluð. Algengustu einkennin em sjón- himnubólga, krampar og kalkanir í heila. Önnur einkenni em gula, vatnshöfuð, hiti, lifrar- og miltis- stækkun, stækkaðir eitlar, blóðleysi, uppköst, smátt höfuð, ský fyrir auga, blæðingar, hækkun Iíkamshita, út- brot og lungnabólga. Tíðni bogfrym- ils er mjög misjöfn eftir löndum. í Mið- Ameríku og Frakklandi, em allt að 90% fólks með mótefni gegn bogfrymlum í blóði. Á íslandi hafa flestar rannsóknir sýnt 5—7% tíðni, sem er mun lægra en algengast er er- lendis. Bogfrymill er gródýr, náskylt malar- íu-sýklinum. Hann kýs sér bólfestu inni í fmmum og fjölgar sér þar kyn- lausri skiptingu, að undanskyldum meltingarvegi katta þar sem lífveran fjölgar sér með kynskiptingu. Bogfrymlasótt finnst þess vegna nær eingöngu þar sem kettir em. Allar bogfrymlasýkingar koma beint eða óbeint frá gróblöðmm í jarðvegi, sem berast þangað með kattaskít. Kettir smitast auðveldlega með hráum kattamat, músum og fuglum. Helsta smitleiðin í menn er síðan gegnum meltingarveg. Gróblöðrur úr jarðvegi geta borist ofan í menn með meng- uðu vatni og illa þvegnum ávöxtum eða grænmeti. Böm að leik í mold eða sandi geta einnig smitast á þenn- an hátt. Fóstur smitast um fylgju. Móðir sem fær áunna bogfrymlasótt á meðgöngu, smitar fóstur á þann hátt. Mæður beggja stúlkubarnanna sem lagðar voru inn á Landakot með bogfrymlasótt í fyrra höfðu umgeng- ist ketti á meðgöngu. Önnur þeirra hálfvillta sveitaketti sem veiddu fugla og mýs sér til matar. Hin borðaði einnig hrátt kjöt. U.þ.b. 30% íslensks sauðfénaðar hafa mótefni gegn bogfrymlum í blóði, sem er svipað og í nágrannalöndunum. Greinarhöfundar í Læknablaðinu eru: Ólafúr Thorarensen, Pétur Bene- dikt Júlíusson, Ólafur Gísli Jónsson, og Þröstur Laxdal frá Bamadeild Landakotsspítala. - HEI Rjúpnaveiði meiri en búist var við í haust Rjúpnaveiðitímanum lauk í fyrradag. „Menn hafa bara verið að veiða vel og mun betur en fyrir ári síðan“, segir Verðlaunahafi Krossgátusíðu 3 Dreginn hefur verið út verðlauna- hafi í verðlaunakrossgátunni á Krossgátusíðu 3. Lausnarorðið var „Styrjaldarhætta". Það var nafn Dagnýjar Karlsdóttur, írabakka 24, sem dregið var út og fær hún því verðlaunin sem voru vöruúttekt hjá Sérvöruversluninni á 2. hæð, Kaupstað í Mjódd í Reykja- vík. Við óskum Dagnýju til ham- ingju. Sverrir, varaformaður Skotveiðifélags íslands, sem telur að betur hafi ræst úr rjúpnaveiði í ár en horfur bentu til í haust. Sverrir segir að vafasamt sé að full- yrða mikið þar sem veiðitíma er nýlok- ið. Hann hefur samt fregnað að marg- ir veiðimenn séu sáttir við sinn hlut og nefnir þar sérstaklega svæðið í kring um Húsavík. Þá segir hann að gott hljóð sé í veiðimönnum á Vest- fjörðum og sunnanverðum Austfjörð- um. Hann bætir við að vegna ótíðar hafi skotveiðimenn haft betra tækifæri en áður til að leita rjúpna í kjarri. „Þá minnkar svæðið sem hún er á og hún kemur niður úr fjöllunum og niður í skóg og kjarr. Það er aldrei skemmti- legra að veiða rjúpu heldur en í kjarri", segir Sverrir. -HÞ VÉLSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS Aðalfundur Aðalfundur Vélstjórafélags Islands verður haldinn mið- vikudaginn 30. desember 1992 kl. 16.00 að Borgartúni 18, kjallara. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Á eftir venjulegum aðalfundarstörfum mun Magnús Jóhannes- son ráðuneytisstjóri flytja erindi um umhverfismál. Félagsfundur vélstjóra á fiskiskipum Mánudaginn 28. desember verður haldinn félagsfundur um málefni vélstjóra á fiskiskipum. Fundurinn verður haldinn að Borgartúni 18, 3. hæð og hefst kl. 13.00. Félagsfundur vélstjóra á farskipum Þriðjudaginn 29. desember kl. 13.00 hefst svo fundur með vélstjórum á farskipum. Sá fundur er einnig haldinn að Borgartúni 18, 3. hæð. Siguröur Bessason starfsmaöur Dagsbrúnar bendir á vegsummerki eftir innbrotiö í fyrrinótt. Mynd Áml Bjama. Brotist inn á skrifstofu Dagsbrúnar: Atvinnuleysisbótum stolið Andvirði 10 milljóna kr. var stolið úr. skrifstofu Dagsbrúnar í fyrrinótt er um 200 kg peningaskápur var íjar- lægður þaðan. í skápnum voru 300 til 400 þúsund kr. í peningum en afgangurinn var ávísanir sem átti að greiða hátt í 500 atvinnulausum félagsmönnum í gær- morgun. Þrátt fyrir það tókst að greiða bætumar út eftir hádegi í gær. Þjófn- aðurinn uppgötvaðist snemma í gær- morgun er starfsmenn skrifstofúnnar mættu til starfa. Skrifstofan er til húsa á annarri hæð húss við Lindagötu og hafði hurð verið brotin upp. Svo virð- ist sem þjófarnir hafi annað hvort náð að fela sig í húsinu eða lagt leið sína um húsnæði leiklistaskólans þar sem ekki hafði verið átt við útidyrahurð hússins. Á skrifstofu Dagsbrúnar var unnið fram til kl 2 í fyrri nótt við að undirbúa greiðslu atvinnuleysisbóta. Þar á bæ voru menn að vonum slegnir yfir því að til væru einstaklingar sem gerðu sér atvinnuleysisbætur að þýfi. -HÞ Byssumaður afvopnaður Lögreglan i Kópavogi afvopn- aði 27 ára gamlan byssumann í fjölbýlishúsi í fyrrinótt. Tveir lögreglumenn fóru í út- kallið þar sem maðurinn hafði brotist inn á heimlli fyrrum sambýiiskonu sínnar. Þegar þelr komu á staðinn stökk maðurinn að þeim með hlaðna hagiabyssu, svokallaöa pumpu, og horfðu lögreglumennimir í hlaupið. Lögreglumennirnir höfðu ekki upplýsingar um vopnaburó mannsins og kom það því þeim í opna skjöldu. Þeir náðu að af- vopna hann í skyndingu og var þá byssan hlaðin fjórum skotum en maðurinn hélt á einu í hend- inni. Maðurinn hafði ónáðað konuna fyrr um nóttina en var þá óvopn- aður. Hann mun hafa íbúð á leigu í þessu sama húsi. Búist er við að maðurinn verði úrskurðaður í gæsluvarðhald og ef til vill gert að sæta geðrann- sókn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.