Tíminn - 24.12.1992, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.12.1992, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur24. desember 1992 Tímiim MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FELAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð í lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Hátíð friðar Annasamir dagar eru nú að baki og jólin ganga í garð. Eðli þeirra er að vera hljóðlát hátíð, þrátt fyrir þann ys og önn sem jólaundirbúningnum er samfara. Nú um jólin leitar það fremur en áður á huga hugs- andi manna hve margir búa við örðugar ytri aðstæður og kröpp kjör. Fréttir berast um það frá þeim, sem rétta náunganum hjálparhönd, að óvenjumargir séu hjálpar þurfi um þessi jól. Það hefur reyndar ávallt verið svo að margir standa höllum fæti í lífinu, en hins vegar eru þeir fleiri en nokkru sinni nú síðari árin sem eru án at- vinnu um þessar mundir. Starf þeirra áhugamanna og félagasamtaka, sem láta sig varða hagi þeirra sem höllum fæti standa, verður seint ofmetið. Allar góðar óskir fylgja þessu starfi og það ber að styðja með ráðum og dáð. Sem betur fer eru margir aflögufærir og rúmlega það. Hinir betur settu ættu að sýna hófsemi í háttum sínum um jólin og láta eitthvað af hendi rakna. Það gera margir, sem betur fer. Við eigum að strengja þess heit á jólum að leggja okk- ar lóð á vogarskálina, þótt lítið sé, gegn misskiptingu lífsgæðanna, og láta okkur þá varða sem illa hafa orðið úti í lífsbaráttunni, einhverra hluta vegna. Jólin eru fagnaðarhátíð. Þau eru til þess að sameina fjölskyldur í hvíld og tilbreytingu. Þrátt fyrir skraut- lega ytri umgjörð er boðskapur þeirra einfaldur og tær. Það er boðskapur friðar og kærleika sem hefur verið fluttur óbreyttur mann fram af manni, öld eftir öld. Fyrir þá, sem eru önnum kafnir, er friður jólanna kær- kominn. Sá friður er eins og hver kýs sér hann. Sumir halda kyrru fyrir, aðrir heimsækja fjölskyldu og vini. Þjóðin er ekki öll steypt í sama mót, sem betur fer, né hefur það sama fyrir stafni. Enginn ætti að þurfa að vera bókarlaus um þessi jól sem hefur til þess efni og ástæður að verða sér út um góða bók. Bækur, ásamt geisladiskum með tónlist hvers konar, skipa veglegan sess í jólagjafaflóðinu. Jólahátíðin skapar það markaðstorg sem listamenn þessarar þjóðar bera afurðir sínar á. Auðvitað er margt misjafnt að gæðum á því markaðstorgi. Svo hlýtur æt- íð að verða. Hitt blandast engum hugur um að þrátt fyrir það er margt þar gott og eigulegt. Sumt lifir og verður sígilt, annað fellur í gleymsku. Tíminn flytur þá ósk á aðfangadag jóla að sem flestir geti notið hátíðarinnar, fundið kyrrð og helgi hennar og tekið undir með Hannesi Péturssyni skáldi, sem byrjar kvæði sitt „Ljós og hljómar“, sem fjallar um jóla- hátíðina, með þessum hendingum: Jólanótt — og ég kveikti á kerti rétt eins og forðum litlu kerti. Það logar á borði mínu unirþarsínu lífi slær Ijóma á þögnina. Tíminn óskar lesendum sínum og öðrum landsmönn- um gleðilegra jóla. Sr. Kristján Björnsson, Hvammstanga: Tjamarkirkja á Vatnsnesi. Það gerðist í smábæ einum í Skotlandi, Dunfermline, árið 1784 að skyndilega birti yfir ann- ars fábreytilegu heimilishaldi. Hjónin George og Jean höfðu átt um sárt að binda eftir missi fjög- urra barna sinna af fimm og áttu ekki af veraldlegum auð að státa. Þau eignuðust aldrei eigin jarðar- part að yrkja um ævina, þótt þau ynnu alla tíð við landbúnað. Ljóminn inn í líf þeirra var sann- kallaður sólargeisli eins og enn þann dag lýsir upp tilveru þeirra er eignast son eða dóttur. Alltaf er ánægja af bömum og áhyggjur eru ekki nálægt þegar bamungi er annars vegar, því gamalt máltæki segir að brauð fylgi barni hverju. En hvers vegna er ég að taka dæmi um barnsburð aftan úr átj- ándu öld, sem er einhver sú dul- asta í sögu íslands og líklega sú er státar af minnsta risi menningar- sögunnar? Það er til að undir- strika að alla daga er mannkyni að fjölga og nýir kornungar að líta heimsins ljós, hvað sem menn- ingu og efnahag líður. Mitt í þess- um sögðu orðum hringdi einmitt til mín móðir á Hvammstanga og gerði viðvart um skírn á jóladög- um. Þetta hefur alla tíð verið svo og verður vonandi enn um hríð, þótt við í kristninni segjumst lifa á síðustu tímum, — efstu stundu. Einn kornunginn, sem ég tek hér dæmi af frá fyrri tíð, hlaut á fjórða degi nafnið Ebenezer. Það nafn er dregið af steini eða hellu sem Samúel spámaður reisti upp fólki sínu til minningar um aðstoð Guðs í stríði þess við Filistea, helstu ógn hins útvalda lýðs á þeim tíma. Þegar minningar- steinninn var risinn, sagði Samú- el: „Hingað til hefir Drottinn hjálpað oss.“ Dró steinninn af því heiti sitt eftir hans fyrirsögn og var kallaður hjálparhellan æ síð- an. George, sem ég nefndi í upp- hafi, var minnugur sögunnar úr fyrri Samúelsbók og fannst við hæfi að barnið sitt unga bæri vott um trú þeirra hjóna til Guðs, sem hafði er hér var komið sögu verið hjálparhella fjölskyldunnar á erf- iðum tímum. Frá George og Jean segir í nýútkominni bók eftir Fel- ix Ólafsson um Ebenezer Hender- son, er varð með dvöl sinni hér á landi 1814 og ‘15 kveikjan sem tendraði áhuga manna fyrir stofn- un Hins íslenska Biblíufélags. Nú er engin sérstök ástæða til að dýrka dauðlega menn, jafnvel þótt þeir skari framúr öðrum í því að breiða út Biblíuna eða stunda trú- boð. Það er út af fyrir sig ómælan- legt og því ekki í okkar valdi að hampa einum til lofs og vegsemd- ar umfram öðrum. Saga Ebenez- ers er hins vegar góð til umhugs- unar á jólum, þegar annríki að- ventunnar sleppir skyndilega tök- um sínum á nútímamanninum og við föllum í frjálsu hrapi niður til dúnmjúkrar lendingar í friði jól- anna. Upphaf ævi hans er áminn- ing til okkar sem þykjumst eiga við kreppu að stríða. Þá minnir hún líka ósjálfrátt á fæðingu Jesú inn í fátækt og allsleysi óreyndrar móður. Hún minnir ósjálfrátt á ungan mann sem lærði til iðn- greina, en lagði iðnina ekki fyrir sig sem lífsstarf. Ebenezer lærði til klukkuviðgerða og skósmíða, en Jesús til trésmíða. Sjálfsagt hafa þeir báðir verið vakandi í þessum veraldlegu gildum sínum og getað gripið til handverksins ef á þurfti að halda, þótt fátt segi af smíðagripum þess síðarnefnda. Fæðing barns er undur. Það er undur sem læknisfræðilega hefur verið skýrt til hlítar að kalla. Fæð- ing Jesú var bæði venjulegt og sérstakt undur, rétt eins og með- ganga ungu móðurinnar, Maríu. Ganga hennar á fjallaslóðum um nálægt kaldasta tíma ársins er undur. Það sem þó er mesta undr- ið er að Guð skyldi gerast maður með fæðingu Jesú í þennan sí- svanga heim ónægta og þurfta. Þannig steig konungurinn fram á völl mannkynssögunnar: berstríp- að mannsbarn, sem háð var skjóli og næringu við móðurbarm. Sr. Kristján Björnsson. HIIRI.giniMli Á JÓLUM Fram til atburðanna á Betle- hemsvöllum hafði Guð sent þjóð sinni tákn og veitt henni blessun í árhundruð, án þess að hún treysti sér til að leggja það á minnið nema skamma hríð. Lýðurinn féll stöðugt frá og lagðist í freistni og tilbað alls kyns guði og goð, ef glitti á fótstalla þeirra. Fram til þessa hafði Drottinn hjálpað þeim, en samt mundi fólkið það ekki. Hvaða tryggingu hafði þá Guð fyrir því að lýðurinn gæti frekar munað eftir því til fram- búðar að hann sendi einkason sinn til manna? Enga. Hann gerði það sem aðeins var hægt að gera einu sinni: að ganga sjálfur inn í mannleg kjör, fallvölt og óviss eins og þau gjarnan hafa verið. Þetta hlýtur hann að hafa gert í elsku til manna, þrátt fyrir dæma- lausa reynslu af heimtufrekri og illa alandi þjóð, sem öllu gleymdi um leið og hann var genginn fyrir næsta horn. „Hvar er Guð minn núna?“ er hrópað ef lítillega bjátar á, ef hann er þá yfirleitt í lífsmynd þjóðanna sem telja sig kristnar. Svar Biblí- unnar er skýrt: „Hingað til hefir Drottinn hjálpað oss“ (1. Sam. 7.12). Það má heita tryggt að við gleymum ekki jólatilstandi, því kaupmenn og þjónustuaðilar minna með sínum sérstaka hætti á það með tilstyrk fjölmiðla og pésa. Allir keppast við að komast í jólaskapið og reyna að horfa björt- um augum fram í gegnum svart- asta skammdegið. Kannski glittir á eitthvað. Kannski færðu and- virði sjónvarpsins endurgreitt eft- ir tíu ár og því ekki að slá til. Það gleymist hins vegar að hingað til hefur Drottinn hjálpað okkur en ekki tæknin eða nokkur annar hjáguð sögunnar eða nútímans. Aðeins Drottinn getur hjálpað og því ætti mannkyn ekki að eyða tíma, fyrirhöfn eða fjármunum í leit að annarri bjargfestu, svölun eða mettun í stað þess að líta til hjálpar Guðs. Allt annað er hé- gómi og það er hámark eftirsókn- ar eftir vindi að láta leiða sig áfram í girnd til alls er glóir. Aðeins einn eðalsteinn hefur þann ljóma sem reynst hefur sannur geisli gleði og hamingju. Blessun okkar er sú að geta opnað fyrir þann glóanda inn í líf okkar, því að Drottinn gerðist maður til að veita birtu og yl inn í líf allra manna. Spurningunni um það hvort Maríu guðsmóður hafi verið kalt þessa vetrarnótt á Betlehems- völlum er því vikið til hliðar. Það er ekki spurning. Hún vissi að fram til þessa hafði Drottinn hjálpað. Hann hafði gefið og hún tekið við. Alið því ekki áhyggjur í brjósti ykkar um það hvernig afkoman verður. Hagur heimilanna og landshagur er ekki á niðurleið á meðan þjóðin og leiðtogar hennar eru þess minnug að hingað til hef- ur Drottinn hjálpað börnum sín- um. Hann hlúir að okkur eins og móðir vefur barn sitt reifum eða hreinu líni eftir efnum og ástæð- um. Hann elur okkur á kærleika sínum, ef við aðeins viljum kann- ast við hann sem guð í lífsmynd- inni. Þetta er glefsa af þeim fagn- aðarríka boðskap sem fluttur er í kirkjunni um jólin. Megi hátíðin nú verða ykkar minningarsteinn og hjálparhella í hækkandi sól. Guð gefi ykkur gleðileg jól og far- sæld á komandi ári.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.