Tíminn - 24.12.1992, Síða 7

Tíminn - 24.12.1992, Síða 7
Fimmtudagur 24. desember 1992 Tíminn 7 B amab ókmenntir f þessu verkefni valdi ég mér bók eftir Elfu Gísladóttur. Bókin heitir Solla bolla og Támína. Myndskreyting er eftir Gunnar Karlsson. Bókin er gefin út 1989 hjá Iðunni og prentuð á íslandi. Ég fékk þessa bók lánaða til þess að lesa í samverustund í Leikskól- anum á Hvammstanga. Ég var með sex börn, 4 og 5 ára. Einung- is ein stúlka hafði séð þessa bók áður og var það þó nokkuð síðan. Hún hafði þó aldrei verið lesin fyr- ir hana svo það kom engan veginn að sök. í þessu kennslubréfi ætla ég að taka hvern þátt fyrir sig varð- andi bókina og byrja á uppeldis- lega þættinum fyrst Uppeldislegur þáttur bókarinnar Þetta er bók í 4. flokki, þ.e. bók með myndum þar sem textinn er aðalatriðið. Útlit bókarinnar er spennandi. Stór og skýr mynd af aðalpersónunum að framan, og að aftan eru svipmyndir úr sögunni auk ofurlítils fróðleiks um persón- ur bókarinnar. Bandið á bókinni er ekki nógu gott. Hún losnar því miður of auðveldlega af kilinum. Pappírinn er þykkur og góður. Hann er reyndar með glans-áferð, sem gerir það að verkum að það glampar á myndirnar í ákveðinni birtu. Myndimar em skýrar, vel prent- aðar og stórar. Myndin af söguper- sónunni Sollu eru ýktar. Hún er t.d. með skærgræn augu, gult hár, kringlótt nef og er allt of lítil mið- að við þann aldur sem ég gef mér. Ég gef mér það að hún er ca. 7 ára, vegna þess að henni er leyft að fara ein í bíó, þ.e. án fullorðinna. Auð- séð að um ævintýri og ímyndaðan heim er að ræða, bæði í myndum og máli. Litimir í myndunum eru sterkir en fáir. Letrið er stórt og skýrt. Hægt að lesa auðveldlega bæði á „hvolfi" og „til hliðar". Sagan er sögð samfelld, án kafla- skipta eða aukafyrirsagna. Það vantar tilfinnanlega hreint „saurblað". Á saurblaðinu sem er, eru bæði myndir og upplýsingar um höfunda, útgáfufyrirtæki, ár og prentun. Myndirnar samræmast vel text- anum á hverri síðu. Þær segja ekki allt, en margt. Textinn er aðalat- riðið. Bókmenntalegur þáttur bókarínnar Solla bolla og Támína er saga um stelpu á að giska 6-7 ára sem er einmana. Hún er einmana því krakkamir vilja ekki leika við hana, heldur em alltaf að stríða henni á því hvað hún er feit. Hún á enga vinkonu, en það er eitt af því helsta sem hún þráir að eignast. Málfarið í þessari bók er auð- skiljanlegt, en þó ekki of bama- legt. Ekki mikið af nýjum orðum. Sagan er skipulega sögð, tímaröð augljós, en þessi saga gerist á ein- um degi. Ekki hægt að ráða í á hvaða árstíð sagan gerist, en með tillit til fyrstu myndarinnar, þá gæti þetta verið að vori, eða um sumar (böm sjást leika úti með bolta, badminton og að sippa). At- burðarás er í réttri röð og atriði em vel undirbúin, en koma þó á ó- vart. Bömunum fannst hún bæði spennandi og fyndin. þessi saga er frumleg og fersk. Hún lýsir sam- bandi stelpu og ímyndaðrar vin- konu sem reynist vera stóra táin á henni. Þær fara saman í bíó og margt skemmtilegt gerist bæði áður en þær fara og líka í sjálfu Merkir draumar Ufheimar draumanna. Safn skráðra drauma. 224 sfður. Höfundur Ingvar Agnarsson. Útgefandi Skákprent, 1992. Bækur Ingvars Agnarssonar em ritaðar á góðri íslensku og fram- setning hans er ljós. Þær hafa kom- ist til lesenda á einhvern þann hátt, sem minnst er í ætt við sölu- mennsku og skipulagningu. Fólk finnur á sér að þama er eitthvað gott að koma, eitthvað sem hafa má ánægju af og treysta. Bókin Líf- heimar draumanna, sem er að koma út núna fyrir jólin, er um efni sem mörgum er hugleikið. Því að alla menn dreymir, þó að misjafnlega skýrt sé, og það sem menn þekkja af eigin raun vilja þeir skilja eða fá skýrt. Og menn hafa gaman af draumum, einnig þeir sem minnst spyrja um eðli og tilgang, svo að hér gildir það, sem vitur maður hefur sagt: „Sá sem kemur með margt, hefur mörgum nokkuð að færa.“ Ég hefði haft gaman af — talið þarft verk — að fara í saumana á þessu mjög svo athyglisverða safni draumfrásagna, en læt mér nægja að benda á, að hér er vísindalega og skipulega að unnið. Höfundur bók- arinnar hefur um langt skeið vand- lega skráð drauma sína nýdreymda — og furðulega auðug er sú reynsla sem hann hefur á þessu sviði: stund- um næsta erfið, næsta ógnvænleg, en miklu oftar fögur og heillandi. En síðan tekur hann til við að skýra hvern draum, sem skráður er, og beitir hann þar skýringaraðferð doktors Helga Pjeturss, mikils vís- indamanns. Gengið er að því vísu, að heili mannsins sé ekki af eigin rammleik fær um að búa til skynj- anir. Þegar menn hafa lært að bera saman skynjun og minningu eða ímyndun, geta þeir farið að athuga drauma á vísindalegan hátt. Og þetta er það sem Ingvar hefur gert Ýmsar athuganir varðandi stað- hætti, náttúrufar og mannlíf í öðr- um sólhverfum ætla ég munu verða taldar til frumathugana í stjörnulíf- fræði, þegar fram líða stundir. Framtíðinni mun þykja sem draumasafn Ingvars sé eitt hið al- merkasta, sem nokkru sinni hefúr skráð verið — á þessum myrku mið- öldum sem enn eru. En hitt þykir mér nær óhugsandi, að nokkur vel bóklesandi maður taki þessa bók upp án þess að virðast hún áhuga- verð. Sumir af draumum Ingvars eru eins og drög að bestu skáldsögum. En að búa til skáldskap er þó það, sem allra síst er stefnt að með þessu safni hans. Ekki mega menn búast við spá- fræði í þessari bók. Spáfræðina mis- virðum við ekki — þó að hún gangi oft út í öfgar — því að það er á leið- um hinnar nýju draumafræði sem hún kvnni að geta fengið nokkra uppreisn — eftir að upplýsing 18., 19. og 20. aldar hafði útskúfað henni (af eðlilegum ástæðum). En þegar menn fara að skilja, að „æðri vit- und“ er hluti af heiminum sjálfum, en ekki utan hans, horfa þau mál allt öðru vísi við. „Taktu eftir þessum manni. Af hon- um er nokkurs að vænta. Stafirnir eru stórgerðir og óvaningslegir, eins og hjá erfiðismanni, en vandvirkni og heiðarleiki lýsir sér í skriftinni, og eitthvað umfram það.“ Þannig (efnislega rétt, en þó ekki orðrétt) lýsti Málfríður Einarsdóttir rit- handafræðingur skrift Ingvars Agn- arssonar, meðan við vissum um hann hérumbil ekki neitt. Þorsteinn Guðjónsson bíóinu. En bíóferðin og þðað sem gerist þar er hápunktur sögunnar. þar rennur saman stríðni við Sollu, hún festist í stól af því hún er svo feit, og táin hennar er risa- stór og öll útötuð í súkkulaði. Bókin segir sögu sem endar vel. Það sem gerir hana líka ævintýri, er táin sem getur talað. Við skoð- uðum tærnar á krökkunum, en gátum engan veginn greint andlit á stóru tánni. Þau komust að þeirri niðurstöðu að þetta væri bara „plat“. Ég myndi hiklaust lesa þessa bók fyrir eldri son minn, en hann er tæplega 3ja ára í dag. Félagslegir þættir bókarinnar í þessari bók er ekki minnst á aðra fjölskyldumeðlimi en ömmu hennar. Kemur fyrir sem þybbin og hlý heimavinnandi amma. Hér er tekið á því vandamáli að vera ekki eins og öll hin börnin og vera strítt út af því. Hún er feit, henni er strítt og hún er einmana. Amma hennar virðist ekki finna neitt að því þótt hún sé feit. Hún fær heitt kakó og sætabrauð hjá henni. Ömmu hennar finnst hún vera fal- legasta barn sem hún þekkir. Til þess að hugga hana býður hún henni í bíó, en býðst ekki til þess að fara með henni, heldur sendir hana eina. Þetta atriði finnst mér ekki vera til þess að bæta vellíðan telpunnar, heldur frekar til þess að auka það, eins og kemur síðan fram. Þessi saga gerist að öllum líkindum í Reykjavík og því gátu krakkarnir hér á Hvammstanga t.d. ekki samsamað sig með henni hvað varðar bíóið. Því hér er ekk- ert slíkt. Að öllu jöfnu vorkenndu þau henni og við ræddum um að ekki væri fallegt að stríða öðrum, hvort sem þau væru eitthvað öðruvísi t.d. á litinn eða í laginu. Þau voru öll sammála um það. Eftirmáli Það sem einna helst stendur þessari bók fyrir þrifúm, er það að þessi saga var sýnd á Stöð 2. Við náum ekki þessari sjónvarpsstöð svo ekki höfum við séð þetta og ég veit því þar af leiðandi ekki hvem- ig þetta var framreitt, en aðrir leikskólar, þar sem Stöð 2 næst, ættu varla að vera með þessa bók. En þetta fer þó eftir því hvemig sjónvarpsefnið var. Samt finnst mér sagan svo frumleg og skemmtileg að ég tel hana stand- ast tímans tönn, en öll útþynning á efni í hvaða mynd sem er finnst mér aldrei eiga rétt á sér. Með útgáfu þessarar bókar tel ég höfundana vera að reyna að miðla ákveðnum boðskap til bama og jafnvel líka til fullorðinna. Hvort um gróðasjónarmið er einungis um að ræða vil ég ekki tjá mig um. En teikningamar og textinn finnst mér vera vel þess virði til þess að miðla til annarra bama. Kristján Björnsson SVO ALLIR RAFMAGN I NOG JÓLIN n c 3 O) c m •>. O) 3 n <o E >. o> O) Jafnið notkun yfir daginn Reynið að dreifa eldun yfir daginn eftir því sem kostur er, einkum á aðfangadag og gamlársdag. Notið ekki mörg straumfrek tæki samtímis að óþörfu, t.d. rafmagnsofn, hraðsuðuketil, þvottavél, þurrkara og uppþvottavél. Forðist brunahættu Farið varlega með öll raftæki til að forðast hættu á bruna og raflosti. Gamlar, slitnar leiðslur og lélegar jólaljósasamstæður geta verið hættulegar. Eigið aiia vartappa (flestum nýrri húsum eru útsláttarrofar, en í eldri húsum eru vartappar (öryggi) og rétt er að eiga birgðir af þeim. Helstu stærðir eru 10 amper (Ijós), 20-25 amper (eldavélar o.fl.) og 35 amper (aðalvör fyrir íbúð). Ráðstafanir í straumleysi Ef straumlaust verður skal gera eftirfarandi ráðstafanir: Taka straumfrek raftæki úr sambandi, skipta um viðkomandi vartappa ef straumleysi nær til hluta íbúðar, skipta um aðalvar ef straumleysi nær til allrar íbúðar. Lekastraumsrofi Hafi lekastraumsrofi leyst út er rétt að taka öll raftæki úr sambandi og reyna síðan að setja rofann inn. Síðan má setja tækin í samband aftur, eitt af öðru, þar til bilaða tækið finnst. Bilanatilkynningar Tekið er á móti tilkynningum um bilanir í síma 686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er einnig tekið á móti bilanatilkynningum til kl. 19 í síma 604600. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! * RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 108 REYKJAVÍK SÍMI 60 46 00

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.