Tíminn - 29.12.1992, Blaðsíða 2
Tíminn
Þriðjudagur 29. desember 1992
Islendingar nú 2.625 fleiri heldur en fyrir ári:
íslendingar voru orðnir 262.202 að tölu þann fyrsta desember s.i.
samkvæmt bráðabirgðatöium Hagstofunnar. Hafði þeim því fjölgað
i m 2.625 manns (1%) á einu ári, sem er nokkru minna en næsta
ár á undan. Fjölgunin varð nær öll á höfuðborgarsvæðinu, en utan
þess búa nú aðeins 300 fleiri en fyrir ári. Bein fólksfækkun varð t
þrem kjördæmum: Á Vesturlandi fækkaði um 70 manns. Á Vest-
fjörðum fækkaði enn, eins og gerst hefur á hveiju ári frá 1981, nú
um 75 manns. Á Austurlandi fækkaði um 120 manns og hafa íbú-
ar þar ekki verið færri síðan 1981
Nær helmingur fólksfjölgunarinn-
ar í fyrra varð í Reykjavík. íbúum
hennar fjölgaði um rúmlega 1.220
milli ára og eru nú í fyrsta sinn yf-
ir 100.000, eða nánar sagt 100.865
manns. Hlutfallslega fjölgaði fólki
þó meira í nágrannasveitarfélög-
unum, um 2,2%. Fjölgunin varð
mest í Kjalarneshreppi, 6,2% en
Hafnarfjörður kom næstur með
3,1%. Raunar vekur mikill upp-
gangur Hafnarfjarðar á síðustu ár-
um sérstaka athygli. Fyrir áratug
voru íbúar Kópavogs nærri tvö
þúsund fleiri. Síðan hefur Hafn-
firðingum fjölgað um rúmlega
29% og munur þessara tveggja
bæja er nú kominn niður í rúm-
lega 700 manns. Með sömu þróun
gæti Hafnarfjörður orðið næst
stærsti kaupstaður á íslandi eftir
aðeins 2 til 4 ár.
Mannfjölgunina á þessu ári eigum
við því að þakka að tala fæddra er
um 2.800 hærri en tala dáinna. Á
hinn bóginn er talið að um 200
fleiri flytji af landi brott heldur en
til landsins. Það stafar af því að
fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu
nú úr landi heldur en hingað
komu.
Horfur þykja á að barnsfæðingar
verði ennþá fleiri á þessu ári en í
fyrra, eða um 4.600 alls. Á síðustu
tuttugu árum hafa aðeins einu
sinni (1990) fæðst fleiri börn. Þeg-
ar hins vegar hefur verið tekið tillit
til þess hve konur á barnsburðar-
aldri eru nú margar sýna útreikn-
ingar Hagstofunnar að svokölluð
fæðingartíðni hefur aðeins á árun-
um 1984—87 verði minni heldur
en hún er árið 1992.
Á síðustu tíu árum hefur lands-
mönnum fjölgað um 26.750
manns. Yfir 95% þeirrar fjölgunar
hefur orðið á höfuðborgarsvæðinu.
En utan R-kjördæmanna tveggja
eru íbúar nú rúmlega 400 færri
heldur en fyrir áratug.
Suðureyri mun eiga metið í fólks-
fækkun að þessu sinni. Þar hefur
fólki fækkað um 8% á þessu ári.
íbúar Suðureyrarhrepps eru nú að-
eins 322 og hafa ekki verið færri
síðan fyrir 1910. Þeim hefur nú
fækkað um rúmlega 200 frá 1978
þegar íbúar Suðureyrar urðu flest-
ir. í fjórum strjálbýlishreppum við
ísafjarðardjúp búa nú aðeins 128
manns. En þar bjuggu 304 árið
1970, rúmlega 500 um miðja öld-
ina og nær 1.400 árið 1910.
Á Austurlandi fækkaði fólki á
flestum stöðum, mest um 4,9% á
Fáskrúðsfirði, um 2,7% á Seyðis-
firði og í Neskaupstað og um 2,6%
í Vopnafjarðarhreppi. Á Seyðisfirði
hefur bæjarbúum nú fækkað um
rúmlega áttunda hluta á þrem ár-
um.
Fólki fjölgaði hins vegar um nær
300 manns á Norðurlandi-eystra,
fyrst og fremst á Akureyri, en þó
hlutfallslega mest á Þórshöfn
(4,1%), Ólafsfirði (2,7%) og Eyja-
fjarðarsveit.
Suðurland er einnig í plús, með
122 manna fjölgun á árinu, sem er
öll og meira en það á meginland-
inu, þar sem fólki fækkaði um 66
manns í Vestmannaeyjum. Hlut-
fallslega fjölgaði mest í Hveragerði
(4,4%) og í Rangárvallahreppi
(3%). - HEI
Ránið á peningaskáp Dagsbrúnar:
Enginn verið handtekinn
Samkvæmt upplýsingum Rlr. hefur enginn verið handtekinn eða
yfirheyrður vegna peningaskáps- ránsins á skrifstofu Dagsbrún-
ar aðfaranótt Þorláksmessu. Þá hefúr ekki heyrst af tilraunum til
að innleysa stolnar ávísanir. Greiðlega gekk að liðsinna þeim fé-
lagsmönnum sem áttu rétt á bótum og var þeim greitt út í pen-
Eins og kunnugt er var brotist inn á
skrifstofu verkamannafélagsins
Oagsbrúnar fyrir jól og peninga-
skápur numinn á brott með ávísun-
um, peningum og verðbréfum að
verðmæti hátt í 10. 5 milljónir
króna. Þar af voru peningar að and-
viröi 400 þúsund krónur en milli 9
og 10 milljónir króna voru ávísanir
sem greiða átti félagsmönnum
Dagsbrúnar á Þoriáksmessu. Hörð-
ur Jóhannesson yfirlögregluþjónn
hjá Rlr. vill vara fólk við að kaupa
ávísanir á Landsbankann með
stimpli Dagsbrúnar gefnar út 22.
og 23. desember.
Hjálmfriður Þórðardóttir ritari
stjómar Dagsbrúnar segir það mik-
ið lán í óláninu að engar skemmdir
hafi veriö unnar á búnaði og gögn-
um félagsins. Hún segir að tekist
hafi að liðsinna ölltun sem áttu rett
á greiðslum á Þoriáksmessu og
bætir við að úthlutuninni hafi lokið
unáir kvöld þann dag. Næst verða
atvinnuleysisbætur greiddar út
fimmtudaginn 7. janúar og á
Hjálmfriöur ekki von á öðru en þær
verði greiddar út sem fyrr á skrif-
stofu félagsins. -HÞ
Hveragerði:
Jarðskjálfta-
hrinan í rénun
Jarðskjálftahrinan í Hveragerði og nágrenni var í rénun síðdegis
í gær. Jarðskjálftakippur mældist 4.2 stig um kl 12 á sunnudag
og átti upptök sín um 2 km norðaustur af Hveragerði á svæöi
sem er lítið þekkt að sögn Baröa Þorkelssonar jaröfræðings
Baröi segir að eftir stóra skjálftann f
gær hafl dregið noldcuð úr skjálfta-
virkni en hún hafi svo aukist aftur á
sunnudagskvöld. „Síðan hefúr ver-
ið að draga jafnt og þétt úr þessu“,
segir Barði og nefnir að síðdegis í
gær hafi aðelns mælst einn jarð-
skjálftakippur á kiukkutíma. „Þegar
mest var í gær mældust á milli 30
og 40 sl^álftar á minútu og þelr
voru einnig stærri", segir Barðí.
Þess má geta að þeir skjálftar sem
mældust í gær voru um 1 stíg á
richter að styrkleika en þeir sem
mæidust á sunnudagskvöid voru
um 2.5 stíg.
Barði segir að ílestir skjálftamir
hafi átt upptök sín í nágrenni
Hveragerðis en þó hafi nokkrir átt
rætur að rekja niður í Ölfus. Hann
bætír við að þetta skjálftasvæði sé í
rauninni títið þekkt Barði segir að
svokaflað Suðuriandsþvergengis-
belti sé sunnan við þetta svæði en
þar átti stóri Suðutiandsskjálftinn
upptÖk sín rétt fyrir síðustu alda-
mót
Barði á frekar von á að á næstu
dægrum muni enn draga úr
skjálftavirkninnL
Hámarksafli Færeyinga á íslandsmiðum skorinn niður úr 6500 tonn-
um í 6 þúsund tonn:
Þorskkvótinn
skertur um 30%
Á næsta ári verður Færeyingum heimilt að veiða alls 6 þúsund tonn
af botnfíski í íslenskri fískveiðilögsögu í stað 6500 tonna á yfír-
standandi ári. Þar af má þorskur ekki vera meiri en 700 tonn og
lúðuafli ekki meiri en 400 tonn.
í ár höfðu Færeyingar heimild til að
veiða 1000 tonn af þorski og 450
tonn af lúðu og því nemur skerðing-
in í þorskveiðiheimildum um 30%
en í heild eru veiðiheimildir þeirra
skertar um 10%.
Jafnframt er kveðið á um þau „ný-
Þetta er 80 tonnum meiri afli en í fyrra
en þá nam ársafli skipsins 6.020 tonn-
um. Hins vegar var aflaverðmætið
mun minna eða 430 milljónir króna á
móti 510 miljónum í fyrra.
Páll Breiðfjörð Eyjólfsson skipstjóri
segir að þessi munur á aflaverðmæti á
miili ára stafi fyrst og fremst af verð-
lækkun afurða. Þá sé hlutur úthaf-
skarfans mun meiri en í fyrra eða 3200
tonn á móti 1500 tonnum. Páll segir að
þorskkvóti Haraldar í ár hafi veriö skor-
inn niður um 100 tonn eða úr 520
tonnum í 420 tonn. „Þessi kvóti okkar í
þorski er svo lítill að hann rétt dugar í
.:■ >&'. '
eysk línu-og handfæraskip stunda
samtímis veiðar hér við land „til að
forðast þrengsli á veiðislóð", eins og
segir í frétt frá sjávarútvegsráðu-
neytinu.
Á móti fá íslensk skip heimild til að
veiða eitt þúsund tonn af makríl og
tvö þúsund tonn af síld í lögsögu
einn túr.“
í ár hófst úthafskarfavertíðin á Haraldi
um mánaðamótin mars-apríl og stóð
allt til byrjunar september. Búist er við
að vertíðin á næsta ári standi jafnvel
enn lengur.
Páll segir að úr því að þeim hafi
heppnast að verða aflahæstir annað ár-
ið í röð sé ekki annað hægt en að stefna
á það þriðja. Lagt verður í ‘ann á nýju
ári strax þann 2. janúar n.k. undir
stjóm Eiríks Ragnarssonar fyrsta stýri-
manns sem Páll þakkar ekki síður
hversu vel hefúr gengið, auk samstilltr-
aráhafnar. -grt>
Færeyinga á næsta ári og er það
sama magn og þeim var heimilt að
veiða á yfirstandandi ári. Tilrauna-
veiðar íslenskra skipa á þessum fisk-
tegundum í færeyskri landhelgi
bám þó engan árangur í ár og að
mati Færeyinga var það m.a. vegna
þess að þær fóm fram á „óheppileg-
um tíma“.
Þessi ákvörðun um veiðar fær-
eyskra skipa innan íslenskrar fisk-
veiðilögsögu er samkvæmt sam-
komulagi um aðstöðu Færeyinga til
fiskveiða við ísland frá árinu 1976,
og eins og því var breytt með bókun
frá árinu 1984. -grh
Annasamt á
Akranesi
Líkamsárásir, innbrot, skemmd-
arverk o.fL var meðal þess sem
lögreglan á Akranesi átti við að
striða aðfaranótt sunnudags.
Svo virðist sem jólahaldið hafi
farið tila í nokkra unga skaga-
menn. Fimmtán ára ptitur lagði
til jafnaldra síns með hnífi og
kom lagið í hönd hans og var
hann fluttur á sjúkrahús. Brot-
ist var inn á bíiaverstæði í bæn-
um og stolið smámynt. Þá var
ungur piltur tekinn fyrir neyslu
fíkniefna. Einnig bar talsvert á
rúðubrotum og skemmdarverk-
um í miðbænum.
rnæli" að ekki megi fleiri en 12 fær-
Frystitogarinn Haraldur Kristjánsson HF 2, aflahæsta
skip flotans með 6100 tonn.
Á TOPPNUM ANN-
AÐ ÁRIÐ í RÖÐ
Frystitogarinn Haraldur Kristjánsson HF 2 frá Hafnarfírði var afla-
hæsta skip fíotans í ár með 6100 tonn og er þetta annað árið í röð
sem togarinn og áhöfn hans eru á toppnum, en hásetahluturinn
nemur um 4,3 milljónum króna.