Tíminn - 29.12.1992, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.12.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 29. desember 1992 Tíminn 7 Björn Þ. Guðmundsson, lagaprófessor, hefur sent utanríkismálanefnd formlega greinargerð um EES-málið: Fyrsta grein frumvarps- ins meiningarleysa? MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Stöðupróf í framhaldsskólum Stöðupróf í framhaldsskólum í byrjun vorannar 1993 verða sem hér segir: Björn Þ. Guðmundsson, lagaprófessor, hefur sent utanríkismálanefnd ítar- lega greinargerð um lögfræðilega stöðu EES-samningsins eftir að Sviss hafnaði að gerast aðili að honum. Björn segir að halda megi því fram að fyrsta grein frumvarps til staðfestingar á EES-samningnum sé meiningar- ieysa. Hann nefnir til Hæstaréttardóm frá árinu 1950, en í honum felst að dómstólar séu ekki skyldugir að dæma eftir lagaákvæðum sem séu mein- ingarleysa. Meginrök Bjöms eru þau að 1. grein samningsins taki strax gildi og samningurinn hefur verið sam- þykktur á Alþingi. Um sé að ræða þann samningstexta sem samþykkt- ur var í Óportó 2. maí 1992. Það sé hins vegar ljóst að sá texti eigi eftir að taka breytingum. Textinn sem undirritaður var í Óportó taki aldrei gildi. Björn vekur athygli á því að sam- kvæmt EES-samningnum merki hugtakið EFTA-ríki: „þau ríki sem eru aðilar að þessum samningi sem einnig eru aðilar að Fríverslunar- samtökum Evrópu (EFTA)“. Aðilar að Fríverslunarsamtökum Evrópu séu sjö, en „EFTA-ríki“ í skilningi samningsins séu ekki lengur hin sömu þar sem einungis sex þeirra verði aðilar að honum. í 1. grein staðfestingarfrumvarpsins sé hins vegar aðeins talað um „EFTA- ríki“ og um samninginn eins og hann var undirritaður í Óportó hinn 2. maí 1992. í greinargerðinni tínir Björn til nokkur atriði í EES-samningnum sem hann segir að breyta verði nú þegar Ijóst er að Sviss gerist ekki að- ili að samningnum. Samningurinn gerir ráð fyrir að í Eftirlitsstofnun EFTA sitji sjö eftirlitsfulltrúar, skip- aðir af EFTA-ríkjunum með sam- hljóða ákvörðun. Sömuleiðis eigi að sitja sjö fulltrúar frá EFTA- ríkjun- um í EFTA-dómstólnum, einn frá hverju ríki. í samningnum sé ennfremur gert ráð fyrir samráði EFTA-ríkjanna um ákvarðanatöku, stjórnun, fram- kvæmd og samráð vegna samnings- ins. Vettvangur þessa samráðs eigi að vera sérstök nefnd EFTA-ríkj- anna. í tveimur greinum samnings- ins sé beinlínis gert ráð fyrir að „EFTA- ríkin" tali einni röddu. Bjöm segir að Alþingi geti ekki samþykkt hvaða lagatexta sem er. Gera þurfi miklar kröfur bæði til forms og efnis lagasetningar. í þessu sambandi vísar hann til hæstaréttar- dóms frá árinu 1950. Dómurinn varðar mistök við meðferð laga- frumvarps og að dómstólar geti ekki farið eftir lagaákvæði sem er mein- ingarleysa. Björn segir að það megi orða það þannig að 1. grein EES- fmmvarpsins sé meiningarleysa, rétt eins og Hæstiréttur dæmdi í málinu frá 1950. -EÓ Nýlega voru útskrifaðir 52 nemendur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar af 28 stúdentar. Athöfnin fór fram í nýjum sal en í haust var tekin í notkun viðbygging við skólann. Á myndinni er stúdentahópur- inn með skólameistara sínum, Hjálmari Árnasyni. Aldur og meðalþyngd þorskafla eftir veiðarfærum: Netafiskurinn eldri og þyngri Á árunum 1987-1991 veiddist til- tölulega yngsti fískurinn á hand- færi, næst yngstur á línu, þar næst í botnvörpu en net veiddu talsvert eldri físk sem jafnframt var lang þyngstur. Þetta kemur m.a. fram í Útvegi, fréttabréfi Landssambands íslenskra útvegsmanna, samkvæmt saman- tekt Hafrannsóknarstofnunar á ald- ursdreifmgu og meðalþyngd þorsk- afla eftir veiðarfærum. Þá var meðalþyngd þorska í afla ársins 1991 þannig að handfærafisk- urinn var léttastur, næst línufiskur- inn og síðan þorskur sem veiddist í botnvörpu. -grh w Lyfjahópur Félags ísl. stórkaupm.: Akvörðunum heilbrigðis- ráðherra mótmælt Þriðjudaginn 5. janúar Enska Miðvikudaginn 6. janúar Stærðfræði, þýska, franska Fimmtudaginn 7. janúar Spænska, ítalska Föstudaginn 8. janúar Norska, sænska Prófin hefjast öll kl. 18.00. Innritun ferfram á skrifstofu Menntaskólans við Hamrahlíð, sími: 685155. Síðasti innritunardagur er 4. janúar 1993. Embætti skattrannsóknastjóra ríkisins Embætti skattrannsóknastjóra ríkisins er laust til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða vera löggiltir endurskoðendur. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist fjármálaráðuneytinu merktar „staða 250“ fyrir 16. janúar 1993. Fjármálaráðuneytið 23. desember 1992. Jólatréskemmtun í 100 skipti Verslunarmannafélag Reykjavíkur heldur eitthundruðustu jólatrésskemmtunina fyrir börn félagsmanna, sunnudaginn 3. janúar n.k. kl. 15:00 í Perlunni, Öskjuhlíð. Miðaverð er kr. 600.- fyrir böm og kr. 200,- fyrir fullorðna. Miðar verða seldir á skrifstofu V.R. í Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Nánari upplýsingar í síma félagsins 687100. Verslunarmannafélag Reykjavíkur. _Til viÓskiptamanna_ banka og sparisjóóa Lokun 4. janúar og eindagar víxla. Lyfjahópur Félags íslenskra stórkaupmanna mótmælir harðlega þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að skerða tekjur lyfjaheildsala um 20 %. Jafnframt telur hópurinn setu fulltrúa ráðherra í lyfjaverðlagsnefnd ólög- lega og hefur kært það mál til umboðsmanns Alþingis. í frétt frá félaginu segir að staðhæf- ing heilbrigðisráðherra sé röng, að heildsöluálagning lyfja sé 20%. Sagt er að hún sé 13.5% í dag. Skipun Guðjóns Magnússonar, fulltúa ráðherra, í lyfjaverðlags- nefnd er talin ólögleg. Þar er vitnað í lög um verðlagningu tyfja. í 33. gr. segir að ráðherra skuli skipa einn nefndarmann án tilnefningar sem skuli vera „sérfróður um lyfsölu- mál“. Að áliti lyfjahóps LÍS uppfyllir Guðjón Magnússon ekki þessi skil- yrði og hefur að auki bein afskipti af lyfjaverðlagsmálum og úrlausnum um þau, sem staðgengill ráðuneytis- stjóra í heilbrigðisráðuneytinu. Þá er vitnað í nýlegan úrskurð um- boðsmanns Alþingis, þar sem undir- maður Guðjóns var talinn vanhæf- ur. Vegna þessa segir að verði Guð- jón úrskurðaður vanhæfur til setu í nefndinni, muni hópurinn leita allra leiða til að fá tjón sitt bætt, sem leiða mun af afstöðu hans í nefnd- inni Afgreiðslur banka og sparisjóða verða lokaðar mánudaginn 4. janúar 1993. Leiðbeiningar um eindaga víxla um jól og áramót liggja frammi í afgreiðslum. Reykjavík, 7. desember 1992. Samvinnunefnd banka og sparisjóóa

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.