Tíminn - 01.04.1993, Síða 2
2 Tfminn
Fimmtudagur 1. apríl 1993
Kæra Ólafíu Áskelsdóttur vegna uppsagnar
hjá ríkissjónvarpi:
Vísað til
lögmanns
(Jtvarpstjóri hefur þegar hafnað til-
mælum jafnréttisnefndar um að
hann dragi til baka uppsögn Ólafíu
Askelsdóttur hjá Sjónvarpi. Vegna
þess hefur nefndin vísað málinu til
lögmanns.
Ráðhús-
tónleikar
Lúðrasveitin Svanur verður með
vortónleika í ráðhúsi Reykjavíkur á
laugardag 3. aprfl og hefjast þeir kl.
17.
Leikin verður létt tónlist og má þar
nefna Original Dixieland Concerto
eftir John Warrington og The
TVpewriter eftir Leroy Anderson.
Einleikari á ritvél í síðastnefnda
verkinu er Jóhann Gunnarsson.
Þetta kemur ffam í frétt frá jafn-
réttisráði. Þar er bent á niðurstöðu
kærunefndar jafnréttismála þar sem
talið er að brotið hafi verið gegn lög-
um um jafna stöðu og rétt kvenna
og karla með uppsögn Ólafi'u. Þeim
tilmælum er beint til útvarpsstjóra
að hann afturkalli hina ólögmætu
uppsögn eða finni aðra lausn á mál-
inu sem kærandi geti sætt sig við. Þá
er sagt að þar sem útvarpsstjóri hafi
þegar hafnað þessum tilmælum hafi
verið ákveðið að vísa málinu til lög-
manns.
í fréttinni er vikið nokkrum orðum
að umfjöllun fjölmiðla um málið.
Sagt er að málið snúist ekki um kyn-
ferðislega áreitni á vinnustað eins og
komið hafi fram í fjölmiðlum heldur
fjalli um uppsögn úr starfi og skyldu
atvinnurekanda til að búa starfs-
mönnum sínum, konum og körlum,
viðunandi vinnuaðstæður og vinnu-
skilyrði.
,.Við höfum sýnt þessu verkefnl tekínn tíma og í tilraunaskyni tfl forgang og einkum þegar sveitar-
áhuga og teljum að það sé far- að taka að sér framkvæmd nýrra félög á stóru svæði sameinast
sælla að færa stjómunarþáttlnn, verkefna, að vera undanþegin til- Bæjarstjórinn á Akranesi segir
til dæmis í málefnum sjúkrahúss teknum ákvæðum laga og reglu- að þótt sameining við önnur
og heilsugæslu, fatlaðra, grunn- gerða sem kveða á um skyldur sveitarfélög sé ekki uppá borðinu
skóians og jafnvel framhaldsskól- sveitarstjóma og takmarka sé Akranesbær vel yfir öllum
ans, nær fólkinu en að hafa hann ákvörðunarvald þeirra, að reyna stuðlum hvaö varðar stærð.
í ráðuneytum. Auk þess teljum nýtt rekstrar- og fjármögnunar- Einnig sé mjög skynsamleg
við að tilfærsla þcssara veritefna fyiirkomulag í tílteknum mála- stefna að stuðla að fækkun og
til sveitarfélagsins og margfbld- flokkum og þróa nýjungar í stækkun sveitarfélaga, úr nokkr-
unarahrif þess geti stuðlað að stjómsýslu. um hundrðum í 30-35, og telur
0ölgun atvinnutækifæra innan Fyrir utan Skagamenn hafa bæjarstjómin að hlutaðeigandi
bæjarfélagsins og muni efla gras- sveitarstjómarmenn á norðan- aðilar eigi ekki að vera hræddir
rótarlýðræðið á kostnað svo- verðum Vestfjörðum sýnt áhuga á \nð breytingar þótt þær kunni að
nefndra kerfiskaria," segir Gísli að vera með í þessari tilraun, vera stórar í sniðum.
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi. einnig bæjarstjóm Hafnarfjarðar, Jafnframt sé stofnun reynslu-
í lokaskýrslu sveitarfélaga- Skagfirðingar, Rangárvallasýsla, sveitarfélaga ein leið til að stuðla
nefndar er lagt til að unnið verði A- Skaftafellssýsla og jafnvel að frekari tilfærslum opinberra
að stofnun fimm reynsluswitar- fleiri. HJnsvegar munu þau sveit- stofnana frá höfuðborgarsvæð-
félaga þannig að sveitarfélög fái á arfélög sem sækja um verkefnið í inu.
grundvelli umsókna heimiid í til- tengslum við sameiningu hafa -grh
Lionsklúbbur gefur börnum endurskinsborða:
Bart Simpson á Hólmavík
Kirkjukór Hólmavíkur á æfingu á kórtoftinu í Hólmavíkurkirkju. Stjómandi kórsins, Krisztína Szklenár
við oraelfö.
Kirkjukór Hólmavíkur undirbýr utanlandsferð í vor:
Hólmvíkingar fara
til Ungverjalands
Seint í júní mun kirkjukór Hólmavíkur halda í tónleika- og skemmtiferð til
Ungvetjalands og stendur undirfoúningur nú sem hæst.
Þegar fréttaritari Tímans leit við á
kórloftinu í Hólmavíkurkirkju eitt
kvöldið í vikunni var kirkjukórinn
þar á æfingu en kórinn hefur æft
tvisvar í viku í allan vetur.
Ungverjalandsferðin í vor verður
fyrsta utanlandsferð kórsins en á
undanfömum árum hefur kórinn
sungið á nokkrum stöðum hérlend-
is. Lagt verður upp í ferðina þann
19. júní og komið heim tíu dögum
síðar. Helsti viðkomustaður kórsins
í ferðinni verður borgin Györ en hún
er ein af stærstu borgum Ungverja-
lands. Einnig verða aðrir landshlut-
ar skoðaðir, svo og tónlistarborgin
Vín í Austurríki.
Reiknað er með að um þrjátíu kór-
félagar taki þátt í Ungverjalandsferð-
inni en með mökum og öðmm fylgi-
fiskum verða ferðafélagarnir nærri
fimmtíu talsins eða um 10% af íbú-
um Hólmavíkurhrepps.
Stjómandi Kirkjukórs Hólmavíkur
er Krisztína Szklenár en hún tók við
kómum haustið 1990 þegar hún var
ráðin skólastjóri Tónskóla Hólma-
víkur- og Kirkjubólshreppa. Krisz-
tína er frá Györ og verður hún farar-
stjóri í Ungverjalandsferðinni ásamt
eiginmanni sínum, Zoltán Szklenár
tónlistarkennara. Formaður Kirkju-
kórs Hólmavíkur er Bima Richards-
dóttir.
Texti og myndir:
Stefán Gíslason, fréttaritari
Tímans á Hólmavik.
Á dögunum heimsótti fulltrúi
Lionsklúbbs Hólmavíkur yngstu
bekki grunnskólans á staðnum í lög-
reglufylgd og færði nemendum end-
urskinsborða að gjöf. Framvegis
mun Lionsklúbburinn gefa nem-
endum 1. bekkjar endurskinsborða
árlega þannig að böm á Hólmavík
ættu að sjást vel í skammdegis-
myrkri næstu ára.
Bart Simpson slóst í för með Lions-
manninum og lögreglumanninum
og heimsótti skólabömin í tilefni af
afhendingu endurskinsborðanna.
Næstu vikur mun Bart halda til í
skólanum á Hólmavík og dveljast í
viku í senn í þeim bekk sem hefur
verið duglegastur við að bera endur-
skinsborða daginn á undan. Þessa
dagana gæta bömin þess vel að
borðamir séu á sínum stað þegar
lagt er af stað í skólann því að flest
vilja njóta nærveru Barts sem
lengst
Nemendur 1. bekkjar grunnskólans á Hólmavík með nýju endur-
skinsborðana frá Lionsklúbbnum. í öftustu röðinni eru Benedikt G.
Grímsson Lionsmaður, Bart Simpson, Höskuldur B. Erlingsson
lögreglumaöur og Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir kennari 1. bekkjar.
Höskuldur B. Erlingsson, lögregluvarðstjóri á Hólmavík, með nýja
endurskinsborða frá Lionsklúbbnum.