Tíminn - 01.04.1993, Síða 3
Fimmtudagur 1. apríl 1993
Tíminn 3
Þingmenn Framsóknarflokks leggja fram frumvarp um eftirlaunasjóði:
Valfrelsi í lífeyris-
kerfinu verði aukið
Cuöni Ágústsson, Finnur Ingólfsson og Halldór Ásgrímsson, þingmenn
Framsóknarílokksins, hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um eftirlaunarétt-
indi launafólks. í því er gert ráð fyrir að allt launafólk greiði í eftirlaunasjóð
en velji eftiriaunasjóðinn sjálft og jafnframt þá lágmarksvátiyggingavernd
sem henti að tilteknu lágmarki slepptu.
Frumvarpið er ítarlegt, upp á 48
greinar, og því fylgir ítarleg greinar-
gerð. Að samningu þess hafa komið
margir sérfræðingar.
Frumvarpið kveður á um stofnun
svokallaðra eftirlaunasjóða sem hafa
það í fyrsta lagi eingöngu að mark-
miði að veita viðtöku eftirlauna-
framlögum frá launamönnum til
sameiginlegra fjárfestinga í verð-
bréfúm eða fasteignum samkvæmt
fyrirfram kunngerðri fjárfestinga-
stefnu og sjá launamönnum fyrir vá-
tryggingavemd samkvæmt reglu-
gerð viðkomandi eftirlaunasjóðs. í
öðru lagi er það markmið eftirlauna-
sjóðs að greiða launamanni eftir-
laun og vátryggingabætur eftir þeim
reglum sem fram koma í reglugerð
viðkomandi sjóðs. Gert er ráð fyrir
að eftirlaunasjóður kaupi lágmarks-
vátryggingavemd sem er skylda
samkvæmt frumvarpinu eða víðtæk-
ari vemd af vátrygginga- eða líf-
tryggingafélagi.
Fmmvarpið gerir ráð fyrir að eftir-
launaframlagið verði 13% en það er
nú 10%. Það gerir einnig ráð fýrir að
tvísköttun verði hætt, þ.e. að launa-
maður greiði skatta af bæði tekjum
og eftirlaunum. Gert er ráð fyrir að
framlag launamanns í eftirlaunasjóð
verði undanþegið tekjuskatti. Verði
eftirlaunaframlag launþega 7% mun
það kosta ríkissjóð 2,5 milljarða. í
greinargerð með frumvarpinu er
bent á að hægt sé að fara þá leið að
minnka þetta framlag með því að
beina framlagi launafólks í sjúkra-
sjóð og orlofsheimilasjóð inn í eftir-
launasjóð.
Eignir mjög margra þeirra 88 líf-
eyrissjóða sem nú starfa standa ekki
undir skuldbindingum sjóðanna og
engar lfkur em á að þeir geti unnið
sig út úr vandanum með óbreyttu
kerfi.
111 að gefa innsýn í þann vanda
sem lífeyrissjóðakerfið stendur
frammi fyrir má nefna að spár um
fjölda 65 ára sem hlutfall af vinnu-
fæm fólki á íslandi sýna að hlutfallið
verður 33% árið 2040 en er um 16%
í dag. Fmmvarp Guðna tekur ekki á
þessum vanda. Um ástæður þess
segir í greinargerð með frumvarp-
inu að í mörgum tilvikum sé litið á
ábyrgðir sem launa- eða starfskjör
launamanna. í greinargerðinni er
hins vegar bent á þær leiðir sem
færar em, þ.e. skerðingu réttinda,
hækkun iðgjalda og lækkun kostn-
aðar.
í árslok 1991 áttu lífeyrissjóðimir
eignir upp á 157,5 milljarða króna.
Iðgjöld það ár námu 14,5 milljörð-
um og vaxtatekjur 11,4 milljörðum,
Útgreiðslur árið 1991 námu 7,4
milljörðum og ráðstöfunartekjur
ársins námu því 29,5 milljörðum.
-EÓ
Hjálparstofnun kirkjunnar kynnir páskasöfnun:
Aðstoð við konur og börn
Hjálparstofnun kirkjunnar kynnti í gær páskasöfnun til að hjálpa konum og
börnum í Júgóslavíu. Markmiðið er að safna nærri 800 þúsund krónum til
kaupa á varhlut í sónartæki. Þannig tæki er nauðsynlegt til alhliða skoðun-
ar á konum sem hefur verið nauðgað. Greiðsluseðlum að upphæð 700 kr.
hefur veríð dreift inn á öll heimili í landinu.
Á fundinum kom fram að giskað er
á að milli 20 til 70.000 konum hafi
verið nauðgað í stý’rjöldinni og þá að-
allega múslimakonum. Jónas Þóris-
son, framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar, er nýlega kominn heim
frá Júgóslavíu og að hans áliti er
ástandið skelfilegt. Hann segir að
þessu til viðbótar eigi um 650.000
flóttamenn vart til hnífs og skeiðar.
Jónas segir að hjálp íslendinga
hingað til hafi tekist mjög vel og rík-
isframlag hafi m.a. verið notað til að
gera upp skóla í Króatíu.
Jónas vitnar til læknis sem hann
hitti í Króatíu. Sá hafði haft með
höndum um 200 konur sem hafði
verið nauðgað. „Læknirinn sagði
okkur frá „nýjasta tilfellinu" en það
var 16 ára stúlka sem hafði komið
fótgangandi yfir stóran hluta Bosníu.
Hún var ófrísk og komin á fjórða
mánuð og henni hafði verið nauðgað
ásamt öðrum allt að sjö sinnum á
dag. Hún var í fangabúðum þar sem
vörubílsfarmar af hermönnum komu
daglega," segir Jónas.
Hann segir að þessar konur eigi
ekki aftukvæmt í sitt fyrra samfélag
og gangi þær með böm undir belti
muni þær hafna þeim þegar þau fæð-
ast. Hann segir að mikinn tíma og
mikla sérfræðiaðstoð þurfi til að gera
þessum konum lífið bærilegt á ný og
það sé langtímasöfnunarmarkmið
hjálparstofnana.
„Tilbúinn í verkfall," segir Gunnar Guðmundsson:
Dagsbrún þarf
aö brjóta ísinn
JÉg er tilbúinn að fara í verkfall
vegna þess að það er ekki hægt að
láta núverandi ástand viðgangast
iengur, þessa kúgun og ofstæki í
ríkisstjóminni. Menn eru hræddir
og það þarf einhvera til að bijóta
ísinn og Dagsbrún er best til þess,“
segir Gunnar Guðmundsson,
verkamaður hjá Rafmagnsveitunni.
Gunnar segir að það muni síðan
koma í ljós hvort verkfall skilar hon-
um og félögum hans einhverjum
kjarabótum. Honum finnst samn-
ingaviðræður aðila vinnumarkaðar-
ins hafa gengið bæði hægt og illa og
dauft yfir þessu öllu.
„Nei, ég hef ekki farið áður í verk-
fall og trúlega er það rétt að það sé
heil kynslóð Dagsbrúnarmanna sem
ekki hefur tekið þátt í verkföllum.“
Gunnar segir að ef stjóm Dags-
brúnar ákveði að notfæra sér heim-
ild til verkfalls og Iáti sverfa til stáls,
sé ekki ólíklegt að félagið verði að
standa eigin fótum í þeim slag.
„Það verður sundmng í þessu og þá
sérstaklega eftir að félagsmenn í
BSRB og KÍ höfnuðu að veita stjóm-
um sínum heimild til verkfellsboð-
unar.“
Gunnar Guðmundsson.
Timamynd Aml Bjama
Gunnar segir að sér gangi afar illa
að lifa af launum sínum og sé alltaf í
mfnus. Þótt vinnan hafi minnkað ei-
lítið hefur hans vinnuveitandi ekki
notfært sér slæmt atvinnuástand til
að ganga á kaup og kjör starfsmanna
né á önnur samningsbundin og
áunnin réttindi. -grh
segir Halldór Guðmundsson verkamaður:
ENGU AÐ TAPA
„Ég vil verkfall,
Halldór Guðmundsson.
Timamynd Aml BJama
„Ég vil í raun og veru fara í verkfall því
ég hef engu að tapa, allt að vinna. Ég er
jafnvei sjálfur að missa vinnuna og eitt-
hvað verður maður að gera," segir Hall-
dór Guðmundsson verkmaður.
Halldór vinnur í öskunni hjá Þorbimi
Tómassyni verktaka sem er með Kópa-
vog, Garðabæ, Seltjamames og Mos-
fellsbæ. Halldór segir að í öskunni, sorp-
inu, séu menn femir að undirbjóða
hverjir aðra og á þann hátt notfæri bæj-
arfélögin sér erfitt atvinnuástand til að
ná hagstæðari samningum við verktaka.
Halldór segist aldrei áður hafe tekið
þátt í verkfalli og auðvitað sé það spum-
ing hvort eitthvað muni vinnast með
slíkri aðgerð. Það sé þó í lagi að prófa
það í núverandi stöðu. Hann segist ekki
eiga von á því að nokkuð komi út úr yfir-
standandi samningaviðræðum og telur
að samþykkt félagsfundar Dagsbrúnar
um heimild til verkfallsboðunar kunni
að kveikja í öðmm félögum. Hann leig-
ir íbúð og greiðir fyrir hana 35 þúsund
krónur á mánuði. „Ég er á sléttu um
hver mánaðamót og þarf yfirleitt strax
að fá stóra upphæð í fyrirframgreiðslu.“
-grh
Skíðavikan á ísafirði
1993
Rútuferðir miðvikudaginn 7. apríl frá Akureyri kl. 9,30 og
frá BSl Reykjavík kl. 10,00. Til baka mánudaginn 12.
apríl kl. 12,30. Einnig verður boðið upp á ódýran flutning
á snjósleðum úr Reykjavík og gistingu.
Á ísafirði verður margt um að vera þessa páskaviku, eins
og t.d. Vélsleðamót, Páskaeggjamót, Furðufatadagur,
Skíðagönguferðir, Flugeldasýning, Siglingu um Isafjarð-
ardjúp, Leiksýning, Garpamót, Fonduekvöld í Skíðheim-
um, Fjölskylduferð með snjóþotum og vélsleðum, Torg-
sala, Flóamarkaður og Skíðaleiga.
Á kvöldin verður áfram endalaust fjör með SSSól og KK
Band, Unglingaskemmtun, Karaokekeppni, Kvöldvökur,
Dansleikir, Pöbbakvöld í Krúsinni, Sjallanum, Víkurbæ,
Vagninum, Frábæ og Hótel ísafirði.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Allrahanda í síma
67 13 13. Athugið að pantanir þurfa að berast tímanlega
í gistingu og snjósleðaflutninga.
Lausar kennarastöður
haustið 1993
Flensborgarskólinn óskar að ráða kennara í eftirtaldar
greinar á næsta skólaári: Eðlisfræði, stærðfræði, dönsku
(forföll) og þýsku (forföll).
Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Nánari upplýsingar veita skólameistari og aðstoðarskóla-
meistari i síma 650400. Heimasímar 50560 og 24172.
Skólameistari.